Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1992, Blaðsíða 26
„Menn hljóta aö hafa gefið sér þær
forsendur að taka besta tilboðinu og
þau komu öll frá okkur. Það er ekk-
ert launungarmál að ég bjóst viö
miklu harðari slag um framleiðslu-
deild ÁTVR, sérstaklega frá stórum
fyrirtækjum eins og Ölgerðinni,
Sanitas og Vífilfelli. Maður hefði
haldið að framleiðsludeildin væri
hentug eining fyrir fyrirtækin til að
vega upp á móti kostnaði, til dæmis
við innréttingar á veitingastöðum.
Það kom mér því mjög á óvart að sjá
ekki tilboð frá þessum fyrirtækjum,“
segir Halldór Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri og einn eigenda fyrir-
tækisins Rek-íss og nýr eigandi fram-
leiðsluréttar, framleiðslutækja,
vöruheita og uppskrifta ÁTVR.
Athygli almennings beindist mjög
að Halldóri Kristjánssyni og fjöl-
skyldu hans eftir að tilboð í fram-
leiðsludeild ÁTVR - framleiðslutæki,
framleíðslurétt, lager, vöruheiti og
uppskriftir - voru opnuð hjá Inn-
kaupastofnun ríkisins í vor. Af 10
tilboðum, sem bárust, áttu Halldór
og fjölskylda helminginn - öll hæstu
tilboðin. Kona Halldórs, Kristín Stef-
ánsdóttir, átti hæsta tilboðið, Halldór
sjálfur það næsthæsta og fyrirtæki
þeirra hjóna, Rek-ís, þriðja hæsta.
Þar á eftir komu tvö tilboð: frá fóður
Halldórs, Kristjáni Halldórssyni, og
fyrirtæki hans, Elding Trading.
Á mánudag var samningur um
kaup á framleiðsludeild ÁTVR und-
irritaður. Umsamið kaupverð var
rúmar 15 milljónir auk virðisauka-
skatts. Þar með var framleiðsla á
hinum gamalkunnu áfengistegund-
um, íslensku brennivíni, Kláravíni,
Tindavodka, Dillon-gini, Gömlu
brennivíni, Óðalsbrennivíni og
Hvannarótabrennivíni komin í
hendur einkaaðila.
Halldór og faðir hans hafa stofnað
fyrirtæki um áfengisframleiðsluna.
Verða vélar og tæki til framleiðsl-
unnnar flutt í leiguhúsnæði á næst-
unni og gerir Halldór sér vonir um
að byrja framleiðslu upp úr miðjum
ágúst.
DV heimsótti Halldór og konu
hans, Kristínu Stefánsdóttur, þar
sem þau búa í gömlu uppgeröu ein-
býhshúsi við Ásvallagötuna.
Reyndur í
áfengisbransanum
- Þið sóttuð stíft eftir að komast yfir
framleiösludeild ÁTVR og hafið því
væntanlega séð töluverða gróðavon
í henni.
„Maður er náttúrlega ekki að leggja
á sig fleiri mánaða vinnu til þess eins
að tapa. Við gáfum okkur ákveðnar
forsendur að vinna eftir og við þær
miðuöust okkar tilboð. Við stefnum
að niðurskurði, minni umsetningu,
færri starfsmönnum, aukningu á
vélatíma og umbúða- og vöruþróun."
- Þið eruð ekki ný í áfengisbransan-
um?
„Nei, það má segja það. Fjölskyldan
fastur í sessi og auðþekkjanlegur aö
honum verður ekki breytt. Upphaf-
lega brennivínsflaskan með gamla
svarta miðanum mun alltaf verða
til.“
Halldór segir marga hafa gefið sér
aö vélasamstæða ÁTVR væri mjög
slitin og gömul, að engar breytingar
hefðu átt sér stað í 57 ár. „En tilfellið
er að vélasamstæðan er ekki mikið
eldri en frá 1988. Þróun ÁTVR á véla-
samstæðu fyrir þessa stærð af fram-
leiðslu er mjög góð. Áfyllingarvélin
er elst og stendur þó fyllilega fyrir
sínu.“
í kókfjölskyldunni
Halldór er ahnn upp í viðskiptum
enda mikið viðskiptafólk í báðum
ættum. Viöskipti, ekki síst þau sem
tengjast blöndunar- og áfyhingariðn-
aðinum, eru honum nánast í blóð
borin.
Hahdór thheyrir Coca Cola-íjöl-
skyldunni og er alltaf kallaður Dóri
í kók af vinum og félögum. Hafa
menn verið að gantast með að
brennivín væri komið út í kókið hjá
Dóra.
Móðir Halldórs, Iðunn, er dóttir
Björns Ólafssonar, stofnanda Vífil-
fells (Coca Cola á íslandi), fyrrum
alþingismanns og ráðherra í fyrstu
ríkisstjórn lýðveldisins. Faðir Hah-
dórs, Kristján Halldórsson, hefur
verið framkvæmdastjóri hjá VífUfelh
síðasthðin 28 ár.
Afi Halldórs, Halldór Kjartansson,
stofnaði á sínum tíma innflutnings-
fyrirtækið Elding Trading ásamt
hróður sínum, Hannesi Kjartans-
syni, sendiherra og fastafulltrúa hjá
Sameinuðu þjóðunum. Elding Trad-
ing er nú í eigu fóður Halldórs og
fóðursystur hans. Annar afabróðir
Hahdórs, Ingvar, lét einnig aö sér
kveða í viðskiptum, átti fyrirtækið
Vald. Poulsen.
Halldór Kristjánsson (Dóri í kók) ásamt konu sinni, Kristínu Stefánsdóttur, snyrtifræðingi og förðunarmeistara.
Saman eiga þau og reka fyrirtækið Rek-ís. Halldór og fjölskylda hans áttu helminginn af tilboðum sem fram komu
i framleiðsludeild ÁTVR, öll hæstu tilboðin. Halldór keypti framleiðsiudeildina fyrir um 15,5 milljónir.
DV-myndir JAK
hefur verið viðloðandi útflutning á
vodkanum Eldur-ís frá 1986. Við vor-
um mUUgöngumenn fyrirtækisins
Glenmore Distiheries hér á landi og
komum á samningi milh þess fyrir-
tækis og ÁTVR. Maður hefur því
fylgst með framleiðslunni og þróun-
inni hvað varðar Eld-ís hér og eins
útflutningi á honum. Þessi vodki
varð fljótlega mjög vinsæh og fram
til síðustu áramóta var hann annar
mest seldi vodkinn hér. En þá féh
samningurinn við Glenmore úr gUdi.
Glenmore var keypt af bandarísku
fyrirtæki sem er með vodka á sínum
snærum sem einnig er miðaður við
efri enda markaðarins. Við keyptum
því uppskriftina að Eldi-ís vodkanmn
af Glenmore. Framleiðsla á honum
verður því hafm hér aftur með hin-
um tegundunum."
Gamla brennivíns-
flaskan breytist ekki
- Hvaða breytingar mun viðskipta-
vinur í Ríkinu sjá eftir að nýir eig-
endur hafa tekið við framleiðslu
áfengisins?
„Það verða engar breytingar í byrj-
un. Engin uppskrift mun breytast.
Helsta úthtsbreytingin mun felast í
nýrri áletrun í stað áletrunarinnar
„Framleitt af ÁTVR“. Við höfum
bara ekki ákveðið nafn á nýja fyrir-
tækið ennþá.“
- En hvaða breytinga má vænta þeg-
ar htið er tíl lengri tíma?
„Við sjáum fyrir okkur umbúða-
breytingar og vöruþróun sem felast
mun í nýjum tegundum og uppskrift-
um, kannski nýju bragöi á tegundun-
um. Þó er gamli, svarti miðinn á
brennivínsflöskunum orðinn svo
Markaðsfræðingur
og KR-ingur
„Ég byrjaði að sendast hjá Vífílfelli
7-8 ára gamah og vann síðan við all-
ar deUdir fyrirtækisins: var í lager-
vinnu, útkeyrslu, færibandavinnu og
fleira. Ég tel mig því þekkja þetta
ferli, frá blöndun tU neytandans,
nokkuö vel.“
HaUdór er fæddur og uppalinn í
vesturbænum. Veröld hans í æsku
.takmarkaðist af nánasta umhverfi
KR-svæðisins og Haga, heimih Coca-
Cola. Eins og aðrir „sannir" vest-
urbæingar er Halldór eldheitur KR-
ingur og spUaði áður fótbolta og
körfubolta með KR. Þetta margfræga
KR-stolt leynir sér ekki og sýnir sig
vel í þeim orðum HaUdórs að Ingólf-
ur Amarson hafi veriö fyrsti land-
námsmaðurinn, fyrsti Reykvíking-
urinn, fyrsti vesturbæingurinn og,
auðvitað, fyrsti KR-ingurinn.
HaUdór er menntaður í viöskiptum
LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992.
Bjóst við harðari
slag um brennivínið
- segir Halldór Kristjánsson (Dóri í kók), eigandi fyrrum framleiðsludeildarÁTVR