Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1994, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1994, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 1994 11 Nökkvi læknir skundar á Þingvöll Lýðveldið Island fagnar flmmtugs- afmæli sínu alla þessa viku. Eftir langa umhugsun mun afmælis- bamiö hafa afráðið að vera heima þennan dag og taka á móti gestum og gangandi að Þingvöllum. Kónga- og heíðarfólk Evrópu mun fjöl- menna til þessa fagnaðar enda er það óþreytandi við að sækja hvað annað heim á tylhdögum. Skipu- lagsnefnd hátíðarinnar hefur stefnt allri þjóðinni á Þingvöll þennan dag til að sýna sig og sjá forsetann taka á móti fyrirfólki í Almanna- gjá. „Þegar býður þjóðarsómi..." Nökkvi læknir skundar á Þing- völl þennan dag ásamt Tjörva starfsbróður sínum og öllum hin- um íslendingunum. Þeir ætla að halda merki íslendings nútímans hátt á loft og stunda harðsnúna þjóðernishyggju. Á leiðinni munu þeir drekka heimatilbúinn landa úr Breiðholtinu, blandaðan í Eg- ilsappelsín, undir kjörorðinu ís- lenskt, já takk! Þeir ferðast á þjóð- arbíl sinnar kynslóðar, japönskum, krómi slegnum, upphækkuðum jeppa með drifi á öllum hjólum, farsíma, dráttarkrók og ýmsum aukahlutum. Ef þá langar til að lesa sér til skemmtunar á leiöinni verða þjóðarbókmenntir fyrir val- inu: Morgan Kane í nýrri vasa- brotsútgáfu frá Máh og menningu. Báðir verða þeir klæddir í nýjan þjóðbúning lýðveldisins, htríkan glansgaha, derhúfu með merki amerísks körfuboltaliðs og íþrótta- skó. Þegar þeir höfðu ekið góðan spöl upp í Mosfehsbæ hittu þeir fyrir aldurhnigna konu með skotthúfu og á peysufótum standandi við veg- arkantinn til að húkka sér far á Þingvöll. Var þar komin fjallkonan á leið th hátíðahaldanna. Einhver glæsibifreið átti að ná í hana en blessuð gamla konan hafði gleymst í öllum asanum. Þeir félagar tóku hana upp í bhinn, gáfu henni landa og buðust th að gefa henni pylsu á næstu bensínstöð ef hún væri svöng eftir volkið á veginum. Hún vhdi engar veitingar en þáði smá- „Lýðveldið ísland fagnar fimmtugsafmæli sínu alla þessa viku. Eftir langa umhugsun mun afmælisbarnið hafa afráðið að vera heima þennan dag og taka á móti gestum og gangandi að Þingvöllum." landa th að taka úr sér mesta hroh- inn. „Líst þér ekki vel á afmælið?“ spurði Nökkvi kumpánlega og lækkaði í einhverri útvarpsstöð sem sphað hafði gamalt lag um 17. júní með Dúmbó og Steina ahan daginn. „Jú,“ sagði fjallkonan og brosti dauflega meðan úr 16 hátöl- urum bhsins hljómuðu þessar lín- ur textans: „Fjallkonan í múnder- ingu prhar upp á pah/meö prjáh les upp ljóð eftir löngu dauöan kall.“ „Það er voða gaman að halda upp á þennan merkisatburð með þjóð- inni,“ sagði hún og skoðaði hendur sínar. Naglalakkið hafði flagnað af baugfingri vinstri handar. „Þetta er hápunktur ársins hjá mér. Og það eina sem ég hef fyrir stafni," bætti hún við. „í þessu atvinnu- leysi vih enginn taka aldurhnigna fjallkonu í vinnu sem ekkert annað getur gert en lesa ljóð á pahi og prjóna lopapeysur handa útlend- ingum.“ Hæ, hó ogjibbijei! Þau óku sem leið lá á Þingvöh í gríðarlega langri bhalest og tóku öll undir með Dúmbó og Steina í viðlaginu um sautjándann: „Hæ, hó, jibbíjei ogjibbijei, það er kom- inn sautjándi júní.“ Fjallkonan var hin glaðasta og tók utan um lækn- ana tvo og kahaði þá strákana sína. „Hvar fenguð þið þessa glansgaha og derhúfur," spurði hún. „Þetta er mun praktískara í rigningunum Á læknavaktmni Óttar Guðmundsson læknir 17. júní en þjóðbúningurinn og skotthúfan." Á Þingvöllum var stór hluti þjóð- arinnar samankominn, stýfði pyls- ur úr hnefa, fór á klósettin, drakk kók og vafraði mihi nokkurra palla og sviða sem komið haföi verið fyr- ir. Ótal fánar blöktu við hún, blöör- ur flöksuðust th í andvaranum, lúðrasveitir léku án afláts ættjarð- arlög, kórar sungu, stjórnmála- menn ávörpuðu þjóð sína og forset- inn gekk með kóngafólkinu um vehina og kinkaði alúðlega kohi til fólksins. Nökkvi, Tjörvi og fjall- konan héldu án tafar á Lögberg þar sem hin síðastnefnda átti að ávarpa þjóð sína. Á leiðinni hnaut hún um phsfaldinn og tapaði ættjarðar- kvæðinu sem hún átti að flytja. Það hvarf ofan í rigningarleðjuna eins og hvert annað pulsubréf. Hún steig upp í ræðupúltið, leitaði að kvæðinu en fann ekkert. Fjallkon- an hóf þá upp raust sína og talaði um íslenska nútímaþjóðrækni. Hún hvatti th varðveislu íslenskrar tungu: „Það gengur ekki að menn tali fjálglega um móðurmálið og íslenska menningu en skeri á sama tíma niður flárveitingar til grunn- skólans og leggi háan virðisauka- skatt á bækur. íslensk æska fær verri grunnmenntun en aðrar þjóð- ir. Lengjum skólaárið og skóladag- inn svo að íslendingar verði ekki að annars flokks borgurum í Evr- ópu.“ Síðan bætti hún við: „Rekum ameríska herinn af Miðnesheiði svo að þjóðin geti fagnað algjöru sjálfstæði. Látum það ekki á okkur spyijast að einu hemámsandstæð- ingar nútímans séu í landvarna- ráðuneyti Bandaríkjanna. Það eru þeir sem vhja að herinn fari en ís- lendingar sjálfir grátbiðja um áframhaldandi hersetu." En nú var ráðamönnum nóg boðið. Menn nenntu ekki að hlusta lengur á þessa fjallkonu rausa um svona málefni á hátíðisdegi allrar þjóðar- innar: „Hér tölum við bara um Jón Sigurðsson og gömlu hetjurnar." Lögreglan flarlægði gömlu konuna bhðlega en þó örugglega. Nökkvi og Tjörvi fengu sér aðra pulsu, stóðu í óralangri klósettröð, hlust- uðu á nokkrar ræður og sam- hljóma, samræmdan ættjarðar- söng, horfðu á shdarsöltun um stund og nokkra feitlagna glímu- menn stíga dans. Þeir sáu dönsku konungshjónunum bregða fyrir eitt andartak en forseti lýðveldisins virtist vera alls staðar. Að lokum drifu þeir sig í bæinn til að missa ekki af fyrstu leikjunum í heims- meistarakeppninni. Á leiðinni hlýddu þeir á nýjan geisladisk, „is- land er lýðveldi", í útgáfu Vh- hjálms Bjarnasonar með öllum frægustu ættjarðarlögunum og gömlum síghdum ræöum. „Með svona geisladisk á heimilinu er hægt að halda þjóðhátíð allan árs- ins hring," sagði Nökkvi og brosti breitt og ók fram úr lögreglubíl sem dólaði sér í bæinn. í rimluðum aft- urglugganum sá hann bregða fyrir dapureygðri fjallkonu á leið í bæ- inn. „Vonandi er sjónvarp í klefan- um hennar svo að hún geti fylgst með beinni útsendingu frá Þing- vöhum og heimsmeistarakeppn- inni,“ sagði Tjörvi, fullur af um- hyggju. Matreiðsluþáttur Sjónvarpsins: Pottréttur og grilluð bleikja Ulfar Finnbjömsson matreiðslu- baunaspírur meistari bauð áhorfendum Sjón- Goudaostur varpsins upp á lambapottrétt með rauðlaukur karrí og estragon í þætti sínum fyrir karsi viku. Þessi þáttur átti að vera á dag- ólífuoha skrá í maí en seinkaði. Hins vegar rauðvínsedik munu margir vhja eignast uppskrift- ina enda leit pottrétturinn vel út. Við salt og pipar birtum hér uppskriftina að pottrétt- inum en einnig uppskrift að grihaðri bleikju í álpappír sem Úlfar var með í þætti sínum í gærkvöldi. Grilluð bleikja Og hér koma uppskriftirnar: 1 kg lambakjöt í álpappír 100 g sveppir 1 kg bleikja 1 laukur 100 g smjör 1-2 paprikur (tveir litir) salt og pipar 2-3 hvítlauksrif 'A dl mysa 1 tsk. karrí 1-2 msk. sítrónusafi 1-2 'dl mysa 1 stk. vorlaukur estragon skessujurt 1-2 dl vatn graslaukur kjötkraftur (eftir smekk) kerfhl steinselja 'A agúrka birkisalt 1-2 stk. paprika pipar 1-2 dl rjómi sósujafnari Salat Sósa 2 dl sýrður ijómi refasmári 'A dl rjómi 'A dl mysa 2 msk. sítrónusafi blandaðar kryddjurtir salt og pipar BLEKSPRAUTU TILBOÐ Einn frambærilegasti bleksprautuprentari sem völ er á í daa bvðst nú , á einstöku tilboosverði! 5 EPSON Styh,s 800 Hr&óRí? ÁRMÚLA 11 ■ SlMI eaiBOO Opið virka daga kl. 13-18. Araia Supra Sérverslun með hermannafatnað Hverfisgötu 64a Sími 622322 Falleg og sterk ál-garðhúsgögn hvft og græn Sumarblómatilboð Morgunfrúr eða hádegisblðm 20 stk. á 690 kr.(34.50 pr. stk) Pelargóníur 290 kr. Opiö 10*22 alla daga einnig 17. júní GARÐSHORN H v/Jossvogskirkjugarð - sími40500
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.