Dagblaðið Vísir - DV - 26.06.1993, Síða 7
LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 1993
7
Fréttir
Mikil óánægja með kjaramál meðal presta
- prestar eru orðnir vanskilamenn og eiga ekki fyrir mat, segir Geir Waage
„Aðalfundur Prestafélags Islands
fól stjóm félagsins mjög rúmt umboð
til að finna ráð til að koma á breyttu
fyrirkomulagi varðandi greiðslur
íyrir aukaverk presta,“ segir Geir
Waage, formaður Prestafélags ís-
lands. Aðalfundur Prestafélagsins
var haldinn í vikunni og kom þar í
ljós mikil óánægja með kjaramálin
en prestar fengu á sig lagasetningu
í fyrra eftir úrskurð kjaradóms. Á
fundinum kom fram að prestar vilja
fá leiðréttingu launa sinna, endur-
skoðun embættiskostnaðar, auk þess
sem þeir vilja losna við innheimtu
gjalda fyrir aukaverk án þess að tekj-
ur þeirra skerðist.
„Menn eru mjög, mjög óánægðir
með kjaramálin. Viö getum ekki
endalaust beðið. Við getum ekki
sinnt störfum okkar ef þaö á að hor-
fella okkur. Hvað eiga prestar að
hugsa þegar allt er í þrotum og skuld-
ir hlaðast upp? Prestar em orðnir
vanskilamenn og eiga ekki fyrir mat.
Það eru takmörk fyrir því hvað
prestar geta haldið þetta lengi út. Við
höfum engin tök á því að knýja fram
nokkur úrræði. Þess vegna höfum
Grindavik:
Einnásjúkrahús
eftirbílveltu
Bílvelta varð á ísólfsskálavegi í
gærmorgun. Þrír voru í bílnum og
slasaðist farþegi í framsæti bílsins í
andliti og var hann fluttur með
sjúkrabíl á Borgarspítala. Þar feng-
ust þær upplýsingar að hann væri
alvarlega slasaður en ekki í lífs-
hættu.
Grunur leikur á að ökumaður hafi
verið ölvaður við akstur og er bíllinn
tahnnónýtur. -pp
Nýr bíll brann
Eldur kom upp í nýrri Renault Clio
bifreið við Jaðarsel í Reykjavík í
fyrrakvöld. Bifreiðin, sem er ný, var
í akstri þegar eldurinn kom upp og
var kallað á lögreglu og slökkvilið til
að ráða niðurlögum eldsins. Lögregl-
an kom fyrst á vettvang og sprautaði
með handslökkvitæki á eldinn en án
árangurs og svo kom slökkvilið og
slökkti eldinn. Töluverðar skemmdir
urðu á bOnum en engin meiðsl á
fólki. -PP
Stjóm SVR:
Fellstá
stofnun
hlutafélags
Stjóm Strætisvagna Reykjavíkur
hefur samþykkt með þremur at-
kvæðum gegn tveimur að leggja fram
þá umsögn á næsta borgarráðsfundi
að stjórn SVR fallist á hugmyndir
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í borg-
arráði um stofnun hlutafélags um
rekstur' Strætisvagna Reykjavíkur.
Málið verður tekið fyrir í borgarráði
á þriðjudaginn.
Snarpar umræður urðu um fyrir-
hugaða hlutafélagsstofnun á stjóm-
arfundi SVR nýlega þar sem bókanir
og tillögur skiptust á. Fulltrúar
minnihlutans í stjórn SVR lögðu
fram tillögu um að stjóm SVR færi
þess á leit við borgarráð og borgar-
stjórn að fresta afgreiöslu tillögunn-
arenþaðvarfellt. -GHS
við dregist aftur úr öllum viðmiðun-
arhópum í opinberri þjónustu," segir
Geir.
Prestar sóttu um leiðréttingu á
gjaldskrá sinni í byrjun ársins og
fengu leiðréttingu til samræmis við
þjónustugjaldaskrá ríkisins. Nú hafa
þeir ítrekað beiðnina. Þá hafa þeir
einnig sótt um endurskoðun á emb-
ættiskostnaði en prestar fá sjö þús-
und krónur á mánuði til að sjá sér
fyrir húsnæði undir skrifstofur, hita
og rafmagni, viðhaldi og nauðsynleg-
um skrifstofubúnaði að sögn Geirs.
„Það er viðurkennt að prestar
þurfa borð og stóla á skrifstofur sín-
ar, auk ritfanga í hófi, en það er
spuming hvort ráðuneytið telur tölv-
ur nauðsynlegar í starfi presta eða
ekki. Við viljum að embættiskostn-
aðurinn sé endurmetinn því að prest-
ar verða sjálfir að greiöa allan rekstr-
arkostnað sem fer yfir sjö þúsund
krónur á mánuði. Það er alveg ljóst
að margir prestar hafa meiri kostnað
af embættisrekstri sínum en þeir fá
nokkurn tímann endurgreid'dan frá
ríkinu," segir hann.
-GHS
Hópferð um Suðurland
dagana 10.-12. júlí
á vegum Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
Farið verður frá Reykjavík kl. 8:30 laugardaginn 10. júlí n.k. um Fjallabak í
Landmannalaugar, Eldgjá og að Kirkjubæjarklaustri.
Skoðaðir verða ýmsir markverðir staðir, m.a. farið í Skaftafell og þaðan að
Jökulsárlóni. Gist verður á Kirkjubæjarklaustri báðar næturnar.
Verð kr. 13.700.- Ferð, gisting, matur og leiðsögn innifalin.
í ferðina komast 50 manns og fá þeir sem fyrstir panta.
Skráning og nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu V.R. og í síma 687100.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.
NISSAN DIESEL
ÖFLUGIR VÖRU OG FLUTNINGABÍLAR
■ Nissan Diesel
816 GME 87
■ Nissan Diesel
1020 GMF 87F
og GM 87 KH
■ Nissan Diesel
1223 CLG 87F
Allar nánari upplýsingar
fást hjá sölumönnum
Komið og skoðið
Sýningar:
laugardag og sunnudag
Frá kl. 14-17
Ingvar
HeSgason hf.
Sævarhöfði 2, 112 Reykjavtk
P.O. Box 8036, Sími 674000