Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1994, Qupperneq 24
24
LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1994
Eurovision-keppnin í kvöld:
Langar að slá eigið met
- segir Sigríður Beinteinsdóttir söngkona sem er bjartsýn á að lagið Nætur sigri
Sigríður Beinteinsdóttir hress og kát í Dyflinni í vikunni.
„Hugur okkar er mjög jákvæöur
og allt hefur gengiö rosalega vel.
Ég hef verið í viðtölum og ljós-
myndatökum. Annars er mjög
gaman hér og við peppumst upp
með hverjum deginum sem líöur,“
sagði Sigríður Beinteinsdóttir
söngkona í samtali við DV frá
Dyfhnni. í kvöld rennur upp stóra
stundin þegar Sigga syngur fyrir
300 milljónir manna í beinni út-
sendingu lagið Nætur en það virð-
ist hafa fengið góðan meðbyr, hvað
svo sem það þýðir í atkvæðataln-
ingunni í kvöld.
„Ég verð að segja að lagið hefur
vakið mikla hrifningu og ég hef
aldrei vakið þvílíka athygli sem nú.
Þetta er í þriðja skiptið sem ég
keppi og man ekki eftir slíku í hin
skiptin. Þá þurfti maður svolítið
að hafa fyrir því sjálfur að kynna
sig en svo er ekki núna. Blaða-
mennirnir þyrpast í kringum mig.
Ég var t.d. í sjónvarpsviðtölum við
hollenska og sænska sjónvarpið.
Einnig hef ég verið í útvarpsvið-
tölum við þýska útvarpsstöð, BBC,
Holland og Noreg. Þá hafa einnig
birst við mig stór viðtöl í blöðum.
Á fimmtudag var heilsíðuviðtal við
mig í norsku blaði þar sem farið
er fallegum orðum um ísland og
mig. Einnig var stórt viðtal við mig
í sænsku daghlaði á þriðjudaginn.
Á fimmtudag var mikið skrifað um
okkur í írsku dagblööunum. Þann-
ig að við erum meira í sviðsljósinu
en áður,“ sagöi Sigga.
- Hveiju viltu þakka það?
„Ég þakka þaö því að lagið er
gott. Einnig að undirbúningurinn
fyrir ferðina var mikill, sérstaklega
í sambandi við flölmiðlakynningu.
Þá er þetta ekki síst að þakka Frank
McNamara. Hann hefur gert svo
mikið fyrir lagið aö fólk telur aö
það hafi möguleika á að lenda í einu
af fyrstu sætunum enda segja veð-
bankamir það.“
Nettur fiðringur
- Ertuekkikominmeðímagann?
„Jú, þegar maður hefur verið á
æfingunum er nettur fiðringur í
maganum. Ég hef alltaf haft stress-
ið með mér, því miður. Sumir segja
reyndar að það sé ágætt en það er
ekki gaman að vera með hnút í
maganum. Hins vegar eru bak-
raddarsöngvararnir mjög góður
hópur og þaö hjálpar mér mikið.“
- Hvað hafið þið helst verið aö gera
þessa viku?
„Mánudagur og miðvikudagur
voru erfiðastir. Á mánudag var
fyrsta æfingin og hún byrjaði
brösulega því að við heyröum ekk-
ert í sjálfum okkur. Þetta endaði
þó ágætlega. Á eftir var haldinn
blaðamannafundur eins og alltaf
er gert eftir fyrstu æfingu. Um
kvöldið fórum við síðan í veislu hjá
írska sjónvarpinu. Þar var matur
og drykkir fyrir alla eins og hver
gat í sig látið. Á þriðjudaginn var
frí hjá okkur að mestu leyti utan
þess sem ég fór í viðtöl. Frank
McNamara bauð okkur öllum heim
til sín en hann býr í hálfgerðri höll.
Hann bauð okkur í útreiðartúr og
það var mjög skemmtilegt. Æfingin
á miðvikudag gekk frábærlega vel.
Síðan bauð menntamálaráðherra
írlands okkur í veislu um kvöldið
í írskum kastala. Eftir það héldum
við okkar veislu og þangað mættu
um átta hundruð manns en það er
fjölmennasta boðið sem haldið hef-
ur verið. Enda er skrifað um okkur
í írsku blöðunum í dag að viö séum
skemmtilegustu keppendurnir.
Þeir segja að við séum alltaf í góðu
skapi og til í að skemmta okkur.
Ég fór í svokallaða póstkorta-
myndatöku í rándýrri skartgripa-
verslun þar sem voru sérhannaðar
munir og húsgögn. Eg átti að vera
að skoða mig um í þessari verslun."
Ætla aó koma
mér á framfæri
- Nú ert þú að taka þátt í keppn-
inni í þriðja skiptið. Er eitthvað
öðruvísi nú en áður?
„Nei, þetta er sama rútínan. Mað-
ur er orðinn reynslunni ríkari og
nú veit ég hvað þarf að gera. Þetta
er mikil vinna ef maður ætlar að
ná einhverju og geta eitthvaö."
- Hvernig líst þér á leikhúsið þar
sem keppnin verður haldin?
„Mér líst vel á það. Maöur er
mjög nálægt áhorfendum sem er
gott því þá hefur maður samband
við þá. Sviðið er frekar stórt, allt í
neonljósum og allt mjög vel gert
hjá írunum. Þetta kemur vel út.“
- En hvemig verður þú klædd í
kvöld?
„Ég verð í síðu svörtu sifíbnpilsi
sem er hannað af Maríu Ólafsdótt-
ur en hún hefur hannað allan þann
fatnað sem ég klæðist hér úti. Síðan
verð ég mjög svipuð að ofan og ég
var á myndbandinu, í skyrtu og
jakka. Ég vildi ekki vera í galakjól
eins og ég var í árið 1990 þó að rauði
kjóllinn kæmi vel út. Mig langaði
að vera meira ég sjálf, meira í tísk-
unni. Mig langar til að nýta mér
þetta tækifæri hér núna til að koma
mér á framfæri í öðrum löndum.
Þar sem ég ætla að reyna það vil
ég líta út eins og ég er vön að gera
og kann best við. Þetta á eftir að
koma vel út, bakraddarsöngkon-
urnar eru í síðum svörtum kjólum
og herrarnir í svörtum jakkafót-
um.“
Ánægð með lagið
- Fannstu viðbrögð hér heima áð-
ur en þú lagðir af stað?
„Ég var orðin mjög stressuð áður
en ég fór utan því mér fannst fólk
vera með væntingar til mín. Þegar
ég kom hingað til írlands þurfti ég
að byggja mig upp aftur og þótt ég
geti ekki sagt að ég ætli að vinna
þá geri ég mitt besta.“
- Þú lentir í íjórða sæti árið 1990
og síðan í sjöunda sæti 1992. Viltu
spá einhverju um úrslitin í kvöld?
„Nei, ég vil ekki spá neinu en
mig langar að gera betur en ég hef
gert. Mig langar æðislega að kom-
ast í þriðja sætið þótt ég segi ekki
meira. Mig langar að slá eigið met
og vona að ég geti það. Annars von-
ast ég tfi að vera meðal tíu efstu.
Við eigum það skilið því lagið er
gott.“
- Finnst þér lagið ekki hafa breyst
til hins betra eftir að það var tekið
í gegn?
„Jú, einmitt, og þess vegna ákvað
ég að syngja það. Eftir að ég heyrði
breytingarnar og hvað Frank ætl-
aði að gera við það tók ég þá
ákvörðun að vera með en annars
fannst mér nægilegt að hafa verið
með í keppninni tvisvar sinnum.
Ég tel að þetta lag hafi bestu mögu-
leikana á að gera eitthvað stórt af
þeim lögum sem ég hef farið með
í keppnina. Lagið fær mjög já-
kvæða gagnrýni hér úti og blaða-
menn telja það mjög gott.“
Ekki klíka
- Hefur þú heyrt hin lögin í keppn-
inni?
„Ég heyrði nokkur þeirra heima
áður en ég fór til írlands. Mér finnst
sænska lagið mjög gott með indí-
ánahöfðingjanum. Norska lagið er
ágætt líka og það pólska og portúg-
alska. Mér finnst írska lagið fallegt
en textinn'er lélegur. Veðbankarnir
eru náttúrlega ekki dómarar þann-
ig að maður veit ekkert hvernig
þetta kemur út. En ég finn mjög
jákvæða strauma í kringum mig.“
- Er stigagjöfin ekki bara klíka.
Allir að gefa nágrönnum sínum
stig?
„Ég hélt alltaf að það væri þannig
en ég er að skipta um skoðun.
Eflaust er eitthvað um það en ég
er ekki viss um að það sé algilt."
- Þið eruð þá ánægð með þessa
daga á írlandi?
„Já, mjög, enda er veðrið hér frá-
bært. Sól og hiti upp á hvem dag.
Auk þess eru írar yndislegt fólk og
mjög líkir okkur, segi ég með
stolti," segir Sigríður Beinteins-
dóttir.
Þess má geta að það verður Jakob
Magnússon, menningarfulitrúi ís-
lands i London, sem kynnir keppn-
ina fyrir okkur hér heima.