Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1993, Page 15
ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1993
Hraf nsmálin og
einkavæðingin
Hvers vegna lögöu höfðingjar
Sjálfstæðisflokksins á sig það erg-.
elsi og þá niðurlægingu sem fylgir
því að troða Hrafni Gunnlaugssyni
í embætti framkvæmdastjóra Sjón-
varps? Sem hlaut þó að koma þeim
í marga skapraun innan flokks og
utan.
Þjóðarsálin svarar þessu fyrir sitt
leyti með því að Davíð Oddsson
vilji allt fyrir vin sinn gjöra. Davíð
kveðst svo hvergi nærri málinu
koma og því trúir enginn.
Hefndarfýsn
Við skulum ekki orðlengja um
þá hlið málsins í bili og spyija um
fleiri ástæður eða tilraunir til að
réttlæta gjöminginn. Eitthvað hef-
ur t.d. verið fjasað um að það sé
svo hollt fyrir Sjónvarpið að Hrafn
Kja]]aiinn
Árni Bergmann
rithöfundur
„Þjóðarsálin svarar þessu fyrir sitt
leyti með því að Davíð Oddsson vilji
allt fyrir vin sinn gjöra. Davíð kveðst
svo hvergi nærri málinu koma og því
truir enginn.“
vinni þar. Þessu trúir enginn held-
ur - að minnsta kosti ekki Ólafur
G. Einarsson. En daginn sem hann
setti Hrafn í embætti var hann
spurður að því í útvarpi hvort hann
byggist við því að slík ráðstöfun
hefði jákvæð áhrif á starfsmóral-
inn á stofnuninni.
Nei, menntamálaráðherra bjóst
ekki við þvi. Ég á ekki von á því
að þar verði nein fagnaðarhátíð,
sagði hann. Sem þýðir með öðrum
orðum að ráðherranum var það
efst í huga að það þyrfti aö refsa
Ríkisútvarpinu fyrir að hafa vikið
Hrafni úr starfi. Uppsögn hans úr
starfi dagskrárstjóra bauð ekki upp
á frið, sagði ráðherrann. - Þess átti
sem sagt að hefna...
Því verr þeim mun betra
En nú má halda áfram og spyija
að því hvort Hrafnsmálið rími ekki
í einhveiju við sjálf stefnumál
Sjálfstæðisfiokksins, hvað sem per-
sónum líður?
Eitthvað hafa menn verið að fitja
upp á því. í fjölmiðlapistlum Morg-
unblaðsins og kjöllurum DV hafa
heyrst þær raddir að rökrétt niður-
staöa af Hrafnsmálum sé sú að
einkavæða Sjónvarpiö.
„Hrafn Gunnlaugsson er þeirra eina sanna óskabarn," segir Árni m.a.
i grein sinni.
Þetta er útskýrt með því að einka-
væðingin sé „eina leiðin til að koma
í veg fyrir afskiptasemi stjómmála-
manna af útvarpi og sjónvarpi."
Þetta er dálítið skondið: Þeim sem
skrifa finnst bersýnilega að
Hrafnsmálin séu hin verstu (fara
þó undan í flæmingi með því að „ég
vil ekkert um einstaka menn
segja“). En sem sagt: tækifærið er
notað til að minna á það stóra hug-
sjónamál Heimdellinga og ákveð-
ins geira í Sjálfstæðisflokknum
sem vilja Ríkisútvarpið feigt.
Hrafnsmálið er notaö sem dæmi
um að öll afskipti stjómmála-
manna af fjölmiðlum hljóti að vera
01 (og þá er um leið látið að því
liggja aö það sé ekki hægt að for-
dæma Davíð og Ólaf G. öðrum
fremur fyrir þeirra ráðsmennsku!).
Vitanlega var það ekki gjört til
að undirbúa einkavæðingu Sjón-
varps að Hrafni var þar inn troðið.
En í raun fellur sú ráðstöfun að
þeim áformum eins og flís við rass.
Því verra sem ástandið er á Sjón-
varpinu og þvi hrikalegri sem sam-
starfsörðugleikarnir eru og því
dýrari sem hápólitískar manna-
ráðningar Flokksins reynast í pen-
ingum þeim mun auðveldari verð-
ur eftirleikurinn fyrir einkavæö-
ingarfíklana. Hrafn Gunnlaugsson
er þeirra eina sanna óskabarn.
Árni Bergmann
Stóðust fréttamenn próf ið?
Þegar sprengjur springa að næt-
urlagi lýsir blossinn upp umhverf-
ið, sem kunnugt er, og menn sjá
það sem ella er jafnan hulið sjón-
um. Og fréttasprengjur lýsa stund-
um upp sjálfa fjölmiðlana: Af við-
brögðum fréttamanna og annars
fjölmiðlafólks má ráöa hversu vel
það rækir hlutverk sitt. Hver ein-
asta fjölmiðlasprengja jafngildir
prófi sem lagt er fyrir fréttamenn
og annað fjölmiðlafólk.
Sprengjan, sem sprakk í Rikisút-
varpinu mánudaginn 29. mars síð-
astliðinn, þegar séra Heimir Steins-
son útvarpsstjóri rak Hrafn Gunn-
laugsson fyrirvaralaust úr starfi
dagskrárstjóra, ásamt þeim at-
burðum, sem síðar hafa orðið, er
ein slík prófraun. Því miður hafa
nokkrir fréttamenn fengið þar lága
einkunn.
Hér skal ég nefna nokkur lítil
dæmi, þótt frekari rannsóknar og
meiri gagna sé þörf til þess að
greina og gagnrýna fréttaflutning-
in af atburðarásinni í heOd sinni
og líta á hann í rökréttu samhengi
við annað.
Fjögur dæmi
Fyrsta dæmið er af Helga Má
Arthúrssyni, fréttamanni Sjón-
varpsins, mánudaginn 5. apríl. Þá
sýndi hann í átta-fréttum um
kvöldið frá hörðum umræðum á
Alþingi þá um daginn um ráðningu
Hrafns í framkvæmdastjórastarf í
Sjónvarpinu; en hann klippti út
Kjállarinn
Dr. Hannes Hólmsteinn
Gissurarson
dósent í stjórnmálafræði
háreysti, óp, köll og lófatak starfs-
fólks Sjónvarpsins sem var á
þingpöllum og virti einskis marg-
ítrekaöar áminningar forseta Al-
þingis.
Með framferði sínu var þetta
starfsfólk Sjónvarpsins (í miðjum
vinnutíma) beinlínis að brjóta það
ákvæði stjómarskrárinnar að Al-
þingi skuli vera friöheilagt og ekki
megi trufla starfsemi þess. Það var
vissulega fréttnæmt, þótt það væri
ekki sýnt í fréttum Sjónvarpsins.
Annað dæmi er af Kristjáni Ara
Arasyni, fréttamanni DV, þriðju-
daginn 6. apríl. Hann sagði þá í
blaði sínu að ráðning Hrafns hefði
verið gagnrýnd á fundi í þingflokki
sjálfstæðismanna. Þessi frétt er
staðlausir stafir. Formaður og
varaformaður þingflokksins kann-
ast hvorugur við nein slík mót-
mæh á fundum þingflokks sjálf-
stæðismanna.
Þriðja dæmið er af Pressunni sem
er bersýnilega í herferð gegn
Hrafni. Að sinni verður þó aðeins
tvennt nefnt þaðan. Þegar leitað
var álits fimm manna um ráðningu
Hrafns vora valdir fjórir andvígir
henni og einn á báðum áttum.
Pressunni var þó í lófa lagið að
finna ýmsa málsmetandi stuðn-
ingsmenn ráðningarinnar.
Þegar Hrafn fékk í öðru lagi að
svara fyrir sig í viðtali var fyrir-
sögnin ekki í samræmi við um-
mæli hans. Hann hafði sagt: „Ég
veit að skussum stendur stuggur
af mér.“ En fyrirsögnin var:
„Skussunum stendur stuggur af
mér.“ Ákveðni greinirinn, sem
smyglað var inn, breytti merking-
unni svo að unnt var að leggja
ummælin út sem ádeilu á starfsfólk
Sjónvarpsins, þótt það hefði vafa-
laust ekki verið ætlun Hrafns.
Fjórða dæmið er af Sigrúnu Stef-
ánsdóttur, fréttamanni Sjónvarps-
ins. Hún var ein þeirra sem klöpp-
uðu, stöppuðu, æptu og orguðu
uppi á þingpöllum mánudaginn 5.
apríl í því skyni að láta í ljós van-
þóknun á ráðningu Hrafns. Síðar
ætlaði sama kona að taka viðtal við
Hrafn um máhð. Auðvitað var því
hafnað. Hvernig í ósköpunum datt
henni í hug að hún gæti sinnt
fréttaflutningi í máli sem hún var
sjálf aðili að?
Síðasta dæmið er raunar lang-
afvarlegast. Það er mikið umhugs-
unarefni aö þessi kona, sem
þverbrýtur öll lögmál fréttaflutn-
ings og eðlilegrar framkomu, skuli
veita forstöðu námsbraut í hag-
nýtri fjölmiðlun í félagsvísinda-
deild; það er síður en svo til þess
fallið að afla námsbrautínni
trausts.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
„ Af viöbrögðum fréttamanna og ann-
ars Qölmiölafólks má ráða hversu vel
þaö rækir hlutverk sitt. Hver einasta
fjölmiðlasprengja jafngildir prófi... “
15
raeo oq
Rýmríafgrelðslutími
Framför
„Ég held að
veitingamenn
séu ekki farn-
ir að átta sig á
þessari breyt-
ingu ennþá.
Ég tel rétt að
afnema öll
höft á sölu
áíengis á veit-
ingahúsum.
Þettaersporí
framfaraátt og ég hygg að vinnu-
tími þjóna og veitingafólks lengist
þegar menn hafa áttað sig á þess-
ari breytingu. Veitingamenn geta
haft opið allan daginn og þar með
boðið upp á meiri þjónustu. Þeir
þurfa ekki að pukrast með koníak
í mjólkurkönnum eins og gert var
á Borginni í gamla daga. Fólk viH
geta fengiö sér vin meö mat eöa
koníak með kaffinu og getur nú
gert það þegar því sýnist. Þá held
ég að nýi afgreiðslutíminn hafi
ekki slæm áhrif á drykkju
manna. Dr>'kkjusiöir þjóðarinn-
ar hafa smám saman verið að
breytast frá því bjórinn var feyfö-
ur hér fyrír nokkram árum. Eft-
irspum eftir bjór hefur aukist og
menn drekka síöur sterka drykki
nú. íslendingar hafa alltaf drukk-
iö meira um helgar en i miðri
viku og það breytist ekki neitt.
Nýi afgreiðslutíminn hefur eink-
um áhrif á þjónustu við erienda
feröamenn. Margir þeirra era
vanir því að drekka vín með mat
og því vilja þeir halda áfram hér.
Eitt skref i átt til fi-amfara væri
að leyfa götuveitingastaði i mið-
bænum því það rayndi óneitan-
lega krydda götulifið á góðviðris-
dögum í henni Reykjavík."
Jóhannés Vlðar
BJamason, veltinga-
maður I Hafnarflrðl
Opnað fyrir
dagdrykkju
„Ég furða
mig mjög á
þessari
ákvörðun
dómsmála-
ráðherra og
veit ekki
hvaða til-
gangi hún á ...
að þjóna. Við
eramnýbúnir
að fá skýrslu bandala98 l8land8
um þau ofbeldisverk sem hafa
verið framin þar sem fram kemur
að 80 prósent allra ofbeldisverka
eru framin í tengslum við áfeng-
isneyslu. Ég átti ekki von á þvi
aö æöstí maður dómsmála í land-
inu færi að rýmka og lengja af-
greiöslutíma vinveitingastaða í
kjölfarið á þessari skýrslu. Meö
þessu er hann að opna fyrir dag-
drykkjuna sem við höfum bless-
unarlega verið laus við og auka
þar með drykkjuna. Það er marg-
föld reynsla alls staðar austan
hafs og vestan að því greiðara
aðgengi sem menn hafa að áfengi
og því lengri sem afgreiöslutími
er því meiri verður áfengisneysl-
an og í kjölfar hennar ýmsar af-
leíðingar sem alUr þekkja. Ég hef
ekki heyrt eða séð nokkurn öl-
kæran mann kvarta yfir þeirri
lokun sem hefur verið yfir hádag-
inn. Sennilega er verið aö koma
til móts við hagsmuni annarra en
almennings í landinu. Það er leitt
með svo mætan dreng og dóms-
tnálaráðherra að hann beiti sér
fyrir þessu beint i kjölfarið á ógn-
vænlegri skýrslu sem sýnir of-
beldi í kiölfar áfengisneyslu."
•GHS