Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1992, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1992, Side 4
4 MÁNUDÁGUR 21. SEPTEMBER 1992. Fréttir Maður með stungusár fannst látinn í biðskýli í Kópavogi: Kona ákærð fyrir manndráp Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur rúmlega fimmtugri konu sem grunuð er um að hafa ban- að fyrrum eiginmanni sínum í Kópa- vogi í maílok á þessu ári. Konan er ákærð fyrir manndráp. Hún hefur setið í gæsluvaröhaldi - gæsluvarðhald framlengt og málið komið í dómsmeðferð frá þvi í lok maí, eða eftir að maður- inn fannst látinn í biðskýh skammt frá heimili hennar. Maðurinn fannst meðvitundarlítill með stungusár í biðskýlinu en hann lést eftir að hann kom á sjúkrahús. Dómari úrskurðaði konuna á miðvikudag í tveggja mán- aða gæsluvarðhald til viðbótar - þó ekki lengur en þar til dómur gengur á næstunni. Þetta þýðir að gangi dómur innan næstu tveggja mánaða fellur gæsluvarðhaldið úr gildi. Samkvæmt heimildum DV eru engin vitni talin hafa verið að þeim atburði er maðurinn hlaut það stungusár sem hann lést af. Engin merki rnn átök fundust í íbúð kon- unnar sem er skammt frá biðskýlinu. Á meðan á gæsluvarðahaldsvist- inni hefur staöið hefur konan gengist undir geðrannsókn að kröfu Rann- sóknarlögreglu ríkisins. í kjölfar ákærunnar, sem gefin var út í vik- unni, er máliö nú komið til hefð- bundinnar dómsmeðferðar. Búast má við að dómur í máiinu gangi í október eða nóvember. -ÓTT Tveir ungir menn lentu i heldur hressilegri byltu á móts viö gömlu Elliðaárbrýrnar á laugardag þegar bíll þeirra fór út af og valt viö veginn. Sjúkraliö aðstoðaði ungu mennina við að komast út úr bílnum og voru þeir fluttir á slysadeild í skoðun vegna smávægilegra meiðsla. Síðan tók lögreglan til sinna ráða og ftutti félagana í fangageymslur enda voru báöir grunaðir um að hafa verið verulega ölvaðir. Bíllinn er eins og sjá má mikið skemmdur. DV-mynd S Stórum hvítvínslager stolið talið að þjófurinn hafi staflað þýfinu í bíl 12-14 kössum af hvítvíni var stohð úr kæhgeymslu í porti við veitinga- húsið Við Tjömina aðfaranótt sunnudagsins. Hér var um að ræða a.m.k. 150 flöskur af víni að andvirði hátt í tvö hundruö þúsund krónur. Rannsóknarlögregla ríkisins fer með rannsókn málsins. Að sögn Gunnars Páls Rúnarsson- ar meðeiganda virðist innbrotið hafa verið framið af einhveijum sem þekkir til við veitingahúsið. Vínlag- erinn er í porti á jarðhæð og því tal- ið að þjófurinn eða þjófamir hafi far- ið með bíl að geymsludyrunum og staflað kössunum einum af öðram inn í bflinn. Vínið er kælt í geymsl- unni. Eingöngu hvítvíni var stohð. Tegundimar era Chateau Rions, Muscat Cléray, Dry Pouhy Fuissé og heh sending af sérstöku frönsku víni, sem að sögn Gunnars Páls er án auk- efna, Pierre Frick hvítvíni sem hafði að undanfórnu mælst vel fyrir. „Það er sérstaklega leiðinlegt að Pierre Frick víninu var stohð þvi við gerðum sérstaka pöntim á því. En þaö er svo skrýtið að kokkavinið, sem notað er í matargerð, var alveg óhreyft - koníaksflaska og portvín og fleira,“ sagði Gunnar Páh. -ÓTT Hafspil hf. á Akureyri til gjaldþrotameðferðar: Vélarnar í rekstri hjá nýju Hafspili - Electra í Garðabæ keypti vélamar af þrotabúinu Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii Á fyrsta skiptafundi Hafspils hf. á Akureyri, sem nú er th gjaldþrota- meðferðar, óskaði bæjarlögmaður á Akureyri eftir því að rannsókn færi fram á því hvar vélar, sem bærinn átti veð í, væru niðurkomnar. Hreinn Elhðason, einn af eigendum hins gjaldþrota fyrirtækis, segir að þrotabúið hafi selt vélar Hafspils til fyrirtækisins Electra i Garðabæ. Electra hefur svo ásamt Hreini stofn- að til atvinnureksturs á Svalbarðs- eyri í Eyjafirði og leigir hinu nýja fýrirtæki, sem líka ber nafnið Haf- spil, vélamar. „Það er fáránlegt að halda því fram að vélum hafi verið skotið undan þegar kom til gjaldþrotameðferðar- innar. Þrotabúinu var gerð 100 pró- sent grein fyrir öhum vélum sem Hafspil átti,“ segir Hreinri. „Það er alls ekki neitt óeðlhegt á ferðinni og ég á ekkert í þessu nýja fyrirtæki annað en helminginn af skráningargjaldi þess. Ég á ekki neitt nema skuldir vegna gamla fyrirtæk- isins og nýja fyrirtækið á ekkert, er í leiguhúsnæði og leigir vélar.“ HafspU framleiddi aðaUega spil ýmiss konar fyrir fiskiskipaflotann. Stalbíl Bfl var stolið þaðan sem hann stóð við íbúðarhús við Garðabraut á Akranesi aðfaranótt sunnudags- ins. Eigandinn var að koma heim i fjrrinótt þegar uppgötvaðist að bíUinn var horfinn. Þegar lögregl- an fór að kanna málið og leit var hafin aö bílnum fannst hann loks ofan í skurði við sunnanvert Akra- fjall. Enginn var þá í bílnura. Með samvinnu lögreglunnar í Borgarnesi og á Akranesi tókst aö upplýsa máhð eftír því sem síðast frétöst í gær. Ungur maður af höf- uöborgarsvæðinu er talinn bera ábyrgö á þessum bílstuldi sem hafði skemmdir í fór með sér á ökutækinu. -ÓTT í dag mælir Dagfari _________________ Söf nuður í söf nuði Dagfari er auðvitað safnaðarmeð- limur í sinni sókn eins og aðrir ís- lendingar sem tilheyra þjóðkirkj- unni. En Dagfari ætlar að gera meira. Hann ætlar að komast í sóknarnefnd. Sóknamefndir era nú orðið þungamiðjur samfélags- ins og sá vettvangur þjóðlífsins þar sem atburðarásin er bæði skemmtUeg og hröð. Þar er fjörið og lífiö. Þar aksjón- in. Þar eru menn ekki að þykjast vera tUhtsamir eða fullir fyrirgefn- ingar eins og annars staðar í félaga- samtökum þar sem kristílegt hug- arfar svífur yfir vötmmum. Þar er rifist og smalað á fundi og hoppað og híað og þar era stundir hefndar- innar hámark tílverunnar. Sjáið bara hvað gerðist í Keflavík og sjá- iö hvað er að gerast í Kópavogi. Sóknamefndir era ýmist að koma eða fara og þar er tekist á um klerka og kirkjur af þeim þunga og áherslum sem sæmir hverjum kristnum einstaklingi. Hér fyrr á árum þótti það næsta víst að með því að ganga í stjóm- málaflokk og sækja flokksfundi væra bræðravígin fastur Uður í starfsemi flokksins. Þá skipuðu menn sér í fylkingar og kusu for- ystumenn á víxl og hver sat á svikr- áðum við annan og stjómmála- flokkamir vora iðandi af lífi og fjöri. Nú era þessar samkundur og samtök nánast dauö. Manni er sagt að flokksfundir séu ahs ekki haldn- ir nema í neyð og flokksmenn nenni ekki lengur að rífa kjaft. Sér- staklega hefur þetta friðvænlega ástand verið ískyggilegt í Alþýðu- bandalaginu og Sjálfstæðisflokkn- um. En aUaballar era að mestu sáttir nema þegar eftirlifandi þing- menn þeirra þurfa að kjósa sér formann. Fráfarandi formaður nennti ekki lengur að vera formað- ur og þá vora góð ráð dýr og end- aði með því að rykið var dustað af Ragnari Amalds, því allir vora hundrað prósent öraggir um að hann gerði engum manni mein. í Sjálfstæðisflokknum hafa flest- ar dehur verið settar niður með þeirri aðferö að formaður térroris- erar Uðið og setur þá í skammar- krókinn sem hlýðnast honum ekki. Skammarkrókshöið náði að sparka frá sér í atkvæðagreiðslunni í þing- inu á fóstudaginn þegar spuming- unni um þjóðaratkvæðagreiðslu um EES-málið var vísað tíl nefiidar en þaö voru póhtískir dauðakippir örfárra manna enda mun formað- urinn sjálfsagt sýna þeim í tvo heimana og brjóta áUa mótspymu á bak aftur. Eftir það verður Sjálf- stæðisflokkurinn dauður úr öUum æðum og óþarfi að kaUa saman flokksfundi nema þá tíl að klappa fyrir formanninum eins og þeir gerðu í Sovét forðum. Lengi var líka líflegt í íþróttafé- lögunum. Þar var mikið rifist og þar var mikiö fiör en íþróttamenn hafa í seinni tíð snúið sér að íþrótt- um og gleymt því hlutverki sínu að félög era tíl að rífast í, en ekki til að keppa fyrir, svo þar er líka af sem áður var. Nei, það era sóknamefndimar sem bhva og höggva mann og ann- an. Svo virðist sem í sóknamefndir veljist valinkunnugt hð, sem láti ekki troða sér um tær og í Keflavík gerði sóknamefdin harða hríð að sóknarprestinum og vUdi losa sig við hann. Sóknamefndin þar var á því máh að sóknin væri betur kom- in án klerks og það var ekki fyrr en fjölskylda guðsmannsins hafði þurft að gráta yfir grimmd sóknar- nefndarinnar og sóknamefndin var búinn að láta kjósa sig aftur að sættir tókust í málinu. í Kópavogi era þessu pímúítið öðru vísi farið að því leyti að sókn- amefhdin hefur ekki amast við prestinum og viU raunar byggja kirkju yfir hann og söfnuðinn. En söfnuðurinn er á öðru máh og vUl enga kirkju. í það minnsta ekki kirkju þar sem kirkjan á að rísa og svo var smalað á safnaðarfund eins og þeir gerðu í póhtíkinni forð- um og það kom fleira fólk á þennan safnaðarfund heldur en íþrótta- kappleUdna í Kópavogi, sem sýnir hvað sóknamefndir og söfnuðir era í miklum blóma í Kópavogi. Og það endaði meö því að söfnuð- ur innan safhaðarins bar sóknar- nefndina ofurhði um kirkjubygg- ingu og nú er sóknamefndin að hugsa ráð hvemig hún geti náð fram hefndum. Þeir era dásamlega lausir við það í sóknamefndunum aö tileinka sér kristilegan hugsun- arhátt, sem gerir sóknamefndir spennandi í kirkju- og félagsstarfi nútímans. Dagfari vih endUega komastisvonanefnd. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.