Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1992, Síða 28
LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992.
'
» * /'/. .
'' <
Erfiðasti leikurinn á
öllum mínum ferli
Ljósmynd sem Pétur tók við höfnina á Sauðárkróki. Nú íhugar hann að setja upp Ijósmyndasýningu á Króknum og sýna myndir sem hann hefur tekið á staðnum.
Knattspymumaðurinn Pétur Pétursson:
- að setjast á skólabekk í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Mér var í sjálfu sér sama um það
að setjast á skólabekk með 15-17
ára krökkum en ég neita því ekki
að fyrstu 90 mínúturnar í skólan-
um voru erfiðasti leikurinn á öllum
mínum ferli,“ segir knattspyrnu-
maðurinn Pétur Pétursson en hann
stundaði nám við Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á Sauðárkróki.
Knattspyrnuáhugamenn ráku upp
stór augu sl. vetur þegar Pétur tók
þá ákvörðun að flytja til Sauðár-
króks og fara að leika með liði
Tindastóls í 3. deild. Pétur hefur
um langt árabil verið einn besti og
vinsælasti leikmaður okkar, hann
var til Qölda ára atvinnumaður í
Hollandi, Belgíu og á Spáni, á fjölda
landsleikja að baki og hefur síðustu
árin leikið með KR og verið fyrir-
liði liðsins.
Tvær flugur í höggi
En það hékk fleira á spýtunni hjá
Pétri en að breyta til í fótboltanum.
Hann hefur undanfarin ár stundað
ljósmyndanám á ljósmyndastofu í
Reykjavík en átti eftir að setjast á
skólabekk og ljúka bóklega náminu
og því fannst honum upplagt að slá
tvær flugur í einu höggi, breyta til
í fótboltanum og ljúka náminu.
„Þaö var mjög góö lausn fyrir
mig að fara hingað norður. Ég er
búinn að vera að spila knattspyrnu
í 1. deild í 16-17 ár og með landslið-
inu, auk þess að vera í atvinnu-
mennsku erlendis, og það var kom-
inn tími til aö breyta til. Ég þurfti
að fara í skóla og mér fannst líka
sem ég væri alls ekki tilbúinn að
Pétur hefur aðgang að aðstöðu á Sauðárkróki þar sem hann getur
unnið myndir sínar. DV-mynd gk
setjast á skólabekk í Iðnskólanum
í Reykjavík. Þegar sú leiö kom upp
að sameina það að fara norður og
sjá um þjálfun þess hluta liðsins
sem var hér fyrir norðan í vetur
og fara í skóla um leið fannst mér
það alveg tilvalið. Skólinn hér er
mjög góður og hentaði mér mjög
vel, ég fékk góða aðstoð og námið
gekk vel en ég hafði kviðið náminu,
ég neita því ekki.“
- Var ekkert erfitt að setjast á
skólabekk með 15-17 ára ungling-
um, þú kominn á fertugsaldurinn?
„Nei, það var það ekki og mér
samdi vel við krakkana. Hins vegar
fannst mér blóðugt að sjá að það
var ekki markmið hjá öllum krökk-
unum að vera í skóla til að stunda
námið af alvöru. Ég var ekki barn-
anna bestur þegar ég var á þessum
aldri og var erfiður í skóla. Nú veit
ég hins vegar betur og ég reyndi
að tala við krakkana og segja þeim
mína skoðun á þessu þótt ég væri
ekki að troða mínum skoðunum
upp á þá.“
Pétur lærði á ljósmyndastofunni
Nærmynd í Reykjavík í 3 ár, hann
reiknar með að ljúka bóklega nám-
inu á Sauðárkróki næsta vetur og
þá á hann eftir stutt námskeið hjá
ljósmyndarafélaginu auk sveins-
prófsins. En hvenær kviknaði
áhuginn á ljósmyndun?
Áhuginn kviknaði
í Belgíu
„Það var fyrir alvöru þegar ég var
hjá Anderlecht í Belgíu, þá tók ég
mikið af myndum og setti upp lítiö
myrkraherbergi heima hjá mér.
Síðan fór ég í bækur og las mér til
um hlutina og fór að búa til mínar
eigin myndir. Þessi áhugi var svo
alltaf fyrir hendi og þegar ég var
hjá KR bauðst mér að fara í nám
og.ég sló til.
Ég neita því ekki að það voru við-
brigði að fara að stunda „venju-
lega“ vinnu eftir að hafa verið í
atvinnumennskunni. í 10 ár hafði
lífið snúist um fótbolta og aftur fót-
bolta og það var hvorki talað né
hugsað um annað. En ég sé ekki
eftir þessu.“
Upp á vegg á heimili Péturs hang-
ir verðlaunaskjal sem hann fékk
þegar hann tók þátt í stórri ljós-
myndasýningu á Kjarvalsstöðum.
Myndin hlaut 1. verðlaun í flokkn-
um „daglegt líf‘. Hún er af mömmu
Péturs ásamt barnabömunum og
heitir „Elsku amma“.
„Þessi verðlaun ýttu mjög undir
mig að ljúka náminu en annars var
ég alvarlega farinn að hugsa um
að skella mér út í þjálfun. Náminu
ætla ég að ljúka en þjálfunin togar
enn í mig. Eg fann það í vetur þeg-
ar ég var með strákana hér á
Króknum að þetta gæti verið eitt-
hvað sem hentar mér en það verður
að koma í ljós hvað verður."
Pétur segir að sér og fjölskyldu
sinni hafi liðið mjög vel á Sauðár-
króki. „Þetta hefur verið mjög góð-
ur tími fyrir okkur öll. Mér var
strax mjög vel tekið og allir hafa
verið tilbúnir að gera allt til þess
að okkur liði sem best. Að vísu eru
þeir að kvelja mig með því af og til
að þeir hafi unnið KR í bikarkeppn-
inni hér um árið,“ sagði Pétur að
lokum.