Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1992, Síða 30
42
LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992.
Sviðsljós
Leikarinn Michael Caine gefur út ævisöguna:
Uppalinn í mikilli
fátækt og vesæld
Leikarinn og óskarsverðlaunahaf-
inn Michael Caine hefur leikið í
sjötíu kvikmyndum. Caine hefur
unnið sig upp úr mikilli fátækt í
að verða einn ríkasti maður á Eng-
landi.
Fyrir tveimur árum var Michael
Caine orðinn fullsaddur af kvik-
myndaleik og tók þá ákvörðun að
fara í frí. „Þetta var stöðug vinna,“
segir þessi 59 ára enski leikari sem
bæði hefur leikið i kvikmyndum
og sjónvarpsþáttum. „Ég var á
stöðugum ferðalögum um heiminn
og kom varla heim til mín,“ segir
hann. „Loksins tók konan þá
ákvörðun að nú væri nóg komið.
Reyndar var þaö svo að þegar ég
tók mér fríið hélt hún að ég væri
orðinn veikur."
Um þessar mundir er Michael
Caine að leika í kvikmynd sem
nefnist Blue Ice. Þá hefur hann
nýlokið við að skrifa endurminn-
ingar sínar en æska hans var mjög
dramatísk.
„Ég heiti í rauninni Maurice
Micklewhite og ólst upp í fátækra-
hverfi. Pabbi var vaktmaður á fisk-
markaðnum og mamma sá um
ræstingar. Ég, bróðir minn og for-
eldrar sváfum öll í sama herberg-
inu. Það var ekkert lúxusheimili,"
segir Michael Caine. Æskuheimihö
varö fyrir sprengju í stríðinu. Viö
bræðurnir vorum sendir á fóstur-
heimili og fósturmóðir min lokaði
mig inni í skáp þegar hún þurfti
að fara út. Ég var alltaf svangur,
enda var aðeins ein máltíð á dag,
fiskur úr dós. Þessi tími var sá
versti í lífi mínu,“ segir leikarinn.
Húsbændur og hjú
„Seinna sameinaðist fiölskyldan
á nýjan leik. Móðir mín fékk starf
sem matráðskona á herragarði rétt
fyrir utan London. Hún lét sækja
okkur bræðuma. Lífið líktist sjón-
varpsþáttunum Húsbændur og hjú.
Við bjuggum við hlið eldhússins
þar sem mamma eldaði og fengum
að borða afgangana frá fína fólk-
inu. Stundum stalst ég upp og
reykti vindla sem hertoginn átti.
Þá dreymdi mig um aö búa eins og
þetta fólk. Sá draumur hefur nú
ræst,“ segir Michael Caine.
Hann var aðeins sjö ára þegar
hann fór í kvikmyndahús í fyrsta
skipti og ákvað að verða kvik-
myndaleikari. „Ég fór í bíó sex daga
í viku til að komast burt frá veru-
leikanum. Ég hataði skólann og
hætti í honum fimmtán ára.
Næstu ár á eftir vann ég ýmis
skítverk, sem uppvaskari og
steypublandari. Loks fékk ég vinnu
í leikhúsi en frægðin var langt í
burtu.
Ég var alltaf blankur og oft at-
vinnulaus. Þegar ég var 24ra ára
kvæntist ég leikkonu. Eftir tveggja
ára hjónaband vomm við skihn.
Blankheitin vom okkur erfið og
dóttir mín var send til tengdafor-
eldranna. Ég hafði ekki einu sinni
efni á að fara í lest til að heim-
sækja hana. í þau fáu skipti sem
viö sáumst kallaði hún mig Micha-
el. Hún var alls ekki viss um að ég
væri faðir hennar fyrr en hún var
tíu ára gömul," segir hann en þau
feðginin hafa mjög gott samband í
dag. „Ég hafði ekki efni á að borga
meðlagið né aðra reikninga. Verst
- en er einn ríkasti maður Englands í dag
Leikarinn Michael Caine og eiginkonan Shakira sem er indversk.
í dag hefur Michael Caine gott samband við dóttur sína af fyrsta hjóna-
bandi, Dominique. Hún er hér milli Shakiru og hálfsysturinnar Natashu.
Ein af þýóingarmestu konum í lifi
Michaels Caine var móðir hans.
En það var honum mikið áfall að
komast að þvi að móðirin hafði
faliö son sem hún átti utan hjóna-
bands alla tíð.
var þegar faðir minn fékk krabba-
mein. Enginn okkar hafði efni á að
borga læknishjálp sem hann þurfti
á að halda. Ég horfði á föður minn
deyja vegna þess að ég hafði ekki
efni á að hjálpa honum,“ segir Mic-
hael Caine. „Slíku gleymir maður
ekki.“
Öryggið felst
í peningum
Michael hefur oft verið gagn-
rýndur fyrir að taka mikla peninga
fyrir hlutverk sín í kvikmyndum.
„Þeir sem aldrei hafa veriö fátækir
skilja ekki nauðsyn þess að hafa
fiárhagslegt öryggj,“ útskýrir
hann. „Ég hef lifað skrítnu lífi og
það gerir bókina .mína. meira
spennandi," segir hann.
Michael Caine var uppgötvaður
þegar hann var 31 árs og lék í kvik-
myndinni Zulu. Fyrir hlutverkið í
næstu mynd hans, Alfie, var hann
tilnefndur til óskarsverðlauna. Svo
var einnig með kvikmyndina
Sleuth en hann tók á móti verð-
launum fyrir myndina Hannah og
Her Sister.
Hann segist hafa skrifað bókina
sína á léttan hátt. „Maður verður
að sjá spaugilegu hliðarnar líka,“
útskýrir hann. „Ég hef margt að
skrifa um en hef lítinn áhuga á að
tala illa um samstarfsfólk. Þegar
maður skrifar um uppvaxtarárin
þá endurlifir maöur þau,“ segir
hann.
Ástarævintýrin
eru ekki með
Michale Caine skrifar þó ekki um
ástarævintýri sín sem voru þó
nokkur á sjöunda áratugnum.
„Engum kemur við hvað ég hef
verið með mörgum konum,“ segir
hann. „Ég er hamingjusamlega
kvæntur í dag og vonast til að það
verði áfram. Það vita allir að ég var
glaumgosi hér áður fyrr en nú hef
ég verið kvæntur Shakiru í 21 ár.
Þó hinar konurnar í lífi mínu hafi
þýtt eitthvað fyrir mig um stundar-
sakir er ekki svo að ég vildi skipta
á þeim og Shakiru. Þess vegna
skrifa ég aðeins um þær konur sem
hafa haft mest að segja í hfi mínu,
móður mína, tvær dætur og eigin-
konu.
í bókinni segir Michael Caine frá
hálfbróður sínum sem móðir hans
leyndi fyrir þeim bræðrum og það
mikla áfall að komast að hinu
sanna. „Mamma átti son áður en
hún gifti sig. Á þeim tíma þótt mik-
ið hneyksh að eignast barn utan
hjónabands. í meira en sextíu ár
heimsótti hún soninn einu sinni í
viku án þess að við bræðurnir viss-
um um það,“ segir leikarinn en
móðir hans lést árið 1989. Það var
slúðurblað sem birti sannleikann
um hálíbróður Michaels Caine og
leyndarmál móður hans.
Michael lét eiginkonu sína, Shak-
iru, lesa yfir bókina. „Hún reif úr
þrár blaðsíður og sagði aö þær færu
ekki í prent. Eg hafði ekkert á
móti að þessar þrjár blaðsíður færu
út enda er bókin 450 síður."
Ástin birtist í
kaffiauglýsingu
Michael Caine sá konu sína fyrst
í kaffiauglýsingu í sjónvarpi. Það
varð ást við fyrstu sýn. „Ég hef
aldrei upplifað annað eins,“ segir
leikarinn sem fann út hvar auglýs-
ingadömuna væri að finna, hringdi
í hana og bauð henni út að borða.
„Hún hehlaði mig upp úr skónum.
Ekki bara meö feguröinni heldur
einnig tryggðinni og sjarmanum,"
segir hann. „Margir halda að ég
hafi náð mér í indverska konu til
aö fá góða þjónustu heima. Svo er
ekki enda er Shakira ákveöin og
lætur ekki skipa sér fyrir verkum.
Shakira var eitt sinn Miss Guy-
ana en hýr í dag ásamt eiginmanni
sínum og dóttur, Nathöshu, í íbúð
í London. Þau eiga einnig herra-
garð upp á 250 milljónir í Oxford-
shire þar sem eru fimm svefnher-
bergi, sundlaug, stórar stofur og
fleira. „Þegar ég er heima laga ég
til í garðinum og bý tíl góðan mat,“
segir Michael Caine sem er heima
hjá sér þessa stundina eftir tíu ára
dvöl í Hohywood.