Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1992, Síða 10
10
LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1992.
Ferð án enda
★J/a
★★★ Vi
★ */a
Einn á móti
A KILLER AMONG US
Útgefandi: Bergvik hf.
Leikstjóri: Peter Levin.
Aóalhlutverk: Jasmine Guy, Dwight
Schultz og Anna Maria Horsford.
Bandarisk, 1990 - sýningartimi 100 min.
í Bandaríkjunum er ávallt skip-
aður kviðdómur óbreyttra borgara
í dómsmálum sem kveður síðan
upp úrskurð í lok málaferla. í A
Killer Among Us er slíkur kvið-
dómur í hnotskurn. í morðmáli þar
sem eiginmaður á að hafa myrt eig-
inkonu sína eru allir kviðdómend-
ur sannfærðir um sekt hins ákærða
nema einn, Teresa Hopkins, sem
er viss um að sá ákærði er sak-
laus. Þrátt fyrir þrýsting annarra
kviödómenda lætur hún ekki und-
an síga. Þessi afstaöa hennar nægir
til að ekki er hægt að dæma þann
ákærða. Hopkins fer út í einka-
rannsókn á morðmáhnu sem leiðir
hana í óvænta átt.
A Killer Among Us er sæmileg
aíþreying en ekki mikið meira.
Söguþráðurinn er ekki mjög sann-
færandi. Sjónvarpsstjarnan Jam-
ine Guy leikur aðalhlutverkið og
gerir persónunni ágæt skil.
Myndbönd
Steppdans
STEPPING OUT
Útgefandi: ClC-myndbönd.
Leikstjóri: Lewis Gilbert.
Aóalhlutverk: Liza Minnelli, Julie Walt-
ers, Shelley Winters og Bill Irwin.
Bandarisk, 1991 -sýningartími 94 mín. ,
Leyfð öllum aldurshópum.
Þrátt fyrir mikla hæfileika og
langan leikferil hefur Liza Minnelli
aðeins leikið í tveimur virkilega
góðum kvikmyndum, Cabaret og
Arthur. Að öðru leyti eru kvik-
myndir hennar frekar slakar og
sumar hræðilegar. Ekki verður
Stepping Out til að auka hróður
hennar. Minnelli leikur danskenn-
ara sem er að æfa hóp misgóðra
dansara fyrir sýningu.
Það sem heldur Stepping Out á
floti eru dansatriðin og dansæfing-
arnar sem er ágæt skemmtun.
Söguþráðurinn í kringum persón-
urnar er aftur á móti mjög slakur
og væminn. Og undrar þaö mig að
textinn skuli vera gerður eftir leik-
riti. Leikstjórinn gamalkunni,
Lewis Gilbert, sem gerði hinar
ágætu kvikmyndir Shirley Valent-
ine og Educating Rita, sem einnig
voru gerðar eftir leikritum, er langt
frá sínu besta sem og margir þekkt-
ir leikarar er koma fram í mynd-
inni.
THE SHELTERING SKY
Útgefandi: Steinar hf.
Leiksfjóri: Bernardo Bertolucci.
Aðalhlutverk: Debra Winger, John
Malcovich og Canpell Scott.
Bandarisk, 1991 -sýningartími 132 mín.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Oft er sagt um vissar skáldsögur
sem öðlast hafa frægð að ekki sé
hægt að gera kvikmynd úr þeim.
Ein shk er The Sheltering Sky eftir
Paul Bowles sem kom út 1949. Það
hefur komiö th tals í gegnum árin
að kvikmynda þessa bók, en allir
guggnað á því, þar til Bernardo
Bertolucci fannst það verðugt
verkefni eftir aö The Last Emperor
hafði sigrað heiminn.
Þrátt fyrir heiðarlega tilraun
verður að segjast eins og er að The
Sheltering Sky nær aldrei að rísa
upp í þær hæðir snilldar sem búist
var við fyrirfram og sú staðhæfing
að ekki sé hægt að kvikmynda
skáldsöguna kannski sönn.
í byrjun myndarinnar fylgjumst
við meö þremur persónum Port og
Kit Moresby (John Malcovich og
Debra Winger) og George Tunner
(Campell Scott) standa í sólskininu
á höfninni í Tangier í Afríku. í bak-
grunninum er skipið sem kom með
þau að hverfa á braut og um leið
er fortíðin aö baki. Moresby hjónin
eru sem sagt komin til að reyna að
bjarga hjónabandi þeirra frá glötun
en Tunner virðist aðeins vera í
skemmtanaleit.
DV-myndbandalistiim
Ran og morð
HOMICIDE
Útgefandi: Biómyndir.
Leikstjóri: David Mamet.
Aðalhlutverk: Joe Mantegna og William
H. Macy.
Bandarísk, 1991 -sýningartimi97min.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Homicide er þriðja kvikmynd
leikskáldsins, handritshöfundar-
ins og leikstjórans David Mamet.
Aðalpersóna myndarinnar er Bob
Gold rannsóknarlögreglumaður
sem er harður í horn að taka og á
eingöngu vini meðal starfsfélaga.
Hann er gyðingur en er htið hreyk-
inn af þeirri staðreynd og vih ekki
umgangast aðra gyðinga. Þegar
myndin hefst er hann á kafi í rann-
sókn á stórmáh. Hann verður því
ekki hrifinn þegar hann er settur
í að rannsaka morð og rán á gam-
alli gyðingakonu. AUt í einu er
hann minntur á uppruna sinn og
kemur það viö kaunin á honum.
Máhð, sem virðist auðvelt í fyrstu,
vefur upp á sig og það verður loks
að áráttu hjá Gold að fá lausn,
Handrit Mamets er mjög vel
skrifað og nokkur spenna er í
myndinni þótt það sé greinilega
jafn mikhvægt hjá Mamet að koma
tU skila tvískinnungshætti í mann-
legu eðh eins og að gera spennu-
mynd. Joe Mantegna er góður í
hlutverki Golds og skapar sterka
persónu. Aðrir leikarar standa sig
einnig með prýði. Helsti galh
myndarinnar er endirinn en Ma-
met skUur dáhtið við myndina í
lausu .löfti.
-HK
Terminator II
Backdraft
Toy Soldier
Tt)e Commitments
The Hard Way
Teen Agent
Fjörkáifar
Quigiey down under
Regarding Henry
Silence of the Lambs
Shattered
Defending Your Life
Hudson Hawk
The Sheltering Sky
Cyrano de Bergerac
Svört tónlist í Dublin
\ One wonun's danáerous and
erotfe joumey beneath tbc Sheltering Sky
Fímm nýjar myndir koma inn á listann þessa vikuna og er fjallað
um eina þeirra, The Commitments, hér að neðan. Á myndinni er
hljómsveitin að leika með söngvarann Deco (Andrew Strong) fremst-
an < flokki.
1(1)
2(2)
3(-)
4 (■)
f 5(4)
6(3)
7(6)
8(5)
9(-)
10(7)
11 (8)
12 (-)
13 (12)
14 (*)
15(9)
THE COMMITMENTS
Útgefandi: Skifan.
Leiksljóri: Alan Parker.
Aóalhlutverk: Robert Arkins, Andrew
Strong og Johnny Murphy.
Bresk, 1991 - sýningartími 114 mín.
Leyfð öllum aldurshópum.
Alan Parker hefur einstakt lag á
að gera vel heppnaðar tónhstar-
myndir. The Commitments er
sönnun þess, stórkostleg tónhstar-
veisla í skemmtUegum umbúðum.
Áður hefur Parker gert jafn ólíkar
tónlistarmyndir og Bugsy Malone,
Fame og Pink Floyd, The Wall og
eitt er víst The Commitments er
ekkert lík fyrrnefndum kvikmynd-
um.
Myndin gerist í Dubhn. Jimmy
Rabbit er ungur maður með hug-
sjón, sú hugsjón er að koma á fót
soul-hljómsveit í Dubiin. Þegar
tveir vinir hans biðja hann um að
stofna hljómsveit fyrir þá og verða
umboðsmaður sér hann sæng sína
útbreidda og safnar Uði skrautlegra
og ólíkra ungmenna sem eru mis-
langt komin í tónhstinni. Mesti
fengur hans er í hinum stórkarla-
lega söngvara Deco og trompetleik-
aranum Joey „The Lips“ Fagan
sem að eigin sögn hefur leikið með
öllum frægustu soul-mönnum.
Fagan sker sig frá hópnum. Hann
er elstur og gæti veriö pabbi alira
hinna.
Æfingar hefjast og þótt hver
höndin sé upp á móti annarri í
hljómsveitinni þá tekst á einhvem
óskiljanlegan hátt að búa til góða
sveit sem hrífur fjöldann með sér.
Afrek Parkers og félaga hans er
mikið. Þeir renndu blint í aö gera
þessa mynd, auglýstu eftir óreynd-
um leikurum með tónlist sem
áhugamál og útkoman er þegar upp
er staðiö aldeilis frábær mynd sem
hefur mikið skemmtanagildi.
Tónhstin skiptir rniklu máli og
þótt púritanar á soultónlist finnist
htið th um hljómsveitina The
Commitments sem slíka, telji að-
eins að um sé að ræða eftiröpun,
þá gerir hún svo sannarlega sitt
gagn í kvikmyndinni og hjálpar til
að gera The Commitments aö ein-
hverri skemmtilegustu kvikmynd
síðasta árs.
-HK
Ferðalangarnir þrír nýkomnir til Tangier. Talið frá vinstri: Campell
Scott, Debra Winger og John Malcivich.
í stað þess að endurbyggja þá ást
sem einkenndi samband Port og
Kit á fyrstu árum sambúðar þeirra
verður afrískt umhverfi og ferðalag
þeirra um Sahara eyðimörkina að-
eins th þess aö þau fiarlægjast
meira hvort annað. Og í Sahara
eyðimörkinni nær hin mikla auðn
og hinn gífurlegi hiti tökum á þeim
og líf þeirra breytist smátt og smátt
í martröð sem þau óraði aldrei fyr-
ir að ætti eftir aö henda þau.
The Sheltering Sky er óhemju
fógur á að hta. Kvikmyndataka
Vittorio Storaro er mögnuð og ör-
ugglega besti hluti kvikmyndar-
innar. En söguþráðurinn er þung-
meltur og smitar út frá sér og þrátt
fyrir að Debra Winger og John
Malcovich leggi sig fram ná þau
aldrei að gera Port og Kit trúverð-
ugt par í leit að ástinni.
-HK
★★*/2