Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1993, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1993, Side 17
MÁNUDAGUR 26. APRÍL 1993 17 Fréttir Grásleppuvertíðin mjög léleg Helgi Jónssan, DV, ÓlaMrði; „Þetta er búiö aö vera afskaplega léleg grásleppuvertíð, annaö árið í röð skal ég segja þér,“ sagði Aðal- björn Sigurlaugsson, trillukarl hér á Ólafsfirði. Veríðin hófst 20. mars sl. og þeir sem veitt hafa mest eru komnir með 13 tunnur en það þykir eðlilegt aö vera kominn með 60% heildaraf- lans í aprílmánuði. Það er yfírleitt aðaltíminn en þetta er aðeins brot af því sem gott þykir. Síðasta góða grásleppuvertíðin var 1987. Veið- inni nú lýkur í júní. Rauðmaga- veiðin hefur lítið lagast og byijaöi meira að segja þremur vikum seinna en venjulega. Starrinn hefur löngum þótt hvimleiður fugl i nábýli við menn vegna flóarinn- ar sem honum fylgir. í húsi einu í Mosfellsbæ hafa starrahjón verið að byggja sér hreiður og ibúar hússins ekki farið varhluta af því. Flær hafa gert sig heimakomnar og valdið íbúum ýmsum skráveifum. Næstum hver íbúi hússins er bitinn. DV-mynd Sigrún Lovisa EskiQörður: Erfittaðfáfólkþrátt fyrtr skráð atvinnuJeysi Emil Thorarensen, DV, Eskifirði; Atvinnumál á Eskifirði hafa verið með þokkalegu móti síðustu mánuð- ina. Fiskveiðar og vinnsla sjávaraf- urða er aðalatvinnugreinin. Eskfirðingar gera sér vel grein fyr- ir á hveiju þjóðin lifir. Segja má að atvinnuleysi hafi ekki þekkst á Eski- firði í áratugi - afiir fengið vinnu sem á annað borð hafa nennt að vinna og haft til þess heilsu. En hér er lítið um létt störf, allt fremur erfið vinna við undirstöðuatvinnugreinina. Að sögn Júlíönu Vilhjálmsdóttur, sem sér um skráningu atvinnulausra á bæjarskrifstofunni, hafa að jafnaði verið á atvinnuleysisskrá 20 til 30 manns frá áramótum. Þrátt fyrir þetta skráða atvinnuleysi hefur það reynst atvinnumiðluninni erfitt að fá menn til afleysinga á togara. Út- gerðin hefur þurft að leita til ná- grannastaða þegar vantað hefur há- seta til að fara túr og túr. Minnast útgerðarmenn skuttogara nú gjam- an tímanna tvenna - ekki eru ýkja mörg ár síðan mjög svo eftirsóknar- vert var að komast á skuttogara - hásetar skutu ráðherrum landsins ref fyrir rass hvað laun snerti. Tilvísanakevf i verður tekið upp í sumar Sighvatur Björgvinsson heilbrigð- isráöherra ætlar að taka upp tílvís- anakerfi í samræmi við niðurstöður nefndar sem skipuð var til að koma með tillögur um nýtt tilvísanakerfi. Sighvatur lýsti þessu yfir á ríkis- sfjómarfundi á dögunum. Búist er við að tilvísanakerfið komist á í byrj- un júní eða júlí í sumar. Nefnd um tilvisanir leggur til að tilvísanakerfi verði tekið upp sem stýring í heilbrigðisþjónustunni án þess að sjúkhngar verði skyldaðir til að fara fyrst til heimihslæknis. Til að nýta sem best heilbrigðisþjón- ustuna telur nefndin að sjúklingar, sem heimilislæknar vísa tÚ sérfræð- inga, muni greiða lægra gjald þegar kerfið kemst í gang en þeir sem leita beint til sérfræðings án milhgöngu heimihslæknis. Er mælt með því að gildistími tilvísana verði aht að tvö ár. í niðurstöðum nefndarinnar kem- ur fram að tilgangurinn með tilvís- anakerfinu sé að hvetja almenning til að leita fyrst til heilsugæslulækna fremur en sérfræðinga. Tillögur nefndarinnar verða kynntar lækn- um og Tryggingastofnun ríkisins á næstu dögum. Ekki er ljóst hvort gjald til sérfræðinga og heimilis- lækna hækkar með tilkomu kerfisins né heldur hversu mikið sparast við að taka upp tilvísanakerfi. Talið er að komum til sérfræðinga fækki verulega með tilvísanakerfinu og að þá komi í ljós hver sé raunveruleg þörf fyrir sérfræðinga. Tilvísana- kerfiðnærekkitilaugnlækna. -GHS Bókaðu ferðina í apríl. IS aiLQOSIi1. spmnr fyrir 4ra manna fjölskyldu! Með 5.000 kr. innborgun geturðu tryggt þér sumarferðina '93 á lága verðinu. Ferðina þarf þá ekki að greiða að fullu fyrr en 21 degi fyrir brottför. Með þessu getur 4rá manna fjölskylda sparað á bilinu 8-12.000 kr. Verð ef staðfest fyrir 1. maí. KAUPMANNAHÖFN 27.820 ÓSLÓ 27.150 STOKKHÓLMUR 28.150 CAUTABOKC 27.150 FÆREYJAK 17.105 LONPON 27.150 CLASCOW 21.150 AMSTERDAM 27.580 LÚXEMBORC 28.150 PARÍS 28.550 FRANKFURT 50.590 HAMBORC 28.590 VÍN 50.580 MÚNCHEN 50.590 ZÚRICH 50.150 MÍLANÓ 50.580 BARCELONA 50.150 Flugvallarskattar eru innifaldir. Hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðsmenn um allt land, ferðaskrifstofurnar eða í sima 690300 (svarað alla 7 daga vikunnar frá kl. 8-18). Verð gildir eingöngu í beinu flugi Flugleiða. Ferðir skulu farnar fyrir 30. september 1993. Lágmarksdvöl 6 dagar. Hámarksdvöl 1 mán. Áætlunarflug hefst: Hamborg 9. maí, Ziirich 22. maí, Vín 4. júní, Barcelona 12. júní, Múnchen 26. júní, Mílanó 16. júlí. FLUGLEIDIR Traustur íslenskur ferðafélagi SB (D Qatlas^

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.