Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1993, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 13. MARS 1993
3
FRUMSÝNING UM
HELGINA
OPIÐ LAUGARDAG 1(M6 OG SUNNUDAG 13H6
SÁ LAAAAANGBESTI!
850 GLE STATION - BYGGÐURÁ 40 ÁRA REYNSLU
z
3
Z
Z
o
X
Volvo 850 GLE station er án efa einn vandaðasti station-bíll í heimi. í fjörutíu ár hefur Volvo
verið leiðandi í hönnun bíla af þessari gerð. Volvo kynnir nú þann fullkomnasta frá upphafi,
Volvo 850 GLE station. Hönnunin á þessum bíl hefurtekist afburða vel, glæsilegt og rennilegt
útlit, kraftur og þægindi auk hins mikla rýmis eru aðalsmerki hans. Volvo 850 GLE station
hentar sérstaklega vel fólki sem vill hafa mikið pláss fyrir farangur og farþega, hann er því
upplagður í ferðalögin og útiveruna og auðvitað fyrir fjölskyldur af öllum stærðum.
FRAMHJÓLADRIF MEÐ SPÓLVÖRN
Vélin er kraftmikil 5 strokka, 20 ventla, 143 hestafla með beinni innspýtingu, sem skilar bílnum
vel áfram þó að hann sé fullhlaðinn, en er samt ótrúlega sparneytin (9,5 lítrar í blönduðum
akstri). Afar fullkomin 4 gíra sjálfskipting með vali um 3 akstursstillingar ásamt vökvastýri er
staðalbúnaður í Volvo 850 GLE station. Auk þess er hann ríkulega búinn fullkomnum
hljómflutningstækjum, upphituðum sætum með plussáklæði, samlæstum hurðum, tvívirkri
miðstöð og mörgu fleiru. Volvo 850 GLE station er framhjóladrifinn með spólvörn sem gerir
hann sérlega hæfan í vetrarakstri.
ABS OG SIPS HLIÐARÁREKSTRARVÖRN
í Volvo 850 GLE station er að finna byltingu í öryggi fyrir farþega. Munar þar mestu um hina
nýju hliðarárekstrarvörn SIPS (Side Impact Protection System) sem felst í því að
farþegarýmið, eða öryggisbúrið sem farþegarnir sitja í, er sérstaklega hannað og styrkt með
hliðarhögg í huga. Auk þessa má nefna ABS hemlalæsivörn sem er staðalbúnaður í Volvo 850
GLE station, öryggisbeltastrekkjara, sjálfvirka aðlögun öryggisbelta, öruggasta aftursæti í
heimi með þriggja punkta öryggisbeltum og höfuðpúðum fyrir þrjá farþega og innbyggðan
barnabílstól.
Verð: 2598.000 kr stgr. kominn á götuna. Léttar veitingar
VOLVO
BRIMBORG HF • FAXAFENI 8 • SIMI (91) 685870