Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1993, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1993
Meiming
Máfurinn
f lýgur - suður
Því miður er það svo að einn leiklistargagnrýnandi
kemst ekki yfir að sjá nema fátt eitt af því, sem áhuga-
félög víðs vegar um landið eru að sýna ár hvert, enda
fjöldi sýninga ótrúlegur.
Margar þeirra eru mjög áhugaverðar og gamalgróin
leikfélög úti á landi hafa gjama á að skipa hæfileika-
ríku fólki þó svo að það hafi ekki notið langrar skólun-
ar í leiklist.
Þetta kraftmikla starf verður seint metið til fulls
enda veitir það jafnt áhorfendum sem þátttakendum
í sýningunum ómælda lífsfyllingu og ánægju auk þess
að vera nauðsynlegt grasrótarstarf í garði listanna.
Um síðustu helgi færðu tvö leikfélög langt að komin
upp sýningar sínar í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Ég komst
ekki til að sjá uppfærslu Leikfélags Skagastrandar á
Stálblómum, sem ég heyrði þó mjög vel látið af, þegar
ég var á Akureyri á dögimum.
Hins vegar sá ég Máfinn, eftir Anton Tsjekhov á laug-
ardaginn, en það var Leikfélag Hornaíjarðar sem setti
hann upp í leikstjóm Hlínar Agnarsdóttur.
Yfirbragð sýningarinnar er fágað og þátttakendum
hvergi ofætlað enda var túlkim þeirra á persónunum
hæglát og innileg fremur en dramtísk og átakamikil.
Verk Tsjekhovs em ekkert lamb að leika sér við fyrir
lítt reynda leikara. Textinn í Máfinum er tregabland-
inn, gamansamur, ljúfsár og djúpvitur allt í senn og
komst prýðilega til skila í skýrum flutningi leikaranna.
Leikmyndin byggist m.a. á málverki eftir Gústaf
Klimt og var hönnim hennar smekkvíslega gerð. Bún-
ingar vom líka prýðilega úr garði gerðir og styrkti
þetta umhverfi leikarana. Af þeim má nefna Margréti
Jóhannsdótttur, sem lék Arkadínu, Guðmund Heiöar
Gunnarsson í hlutverki Konstantíns, sonar hennar,
Snæfríði Hlín Svavarsdóttur, Nínu, Þorvald Viktors-
son, Trígorín, Ingvar Þórðarson, Dorn og Björk Páls-
dóttur, Mössju.
Baldur Kristjánsson skrifar grein í leikskrá og ég
leyfi mér að vitna í orð hans um Máfinn: Þetta er...
„gamansaga úr sveitinni, sveitafólki teflt fram gegn
frægu fólki úr borginni, fólki sem komið er til að vera
um stund, hvílast. Þeim sem fóm teflt fram gegn þeim
sem sátu eftir.“ Og rétt á undan segir hann: „Er það
eitthvert líf að vera í Hornafirði aUa tíð eða er lifið
fólgið í því að þeytast um? Verða frægur fyrir sunnan?"
Þetta em góðar spumingar, einkum í ljósi þess að
Leiklist
Auður Eydal
nú em leikfélagar komnir suður með Máfinn. En ein-
hvem tíma var sagt að ef fjallið kæmi ekki til Múha-
meðs þá færi Múhameð til fjallsins. Það hggur í augum
uppi að það er mikið fyrirtæki og kostar ótaldar vinnu-
stundir að taka sig upp með heila leiksýningu og leggja
land undir fót með aRt það hafurtask sem henni fylgir.
Það hefur leikhópurinn nú gert, ekki af því að frægð-
in búi fyrir sunnan, heldur tíl að leyfa okkur hér á
SV-horninu að njóta góðrar sýningar og sjá um leið
hvað verið er að gera fyrir austan. Þvi er sannarlega
ástæða tíl að hrósa Homfirðingum fyrir framtakið um
leið og þakkað er fyrir ágæta leiksýningu.
Leikfélag Hornafjarðar-gestasýning í Bæjarbfói, Hafnarfirði:
Máfurinn
Höfundur: Anton Tsjekhov
Þýðing: Pétur Thorsteinsson
Leikstjórn: Hlin Agnarsdóttir
Leikmynd og búningar: Pétur Gautur Svavarsson
Ljós: Steinar Már Ævarsson
23
YFIR 4000 LÁG VERÐ
Pantið
nýja listann
strax og sparið
Verð kr. 190 án bgj.
Pöntunarsími 52866
B. M AGNÚSSON HF.
Hólshrauni 2 - simi 52866 - Hafnarfirdi
* * * X 4
SNÆLAND
★ * * * * 4 -X- -X-
ÓTRÚLEGA ÓDÝR ÍS-SHARE
ís í formi.................99,-
ís með dýfu................109,-
ís með dýfii og ris........119,-
Bamais.....................69,-
is, 1 lítri................295,-
Shake, litiii...............195,-
Shake, stór.................235,-
isi boxi, litiil............139,-
isiboxi, stór...............169,-
Bananasplitt................360,
Margar gerðir af kúluís
Vinsæli dúó ísinn með súkkulaði og vanillubragði.
SMÆLAHDS-SPES, m. ávöxtum að eigin vali og rjómaiii
Munið bragðarefinn, alltaf jafn góður!
Vejjið sjálf ísréttinn.
★ ★ ★
SNÆLAND
VIDEO
★ ★ ★
Varmahlfð - Siglufjörður - Akureyri - Vaglaskó.eiur
,Qi áíger^r
’SSSS*-"'*-
COMBI-CAMP
Mývatn
HJÁ TÍTAN HF. 17. APRÍL
4% afeláttur á staðfestum pöntunum og 3
heppnir kaupendur fá glæsileg verðlaun.
COMBKCAMP
Verð frá kr. 191.270 stgr.
JTJÁLS
1. Verðlaun: Ferð fyrir vagn og
bíl til Esbjerg með Norrænu.
2. Verðlaun: Deluxe ferðaeldhús.
3. verðlaun: Ferðaborð og stólar.
iÁLATI
Combi Camp tjaldvagnar fyrir þá sem njóta vilja útiveru
og ferðalaga. Þá sem vilja komast í náinn kynni við
náttúru iandsins og geta á skömmum tíma slegið upp
náttstað að eigin vali með alvöru þægindum.
Opið: Mánudaga til föstudaga frá kl. 9-18
Laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-17
TITANhf
LÁGMÚLA 7
SÍMI 814077
Reykholt - Skorradalur - Laugardalur - ÞinRvellir - Laugarvatn - Þjórsárdalur - Landmannalau.qar - Galtalækur - Þórsmörk - Vfk - Kirkjubæjarklaustur