Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1993, Side 48
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 1993
72
Afrnæli
Einar Sigurðsson
Einar Sigurösson háskólabókavörð-
ur, Kringlunni 45 Reykjavík, verður
sextugur laugardaginn fyrir páska,
þann 10. apríl næstkomandi.
Starfsferill
Einar fæddist í Gvendareyjum,
Skógarstrandarhr., og ólst þar upp
fram undir fermingaraldur.
Hann lauk stúdentsprófi frá MR
1955, cand. mag. í ísl. fræðum frá
HÍ1963. Stundaði aukþess nám í
bókasafnsfræði við HI1959-60.
Einar var styrkþegi viö Handrita-
stofnun íslands 1963-64, skipaður
bókavörður í Háskólabókasafni í
Reykjavík 1964 ogháskólabóka-
vörður 1974. Hann var stundakenn-
ari í bókasafnsfræði 1965-77, form.
Mímis, fél. stúdenta í ísl. fræðum,
1959-60, form. deildarbókavarðaí
ísl. rannsóknarbókasöfnum 1975-77,
form. undirbúningsn. 5. þings Sam-
bands norrænna rannsóknarbóka-
varða í Rvík 1978, í stjórn Sambands
norrænna rannsóknarbókavarða
1977-82A stjórn NORDINFO1980-88
og form. samstarfsnefndar um upp-
lýsingamál 1982-90.
Einar tók saman Skrá um efni í
tímaritum Bókmenntafélagsins,
Rvík 1966, Bókmenntaskrá Skírnis,
skrif um ísl. bókmenntir síðari tíma,
Rvík 1968 og árlega síðan, Skrá um
íslensk blöð og tímarit frá upphafi
til 1966 ásamt Böðvari Kvaran, Rvík
1970, Nafna- og atriðaskrár við ís-
lenskar þjóðsögur Ólafs Davíðsson-
ar 1-4, prentaðar í 4. bindi í Rvík
1980 og íslensk tímarit í 200 ár, Rvík
1991, ásamt Böðvari Kvaran.
Einar var ritstjóri Stúdentablaðs-
ins 1955 og auk þess liggja eftir hann
kaflar í bókum og greinar i blöðum
og tímaritum.
Fjölskylda
Einarkvæntist2.11.1957Margréti
Önnu Sigurðardóttur, f. 5.6.1933,
deildarstjóra á skrifstofu Ríkisspít-
alanna. Hún er dóttir Sigurðar
Árnasonar verslunarmanns á Rauf-
arhöfn og Amþrúðar Stefánsdóttur.
Einar og Margrét Anna eiga þrjú
börn, þau eru: Arnþrúður, f. 16.4.
1958, bókasafnsfræöingur í Reykja-
vík, var gift Arngrími Thorlacius,
f. 17.9.1956, efnafræðingi, þau
skildu, og eiga þau Magnús, f. 26.11.
1979, Baldur, f. 22.10.1981, og
Guðnýju Ellu, f. 10.8.1984; Guðrún
Björk, f. 19.7.1959, kennari í Kópa-
vogi, gift Kristjáni Skarphéðinssyni,
f. 10.10.1957, deildarstjóra í sjávar-
útvegsráðuneytinu, og eiga þau
Skarphéðin, f. 8.7.1984, og Einar, f.
3.8.1989; og Sigurður, f. 2.3.1962,
matvælafræðingur í Reykjavík,
kvæntur Soffiu Guðmundsdóttur, f.
13.8.1962, hjúkrunarfræðingi og
eiga þau Guðmund Arnar, f. 25.4.
1990.
Systkin Einars eru: Guðrún, f. 7.2.
1915, húsmóðir í Reykjavík, gift
Sveinbirni Óskari Kristjánssyni, f.
29.4.1913, og eiga þau níu börn;
Margrét, f. 3.3.1916, húsmóðir á
Álftanesi, gift Jóhanni Jónassyni, f.
2.3.1912, og eiga þau sex börn; Krist-
ín Stefanía, f. 16.10.1917, húsmóðir
í Reykjavík og á hún eina dóttur;
Guðný, f. 18.4.1919 d. 26.4.1919; Sigr-
ún, f. 23.11.1920, húsmóðir í Reykja-
vík, var gift Bergsveini Breiöfjörð
Gíslasyni, f. 22.6.1921, þau skildu,
og eignuðust þau fimm börn; Jón,
f. 11.12.1923, húsasmiðurí Reykja-
vík, kvæntur Kristínu Sigbjörns-
dóttur, f. 6.8.1928, og eiga þau þrjú
börn; og Sólveig, f. 5.5.1925, húsmóð-
ir í Stykkishólmi, gift Kristni Breið-
fjörð Gíslasyni, f. 9.10.1919, og eiga
Einar Sigurðsson.
þau þrjúbörn.
Foreldrar Einars voru Sigurður
Einarsson,f.29.1.1890 d. 31.1.1983,
fyrrum b. í Gvendareyjum og k.h.
Magnúsína Guðrún Björnsdóttir, f.
2.7.1891 d. 16.4.1973, húsmóðir þar.
Þau hjónin, Einar og Margrét
Anna, taka á móti gestum í Breið-
firðingabúð, Faxafeni 14 Reykjavík,
á milh kl. 17 og 20 á afmælisdaginn.
Rúnar H. Sigmundsson
Rúnar H. Sigmundsson viðskipta-
fræðingur, Espilundi 14, Akureyri,
verður sextugur á morgun, skírdag.
Starfsferill
Rúnar fæddist að Árnesi í Árnes-
hreppi í Strandasýslu og ólst upp á
bænum Melum í sömu sveit. Hann
lauk stúdentsprófi frá MA1955 og
cand. oecon. frá HÍ1959.
Rúnar var aðalbókari hjá Akur-
eyrarbæ frá 1959-61, fulltrúi hjá
Flugfélagi íslands hf. á Akureyri
1961-63 og skrifstofustjóri í Skatt-
stofu Norðurlandsumdæmis eystra
áAkureyri 1963-76.
Hann tók við stjórn flugvallarins
á Akureyri 1976 og fimm árum síðar
gerðist hann umdæmisstjóri Flug-
málastjórnar á Norðurlandi, en því
starfl gegndi hann til ársloka 1991.
Frá árinu 1977 hefur hann rekið eig-
in bókhaldsskrifstofu.
Rúnar hefur verið mikilvirkur í
íþróttastarfi á Akureyri um árabil.
Hann hefur starfað lengi fyrir skíöa-
deild KA og hin síðari ár unnið til
fjölda verðlauna í skíðagöngu.
Þá hefur hann starfaö í Sjóstanga-
veiðifélagi Akureyrar og var hann
gjaldkeri þess á árunum 1982-87 og
hefur einnig unnið til fjölda verð-
launa í þeirri íþróttagrein.
Fjölskylda
Rúnar kvæntist 22.9.1956 Helgu
Sigfúsdóttur, f. 30.12.1935, húsmóð-
ur. Hún er dóttir Sigfúsar Kristjáns-
sonar, verkamanns á Akureyri, og
Guðrúnar Vilborgar Gísladóttur
húsmóður þar.
Börn Rúnars og Helgu eru: Gunn-
ar Örn, f. 4.7.1956, trésmiður á Ak-
ureyri, kvæntur Bryndísi Valgarðs-
dóttur uppeldisfræðingi og eiga þau
Katrínu Ernu; Sigrún, f. 3.7.1957,
hj úkrunarfræðingur á Akureyri,
gift Magnúsi Mágnússyni verkfræð-
ingi og eiga þau Andra Þór, Helgu
Guðrúnu, Heiðu Berglind og Jón
Heiöar; Sigmundur Ernir, f. 6.3.
1961, varafréttastjóri á Stöð 2 og ljóö-
skáld, kvæntur Elínu Sveinsdóttur,
förðunarfræðingi og útsendingar-
stjóra á Stöð 2, og eiga þau Birtu og
Rúnar. Fyrir átti Sigmundur Ernir
Eydísi Eddu og Odd; Guðrún Sig-
fríð, f. 4.4.1967, bankagjaldkeri á
Akureyri, gift Sigfúsi Arnari Karls-
syni skrifstofumanni og eiga þau
Rúnar H. Sigmundsson.
Helgu og Karl Gunnar.
Faðir Rúnars er Sigmundur, f.
26.1.1908, Guðmundsson, b. á Mel-
um í Árneshreppi, Guðmundssonar
og k.h., Elísabetar Guðmundsdóttur
húsmóður.
Móðir Rúnars var Sigrún Guð-
mundsdóttir, f. 21.6.1895, d. 20.3.
1973, húsmóðir. Hún var dóttir Guð-
mundar Ásgrímssonar, sjómanns í
Ólafsvík, og Vigdísar Bjarnadóttur
húsmóður þar.
Sveinn Oddgeirsson
Sveinn Oddgeirsson, ökukennari og
leigubifreiðastjóri, Kópavogsbraut
43, Kópavogi, verður fimmtugur á
morgun, skírdag.
Starfsferill
Sveinn fæddist í Hafnarfirði og
ólst þar upp á Suðurgötunni. Hann
varð gagnfræðingur frá Gagnfræða-
skóla Vesturbæjar og síðar bifvéla-
virkjameistari frá Iðnskóla Hafnar-
fjarðar.
Sveinn starfrækti um tíma bíla-
verkstæðið Vélvagn í Kópavogi og
var framkvæmdastjóri Félags ís-
lenskrabifreiðaeigendafrá 1975-81.
Á árunum 1981-86 var Sveinn bif-
reiðaeftirlitsmaður og prófdómari
FYRIf KERRUSMIÐI
'aTi Kmtu- standar Dráttar- kúlur og tanfli ofl 13"—14" plastbretti
Fjaðraöilar 250 kg 500 kg 750 kfl &MMB Tangibratti mað ralmagnskapli
LUGTIR ásamt sjöleiðara köplum Endurskinsþrihyrningar CSvarahlutir Hamarshöfða 1 - simi 67-67-44
og frá 1978-86 kenndi hann við
meirapróf bílstjóra. Frá árinu 1986
hefur Sveinn starfað sem ökukenn-
ariogleigubílstjóri.
Fjölskylda
Sveinn kvæntist 15.7.1966 Guð-
laugu Albertsdóttur, f. 29.4.1945,
húsmóöur og leigubifreiðastjóra.
Hún er dóttir Alberts Gunnlaugs-
sonar, fyrrum verkamanns í
Reykjavík, sem nú er látinn, og
Katrínar Ketilsdóttur sem nú býr í
íbúðum aldraðra við Sunnuhlíð í
Kópavogi.
Börn Sveins og Guðlaugar eru:
Katrín Lillý, f. 6.4.1966, bankastarfs-
maður, í sambúð með Kristni Ragn-
arssyni, tæknistjóra Vífilfells hf., og
eiga þau Atla Svein og óskírðan son;
Oddgeir Már, f. 27.1.1968, slökkvi-
liösmaður og rafvirki, í samhúð með
Sigrúnu Jónsdóttur, tækniteiknara
hjá Fit hf., og búa þau í Kópavogi;
og Albert Jón, f. 5.12.1970, slökkvi-
Uðsmaður og rafvirki, í sambúð með
Jónínu Hreinsdóttur, sjúkraliða á
Borgarspítalanum, og búa þau í
Kópavogi.
Faðir Sveins er Oddgeir Karlsson,
f. 22.7.1915, fyrrum loftskeytamað-
ur. Móðir Sveins var Lillý Magnús-
dóttir, f. 6.7.1917 d. 7.3.1981, hús-
móðir og kaupmaður í Reykjavík.
Sveinn Oddgeirsson.
Oddgeir er sonur Karls Karlsson-
ar, fyrrum starfsmanns Reykjavík-
urhafnar, og Sveinu Oddsdóttur.
Lillý var dóttir Magnúsar Kjartans-
sonar málarameistara og Sigur-
rósar Sveinsdóttur, formanns
Verkakvennafélagsins Framtíðar-
innaríHafnarfirði.
Sveinn verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Til hamingju með afmælið 10. apríl
Öngulsstöðum 1, Eyjafiarðarsveit.
Arndís Bjarnadóttir,
Bogahlið 12, Reykjavík.
Ormur Ólafsson,
Sigríður Ólafsdóttir, Safanivri 54, Reykjavík.
Stigahliö 20, Reykjavik. Helgi Vilhjóimsson,
Aðalbjörg Sigurðardóttir, StórllOlti 28,
Haftiarstræti 25, Akureyri. Reykjavik.
Eyfríður Guðjónsdóttir, Eiginkona Helga
Austurhrún 6, Reykjavík. er Valgerður Jó-
------------------------------------- harmesdóttir.
Þau lúónin
; dveija erlendis á :
aftnælisdaginn.
Öddur Oddsson,
Tangagötu 15a,
ísaflrði,
Eiginkona hans
erSigriðurÁrna-
dóttir. Þau hjón-
in taka á móti
gestum að Dal-
brautðíHnifsdal
á afmælisdaginn
milli klukkan 15
og 19.
Hólmfríður Þóroddsdóttir,
Hjallavegi 52, Reykjavik.
Þuríður Jónsdóttir,
Seljalandsvegi 18, ísafirði,
Hulda Guðnadóttir,
Hólabraut 18, Akureyrí.
Hallgrimur l’ólsson.
Kirkjuhvoli, Hvolsvelli.
Gunnlaugur Lárusson,
Skeiöarvogi 11, Reykjavík.
Rúnar Sopkus Hansen,
Krummahólum 51, Reykjavík.
Sigurður Geirsson,
Akraseli 21, Reykjavík.
Jóhanna Karisdóttir,
Viðihlíð 15, Sauðárkróki.
Stovar Nielsson,
Skólavegi 25, Fáskrúðsfirði.
Tryggvi Sigjónsson,
Ránarslóð 8, Höfn í Hornafirði. .......... „ ,
Friðgeir Ágústsson, Íí UÓ"y ^udmurrdsdctttr,
Álfhólsvegi 30, Kópavogi. BairrHolti 27, Mosfellsbæ.
Gunnar Þórðarson, Ólafur Ehas Ólafsson,
Álfalandi 12, Reykjavík. Tjarnarmyn 7> Selljamamesi.
Helga Kristinsdóttir, 1;jola Johannsdottir,
Asbrún G, Felkihrcppi.
Til hamingju með afmælió 11. apríl
Ingibjörg Jóhannsdóttir.
Jökulgrunni 6,
Reykjavík.
IúgibjörgfróHóli
í Fjörðum tekur
á móti gestnm
milli kl. 15 og 18
á aftnælisdaginn
í Sal aldraðra að
Kirkiulundí 6 i
Garðabæ.
Pétur Hjaltcstcd,
Hrávallagötu 6, Reykjavik.
Sigurður Lárusson,
Bogaslóð 4, Höfn í Hornafirði.
Sigurður verður aö heiman á afmælis-
daginn.
Elín Margrét Höskuldsdóttir,
Rjúpufelli 27, Reykjavík.
Ragnnr Jónsson,
Hæðargarði 13, Reykjavík.
Hjörtína Vagnsdóttir,
Birkihlíð 12, Sauðárkróki.
Sólrún Steindórsdóttir,
Raftahlíö 48, Sauðárkrókur.
Margrét Kristin Finnbogadóttir,
Engjaseli 5, Reykjavík.
Bima Salómonsdöttir,
Lóngubrekku 10, Kópavogi
Arnar :
Björgvinsson,
lilPTftfséJíil::
Reykjavík.
Amar veröur að
heimau á íilinæl-
isdaginn.
Björg Þórðardóttir,
Goðheimura 21, Reykjavík.
Imrbjörg Guðjónsdóttir,
Markarvegi 15, Reykjavík.
Álfhildur Steinbj örnsdóttir,
Reykjarbraut 19, Þorlákshölh.
Ölöf I.P. Benediktsdóttir,
Rjúpufelli 44. Reykjavík.
Birgir Jónasson,
: Valiargötu 21, Keflarik. j
Álfheiður Bjarnadóttir,
Bjarkargötu 8, Patreksfiröi.
Þórður Kristjánsson,
Dalseli 10, Reykjavik.
Guðmundur Þorkell Bjnrnason,
Austurgötu 5, Hafnarfirði.
Halla Guðbjörg Torfadóttir,
Álfaheiði 26, Kópavogi.
Sigurgcir Hjarni Árnasnn,
Eyrargötu 18, Sigiufirði.
Björg Jónsdóttir,
Brúnageröi 2, Húsavík.