Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1992, Síða 18
18
Veiðivon
Fyrsta veiðisaga sumarsins:
Landaði ekki laxin-
um til að byrja með
Veiðisögur úr íslenskum veiðiám
eru margar þannig að fáir trúa þeim,
allavega ekki þegar laxamir eru yfir
40 pund og ja&ivel stærri.
Veiðimaður var fyrir skömmu
vestur á fjörðum við veiðar og gekk
veiðin rólega, fáir fiskar voru í ánni.
En seint og um síðir tekur vænn lax
agn veiðimannsins og hefst þarna
hin skemmtilegasta barátta við fisk-
inn. Þar sem veiðimaöurinn var ekki
einn fékk hann aöstoö vinar síns sem
hann hefði betur sleppt að fá. Því
vinur hans var mikill að vexti og
Þetta er ekki bara veiöi heldur lika vinna viö veiöiárnar eins og hérna við
Álftá á Mýrum. DV-mynd ÆR
Þær eru margar tignarlegar veiðiárnar eins og Hörgsá i Vestur-Skaftafells-
sýslu þótt ekki séu komnir margir fiskar í hana á þessum tima.
DV-mynd G.Bender
ennþá meira fór fyrir honum. Hann
veður út í tökustaöinn og vill hjálpa
við löndun fisksins. En það vill ekki
betur til en svo að vinurinn flækist
í línunni og verður veiðimaðurinn
fyrst að landa vini sínum sem var
vel yfir 180 pund. Síðan var laxinum
landað án þess að til mikilla átaka
kæmi. Enda hafði löndunarmeistar-
inn fengið sér sæti og kom ekki ná-
lægt málinu.
G.Bender
Guðmundur Rögnvaldsson rennir fyrir lax í Staðarhólsá í Dölum stuttu eft-
ir löndun lax. ' DV-mynd RÖG
LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992.
Þjóðar-
spaug DV
Manns-
heilinn
Líffræöikennari í menntaskóia
var eitt sinn að fjalla um manns-
heilann og komst þá svo aö orði:
„Mannsheiiinn er flókið og
undarlegt líffæri. Hann tekur til
starfa strax og maöur fæöist og
hættir ekki fyrr en. . fyrr
en. . .fyrr en maður stendur upp
til að halda ræðu."
Þar með var innleggi hans um
mannsheilann lokið.
Við innganginn á óþrifalegum
matsölustað í Reykjavík hékk eitt
sinn bréfmiði með eftirfarandi
áletrun:
„Geriö svo vel að þurrka af
skónum á dyramottunni."
Fyrir neðan hafði einhver bætt
við:
„Um leið og þér gangið út.‘‘
Mislestur
Skömmu fyrir síðustu jól mátti
heyra eftirfarandi, ,augiýsingu“
iesna á einni af útvarpsstöðvim-
um:
„Svínabófarnir eru ódýrastir
hjáokkur. . .“
Skömmu síðar kom vist leið-
rétting, enda varla margir sem
vilja leggja sér svinabófa til
munns.
Óvinimir
Á árshátíö Læknaféiags
Reykjavíkur fyrir nokkrum
árum hélt veislustjórinn óveruu-
lega langa ræðu og blandaði þar
saman grini og alvöru. í einum
alvörukaflanum sagði hann með-
al annars:
„Viö eigum þvi marga óvini hér
í þessum heimi. . .“
Þá gaii við í einni læknisfrúnni:
„En þeir eru nú fleiri hinum
rnegin."
Finnur þú fiiran breytingai? 161
Ég er ekki sérlega þyrstur núna en ég verö það örugglega á morgun. Nafn:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þeg:ar betur
er að gáð kemur í Ijós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja viö þau meö
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum hðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. verðlaun: TENSAI ferðaút-
varpstæki með kassettu að
verðmæti 5.220 krónur frá
Sjónvarpsmiðstöðinni, Síð-
umúla 2, Reykjavík.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur að verðmæti kr.
3.950.
Bækumar, sem eru í verðlaun,
heita: Falin markmið, 58 mínútur,
Október 1994, Rauði drekinn og Víg-
höfði. Bækumar em gefnar út af
Frjálsri fjölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 161
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir hundrað
fimmtugustu og níundu get-
raun reyndust vera:
1. Rósa Sveinbjarnardóttir
Dalalandi 8,108 Reykjavík.
2. Sig. Andri Sigvaldason
Grettisgötu 39b, 101 Rvk.
Heimilisfang:
Vinningamir verða sendir
heim.