Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.1992, Blaðsíða 24
24
Lífsstm
MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 1992.
'r*:r;' ■' ; ‘r ;;)!;■
DV
Verðkönnuii DV í matvöruverslunum:
Rúmlega 21% munur
á innkaupakörfu
Verslun:
r
geraa
Þær matvöruverslanir, sem kenna
sig við klukkuna, eru orðnar æði
áberandi á höfuðborgarsvæðinu.
Þær verslanir eru kenndar við
klukkutímana 10-11, 11-11 og 10-10
en þær eru allar opnar sjö daga vik-
unnar í samræmi við nafngiftina.
Klukkuverslanimar svokölluðu
eru allar í húsnæði þar sem áður var
venjuleg hverfaverslun. Það er yfir-
lýst stefna hjá klukkuverslununum
að verðlagi er stillt í hóf þrátt fyrir
langan afgreiðslutíma þeirra. Þó að
vöruverðið sé hóflegt er verðið þó að
jafnaði heldur hærra en'í stórmörk-
uðunum á höfuðborgarsvæðinu enda
er afgreiðslutími klukkuverslan-
anna lengri sem réttlætir hærra
verð.
Neytendasíða DV gerði verðkönn-
un í þremur verslunum, einni af
hverri tegund. Könnunin var gerð
þann 28. júlí í 10-11 verslun í
Glæsibæ, 11-11 verslun á Grensás-
vegi og 10-10 verslun við Gnoðarvog.
Niðurstöðurnar sjást á töflu og inn-
kaupakörfum hér á síðunni. Kannað
var verð á 17 vöruliðum. Þeir voru
Toro piparsósa, Cheerios morgun-
kom, Bugles snakk, Gevalia kafli,
Gunnars remúlaði, Pepsi, 2 1, Egils
sódavatn, 0,51, kíló af lambakótflett-
um, rauðum eplum og sveppum, Soy
king sojasósa, Heinz bakaðar baunir,
E1 Vital hámæring, Elnett hárlakk,
Colgate tannkrem, Reach tannbursti
og Silhouette dömubindi.
Þegar reiknað var út verð á inn-
kaupakörfu voru teknir þeir 10 vöm
liðir sem fengust í öllum þremur
verslununum. í innkaupakörfunni
er lagt saman verð á Toro piparsósu,
Bugles snakki, Gunnars remúlaði,
Pepsi, Egils sódavatni, lambakótilett-
um, rauðum eplum, sveppum, Col-
gate tannkremi og Silhouette dömu-
bindum.
í ljós kemur við samanburð á inn-
Neytendur
kaupakörfum að verslanirnar 10-11
og 11-11 eru með mjög svipað verö
en síðarnefnda búðin þó aðeins
lægri. Verslunin 10-10 er með heldur
hærra verð, það munar tæpu 21% í
verði á henni og 11-11 og rúmu 18%
á henni og 10-11 versluninni. Munur-
inn á verði innkaupakörfu 10-11 og
11-11 er 2%.
Ef taflan er skoðuð, sést að vöruúr-
valið var mest í 10-10 en þar vantaði
aðeins einn vörulið. I 10-11 vantaði
3 vöruliði en 4 í 11-11. í sumum tilfell-
um þegar umrædd vara fékkst ekki
í viðkomandi verslun var sama vöru-
tegund til í annarri stærð.
Viðskiptavinir 10-11 og 11-11 versl-
ana eiga að geta gengið að því sem
vísu að sama verð sé á vörum innan
sömu keðjunnar. Öðru máli gegnir
um 10-10 verslanirnar. „Við reynum
svona nokkurn veginn að halda
sömu álagningarprósentunni milli
10-10 verslananna en það er alls ekki
víst að sama verð sé á sama vörulið
innbyrðis milli 10-10 verslananna.
Það gildir í mörgum tilfellum en alls
ekki alltaf,“ sagði Sverrir Alberts-
son, verslunarstjóri í 10-10 verslun-
inni í Gnoðarvogi.
Verslanir, sem kenna sig við
klukkuna, eru meö opið alla daga
vikunnar og eðlilega eru álags-
tímar í þeim verslunum á öðrum
nótum en hjá þeim verslunum
sem hafa ekki opiö á kvöldin eða
um helgar. Neytendasíða DV
kannaði hvenær annatími væri
mestur hjá klukkuverslununum.
„Eldri kynslóðin gerir sín inn-
kaup frá 10-11 að morgninum og
síðan er alltaf einhver umferð
fólks i hádeginu. Það er rólegt frá
hádegi og fram til um 15.30 en þá
hefst annatími sem stendur til
um 19-19.30. Síðan er stöðugur
en jafh straumur fólks fram aö
lokun,“ sagði Ragnar Pétursson,
vaktstjóri hjá 10-11 í Glæsibæ, í
samtali víð DV.
„Laugardagarnir eru lang-
stærstu dagarnir hjá okkur en
annatíminn byrjar þegar versl-
unum Hagkaups er lokað, um
þrjúleytið, Sunnudagarnír eru
rólegastir hjá okkur,“ sagði
Ragnar.
í 10-10 versluninni fengust þær
upplýsingar að aðsóknin færi
mikið eftir veðráttunni en þó
væri alltaf mikið að gera frá 19-22
á kvöldin. Það sama gilti hjá þeim
að timinn frá hádegi og til um 16
væri jafnan mjög rólegur.
Tíminn frá 17-22 er mesti anna-
tíraínn í 11-11 verslununum en
þó er aðsóknin jafnan háð veðr-
inu. Hjá ll-ll að Grensásvegi
fengust þær upplýsingar að laug-
ardagamir væru langannasöm-
ustu dagamir en þar á eftir kæmu
sunnudagarnir. Dagarnir í miðri
viku væm hins vegar jafnir. Svo
viröist sem eldra fólkið kjósi helst
að versla að morgni til en yngra
fólkið síðdegis eða að kvöldinu.
10-11 10-10 11-11
Toro piparsósa, 32 g 48 55 35
Cheerios, 275 g 159 163
Buglessnakk 128 192 128
Gevalia kaffi, 250 g 119 107
Gunnars remúlaði, 400 ml 129 147 139
Pepsí, 21 99 109 109
Egilssódavatn, 'h 1 84 90 83
Lambakótelettur, 1 kg 830 778 763
Rauðepli, 1 kg 99 205 138
Sveppir, 1 kg 568 780 568
Soy King soyasósa, 150 ml 159 139
Heinz bakaðar baunir, 450 g 56 72
El Vital hárnæring, 200 ml 219 277
Elnett hárlakk, 300 ml 574
Colgate tannkrem, staukur 155 213 156
Reach tannbursti, medium 159 156
Silhouette dömub., 15 stk. 275 292 248
Innkaupakarfa 3 verslana
- 10 vöruliðir-
2.861
UBVAtS
SPENriUSAGA
Banvæn þrá
eftir
Gary Devon
Erótísk og félagsleg
spennusaga í sér-
flokki. Háttsettur
maður verður gagn-
tekinn af ást til barn-
ungrar stúlku._____
Bók þarf ekki
að kosta 2000 krónur
til að vera góð.
Úrvalsbækur kosta
790 krónur
og ennþá minna
í áskrift.
Á næsta sölustað eða
í áskrift í slma
(91) 63 27 OO
TAKTU ÞESSA MEÐ í FRÍIÐ!
endum. Einum neytanda, sem fjárfesti í dönsku agúrkusalati í verslun
f Kópavoginum, brá verulega þegar hann rakst á þetta stóra glerbrot í
krukkunni. Þaö er með ólíkindum að svo stórt glerbrot geti komist óséð
í gegnum eftirlit framleiöenda. DV-mynd JAK