Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1993, Síða 26
26
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL1993
Skák
Verður Karpov
heimsmeistari á
Anatoly Karpov, fyrrverandi heimsmeistari, er einn sigursælasti mótaskákmaður allra tíma. Alþjóðaskáksam-
bandiö, FIDE, hefur boðið honum aö tefla við Jan Timman um heimsmeistaratitilinn.
Fátt vekur meiri athygli í skák-
heiminum en upphlaup Kasparovs
og Shorts, sem sagt hafa skUið við
Alþjóðaskáksambandið, FIDE, sem
á móti hefur svipt þá tith heims-
meistara og áskorandarétti. Mjög
kom á óvart að Short og Kasparov
skyldu snúa bökum saman því að
um vinskap þeirra í millum hefur
ekki beinlínis verið að ræða.
Þetta mál á sér langan aðdrag-
anda hvað Kasparov varðar en
hann hefur séð ofsjónum yfir háum
fjárfúlgum sem FIDE fær í sinn
hlut fyrir einvígi um heimsmeist-
aratitilinn, sem er ein helsta tekju-
lind samtakanna.
Kasparov var í forsvari fyrir
samtök stórmeistara, GMA, en
sagði af sér þegar þorri félags-
manna studdi samkomulag við
FIDE, á aðalfundi á Spáni 1990. Þá
tók Timman við og síðan Short,
sem dró sig í hlé eftir áskorenda-
einvígið við fyrrnefndan. Þeir
Short og Kasparov segjast nú hafa
stofnaö ný samtök atvinnuskák-
manna og í nafni þeirra ætla þeir
að tefla um „heimsmeistaratitil-
inn“ í Lundúnum í haust. Kasparov
er einnig formaður „Chess Union
International" sem eru samtök
skákmanna í fyrrverandi Sovét-
ríkjum. Orö Spasskíjs fyrir mörg-
um árum koma upp í hugann en
hann sagði að helsta áhugamál
Kasparovs væri að stofna samtök
af ýmsu tagi.
Forseti FIDE ræður einvígis-
staðnum en honum ber þó að ráð-
færa sig við keppendur. Short bar
því við að hann hefði ekki veriö
spurður álits er Campomanes
ákvað aö teflt skyldi í Manchester.
Þetta hafa forsvarsmenn FIDE bor-
ið til baka í dreifibréfi samtakanna.
Þar er látið í veðri vaka að upp-
hlaup Shorts og Kasparovs snúist
fyrst og fremst um peninga.
Trúlega njóta gjörðir Kasparovs
og Shorts lítils stuðnings í röðum
skákmanna og meðal hinna ýmsu
skáksambanda. Þannig hefur t.a.m.
breska skáksambandið sent FIDE
stuðningsyfirlýsingu. Hitt er annað
mál að erfitt verður að líta á ein-
vígi þeirra öðruvísi en að þar sé
teflt um heimsmeistaratitihnn.
En FIDE getur ekki lagt árar í
bát. Einhvem veginn verður að
ljúka hinni opinberu heimsmeist-
arakeppni. Því hefur Campomanes
boðið Karpov og Timman að tefla
um titilinn og er ekki annaö vitað
en að þeir hafi fullan hug á að
þekkjast það. Karpov hlaut heims-
meistaranafnbót 1975 án þess að
tefla við Fischer en Kasparov
hremmdi titihnn úr höndum hans
tíu árum síðar. Flestir búast við þvi
að Kasparov vinnj Short auðveld-
lega og Karpov er sömuleiöis hk-
legur til afreka gegn Timman. Áður
en árið er liðið gæti skákheimurinn
því átt þijá verðuga heimsmeist-
ara: Kasparov, Karpov og ... Fisc-
her.
Karpov er einn sigursælasti
mótaskákmaður allra tíma. Síðasta
afrek hans var í Baden Baden í lok
síðasta árs. Mótið var af 14. styrk-
leikaflokki og sigraði Karpov með
Skák
Jón L. Árnason
yfirburðum - hlaut 9,5 v. af 11
mögulegum. Þessa góðu skák tefldi
hann á mótinu. Ég styðst við skýr-
ingar hans í skákritinu New in
Chess.
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Stefan Kindermann
Kóngsindversk vörn.
1. d4 Rffi 2.c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4
d6 5. f3 (H) 6. Be3 Rc6 7. Rge2 a6 8.
Dd2 Hb8 9. h4 h5 10. Rcl e5 11. d5
Rd4 12. Rle2 c5 13. dxc6 bxc6!? 14.
Rxd4 exd4 15. Bxd4 He8 16. Be2 d5
17. cxd5!
í skiptum fyrir peðið, sem svartur
fórnaði í 13. leik, hefur hann fengið
frjálst spil fyrir menn sína. Hvítur
má gæta að sér í mörgum afbrigð-
um, eins og t.d. eftir 17. exd5 cxd5
18. c5 Hb4! með margvíslegum hót-
unum. Eða áður 16. 0-0-0 Da5 með
öflugu frumkvæði.
17. - cxd5 18. e5 Rd7 19. f4 Bh6!
Lakara er 19. - f6 20. e6 Rf8 21. f5!
og tætir sundur svörtu peðastöð-
una. Leikur svarts lofar góðu eftir
20. Be3 Rxe5! 21. fxe5 Bxe3 22. Dxe3
d4, eða 20. Rxd5 Rxe5 21. Bc3 Bg4
en Karpov skynjar hættuna.
20. De3! Hxb2 21. Hdl!
Dæmigerður Karpov-leikur, sem
sýnir hve djúpt hann hefur
skyggnst í stöðuna. Svo virðist sem
„eðlilegra" sé að koma kóngnum í
skjól en Karpov reiknaði nákvæmt:
21. 0-0 Rxe5! 22. Bxe5 Hxe5! 23.
Dxe5 Bg7 24. Dxd5 Db6+ 25. Khl
Bxc3 og svartur hefur frábær færi
fyrir skiptamun.
21. - Rffi
Besti leikurinn. Ef nú 21. - Rxe5
22. Dxe5 Bg7 24. De3 d4 25. Dcl
o.s.frv.
22. 0-0
Enn sneiðir Karpov mjúklega hjá
hættunum. Hann gefur upp af-
ný?
brigðin 22. Bf3 Rg4 23. Dcl Rxe5!
og nú er 24. Dxb2 illmögulegt vegna
24. - Rd3 + , eða 22. Dcl Hxe2! 23.
Rxe2 Bg4 24. Hd3 Bxe2 25. Kxe2 Dd7
og hvítur á erfitt með að mæta
hótunum svarts á hvitu reitunum.
22. - Rg4 23. Dg3 Be6 24. Bxa6!
Karpov segir að peðið sjálft hafi
ekki freistað heldur hitt aö það
valdar b5-reitinn mikilvæga.
24. - Da5 25. Bd3 Bffi?
Ekki 25. - Hb4 26. Re2 Dxa2? 27.
Hal Dd2 28. Hfdl og svarta drottn-
ingin er fönguö! En betra er 25. -
Hc8 er svartur hefur ákveðin færi
fyrir peðið. Textaleikurinn strand-
ar á laglegu taktísku stefi.
26. ffi Bc5
I # 1
£ 1
# ii A A A % A m
A s A
s &I
ABCDEFGH
27. Bb5!
Eftir þennan meistaralega leik
kemst svartur ekki hjá liðstapi. Nú
er biskupinn á d4 svarts á e8 í upp-
námi, svo og biskupinn á e6.
27. - Hxb5
Eða a) 27. - Db6 28. Df4! Bxd4 29.
Hxd4 Hb4 30. fxe6 og vinnur; b) 27.
- Bxd4 28. Hxd4 Hc8 29. fxe6 Hxc3
30. exf7+ Kf8 31. e6! og vinnur.
28. Rxb5 Dxb5 29. fxe6 Hxe6 30. Dfí
Bxd4+ 31. Hxd4 Rxe5
Betra er 31. - De8 til að þvinga
íram 32. Hxd5, því að ef 32. Dxd5?
þá 32. - Re3. Þetta hefði gert hvítum
erfiðara fyrir að innbyrða vinning-
inn. Nú lýkur taflinu í fáum leilq-
um.
32. Dxd5 Db2 33. Da8 + Kg7 34. Hd8
- Óveijandi mát blasir við. Svart-
ur gafst upp.
Bridge____________________________________________
íslandsbankamótið 1993:
Mótið hefst á Hótel Loftleiðum í dag
Úrslitakeppni íslandsmótsins í
sveitakeppni hófst kl. 11 árdegis á
Hótel Loftleiðum og eru spilaðar
tvær umferðir í dag.
í fyrstu umferð eigast við sveitir
Glitnis og Landsbréfa, sveitir VÍB og
Roche, sveitir Hjólbarðahallarinnar
og Tryggingamiðstöðvarinnar og
sveitir Sparisjóðs Siglufjaröar og DV.
Sveitimar eru þannig skipaöar:
1. Glitnir
Bjöm Eysteinsson
Aöaisteinn Jörgensen
Helgi Jóhannsson
Guðmundur Sv. Hermannsson
Ragnar Magnússon
2. V.I.B.
Öm Amþórsson
Guðlaugur R. Jóhannsson
Páll Valdemarsson
Karl Sigurhjartarson
Sigfús Om Ámason
Hörður Amþórsson
3. Hjólbarðahöllin
Eiríkur Hjaltason
Ragnar Hermannsson
Hjaltí. Ehasson
Jónas P. Erlingsson
Oddur Hjaltason
Páll Hjaltason
4. Sparisjóður Siglufjarðar
Jón Sigurbjömsson
Ásgrímur Sigurbjömsson
Steinar Jónsson
Ólafur Jónsson
Anton Sigurbjömsson
Bogi Sigurbjömsson
5. DV
N.P.C. Hallur Símonarson
Símon Símonarson
Einar Jónsson
Rúnar Magnússon
Sverrir Kristinsson
Valgarð Blöndal
Krisfján Blöndal
6. Tryggingamiðstöðin
N.P.C. Gísli Ólafsson
Sigtryggur Sigurðsson
Bragi L. Hauksson
Valur Sigurðsson
Sigurður Sverrisson
Hrólfur Hjaltason
j Sigurður Vilhjálmsson
Bridge
Stefán Guðjohnsen
7. Roche
Haukur Ingason
Gylfi Baldursson
ísak Öm Sigurðsson
Sigurður B. Þorsteinsson
Steingr. Gautur Pétursson
Jón Hjaltason
8. Landsbréf
N.P.C. Ragnar S. Halldórsson
Jón Baldursson
Sævar Þorbjömsson
Guðmundur Páll Amarson
Þorlákur Jónsson
Matthías Þorvaldsson
Sverrir Ármannsson
Það er erfltt að spá um úrslitin, en
á pappímum virðist sveit Landsbréfa
mjög sterk. Sveit Glitnis sigraði sem
kunnugt er í stórmóti Flugleiða á
dögunum, þannig að hún ætti að geta
látíð að sér kveða. Þessar sveitir
mætast í fyrstu umferðinni og hver
veit nema það sé úrslitaleikur móts-
ins. Ég yrði heldur ekkert hissa þótt
sveit Tryggingamiðstöðvarinnar
hafnaði á verðlaunapallinum.
Við skulum að lokum skoða eitt
spil frá mótinu í fyrra.
V/N
♦ K
♦ Á 8 7 5 4
♦ D 9 3
+ Á 9 6 2
og Páll Hjaltason 3 tígla í vestur og
urðu þijá niður, 150 til sveitar Lands-
bréfa. y
í opna salnum var meira fjör, leik-
urinn spilaður á töflu og áhorfendur
skemmtu sér vel. Þar sátu fyrirhði
Landsbréfa, Magnús Ólafsson í vest-
ur og Bjöm Eysteinsson í austur, en
n-s vom Eiríkur Hjaltason og Oddur
Hjaltason. Magnús dró fram eftirlæt-
isvopn sitt - ísbijótinn svokahaða:
Vestur Norður Austur Suður
3grönd* dobl 41auf dobl
4tíglar 4hjörtu pass pass
pass
♦
♦
+
10
DG963
Á G 10 6 2
K
♦ D 8 6 5 4 2
V 10
♦ K8
+ D854
* Á G 9'7 3
V K
♦ 754
+ G 10 7 3
í lokaða salnum spiluðu hðsmenn
Hjalta Elíassonar, Jón Hilmarsson
* 6-5 í háht og láght, 7-11 HP
N-s virtust hafa náö yfirhöndinni.
þegar Eiríkur fann dobhð á þijú
grönd því a-v geta ekkert spilað sem
kostar minna en 800. Sagnir þróuð-
ust hins vegar öðmvísi og enduðu
með ósköpum fyir n-s. Fjögur hjörtu
urðu nefhilega fimm niður og sveit
Landsbréfa græddi dýrmæta 12
impa.