Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1994, Page 43
LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1994
51
A&næli
Pálmi Olason
Pálmi Ólason, skólastjóri Grunn-
skólans á Þórshöfn, til heimilis að
Ytri-Brekkum, verður sextugur á
morgun.
Starfsferill
Pálmi fæddist á Þórshöfn og ólst
þar upp. Hann lauk landsprófí frá
Héraðsskólanum að Laugum 1952,
kennaraprófi frá KÍ1956 og sér-
kennaraprófi frá KHÍ1984, auk þess
sem hann hefur sóttfjölda nám-
skeiða hér heima og erlendis.
Pálmi hefur verið skólastjóri
Barnaskólans á Þórshöfn, síðar
Grunnskólans á Þórshöfn frá 1956.
Þá hefur hann rekið tómstundabú-
skap á Ytri-Brekkum.
Pálmi var sýslunefndarmaður fyr-
ir Þórshafnarhrepp 1962-66 og odd-
viti þar 1966-78, einn af stofnendum
og stjórnarformaður í Hraðfrysti-
stöð Þórshafnar hf. 1969-78, stofn-
andi Útgerðarfélags Þórshafnar hf.
og stjómarformaður þess 1970-78,
var meðal stofnenda Útgerðarfé-
lagsins Borgþórs hf. og sat í stjórn
þess í fjögur ár, átti sæti í ýmsum
nefndum og ráðum á vegum Þórs-
hafnarhrepps 1966-78, hefur setið á
þingi sem varaþingmaður og gegnt
ýmsum trúnaöarstörfum fyrir Al-
þýðuflokkinn og var fyrsti fréttarit-
ari Dagblaðsins á Þórshöfn.
Fjölskylda
Pálmi kvæntist 10.1.1959 Elsu Þór-
hildi Axelsdóttur, f. 1.8.1940. Hún
er dóttir Axels Davíðssonar, húsa-
smiðs frá Ytri-Brekkum, sem lést
1990, og Þorbjargar Bjarnadóttur,
sjúkrahða frá Bakka í Bakkafirði,
sem nú er búsett í Reykjavík.
Börn Pálma og Elsu Þórhildar eru
Helga Jóna, f. 17.4.1959, sérkennari
í Svíþjóð, gift dr. Sveini Aðalsteins-
syni lífiræðingi og eru börn þeirra
Bríet, f. 30.5.1990, og Kári, f. 1.2.
1993; Axel, f. 28.9.1961, hagfræöing-
ur við Seðlabankann, kvæntur
Tammy Jean Ganey tannfræðingi
og em börn þeirra Elsa Sandra, f.
14.5.1992, og Charles Pálmi, f. 6.2.
1994; Gissur, f. 13.4.1963, húsasmið-
ur í Reykjavík; Davíö, f. 21.9.1964,
veitingamaður í Reykjavík, en kona
hans er Svava Guðjónsdóttir og
dóttir þeirra Magdalena Margrét, f.
18.11.1992 en dóttir Svövu er Þórunn
Sandholt, f. 19.6.1979: Óh Pétur, f.
19.9.1969, fiskiönaðarmaður og
verkstjóri á Bakkafirði, en kona
hans er Ihálmfríður Björk Braga-
dóttir og dætur þeirra Andrea
Björk, f. 12.12.1989, og Rósa Mar-
grét, f. 8.6.1993; Þorbjörg, f. 22.10.
1973, nemi við HÍ; Páhna, f. 7.6.1975,
nemiviðFB.
Systkini Pálma eru Sigríður Óla-
dóttir, f. 12.4.1935, húsmóðir í Kópa-
vogi; Davíð Ólafsson, f. 30.10.1936,
byggingameistari í Reykjavík;
Gyðríður Elín Óladóttir, f. 17.11.
1941, húsmóðir í Keflavík.
Foreldrar Pálma: Óli Pétur Möll-
er, f. 5.4.1900, d. 6.8.1973, skóla-
stjóri á Þórshöfn og í Reykjavík, og
Helga Jóna Elíasdóttir, f. 26.11.1905,
kennari.
Ætt
Óh var sonur Kristjáns, skrif-
stofumanns í Noregi, Jónssonar,
prests á Möðruvöhum, Þorsteins-
sonar, prests á Hálsi, Pálssonar.
Móðir Jóns á Möðruvöllum var Val-
gerður, systir Benedikts, afa Geirs
Hahgrímssonar forsætisráðherra,
og systir Sólveigar, móður ráðherr-
anna Kristjáns og Péturs og Stein-
gríms alþingismanns, ömmu Har-
alds Guðmundssonar ráðherra og
langömmu Jóns Sigurðssonar,
fyrrv. ráðherra. Valgerður var dótt-
ir Jóns, ættfóður Reykjahlíðarætt-
arinnar, Þorsteinssonar. Móðir
Kristjáns Lúðvíks var Helga
Magnea Kristjánsdóttir Möller,
gestgjafa í Reykjavík, Ólasonar.
Móðir Óla Péturs var Sigfríður
Þórðardóttir í Hafnarfirði Magnús-
sonar.
Helga Jóna er systir Helga
Pálmi Ólason.
fræðslustjóra og dóttir Elíasar,
reikningsbókahöfundar, bróður
Guðrúnar Breiðfjörð, ömmu Guð-
rúnar Stephensen leikkonu og Leifs
Breiðfjörð glerlistamanns en önnur
systir Elíasar var Helga, amma Þor-
kels Helgasonar stærðfræðings. El-
ías var sonur Bjarna, hreppstjóra í
Hörgsdal, Bjarnasonar, og Helgu
Pálsdóttur, systur Guðríðar,
langömmu Brynju Benediktsdóttur
leikstjóra en bróðir Helgu var Páll,
langafi Róberts Arnfinssonar leik-
ara. Móðir Helgu Jónu var Pálína
Ehasdóttir frá Steinsmýri.
Pálmi er að heiman.
Helga Kristjánsdóttir
Helga Kristjánsdóttir, húsfreyja að
Silfrastöðum í Akrahreppi í Skaga-
firði, verður sjötíu og fimm ára á
morgun.
Starfsferill
Helga fæddist að Fremstafelh í
Ljósavatnshreppi í Suður-Þingeyj-
arsýslu og ólst þar upp. Hún lauk
prófi frá Laugaskóla 1938 og prófi
frá Húsmæðrakennaraskóla íslands
1944.
Helga var skólastjóri við Hús-
mæðraskóla Akureyrar 1945-51 en
hefur lengst af verið húsfreyja að
Silfrastöðum.
Helga er félagi i Kvenfélagi Akra-
hrepps, var formaður þess í tólf ár,
fomiaður Skagfirskra kvenna í níu
ár, hefur starfað í Sambandi norð-
lenskra kvenna, sat í bygginganefnd
Varmahlíðarskóla, var meðal stofn-
enda Krabbameinsfélags Skaga-
fjarðar og hefur verið gjaldkeri þess
frá stofnun.
Fjölskylda
Helga giftist 25.6.1948 Jóhanni
Lárusi Jóhannessyni, f. 20.5.1914,
d. 31.5.1989, bónda á Silfrastöðum.
Hann var sonur Jóhannessonar
Þorsteinssonar og Ingibjargar Jó-
hannsdóttur sem bæði voru kennar-
ar.
Sonur Helgu og Jóhanns Lárusar
er Jóhannes, f. 16.1.1949, vélvirki
og bóndi á Silfrastöðum, var kvænt-
ur Jónínu Bjartmarsdóttur og eru
dætur þeirra Helga Fanney, f. 21.1.
1970, myndhstamemi, ogHrefna, f.
9.3.1975,nemiviðMA.
Systkini Helgu: Anna, f. 24.10.
1904, nú látin, var gift Júhusi Lárus-
syni á Kirkjubæjarklaustri; Rann-
veig, f. 1.8.1908, nú látin, var gift
Páh H. Jónssyni kennara frá Mýri;
Áslaug, f. 21.11.1911, gift Sigurði
Thorlacius skólastjóra; Friðrika, f.
18.7.1916, gift Jóni Jónssyni frá
Mýri, b. á Fremstafelli; Jón, f. 18.9.
1921, b. á Fremstafelh, kvæntur
Gerði Kristjánsdóttur; Jónas, f. 10.4.
1924, forstöðumaður Stofnunar
Árna Magnússonar á íslandi,
kvæntur Sigríði Kristjánsdóttur;
Ásdís, f. 31.3.1929, d. í mars 1936.
Foreldrar Helgu voru Kristján
Jónsson, f. 29.1.1881, d. 16.4.1964, b.
í Fremstafelh, og kona hans, Rósa
Guðlaugsdóttir, f. 25.3.1885, d. 30.7.
1962, húsfreyja.
Ætt
Kristján var bróðir Jónasar frá
Hriflu, afa Sigurðar Steinþórssonar
prófessors. Kristján var sonur Jóns,
b. í Hriflu, Kristjánssonar, b. í Sýr-
nesi, Jónssonar, b. í Sýrnesi, bróður
Jóhannesar, ættfóður Laxamýrar-
ættarinnar, afa Jóhanns Sigurjóns-
sonar skálds. Jón var sonur Krist-
jáns, b. á Halldórsstöðum, Jósefs-
sonar, b. í Ytra-Tjamarkoti, bróður
Jónasar, afa Jónasar Hallgrímsson-
ar skálds. Jósef var sonur Tómasar,
ættfóður Hvassafellsættarinnar,
Tómassonar. Móðir Kristjáns á
Halldórsstööum var Ingibjörg Hah-
grímsdóttir, systir Gunnars, afa
Tryggva Gunnarssonár bankastjóra
og Kristjönu, móður Hannesar Haf-
stein. Móðir Kristjáns í Fremstafehi
var Rannveig Jónsdóttir, b. á
Gvendarstöðum, Jónssonar.
Rósa var dóttir Guðlaugs, b. í
Fremstafehi, Ásmundssonar, b. á
Helga Kristjánsdóttir.
Ófeigsstöðum, Jónssonar. Móðir
Guðlaugs var Guðný Guðlaugsdótt-
ir, b. í Álftagerði, Kolbeinssonar, og
Kristínar, systur Þuríðar, móður
Sigurðar, ráöherra á Ystafelh, afa
Jónasar búnaðarmálastjóra. Þuríö-
ur var einnig móðir Árna, afa Þórs
Vilhjálmssonar, prófessors og dóm-
ara, föður Helga, forstööumanns
Reiknistofu HI. Önnur systir Krist-
ínar var Friðrika, móðir Sigurðar,
langafa Sveins Skorra Höskuldsson-
ar prófessors. Kristín var dóttir
Helga, ættfóöur Skútustaðaættar-
innar, Ásmundssonar. Móðir Rósu
var Anna Sigurðardóttir, b. á Litlu-
strönd, Erlendssonar, b. á Rauðá,
Sturlusonar. Móðir Sigurðar var
Anna Sigurðardóttir, ættföður
Gautlandsættarinnar, Jónssonar.
Móðir Önnu á Fremstafehi var Guð-
rún, systir Guðnýjar á Ófeigsstöð-
um.
Helga er að heiman á afmælisdag-
inn.
Til hamingju með afmaelið 30. apríl
80 ára 70 ára
Haraldur Diðrlksson, Smáratúni 17, Selfossi. Þorgerður Gísladóttir, Bólstaðarhlíð29, Reykjavík. Kjartan Guðmundsson, Bókhlöðustíg5, Stykkishólmi. Sigríður Guðmundsdóttir, Hrafhistu, Reykjavík. Jóhann B. Malmquist, Hó!sgerðl7,AkureyrL Anna Jóhannsdóttir, Garðsbrún 4, Höfh í Horaafirði. Sigurbjörg Sigbjörnsdóttir, Hólsvegill.Eskifirði. Guðmundur Guönason, Laugarholti 3d, Húsavík.
75 ára 60 ára
Guðjón Matthíasson, söngvari, harmonlkuleikariogtón- skáld, Öldugötu 54, Reykjavík. Hanneraðheiman. Kj artan Geir Karisson, Aðalgötu 56, Súöavík.
50 ára
Sigfús Ólafsson, Engjavegi 81, Selfossi.
ÓmarArason,
Stuðlaseh 36, Reykjavík.
Guðjón Torfason,
Höföabraut 7, Akranesi.
Kristín Erna Ólafsdóttir,
Frostafold 119, Reykjavík.
40ára
Eva Guðný Þorvaldsdóttir,
Grænumörk 9, Hverageröi.
Eva Þórey Haraldsdóttir,
Lindarseh 15, Reykjavík.
KristínS. Steingrímsdóttir,
Birtingakvísl 60, Reykjavík.
Sigurður Georgsson,
Nýjabæjarbraut 6a, Vestmannaeyj-
um.
Mætum í kröfugöngu og á útifundinn
Ingólfstorgi 1. maí. Safnast verður
saman við Hlemm kl. 13.30. Gangan
leggur af stað kl. 14.00.
Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í
Reykjavík.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embætlisins að Skógarhlíð 6,
Reykjavík, 2. hæð, sem hér seg-
ir, á eftirfarandi eignum:
Aðaltún 26, Mosfellsbæ, þingl. eig.
Hlín Aðalsteinsdóttir, gerðarbeiðandi
Lind hf., 4. maí 1994 kl. 10.00.
Birkihlíð 48, þingl. eig. Amar Hannes
Gestsson, geiðarbeiðendur Dansk Le-
asing A/S og Gjaldheimtan í Reykja-
vík, 4. maí 1994 kl. 10.00.
Kögursel 7, þingl. eig. Ólaíúr Krist-
jánsson, gerðarbeiðendur Bflaskipti
hf. og Búnaðarbanki íslands, 4. maí
11994 kl. 10.00._________________
j Lágamýri 6, 2. hæð t.h., þingl. eig. S.
Skúlason og Hansson hf., gerðarbeið-
endur Búnaðarbanki íslands, Féfang
hf., Lífeyrissjóður verslunarmanna og
Mosfellsbær, 4. maí 1994 kl. 10.00.
Þverholt 22, hluti, þingl. eig. Kaup-
garður hf., gerðarbeiðandi Gjald-
heimtan í Reykjavík, 4. maí 1994 kl.
10.00.___________________________
Þvottalaugablettur 27/Álfabrekka
Suðurlandsbraut, þingl. eig. Jón Guð-
mundsson, gerðarbeiðandi Gjald-
heimtan í Reykjavík, 4. maí 1994 kl.
10.00.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir
Amartangi 14, Mosfellsbæ, þingl. eig.
Karl Friðrik Kristjánsson, gerðar-
beiðendur Byggingarsjóður ríkisins,
Landsbanki Islands, Lífeyrissjóður
starísm. rfldsins og Mosfellsbær, 4.
mai 1994 kl. 14.30.
i_________
Ármúli 38, hluti, þingl. eig. Hljóðfæra-
versl. Pálmars Áma hf., gerðarbeið-
endur Gjaldheimtan í Reykjavík,
Landsbanki fslands og Ríkisútvarpið,
5. maí 1994 kl. 15.00.
Bollagarðar 111, þingl. eig. Jónína
Sigurðardóttir, gerðarbeiðendui'
Húsasmiðjan hf. og íslandsbanki hf.,
5. maí 1994 kl. 14.30.
Hrefnugata 4, 2. hæð og ris, þingl.
eig. Oddný Þorgerður Pálsdóttir,
gerðarbeiðandi Landsbanki íslands,
5. maí 1994 kl. 15.30.
Laugateigur 48, 1. og 2. hæð, þingl.
eig. fngi TÍyggvason, gerðarbeiðendur
Sparisjóður Suður-Þingeyinga og ís-
landsbanki hf., 5. maí 1994 kl. 16.00.
Miðtún 8, hluti, þingl. eig. Helga Elís-
dóttir, gerðarbeiðendur Birgðaversl-
unin Gripið & Greitt, Byggingarsj.
ríkisins húsbréfad. Húsnæðisst.,
Gjaldheimtan í Reykjavík, Sparisjóð-
ur Reykjavíkur og nágrennis og toll-
stjórinn í Reykjavík, 5. maí 1994 kl.
16.30. ______________________
Strandasel 4, 3. hæð t.v., þingl. eig.
Sigurdís Ólafsdóttir, gerðarbeiðendui'
Byggingarsjóður ríkisins, Búnaðar-
banki Islands, Landsbanki íslands og
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins,
4. maí 1994 kl. 16.30.
Þrándarsel 4, þingl. eig. Sigurður
Ágústsson, gerðarbeiðendur Lands-
banki íslands og Sparisjóður Reykja-
víkur og nágrennis, 4. maí 1994 kl.
16.00.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
*