Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1992, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1992, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1992. Trimm Sunddagur aldraöra var haldinn í SundhöU Reykjavíkur sl. mánudag og þrátt fyrir góðviöriö var vel mætt í innisundlaugina við Barónsstíg. Emst F. Backman íþróttakennari, sem kennt hefur sund og vatnsleik- fimi fyrir þennan aldurshóp í mörg ár, sá um aö halda mannskapnum við efniö. Ernst sagöi í stuttu spjalli við DV að sérstakur sunddagur aldraðra væri orðinn fastur hður í starfsemi FÁÍA, Félags áhugafólks um íþróttir aldraðra, og að áhuginn væri alltaf jafn mikiil og þá sértaklega á vatns- leikfimi sem hefur veriö að ryðja sér til rúms á undanfómum árum. Hann sagði fólkið standa sig vel og nú væru allir orðnir flugsyndir. Ýmislegt er á döfmni hjá FÁÍA á næstunni, eins og greint hefur verið frá á trimmsíðunni. Ratleikur verður fóstudaginn 5. júní í Grasagarðinum í Laugardal og hefst hann kl. 14 og „sæluvika" veröur á Laugarvatni seinnihlutann í júní og ágúst. -GRS Sunddagur aldraðra er orðinn fastur liður í starfsemi FAIA og hér sést hópurinn sem mætti í Sundhöllina sl. mánudag. DV-myndir GVA mrsi Þátttakendurnir hjá Ernst F. Backman íþróttakennara eru allir orðnir flugsyndir og eru nú farnir að einbeita sér að vatnsleikfiminni, eins og glöggt má sjá. Samtöktil eflingar almenningsíþróttum: Ætlum að fá almenning til að stirnda íþróttir segir Sigrún Stefánsdóttir, formaður ÍFA Samtökin ætla að beita sér fyrir því að betur verði búið að þeim sem stunda iþróttir sér til ánægju en ekki keppni. DV-mynd Brynjar Gauti „Það eru ýmis verkefni sem bíöa okkar, bæði mörg og stór. Þau bein- ast að almenningi og við ætlum okk- ur að reyna að fá þá, sem eru ekki þegar farnir af stað, til að stunda ein- hverjar íþróttir sér tii heilsubótar og ánægju. Hugmyndin er að beita alls kyns fræðslu og áróðri og eins að betur verði búiö að þeim sem stunda íþróttir sér til ánægju en ekki keppni. Þessi hópur vill oft verða útundan þó svo margt jákvætt hafi verið gert á undanfornum árum. Við ætlum líka að beina augum okkar að þeim sem geta sljórnað því að eitthvað sé gert. Þ.e. að bæta aðstöðuna, koma skokkbrautum víðar upp og eins trimmstöðum og eitthvað í þeim dúr,“ sagði Sigrún Stefánsdóttir, ný- kjörinn formaður samtakanna íþróttir fyrir alla, í samtali við DV. Samtökin, sem stofnuð voru um síöustu helgi, heyra undir ÍSÍ en ákvörðunin um að koma þeim af stað var tekin í tengslum við 80 ára af- mæli íþróttasambandsins. Fjöl- menni mætti á stofnfundinn en markmið samtakanna íþróttir fyrir aUa er að virkja til samstarfs, auk sambandsaðila ÍSÍ, sem flest samtök, sveitarfélög, stofnanir, fyrirtæki, starfshópa og aðra hópa einstaklinga er láta sig varða hollustu og heil- brigði almennings með því að vinna að framvindu þeirra mála. Slíkir samstarfsaðilar geta verið bæði inn- an eða utan íþróttasambands íslands en stjórn ÍFA samþykkir aöild ein- stakra samstarfsaðila. -GRS Trimmhelgi á Kirkjubæjarklaustri „Iþróttahátíð USVS verður á Kirkjubæjarklaustri sömu daga og trimmhelgin stendur yfir og það verður samvinna um þetta á miili Ungmennasambandsins og okkar á Hótel Eddu. Það verður full dagskrá báða dagana og þar má nefna kvennahlaup á laugardeginum og hlaup fyrir yngri kynslóðina og al- mennt hlaup á sunnudeginum. Þá verður boðið upp á styttri gönguferð- ir frá Kirkjubæjarklaustri þar sem markverðir staðir verða skoðaðir í leiðinni en ekki er rétt að greina frek- ar frá dagskránni að svo stöddu," sagði Karl E. Rafnsson, hótelstjóri á Hótel Eddu á Kirkjubæjarklaustri, í samtali við DV. Trimmhelgin á Kirkjubæjar- klaustri verður dagana 20.-21. júní nk. og Hótel Edda mun bjóða upp á sérkjör í gistingu og fæði í tengslum við hana. Þetta er í fyrsta skipti sem trimmhelgi er haldin á Kirkjubæjar- klaustri en DV mun fjalla nánar um viðburðinn þegar endanleg dagskrá liggur fyrir. -GRS Trimmhelgin á Kirkjubæjarklaustri veróur dagana 20.-21. júní nk. DV-mynd Eiríkur Jónsson Reykjavík- urmaraþon Mánudagur: Hlaupa rólega i 45 min.-l klst. Þriðjudagur: Skokka rólega í 30-45 mínútur. Miðvikudagur: Rólegur hraða- ieikur í 30-45 mínútur. Fimmtudagur: Hiaupa rólega í 1-1 'A klst. Föstudagur: Rólegur hraðaleikur i 30 mínútur. Laugardagur: IRaupa rólega í 30 mín.-l klst. Sunnudagur: Hlaupa rólega í 1 '/2-2 klst. -GRS/JBH Reyklaus dagur Næsta vika er helguð hreinu lofti með einum eða öðrum hætö eins og fram kom átrimmsíðunni sl. laugardag. Á morgun er al- þjóðlegur tóbaksvarnardagm- um heim allan og á mánudag er reyk- laus dagur hérlendis en yfirskrift hans er „Reyklausir vinnustaðir - öruggari og heilsusamlegri". Reyklausi dagurinn er á almenn- um vinnudegi með tilliti til mál- efhisins. Tóbaksvamarnefnd veitir frek- ari upplýsingar en hún er jafh- framt einn samvinnuaðila Krabbameinsfélagsins um heilsuhlaup þess síðamefnda sem fram fer í dag. Bænda- dagshlaup UMSE Bændadagshlaup UMSE fer fram fimmtudaginn 4. júní. Frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu UMSE á Akureyri í síma 96-24011. -GRS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.