Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1992, Qupperneq 10
10
LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1992.
Iifandisögupersóna
WRITER’S BLOCK
Útgefandl: ClC-myndbönd.
Leikstjóri: Charles Correll.
Aðalhlutverk: Morgan Fairchild, Mlcha-
el Praed og Joe Regalbuto.
Bandarisk, 1991 - sýningartimi 87 mín.
Bönnuö börnum innan 16 ára.
Einstaka kvikmyndir eru óskilj-
anlegar og er Writer’s Block ein
þeirra. Byrjunin lofar að vísu góðu.
Skáldkonan Magenta Hart hefur
oröið fræg vegna þess að hún lætur
aðalpersónu sína, fjöldamorðingja,
lifa í bókarlok. Nú viU útgefandi
skáldkonunnar að hún drepi þessa
persónu sína en það veitist henni
mjög erfitt. Þegar morð eru framin
í nýjustu bók hennar ímyndar hún
sér að sögupersóna hennar hafi
lifnað við og satt best aö segja verð-
ur myndin óskiljanleg eftir því sem
meira líður á myndina og er ekki
annað að sjá en að ein aðalpersón-
an í myndinni hafi aldrei verið til.
Læknir í vandraeðum
Grimmörlög
THE RAILWAY STATION MAN
Útgefandi: Skífan.
Leikstjóri: Michael Whyte.
Aöalhlutverk: Julie Christie og Donald
Sutherland.
Bresk, 1991 - sýningartími 96 mín.
Leyfö öllum aldurshópum.
Sjálfsagt muna margir eftir
mögnuðum leik þeirra Juiie
Christie og Donald Sutherland í
einni eftirminnilegustu sakamála-
mynd síðari tíma, Don’t Look Now.
Sú mynd kemur ósjálfrátt upp í
huga manns þegar maður sér nöfn
þeirra hliö við hlið í The Railway
Station. Sú mynd er samt allt öðru
vísi en Dont Look Now. Hér er um
að ræða dramatíska sögu sem ger-
ist á írlandi í skugga hryðjuverka.
Julie Christie leikur Ustakonuna
Helen Cuffe sem býr ein ásamt syni
á unglingsaldri. Eiginmaður henn-
ar hafði verið drepinn fyrir mis-
skilning. Hún er vör um sig en rýf-
ur einangrun sína þegar hún kynn-
ist Bandaríkjamanninum Roger
Hawthorne sem hefur þaö að
áhugamáli að gera upp gamlar
jámbrautarstöðvar. í hinu fá-
menna þorpi, sem Cuffe býr í, er
Hawthorne áhtinn skrýtinn, en
Cuffe laðast samt að honum en um
leið gerir hún sér ekki grein fyrir
því að sonur hennar er komin á
kaf í starfsemi IRA.
The Raiiway Station er áhrifa-
mikil og hiö hrjóstuga landslag,
sem vel gæti veriö íslenskt, setur
sterkan svip á myndina. JuUe
Christie er mjög góð í hlutverki
sínu en því miður er ekki hægt að
segja þaö sama um Donald Suther-
land sem á í erfiðleikum með aö
nálgast persónu sína.
-HK
Villtirbræður
THE SACKETTS
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Robert Totten.
Aöalhlutverk: Sam Elliott, Tom Selleck,
Jeff Osterhage, Glenn Ford og Ben
Johnson.
Bandarísk, 1979 - sýningartimi 187 min.
Leyfð öllum aldurshópum.
Það eru ekki margir vestrar gerð-
ir í dag og þótt The Sacketts sé svo
sannarlega ekta vestri þá er hún
komin til ára sinna, gerð 1979. En
fyrir aUa aðdáendur gömlu vestr-
anna ætti hún að vera kærkomin.
í þessari löngu míniseríu fyigj-
umst við með þremur bræðrum á
ferö þeirra um hættulegar slóðir
viUta vestursins og þeim mörgu
ævintýrum sem þeir lenda í.
The Sacetts er gerð eftir tveimur
skáldsögum þekktasta vestrahöf-
undar síðari tíma, Louis L’Am'our,
og þótt handritið og myndin í heild
sé uppfull af gömium klisjum þá
má hafa gaman af.
Af þeim bræðrum er Tom Selleck
geöþekkastur og einnig sá leikar-
anna sem hefur húmor fyrir hlut-
verkinu. Margir þekktir leikarar
úr óteljandi vestramyndum leika
aukahlutverk, má þar nefna, Glenn
Ford, SUm Pickens, Ben Johnson,
Jack Elam og GUbert Roland.
DOC HOLLYWOOD
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri Michael Caton-Jones.
Aöalhlutverk: Michael J. Fox, Julie
Warner, Woody Harrelson og Bridget
Fonda.
Bandarísk, 1991 -sýningartími99mín.
Bönnuð börnum innan 12 ára.
Michael J. Fox er ekki aðeins
mjög vinsæU gamanleikari heldur
er hann einnig mjög smávaxinn og
barnalegur í útUti. Verður að segj-
ast eins og er að hann er ekki beint
trúverðugur læknir. í Doc Holly-
wood leikur hann skurðlækninn
Ben Stone sem langar til að komast
í lýtalækningar í Hollywood. Þegar
myndin hefst er hann á mikUli
hraðferð tU HoUywood í viðtal.
Kapp er samt best með forsjá eins
og á eftir að koma í ljós. í öllum
hamaganginum keyrir hann út af
og eyðileggur langa girðingu, auk
þess sem hann skemmir bíUnn
sinn. Það viU svo óheppilega til að
þaö er dómarinn í bænum sem
nýbúinn er að reisa girðinguna.
Þegar hann fréttir að ökuníðingut-
inn er læknir dæmir hann auminga
Stone í þegnskylduvinnu en það
vantar nauðsynlega lækni á
sjúkrahúsið.
Stone líst ekkert alltof vel á starf-
ið en lætur slag standa og það ger-
ir honum lífið þolanlegra að bfi-
stjóri sjúkrabílsins er glæsUegur
kvenmaður sem Stone feUur strax
fyrir. í myndinni er síðan lýst á
gamansaman hátt viðskiptum
Stone við heimamenn sem eru hver
Með því að keyra niður girðingu byrja öll vandræðin hjá lækninum
Benjamin Stone (Michael J. Fox).
DV-myndbanda3istiim
1 (8) Hariey Davidson &
The Marlboro Man
2 (2) Doc Hollywood
(6) Mortal Thoughts
4 (3) Jungle Fever
5 (2) Regarding Henry
6 (7) Suburban Commando
(4) Soapdish
8 (5) The Commitments
Pit and the Pendulum
To Catch a Killer
Memories of Midnight
12 (11) Toy Soldiers
13 (10) Terminator II
Ooc Hollywood sat ekki lengi I fyrsta sæti. Tölfararnir Mickey Rourke -j^ i\ i’gg^ Aggnt
og Don Johnson komu æðandí upp Hstann en þeir lelka aðalhlutverk- ''
in I Harley Davidson and the Marlboro Man og hertóku fyrsta sætið. 15 {-) K-2
Ótrúlegur dómur
öðrum skrýtnari auk þess sem
sambandið við gamlan lækni bæj-
arins er mjög stirt.
Doc Hollywood er sæmileg af-
þreying en ekkert meira. Michael
J. Fox er frekar takmarkaður leik-
ari og finnst mér ég hafa oft séð
hann áður í þessu hlutverki hvort
sem persónan er læknir, leikari
(The Hard Way) eða sölumaður
(Secret of My Sucess). Aftur til
framtíðar-myndimar em enn það
besta sem Fox hefur gert. Einstakir
leikarar í aukahlutverkum .skapa
skemmtilegar persónur, má þar
sérstaklega nefna David Ogden Sti-
ers sem leikur bæjarstjórann.
-HK
LET HIM HAVc IT
Útgefandi: Bíómyndir.
Lelkstjórl: Peter Medak. .
Aöalhlutverk: Christopher Eccleston,
Paul Reynolds, Michael Elplchick og
Tom Courtenay.
Bresk, 1991 - sýningartími 110 min.
Bönnuö börnum innan 16 ára.
Peter Medak leikstýrði fyrir
tveimur ámm hinní eftirminnilegu
The Krays sem íjallaði um tvo
bræður sem gerðu garðinn frægan
í undirheimum Lundúna snemma
á sjöunda áratugnum. í hinni nýju
mynd sinni Let Him Have It er
hann enn að fialla um bresk saka-
mál. Nú tekur hann fyrir mjög svo
umdeildan dauðadóm sem kveðinn
var upp yfir vanþroska pilti árið
1953.
Nafn myndarinnar Let Him have
It eru orö sem dómurinn er byggð-
ur á. í myndinni er sagt frá aðdrag-
anda þessa umdeilda dóms sem
setti ailt á annan endann í Bret-
landi og er réttarkerfið enn að súpa
seyðið af þessu óréttlæti sem beitt
var gagnvart Derek Bentley sem í
mesta lagi hefði átt að fá stuttan
fangelsisdóm.
Atburðurinn átti sér stað á hús-
þaki. Tveir piltar ætluðu sér að
ræna kjötverslun. Lögreglan kemst
að þessu og eltir þá uppi. Bentley
gefst strax upp en Chris er fullur
af hatri út í lögregluna og hefur
skothríð með þeim afleiðingum að
einn lögregluþjónanna er drepinn.
Þegar réttað var í málinu sögðu
vitni að Beritley heföi sagt við Chris
áður en hann hóf skothríðina: „Let
Him Have It“, sem getur þýtt að
Chris eigi að hefia skothríð eða það
sem örugglega var meining Bent-
leys að fá Chris til að afhenda lög-
reglunni byssuna. Bentley var sem
sagt dæmdur til að hengjast og
þrátt fyrir mikla baráttu foreldra
og mikil opinber mótmæli var dóm-
inum fullnægt og er óhætt að segja
að breskt dómkerfi hafi sett gífur-
lega ofan þegar þessi dómur var
kveðinn upp.
Peter Medak hefur gert áhrifa-
mikla og sterka kvikmynd sem
læturenganósnortinn. -HK