Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1994, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1994, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 1994 Visnaþáttur Matgæðingur vikurtnar Sigvaldi skáldi Jónsson Sigvaldi Jónsson skáldi eða Skagfirðingaskáld var fæddur á Gvendarstöðum í Gönguskörðum 29. október 1814. Bjó hann um tíma í Vallholti, í Sjávarborg og síðan var hann lausamaður, oflast í Skagafirði. Snemma vaknaði löng- un Sigvalda til menntunar en á tvítugsaldri kunni hann ekki að skrifa. Fór hann þá að draga til stafs með smalastaf sínum á fannir og svell og hafði sér til fyrirmyndar prentletur. Er Sigvaldi vistaðist að Sjávarborg í Skagafirði bjó þar bóndi sá er Bjami hét og kallaöur var Borgar-Bjami. Var hann grenjaskytta og var Sigvaldi látinn vera með honum á grenjum. Fannst Bjama til um gáfur Sig- valda og glaðlyndi. Varð þeim vel til vina og vistaðist Sigvaldi hjá honum. Þar gafst Sigvalda kostm- á að afla sér nokkurrar menntunar og með æfingu tókst honum að öðl- ast fagra rithönd. Siðar kenndi hann bömum bæði skrift og krist- indóm. Snemma hneigðist hugur Sig- valda til skáldskapar og orti hann við ýmis tækifæri, svo sem brúð- kaupskvæði, erfikvæði og sæg lausavísna. Kona Bjama í Sjávarborg hét Guðrún Þorsteinsdóttir og áttu þau margt bama. Eftir andlát Bjama giftust þau Sigvaldi og bjuggu búi að Sjávarborg. Lukkaðist hjóna- band þeirra miður og skildu þau. Eftir það var Sigvaldi jafnan lausamaður og húskarl á ýmsum stöðum í Skagafirði. Um Soffiu Jónasdóttur, er hann trúlofaðist, kvaö hann þessa vísu Dável syngur Soffia sú er slyng í ráðum, foldin hringa fallega fær giftingu bráðum. Giftist Sigvaldi henni og átti með henni átta böm er flest dóu í æsku. Þröngur hagur og ástvinamissir ollu honum með köflum nokkm þunglyndi. Á nýársdag 1867 orti hann þessa vísu, þá nýbúinn að missa dóttur sína, Sólveigu, á 15. aldursári. Nú er árið útrunnið, ég með támm drottin bið mér í fári að leggja lið og láta sár mitt fullgróið. Á mannafundum var Sigvaldi jafnan hrókur alls fagnaðar, þá oft undir áhrifum víns. Einhveiju sinni er þess getið að í brúðkaup- sveislu lék hann fávita nokkum er þekktur var í héraðinu. Þegar gleð- in stóð sem hæst setti hann allt í einu hljóðan og kvaö vísu þessa. Myrkra andi og synda svín sekur í vanda og böli manna, hættu íjandi að freista mín, flýðu á landið hörmunganna. Yfirgaf hann þar með veislufagn- aðinn. Var þess getið hversu snjall Sig- valdi var að botna vísur. Prestur nokkur kvað. Segðu mér það Sigvaldi, hvað syndir þínar gilda. Sigvaldi svaraði: Þaö er undir áliti alfoðurins milda. Um vinnukonu í Stóra-Botni, sem Oddný hét, kvað Sigvaldi: Yndislega auðarþöll enga finn ég slíka. Oddný gengur ofan á völl. Á ég að koma líka. Eitt sinn fór Oddný þessi til Reykjavíkur og var Auðunn Jóns- son, er ólst upp í Stóra-Botni, í fylgd með henni. Kvað þá Sigvaldi. Vísnaþáttur Valdimar Tómasson Varaðu þig veigalín á vífnum gandi sverða. Auðunn við þig Oddný mín áleitinn mun veröa. Þá Sigvaldi kom eitt sinn að. Efstabæ í Skorradal bar húsfreyja honum kaffi og mun hafa verið brestur í bollanum. Drottinn fyrir drykkinn holla dyggöakonan launi þér. Þó hann væri í brostnum bolla brotlegum það hæfði mér. Öðm sinni var hann staddur á fyrmefndum bæ. Vora þar ungir menn er drógu að honum dár fyrir hárleysi. Kvað hann þá Heldur kýs ég hreinan skalla, sem hylur tíðum mikið vit, en það hár, sem er að kalla alveg fullt af lús og nit. Þegar farið er frá Stóra-Botni eft- ir Botnsheiði til Skorradals er farið upp hrygg er Svartihryggur nefn- ist. Þegar Sigvaldi fór sína síðustu ferð um þennan bratta og grýtta hrygg kvað hann þessa vísu. Mér uns yfir moldin liggur mun ég geta þín. Svei þér lengi Svartihryggur svona er kveðjan mín. Valdimar Tómasson Sveitarstjóri Starf sveitarstjóra Hvammstangahrepps erlausttil umsókn- ar. Reynsla af stjórnunarstörfum æskileg. Umsóknarfrestur er til 30. júní 1994. Upplýsingar gefur oddviti, Valur Gunn- arsson, í síma 95-12659. Umsóknir sendist til oddvita, Vals Gunnarssonar, Hvammstangabraut 39, 530 Hvamms- tanga. Oddviti Hvammstangahrepps Pönnusteiktar steinbítskinnar „Steinbítskinnar hafa ekki verið nýttar til þessa, þannig að það er ekki gott að fá þær. En þaö er hægt að panta þær í fiskbúðum," sagði Hóhngeir Einarsson, verkstjóri í fiskverkuninni Frostveri í Hafnar- firði og matgæðingur DV. Hann gefur uppskrift að nýstárlegum rétti sem hann segir afar ljúffeng- an. Uppskriftin er fyrir 4-5 og eftir- farandi: 3-5 steinbítskinnar á mann 7-10 hvítlauksgeirar 1 laukur 1 /i paprika (græn, rauð og gul) '/< 1 rjómi 4 sveppir salt sítrónupipar svartur pipar, grófmalaður Aðferðin Kinnamar teknar, roðrifnar og þvegnar vel. Þær era kryddaðar vel með salti, svörtum pipar og sítr- ónupipar. Kryddið er síðan látið liggja á þeim í 10-15 mínútur. Hólmgeir segir að gjarnan megi strá svolitlu hvítlauksdufti yfir kinnarnar til viðbótar viö hinar kryddtegundimar. Hvítlauksgeiramir marðir, lauk- urinn, paprikan og sveppimir eru söxuð á pönnu og steikt í smjöri í 7-10 mínútur. Þegar steikingu er að ljúka er gott að strá svolitlum svörtum pipar yfir pönnuna. Síðan Hólmgeir Einarsson, matgæðingur vikunnar. DV-mynd GVA er grænmetið sett í skál og stein- bítskinnamar settar á vel heita pönnuna. Þær eru brúnaðar í u.þ.b. tvær mínútur. Að því búnu er steikt grænmetið sett yfir kinnam- ar og ijómanum hellt yfir. Slökkt er undir pönnunni, þannig að suð- an komi rétt aðeins upp á ijóman- um. Loks er örlitlu af svörtum pip- ar stráð yfir réttinn. Hann er látinn krauma í 1-2 mínútur og borinn fram með soðnum kartöflum og fersku grænmetissalati. Hólmgeir segir að mjög gott sé aö bera Garling-hvítlaukssósu fram með réttinum, en hún fæst t.d. í Hagkaupi. Þá ber hann fram heil vínber og appelsínubáta í skál og segir það bragðast mjög vel með steinbítskinnunum. Kolarúllur með rækjuosti Hólmgeir gefur einnig uppskrift að kolarúllum með rækjuosti: Hvert kolaflak er skorið eftir endilöngu í tvo hluta. Kryddað vel með salti, pipar og sítrónupipar. Síðan era flökin steikt á pönnu, fyrst á roðlausu hliðinni, síðan á hinni, til þess að þau tapi ekki safa. Þau era steikt í 3-4 mínútur á hvorri hlið. Ofninn er hitaður í 180 gráður. Flökin eru smurð með rækjuosti og sítróna kreist yfir. Þá eru þau vafin upp í rúllur og látin vera í ofninum í 5-10 mínútur, eða þar til osturinn er farinn að renna. Borið fram með fersku grænmetissalati og soðnum kartöflum. „Ég hef einkum gaman af að leika mér með ýmsa fiskrétti, enda hef ég góðan aðgang að fyrsta flokks hráefni," segir Hólmgeir. „Ég elda til dæmis töluvert úr búra, sem mér finnst fyrirtaksmatfiskur, svo og skötuselur. Hólmgeir skorar á Ævar Agnars- son, framleiðslusfjóra í Meitlinum í Þorlákshöfn, að láta matgæðings- ljós sitt skína í næsta helgarblaði DV. Hinhliðin Hef aldrei spil að í lottóinu - segir Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi Sigurður Sveriisson, DV, Aktanesi: Gísli Gíslason var fyrir skömmu endurráðinn bæjarstjóri á Akra- nesi. Gísli tók við starfi bæjarstjóra áriö 1987 er Ingimundur Sigurpáls- son, sem gegnt hafði starfinu um nokkurra ára skeið, gerðist bæjar- stjóri í Garðabæ. Gísli var áður bæjarritari á Akranesi en fyrstu árin eftir að hann settist þar að rak hann lögmannsstofu. Gísh, gamall fótboltajaxl úr KR og um tíma landsliðsmaður í körfuknattleik, er léttur í lund og féllst góðfúslega á að sýna lesendum DV á sér hina hliðina að þessu sinni. Fullt nafn: Gísli Gíslason. Fæðingardagur og ár: 9. júlí 1955. Maki: Hallbera Jóhannesdóttir. Böm: Magnús Kjartan, 18 ára, Jó- hannes, 12 ára, Þorsteinn, 10 ára og Hallbera Guöný, 8 ára. Bifreið: Volvo ’87. Starf: Bæjarstjóri á Akranesi. Laun: Viðunandi. Áhugamál: íþróttir í allri sinni mynd, sér í lagi golf og silungsveiði. Hvað hefur þú fengið margar réttar tölur i lottóinu? Hef aldrei spilað í lottóinu. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Að lifa lífinu. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Mér leiðist ákaflega sjaldan Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akra- nesi. en það er helst að skattframtalið valdi mér ama. Uppáhaldsmatur: Kjúklingur. Uppáhaldsdrykkur: Tært Akra- fjaílsblávatn. Hvaða iþróttamaður finnst þér standa fremstur í dag? Sigurður Jónsson. Uppáhaldstimarit: Newsweek. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan maka? Ég er dálítið gamaldags og finnst Hólm- fríður Karlsdóttir alltaf glæsileg- ust. Ertu hlynntur eða andvigur ríkis- stjórninni? Hvorki né. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Nelson Mandela. Uppáhaldsleikari: William Hurt, við eram svo líkir. Uppáhaldsleikkona: Hallbera Jó- hannesdóttir, kona mín. Uppáhaldssöngvari: Ég er undir sterkum áhrifum frá Siggu Bein- teins. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Andrés Ólafsson. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Þekki bara tvær, Flintstone og Homer Simpson, finnst báðir góðir. Uppáhaldssjónvarpsefni: íþróttir. Ertu hlynntur eða andvígur veru vamarliðsins? Vildi gjarnan vera án þess. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Rás 2. Uppáhaldsútvarpsmaður: Ólafur Páll Gunnarsson. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Mér er bannað að horfa á Stöð 2. Uppáhaldssjónvarpsefni: Ólöf Rún Skúladóttir. Uppáhaldsskemmtistaður: Heimil- ið. Uppáhaldsfélag í iþróttum: IA. Stefnir þú að einhveiju sérstöku í framtíðinni? Til að byija með er markmiðið að standa mig vel sem bæjarstjóri næstu fjögur árin. Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí- inu? Stefnan hefur verið sett á sum- arhús í Hollandi með fjölskylduna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.