Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1992, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1992, Page 24
24 LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1992. f slensk kona stundar vísindi í San Francisco - árangursríkar sykursýkirannsóknir Steinunnar Bækkeskov Steinunn Þórhallsdóttir Bækkeskov er meðal þeirra íslensku kvenna sem lengst hafa náð I vísindum fram til þessa. Hún stundar lífefnafræðirannsóknir við UCSF, Kaliforniuháskólann í San Francisco. Steinunn Þórhallsdóttir Bække- skov er meðal þeirra íslensku kvenna sem lengst hafa náö í vísind- um fram til þessa. Hún stundar líf- efnafræðirannsóknir við UCSF, Kali- fomíuháskólann í San Francisco, og stjómar þar rannsóknum er varða svonefnda tegund eitt af sykursýki. Sú gerð kemur mest fram á unga aldri en einnig oft á kynþroska- skeiði. Sykursýkitegund tvö á sér hins vegar allt aðrar orsakir, er stundum kölluð ellisykursýki og hef- ur, ólíkt því sem við á um tegund eitt, ekkert með ónæmiskerfið að gera. Rannsóknir Steinunnar og átta manna rannsóknarhóps hennar hafa tvímælalaust borið góðan árangur. Þær hafa opnað möguleika á að finna sykursýkieinkenni í blóði á fyrsta stigi. DV náði tali af Steinunni á rann- sóknarstofu hennar í San Francisco. Það var fallegur laugardagur og Steinunn í vinnunni. Svo sem ekkert óvenjuiegt við það! Fyrstlá leið til Kaupmannahafnar Steinunn er fædd og uppalin á Akureyri. Hún lauk stúdentsprófi frá menntaskólanum þar 1968 og hélt að því loknu til Kaupmannahafnar. Hún hóf nám í eðlis- og efnafræði við Kaupmannahafnarháskóla en skipti að ári loknu yfir í lífefnafræði. Nokk- uð örlagarík skipti það. „Mig langaði líka til þess að leggja fyrir mig bókmenntafræði en af praktískum ástæðum gerði ég það ekki. Ég ákvað að betra væri að hafa bókmenntir sem tómstundagaman og er enn á því. Ég hef ipjög gaman af góðum bókum,“ sagði Steinunn. Fyrsta hluta lifefnafræöinnar lauk hún ’73 og þaðan lá leiðin í sémám, prótínefnafræði, á Carlsberg Labor- atorium Kemisk Afdeling. Tveimur og háifu ári síðar útskrifaðist Stein- unn með cand. scient. gráðu. Svefnsýki- valdur í Keníu Frá Kaupmannahöfn hélt Steinunn til Nairobi í Keníu, vann í þrjú ár sem svokallaður „posdoctoral fellow" á einni bestu rannsóknarstofnun í Afr- íku, Intemational Laboratory for Research on Animal Diseases (ILRAD), styrkt af Alþjóðaheilbrigð- ismálastofnuninni. Þar vann hún með snýkjudýrið Trypanosoma sem veldur svefnsýki. „Arður Afríkubúa myndi batna um helming ef hægt væri að koma í veg fyrir þetta vandræðasnýkjudýr sem svo erfitt er að einangra. Þetta er gífurleg plága fyrir búpening í Afríku og veldur miklu tjóni. Það hefur margt mjög áhugavert komið út úr rannsóknunum á ILRAD þótt ekki hafi enn verið uppgötvaðar aðferðir til að koma í veg fyrir svefnsýki. En vissulega er ennþá verið að reyna,“ sagði Steinunn. Sykursýkirannsókn- ir í Danmörku Steinunn fór aö vinna á Hagadom Forskningslaboratorium í Kaup- mannahöfn að Keníudvölinni lok- inni en þar hafði lengi verið unnið að sykursýkirannsóknum. Hún sagði aðstöðu sína á þeim vinnustaö hafa verið ipjög sérstaka. Eftir að hún kláraði doktorsprófið þar fékk hún fasta stöðu og var síöan í hópi fimm annarra sem ákvörðuðu í nánast einu og öllu hvemig rannsóknarstof- an skyldi rekin. „Stofnunin hefur úr miklu fé að moða; hún hefur sinn einkasjóö auk styrkja frá heilbrigðis- málastofnun landsins og sykursýki- sjóði. Þannig gátum við vandræða- laust leyft okkur ýmislegt, til dæmis að hafa ávallt nemendur á rannsókn- arstofunni," sagði Steinunn. Eftir tíu góð ár þar fluttist Steinunn til San Francisco og hefur haldið áfram sykursýkirannsóknum vestra. Mikill sigur að finna prótínið 1970 fundu menn aö ástæðan fyrir tegund eitt af sykursýki er gaUi á ónæmiskerfinu. Vegna þessa galla ræðst ónæmiskerfið á eigin frumur. Þegar búið er að eyðileggja 80% af svonefndum betafrumum getur af- gangurinn ekki framleitt insúlín. Á meðan þessi eyðilegging fer fram er oft erfitt að greina að viðkomandi sé með sykursýki. Rannsóknir Stein- unnar hafa beinst að svokölluðum mótefnavaka, þaö er á hvaða hluta betafrumanna mótefnin ráðast. Fyrstu árin var einblínt á að finna prótínið sem þessu veldur og bygg- ingu þess. Þar sem svo lítið er af prótíninu í betafrumunum reyndist það erfitt. Steinunn gat þó notfært sér næmar aðferðir sem hún haíði áður notað við svefnsýkirannsókn- imar í Keníu. „Það var mikill sigur að finna loks prótínið, sem kallað er 64K prótín, er þessi mótefni bindast. Okkur tókst að einangra það og greina byggingu og útlit. 1990 fundum við svo að þetta er ensím sem hefúr með taugaboð- efni að gera. Nú má nota prótínið til þess að mæla mótefni í blóðinu og þannig opnar þaö möguleika á að finna fyrsta stigs einkenni hjá stærstu áhættueinstaklingum syk- ursýki; t.d. hjá tvíburum. Sé annar með sykursýki þá eru 30-40% líkur á að hinn sé með hana,“ sagði Stein- unn. Hún kvað þó vandamálið vera að enn væri ekki hægt að koma í veg fyrir sykursýki. Þó væri ætlað að með tímanum yrðu fundnar upp að- ferðir til þess. Hvaðveldur sykursýki? Sykursýki er ávallt í tengslum við tiltekna vefjategund og hana erfir viðkomandi frá foreldrum sínmn. Þannig má segja að hún sé að hluta til ættgengur sjúkdómur. En sé litið á þann hóp sem fær sykursýki á einu ári þá er hún ekki til staðar í fjöl- skyldum 85% þeirra tilfella. Svo virð- ist sem karlmenn hafi örlítið meiri tilhneigingu en konur til að fá sykur- sýki. Steinunn segir sykursýki alltaf hafa verið til. Hún hafi aukist und- anfarin ár en um ástæðu þess sé ekki vitað. Þó er víst að lifnaðarhættir skipta nokkru máli 1 því sambandi. Meðal Japana er sykursýki t.d. mun sjaldgæfari en á Norðurlöndum. Sé haldiö upp í gegnum Evrópu þá verð- ur sykursýki meiri og meiri eftir því sem norðar dregur. Líkur á því að Finni fái sykursýki eru 20-40% meiri en hjá Japana. Hins vegar ef Japani flytur til Ameríku aukast líkur á sjúkdómnum hjá þeim einstaklingi. Þaö er þannig ekki einungis um gen og erfðaeiginleika að ræða heldur virðist umhverfi einnig skipta miklu máli. Hvar er best að vera? „Ég hef alitaf getað hugsað mér að setjast að á íslandi - ef ég væri ekki að vinna í vísindum! Lifnaðarhættir og lífsgæði eru alveg einstök heima. Og vissulega sakna ég alltaf fjöl- skyldu minnar á íslandi. Ég kunni líka vel við mig í Danmörku og á mikið af vinum þar. Á margan hátt finnst mér lífið í Evrópu vera áhuga- verðara en hér í Ameríku. Banda- rískir vísindamenn verða einhæfir vegna samkeppni. Þeir gefa sér eng- an tíma til annars en rannsókna; helga sig vinnunni, eiga ekkert líf utan hennar," sagði Steinunn. Hún hefur búið í San Francisco með eiginmanni sínum og syni í tæp þijú ár og segist kunna vel viö sig. Þar sé mikil fegurð þótt ekki gefist oft tími til þess að njóta hennar. Steinunn er þeirrar skoðunar aö gott sé að búa í Bandaríkjunum með góð laun en sé maöur veikur, fátækur eða á annan hátt illa á sig kominn þá sé landið ógurlega grimmt. Lík- lega eru það orð að sönnu. Aðstaða Steinunnar í San Fran- cisco er að hennar sögn mjög ólík þeirri er hún bjó við í Kaupmanna- höfn. Á Hagedom var meira rými og fjárveitingar betri, en í San Fran- cisco eru samgöngur við aðra vís- indamenn mun greiðari. Vegna stærðar háskólans hefur Steinunn fremur lítið aö segja ef á heildar- myndina er litið. Hún segir þó að yfirleitt sá fjárhagsiega betra að vera vísindamaöur í Bandaríkjunum en á Norðurlöndum. Hún segir kennsl- una vestanhafs vera á mjög háu stigi og því til staðfestingar megi nefna að algengt sé að prófessorar komi í tíma tii þess að fylgjast með því nýj- asta í vísindum. Þannig séu gerðar miklar kröfur til kennslu við háskól- ann. En skyldi vera einmanalegt að vera kona á toppnum í vísindum? „Það er alla vega fremur lítið um konur þegar svona langt er komið. Þeim er haldið í lægri stöðunum. Hér er um óttalegt karlaveldi að ræða og mun stærra bil milli kynja á þessu sviði en til dæmis í Danmörku," sagði Steinunn. Hvað felst íþví aðvera góður vísindamaður? Góð menntun er skilyrði og að áliti Steinunnar er bestu skólana að finna í Bandaríkjunum og á Bretlandi. Hún telur það einnig mikinn kost að stunda nám við háskóla þar sem mikið sé um vísindarannsóknir. Þá komist maður af alvöru fyrr inn í hlutina og það á háu stigi. Norður- lönd veita ekki nægilegt ftármagn til vísinda. Af þeim eru þó Svíar fremst- ir hvað fjárveitingar varðar. Steinunn hefur fengið birtar grein- ar í frægustu vísindatímaritunum, Nature og Science. Að skrifa og birta góðar greinar er einnig skilyrði þess að ná langt í vísindum, að hennar sögn. A þessum nótum kvaddi ég vís- indakonuna Steinunni Þórhallsdótt- ur Bækkeskov. Þær lofa góðu niður- stöðumar sem rannsóknir Steinunn- ar og samstarfsmanna hennar hafa leitt af sér. Nú er aö vona að ekki verði lengi að bíða meðferöar sem komi í veg fyrir þá tegund sykursýki sem hér hefur verið um rætt. Stein- unn, sem augijóslega þekkir vel til rannsókna á þessu sviði, virðist bjartsýn. Og er þá ekki full ástæða til hins sama meðal okkar hinna? Anna Theodóra Pálmadóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.