Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1994, Qupperneq 10
10
LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1994
„Þaö er óhætt að segja að maöur
sé samtaka. Við erum nú líka búin
að vera saman í fimmtíu ár. En það
er kannski ekki nógu gott að við
skyldum verða samtaka í þessu til-
felli þótt hjörtun slái í takt.“
Hjónin Líney Bogadóttir og Hall-
dór Gestsson, sem eru 71 og 77 ára,
gengust bæði undir hjartaaðgerð
vegna kransæðastíflu í byrjun
þessa árs. Undanfarna mánuði hafa
þau dvalið á sjúkrahúsum og á
Reykjalundi í Mosfellsbæ í endur-
hæfingu en árunum fimmtíu hafa
þau annars varið á Siglufirði.
„Við komum suður í desember.
Ég ætlaði að vera konunni minni
til aðstoðar þar sem hún var að
bíða eftir að komast í aðgerð vegna
kransæðastíflu. Þá veiktist ég
snögglega sjálfur af sama sjúk-
dómi," segir Halldór.
Fékkverkivið
snjómokstur
Reyndar hafði hann fundið fyrir
verkjum heima á Siglufirði í desember
aður en hann kom suður. „Ég var að
moka snjó og fékk sára verki í axlir
og niður í báða handleggi. Verkirnir
hurfu og ég hélt áfram að moka.“
Þegar suður var komið fékk Hali-
dór aftur verki. Þau dvöldu þá í
Keflavík hjá dóttur sinni og var
Halldór lagður inn á sjúkrahúsið
þar. Við myndatöku kom ekkert í
ljós og var hann sendur í hjartaþræð-
mgu á Landspítalanum. Honum
versnaði skyndilega þegar hann var
kominn aftur til Keflavíkur eftir
hjartaþræðinguna. Þann 24.janúar
var svo gerð á honum aögerð.
Lágu samtímis á
Landspítalanum
„Við lágum samtímis á Land-
spítalanum en ekki á sömu deild,"
segir Líney sem var skorin upp 1.
febrúar. „Ég var búin að bíða eftir
plássi frá því í mars í fyrra en þá
fór ég í hjartaþræðingu. „Ég hafði
verið með verki í að minnsta kosti
tvö ár áður en ég fór í hjartaþræð-
ingu en fyrir þræðinguna var ekki
vitað hvað var að. Það var þegar
ég gekk eða var að gera eitthvað
erfitt sem ég fékk verk í annan
handlegginn. Biðin eftir aðgerð var
hræðilega löng.“
Líney leggur áherslu á að það sé
afleitt hversu margir þurfi að bíða
lengi eftir plássi á sjúkrahúsum.
„Það er aumt að ekki skuli vera
hægt að gera nógu vel við starfs-
fólk sjúkrahúsanna. Verkfall kem-
ur niöur á sjúkhngum því biðin
eftir aðgerö lengist.“
Æfingar og fræðsla
Halldór og Líney eru ákaflega
ánægð með dvöhna á Reykjalundi.
Þar byrjar dagurinn snemma við
líkamsæfingar. Klukkan átta eru
þau komin á þrekhjól eða annað
líkamsræktartæki. Svo tekur viö
leikfimi eða vatnsleikfimi og ganga
um svæðið utanhúss. Inn á milli
er slökun og fræðsla.
„Okkur er sagt hvernig við eigum
að lifa með sjúkdóminn og leiðbeint
um hreyfingu eftir að heim er kom-
iö. Við fáum einnig fræöslu um
mataræði. Við eigum að forðast
mjólk, smjör og fitu almennt og
kólesterólríkan mat.“
Ekkert áhættu-
samt lífemi
Þau segjast í raun ekki skilja af
hverju þau fengu bæði kransæða-
stíflu. Líney hefur aldrei reykt og
Halldór hætti að reykja fyrir 47
árum. „Við höfum heldur ekki
Halldór og Líney í herbergi sínu á Reykjalundi.
'
|gg
;
Dagurinn byrjar snemma. Klukkan átta að morgni er Liney komin á
þrekhjól.
Það er greinilegt aö likamsæfingarnar skila þreki,“ segir Halldór.
borðað sérstaklega feitan mat. Og
maöur hreyfði sig mikiö þótt við
höfum ekki verið í sérstakri lík-
amsþjálfun fyrr en nú.“
Bömin urðu 7 og auk þess að sinna
þeim var Líney í síld og fiskvinnu.
Hún starfaði einnig á bamaheimili.
Halldór vann hjá Pósti og síma.
Bera sig vel þrátt
fyrirveikindi
„Svona líkamsæfingar em alveg
nýjar fyrir okkur og það er greini-
legt að æfingamar hér hafa skilað
þreki,“ segir Hahdór og bætir við
að þau myndu þiggja að komast
aftur á Reykjalund. „En við vitum
að það eru margir sem bíöa eftir
plássi. Það eiga margir meira bágt
en við. Hér sér maður ýmislegt sem
maður hefur ekki séð áður en flest-
ir bera sig vel.“
Þegar blaðamaður og ljósmynd-
ari ganga með þeim hjónum um
Reykjalund er kallaö glaðlega til
þeirra. „Þetta eru spilafélagarnir,"
útskýrir Líney sem svarar kalhnu
með gamanyrðum. „Maður verður
að vera léttur og hta jákvæðum
augum á tilveruna," bendir hún á.
Gripið í spil og
slegið upp balli
Eftir klukkan fjögur, þegar öllum
æfingum og göngutúrum er lokið,
er tíminn notaður til að rabba við
aðra dvalargesti. Á Reykjalundi
eru að jafnaði rúmlega 170 vist-
menn sem koma í endurhæfingu
vegna ýmissa sjúkdóma. Á kvöldin
er gripið í spil eöa horft á sjónvarp.
Margir notfæra sér bókasafnið á
staðnum. Þeir sem treysta sér fara
í kvöldgöngu. Talsvert er um heim-
sóknir kóra og tónlistarmanna og
fyrir kemur að slegið er upp balli.
„Okkur hefur liðið vel hérna og
starfsfólkið er óskaplega gott sem
og hjúkrunarfólk sem við höfum
kynnst annars staðar," segja þau
Líney og Halldór.
Gullbrúðkaup
framundan
Dvölinni á Reykjalundi lýkur nú
um helgina en þau hjónin treysta
sér ekki strax til Siglufjarðar. „Það
er mikill snjór þar enn þá. Við er-
um ekki alveg nógu sterk til að fara
strax norður. Við ætlum að safna
kröftum hjá dóttur okkar í Kefla-
vík.“
Framundan er gullbrúðkaupsaf-
mæh hjá hjónunum sem taka undir
það að líklega skilji þau betur en
mörg önnur hjón hvernig makan-
um hður.