Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1994, Síða 8
8
LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1994
Vísnaþáttur
Matgæðingur vikuimar
Kannski hef
ég kosið rétt
„Stjórnmálaflokkur er eins og
hakkavél, gerir alla aö einum
graut.“ Það var norska skáldiö
Henrik Ibsen sem komst þannig að
orði í einu leikrita sinna.og ég er
ekki frá því að hann hafi haft þar
nokkuð til síns máls, það er að segja,
að hveijum og einum finnist það vel
geta átt við um andstöðuflokkana en
eigin flokkur að sjálfsögðu undan-
þeginn slíkum aðdróttunum.
Eins og að líkum lætur eru skoöan-
ir oft skiptar um ágæti ríkisstjóma
en sú sem fékk eftirfarandi vitnis-
burð hjá Gunnlaugi Péturssyni hlýt-
ur að hafa verið í hágæðaflokki:
Skeiðar til ég hef og hnífs,
en hvergi má við fórninni.
Af öllu hjarta eilífs lífs
óska ég ríkisstjórninni.
Telja má nokkurn veginn víst að
það hafi ekki verið núverandi ríkis-
stjórn sem við var átt því það var
í hennar tíð sem Pétri Þórarinssyni
sjómanni fannst flest sér mótsnúið
og braut mjög heilann um af hveiju
það stafaði. Niðurstaðan var þessi:
Bágt er nú ástandið, sálin er
seld
og sultur hjá helvítis kokknum.
Konan er ófrísk, kýrin er geld
- ég kenni það Sjálfstæðis-
flokknum.
Nú eru senn liðin þrjú ár frá síð-
ustu alþingiskosningum og því
ekki úr vegi að rifja upp þaö sem
þá var kveðiö eins og þessa stöku
sem birtist hjá Velvakanda Morg-
unblaðsins 28. apríl 1991:
Enginn sálar öðlast frið
efst sem prjálið setur.
íhalds bijálað auðvaldið
öllu kálað getur.
Upp úr kjörkassa af Suðurnesjum
kom þessi vísa:
Kannski hef ég kosið rétt
og kemst úr heljar nauðum.
Það er annars ekki létt
að eiga að velja úr sauðum.
Og einnig þessi:
Könnunum núna er komið á fót,
því kosningahörð verður lota.
Varla nein ástæða að dýrka það
dót
sem Davíð er hættur að nota.
„Gerum ráð fyrir að þú værir
hálfviti - og gerum ráð fyrir að þú
værir þingmaöur. Nei, nú er ég far-
inn að éta upp eftir sjálfum mér.“
Það var bandaríska skáldið og háð-
fuglinn Mark Twain sen komst
þannig að orði og ekki væri úr vegi
að bæta hér við orðum Humphreys
í sjónvarpsþættinum Já, ráöherra:
„Þjóðarskútan er eina skútan sem
lekur uppi við sigluhún." Það mun
því vissast fyrir okkur að vera við
öllu búin. Á árum fyrri viðreisnar
var ástandið ekki nógu gott að mati
Guðmundar Sigurðssonar gaman-
vísnahöfundar sem kvað:
Þótt víða sé hart í heimi
og hamingjudísin treg
ýmsum er auðvelt að rata
hinn illtræða gróðaveg.
Menn eija hér oft fram á nætur
því athafnaþráin er sterk
og feðumir fjöiskyldubætur
fá, ef þeir kunna sitt verk.
En leiðtogar ávarpa lýðinn
og láta þá skoðun í té:
að skrautbúin skip fyrir landi
skorti nú rekstraifé.
Ári síðar eða þann 3. okt. 1968
komst Guðmundur að svofelldri niö-
urstöðu um ástandið:
Löngum er reynt fyrir lýðnum
að villa
þótt landstjómir falli og styrj-
aldir geisi.
Bændur í sveitunum bera sigilla
og bankamir kvarta um peninga-
leysi.
Hér ber ekki mikið á einingu
andans
og illdeilur þingmanna kjósendur
trega.
En efnahagskerfiö er farið til
íjandans
og flokkamir harma það sameig-
inlega.
Hve margur sem oft var af mál-
efnum snauður
mændi af löngun á stjómmála-
framann?
En þrjóti hér fjármagn og eyðist
vor auður
óvinaherimir jarma sig saman.
Vísnaþáttur
Torfi Jónsson
Káinn vildi ekki sætta sig athuga-
semdalaust viö atferli ráðamanna:
Ef þessir háu herrar
á vorn hluta gera
ekki má þaö minna vera
en maður fái að prótestera.
Þaö var í lok kjördæmisþings
Framsóknarflokksins fyrir allmörg-
um ám að einn ræðumanna, Árni
Gunnar Þorsteinsson á Patreksfirði,
vitnaði til þess sem Benedikt Gröndal
hinn elstí. kvað: „Góðmennskan gild-
ir ekki,/gefðu duglega á kjaft.“ Hans
Sigurðsson á Hólmavík kvað af því
tilefni:
Framsókn hættu fálmi og busli,
finndu í þér kraftinn.
Öllu þessu íhaldsmsli
áttu að gefa á kjaftinn.
Þess er oft getið í fjölmiðlum að
ferðagleði alþingismanna og þá ekki
síst ráðherra sé með eindæmum og
kosti þjóðina stórfé sem betur væri
varið til annarra hluta. Getur hugs-
ast að „viðreisnin", sem oft er minnst
á, eigi sök á þessu. Þegar dr. Gylfi
Þ. Gíslason var menntamálaráðherra
á tímum fyrri „viðreisnar“ var kveð-
ið:
Hvað er um Gylfa hinn
veisluvara
á viðreisnarskeiðinni,
er hann að koma, er hann að fara,
eða er hann á leiðinni?
Og þegar hann sneri heim úr Kína-
för sinni 1964 var kveðið:
Fljúgandi heiminn fer í hring
fljtiandi ræður glaöur.
Ofan og neðan og allt í kring
er hann svo ljósmyndaður.
En stjómmálamönnum hefur fariö
mikiö fram síðan sú ferö var farin.
Ég tel víst að dr. Gylfi hafi gætt allr-
ar hagsýni í ferðum sínum, ekki eytt
um efni fram eins og nú þykir sjáíf-
sagt (þegar ekki er gengið á eigið fé)
og árangur af ferðum hans orðiö
meiri og þjóðinni til meiri hagsbóta
en þetta endalausa ráp sem nú við-
gengst.
Lokaorðin em Guðmundar Sig-
urðssonar frá árinu 1969, en þau eiga
ekki síður við í dag:
Vér erum kannski öðrum þjóðum
meiri
í ýmsu því sem getur máli skipt,
en þó er ljóst að þingmenn eins
og fleiri
þjást af nokkrum skorti á anda-
gift.
Torfi Jónsson
Sjávarréttir og kín-
verskur pottréttur
„Mig langar til að bjóða upp á
kvöldveröarveislu sem hægt er að
útbúa daginn áöur. Þaö væri til
dæmis upplagt aö bjóða nokkrum
vinum í góðan göngutúr og koma
síðan heim og borða saman. Þetta
er sjávarréttaforréttur, kínverskur
pottréttur og marsipanrúlluterta,“
segir María Elíasdóttir, tannlæknir
og matgæðingur vikunnar. María
segir að kínverski rétturinn hafi
fylgt henni frá því hún byrjaði að
búa og sé alltaf jafn vinsæll. For-
réttinn hafi hún hins vegar nýlega
fengið hjá klínikdömunni sinni,
Sollu. „Mér finnst mjög gaman að
elda og prófa eitthvað nýtt og fram-
andi. Verkaskiptingin á heimilinu
er þannig aö ég elda en eiginmaður-
inn sér um uppvaskið og að ganga
frá. Það þykja mér góð skipti,“ seg-
ir hún. Og þá er komið að upp-
skriftunum:
Sjávarréttir í kryddlegi
1 kg humar
/2 kg rækjur
'A kg hörpuskelfiskur
2 sneiddar púrrur
/2 glas olía
'A glas hvítvín
'4 tsk. karrí
1 bolli sykur
2-3 hvítlauksrif
safi úr einni sítrónu
paprikuduft, salt og pipar eftir
smekk
Sósa
1 rauð paprika
300 g majónes
1 dós sýrður rjómi
1 dl þeyttur rjómi
hvítlaukur, paprikuduft, safi úr
Hinhliöin
ísland verður í topp 5
- segir Björgvin Halldórsson tónlistarmaður
og að sjálfsögðu vinur minn.Krist-
ján Jóhannsson.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Það
er enginn sérstakur í uppáhaldi
þessa dagana en það getur breyst
eins og veðrið.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Án efa Sylvester the Cat og Duffy
Duck með ensku tali.
Uppáhaldssjónvarpsefni: 48 Hours,
60 Minutes, ABC News, Rush Lim-
baugh Show, Tonight Show, Sat-
urday Night Live og David Letter-
man.
Uppáhaldsmatsölustaður: Neal
Street restaurant í London, Le Sir-
enuse í Positano á Ítalíu. Hér heima
finnst mér tveir góðir, Við Tjörnina
og La Primavera.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Ég hvíli mig á útvarpi um
þessar mundir. Ef ég hlusta er það
Gufan á morgnana og síðan er
tíðnisviðið skannað það sem eftir
er dags.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Ég
treysti mér ekki að nefna einn án
þess að móðga annan. Samt eru
þeir ekki margir sem beijast um
toppsætið.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Horfun skiptist bróður-
lega á milli þessara tveggja stöðva.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Hinn
ameríski Rush Limbaugh.
Uppáhaldsskemmtistaður: Félags-
heimili Ítalíufélagsins hveiju sinni.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: ítaliufé-
lagið. Alltaf í 1. deild og vinnur alla
leiki.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtiðinni? Stefna ekki allir að því
að ná fullkomlega stjórn á hamingj-
unni?
„Ég spái því að ísland veröi í topp
5 og þaö kæmi mér reyndar ekkert
á óvart þó við sigruðum í keppn-
inni núna,“ segir Björgvin Hall-
dórsson tónlistarmaður um Euro-
vision. Björgvin hefur sjálfur ný-
lokið við gerð hljómplötu sem kem-
ur út í maí í tilefni 50 ára afmælis
lýðveldisins. „Platan heitir íslands-
lög 2 og á henni eru einungis ís-
lenskir gullmolar," segir Björgvin.
„Þá mun ég stjóma gerð hftóm-
plötu með Sigrúnu Híálmtýsdóttur
sem kemur út fyrir næstu jól og
nú er ég að undirbúa verkefni sem
heitir Yrkjum ísland og verður
framlag tónlistarmanna til land-
græðslunnar."
Það er Björgvin Halldórsson sem
sýnir hina hliðina að þessu sinni.
Fullt nafn: Björgvin Helgi Hall-
dórsson.
Fæðingardagur og ár: 16. apríl 1951.
Maki: Ragnheiður B. Reynisdóttir.
Börn: Svala Karítas, Oddur Hrafn
og Sigurður Þór.
Bifreið: BMW 318i, árgerö 1988.
Starf: Tónlistarmaður, upptöku-
stjóri, dagskrár- og auglýsinga-
gerðarmaður auk alþýðu- og vega-
söngs.
Laun Misgóð.
Áhugamál: Tónlist, kvikmyndir,
matargerð og ferðalög.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Eg spila sjaldan.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Vera með fjölskyldunni.
Hvað finnst þér leiðinlegast aö
gera? Flytjast búferlum og þrefa
við illa gefið fólk.
Uppáhaldsmatur: Allur matur og
þá sérstaklega ítalskur matur.
Uppáhaldsdrykkur: Vatn.
Björgvin Halldórsson.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Luciano
Pavarotti.
Uppáhaldstímarit: Þau eru mörg
eins og Gourmet Magazine, Leon-
ard Maltins Movie Guide, Macuser,
Maeformat og Metropolitan Home.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan maka? Gæti
verið Grace Kelly.
Ertu hlynntur eða andvígur veru
varnarliðsins hér á landi? Hlynnt-
ur.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Steven Spielberg eða Martin
Scorsese.
Uppáhaldsleikari: Þeir eru svo
margir, t.d. A1 Pacino, Robert de
Niro, Robin Williams, Humphrey
Bogart og að sjálfsögðu Chaplin.
Uppáhaldsleikkona: Þær eru marg-
ar, eins og Emma Thompson,
Maggie Smith og Susan Sarandon.
Uppáhaldssöngvari: Þessi er erfið.
Elvis, Ray Charles, Nat King Cole
María Elíasdóttir, tannlæknir og
matgæðingur vikunnar.
DV-mynd Brynjar Gauti
sítrónu, örlítið hvítvín og sykur,
allt eftir smekk hvers og eins.
Lögurinn er lagaður, humarinn
er soöinn í skelinni en síðan skel-
flettur og hörpuskelfiskurinn
snöggsteiktur í u.þ.b. fimmtán sek-
úndur. Fiskurinn er síðan lagður í
marineringuna og látinn liggja yfir
nótt. Sósan er hrærð saman og bor-
in fram með sjávarréttinum og rist-
uðu brauði. Áður en rétturinn er
borinn á borð er mestöllum krydd-
leginum hellt af.
Kínverskur pottréttur
750 g lambalæri (fituhreinsað og
skorið í gúllasbita)
Kryddlögur
2 eggjarauöur
1 tsk. karrí
1 /2 msk. sykur
2 msk. worchestershiresósa
1 bolU mjólk
5 msk. matarolía
1 msk. kjötkraftur
2 tsk. sósufitur
1 msk. sojasósa
1 msk. kartöflumjöl
Lögurinn er hrærður saman og
lambakjötið lagt í hann. Látiö liggja
í marineringunni í einn sólarhring.
Þegar komið er úr gönguferðinni
er afit sett í pott og soðið í tíu til
fimmtán mínútur. Þá er hálfum
pela að ijóma bætt út í og rétturinn
er tilbúinn. Með honum er gott að
bera fram hrísgrjón, hrásalat, ma-
ísbaunir og hvítlauksbrauð. „Þetta
er góö máltíð og einfóld sem öllum
líkar,“ segir María.
Marsipanrúlluterta
Tfibúið marsipan (fæst í verslun-
um)
súkkulaðiálegg (fæst í Hagkaupi)
ís
Marsipanið er flatt út og súkku-
laðiálegginu smurt á það. ísinn er
skorinn í þunnar sneiðar og á að
þekja marsipanið. Síöan er marsip-
aninu rúllað upp eins og rúfiutertu
og geymt í frysti þar til rétt áður
en rétturinn er borinn fram. „Það
er ágætt að klippa plastpoka í sund-
ur og fletja marsipanið út með
hann á milli, þá festist það ekki við
kökukefliö," segir María sem lætur
eiginmanninn um það verk.
María ætlar aö skora á Gunnar
Jónsson lögfræðing að verða næsti
matgæðingur. „Hann er mjög
frumlegur og sniðugur að grafa
upp ýmsa skemmtilega rétti.“