Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1994, Blaðsíða 49
FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ1994
73
Fréttir
Leikhús
LaxaiKjós:
19 laxar og 19,5
punda sá stærsti
- maríulax Ingibjargar Sólrúnar
Egill Guðjonhsen veiddi fyrsta laxinn
í Laxá i Kjós á þessu sumri en alls
veiddust 19 laxar fyrir mat i gær.
DV-mynd G.Bender
Þeir voru komnir með tvo laxa um
hádegi í gær þeir Ágúst Einarsson
og Einar Oddur Kristjánsson, 9,5 og
18,5 punda laxar á maðk.
DV-mynd G.Bender
„Þetta er allt rólegt hjá okkur núna,
við erum búnir að veiða tvo laxa,
þeir eru 27 pund saman,“ sögðu þeir
félagamir Agúst Einarsson og Einar
Oddur Kristjánsson er við hittum þá
við Bugðu í gær. Einar Oddur hafi
veitt 18,5 punda lax en Ágúst 9,5
punda lax.
„Við fengum smáhögg hérna í foss-
inum en ekkert meira, við vitum
ekki hvort það eru komnir laxar
hingað, Bugða er aðeins lituð,“ sögðu
þeir félagar og héldu áfram að renna
í fossinn í Bugðu.
„Það er gaman veiða fyrsta laxinn
í ánni, þetta var 11 punda lax og tók
maðk,“ sagði Egill Guðjohnsen en
hann var við veiðar í Höklunum með
Þórami Sigþórssyni. Þeir höíðu veitt
þijá laxa, Egill einn en Þórarinn tvo
á maðk.
„Þetta er bara góð byrjun og ætli
að hafi ekki veiðst næstum 20 laxar
hérna fyrir mat,“ sagði Skúli Jó-
hannesson en hann var við veiðar í
Kvíslarfossinum og með honum son-
ur hans Vilhjálmur Skúlason sem
nokkrum mínútum áður en við
mættum á staðinn hafði landað 18
punda fiski í Kvislarfossinum, en
hann tók maðk.
Laxá í Kjós gaf 19 laxa fyrir mat í
gær en engan eftir hádegi. Þaö sner-
ist í vestanátt og takan datt niður.
Það var Helgi Eiríksson sem veiddi
stærsta fiskinn í gær, 19,5 punda fisk,
en allt voru þetta fallegir laxar fyrsta
daginn sem Laxá í Kjós er opin.
Við vorum á bakkanum er Ingibjörg
Sóirún Gísladóttir veiddi maríulax-
inn sinn og með henni eru Garðar
Þórhallsson og Eva Kamilla Einars-
dóttir. Fiskurinn var 6 pund og tók
maðk. DV-mynd Brynjar Gauti
Maríulax
Ingibjargar Sólrúnar
Veiðin gekk rólega í Elliðaánum
fyrsta veiðidaginn en Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir veiddi maríulaxinn
sinn í fossinum. Þetta var 6 punda
fiskur og tók maðk. Löndunin stóð
yfir í næstum 25 mínútur. Einn lax
veiddist eftir mat svo Elliðaárnar
gáfu 2 laxa þennan fyrsta veiðidag.
Menning
Rós í hnappagat
áhugaleikfélaga
Sú nýbreytni að velja áhugaleiksýningu ársins og
bjóða viðkomandi leikhóp að sýna á stóra sviðinu í
Þjóðleikhúsinu hlýtur að virka eins og vítamínsprauta
á alla leikstarfsemi í landinu.
Auðvitað er það ævintýri eftir allt puðið og pæling-
amar að standa allt í einu frammi fyrir smekkfullu
húsi áhorfenda í sjálfu Þjóðleikhúsinu og sýna afrakst-
urinn. Hitt er þó ekki síður mikils vert að með þessu
framtaki er fengin langþráð viðurkenning á því
þróttmikla leiklistarstarfi sem unnið er hjá áhugaleik-
félögum víðs vegar um landið. Enda lét þjóöleikhús-
stjóri svo ummælt í ávarpi við þetta tækifæri að þar
lægju rætur leiklistar okkar.
Leikfélag Hornafjarðar sýnir Djöflaeyjuna
Það var Leikfélag Homarfjaröar sem fyrst varð fyrir
valinu með sýningu sína á Djöflaeyjunni eftir Einar
Kárason, í leikgerð Kíartans Ragnarssonar. Sýningin
er kraftmikil og fjörleg með áherslu á hinum kímilegu
efnisþáttum en víðast hvar fer minna fyrir tragískum
undirtóni sögunnar sem gerist í Reykjavík eftirstríðs-
áranna og lýsir hversdagsamstri, lífsbaráttu og örlög-
um íbúa braggahverfis og nágrennis.
Óbærilegur léttleiki tilverunnar er meginstefið en
þó er forðast að gera persónumar að einhveijum grín-
fígúrum nema í örfáum tilvikum. Tommi og Lína verða
eftirminnileg í túlkun þeirra Ingvars Þórðarsonar og
Svövu Kristbjargar Guðmundsdóttur, bæði svolitið
utan og ofan við heiminn. Einkum nær Ingvar vel
utan um sitt hlutverk. Elín Guðmundsdóttir er öll á
hjólum í hlutverki skvísunnar Dollýjar og þeir Hilmir
Steinþórsson, Júlíus Valgeirsson og Þorvaldur Hauks-
son vom sérstaklega góðir í hlutverkum pottormanna
Badda, Danna og Gijóna.
Marglit persónuflóra skilar sér þannig mætavel í
meðforum leikenda, en minnisstæðust verður Kristín
Leiklist
Auður Eydal
G. Gestsdóttir í hlutverki Þórgunnar sem vandi er að
túlka án þess aö gera úr henni skrípamynd. Kristín
fór með hlutverkið af mætagóðum næmleik og skiln-
ingi á bitrum örlögum og vonlausri aðstöðu hinnar
einstæðu móður.
Ekki bar á öðru en leikhópurinn kynni ágætlega við
sig á sviði Þjóðleikhússins, þó að ívið meiri tími hefði
þurft að gefast til að venjast húsinu. Sviðsmynd var
skemmtilega útfærð og bæði búningar og smáhlutir
valdir af kostgæfni til að skapa rétt andrúmsloft eftir-
stríðsáranna. Þar átti líka prýðilega flutt tónlist sinn
þátt í. Auðvitað þurfti að aðlaga bæði sviðsmynd og
innkomur þessum breyttu aöstæðum og tókst það í
flestum tiivikum vel.
Leikfélag Homafjarðar nýtur afraksturs af margra
ára kraftmiklu starfi því aö sýning sem þessi verður
sannarlega ekki til alveg upp úr þurru.
En ánægðastur hlýtur leikstjórinn, Guöjón Sigvalda-
son, að vera með þessa umfangsmiklu og fjömgu sýn-
ingu. Þar þarf mikinn kjark, metnað og ótrúlega vinnu
til þess að fullvinna slíkt verkefni og árangurinn lofar
meistarann.
Áhugaleiksýning ársins:
Leikfélag Hornafjarðar sýndi á stóra sviðinu i Þjóðleikhúsinu:
Þar sem Djöflaeyjan ris.
Höfundur: Einar Kárason.
Lelkgerð: Kjartan Ragnarsson.
Leikstjóri: Guðjón Sigvaldason.
SÍilili
ÞJÓÐLEIKHÚSID
Sími 11200
Stóra sviðið kl. 20.00
GAURAGANGUR
eftir Ólaf Hauk Simonarson
í kvöld, 40. sýning, fáeln sæti laus.
Siðasta sýning Þjóðlelkhússins á þessu
lelkári.
Miðasala Þjóðleikhússins er opln alla
daga nema mánudaga kl. 13.00-18.00
og fram að sýningu sýningardaga. Tekið
á móti simapöntunum virka daga
frá kl. 10.
Græna linan 99 6160.
Greiöslukortaþjónusta.
Leikfélag Akureyrar
Sýnir á Listahátið í Reykjavik
Bar Par
eftir Jim Cartwright
í Lindarbæ
Aukasýning: i kvöld flmmtud. 16. júni.
Sýning hefst kl. 20.30.
Forsala aðgöngumiða er i miðasölu
listahátiðar i íslensku óperunni dag-
legakl. 15-19, simi 11475,
sýningardaga i Lindarbæ frá kl. 19.
Sími 21971.
Tilkyimingar
Félag eldri borgara
í Kópavogi
Spiluð verður félagsvist að Gjábakka
(Fannborg 8) í kvöld kl. 20.30. Húsið er
öllum opið.
Laugardagsganga Hana nú
Vikuleg laugardagsganga Hana nú í
Kópavogi verður 18. júní. Lagt af stað frá
Gjábakka, Fannborg 8, kl. 10. Nýlagað
molakafFi.
N1 + á Akureyri
í kvöld
N1 + mun leika í 1929 á Akureyri i kvöld
ásamt hþómsveitinni Hunangi. 17. júní
kemur hljómsveitin fram í Reykjavík í
skipulagðri dagskrá Reykjavíkurborgar.
Sunnudaginn 19. júni mun hún spila í
Laugardalnum.
Félag eldri borgara
í Reykjavík og nágr.
Bridgekeppni, tvímenningur, kl. 13 í dag
í Risinu. Lokað á morgun í Risinu. Sögu-
slóðir Dalasýslu heimsóttar 6. og 7. júli.
Upplýsingar á skrifst. félagsins í síma
28812.
Kaffisala Hjálpræðishersins
Það er orðin hefð að Hjálpræðisherinn
er með þjóðhátíðarkaffi 17. júni. Á 50 ára
lýðveldisafmæli mun Hjálpræðisherinn
verða með kaffisölu í Herkastalanum,
Kirkjustræti 2, kl. 14-19. Aö venju verður
á boðstólum úrval af heimabökuðum
kökum, tertum, pönnukökum og öðru
góðu. Haldin verður stutt söng- og lof-
gjörðarstund kl. 18 og eru allir velkomn-
ir á hana.
Útivist á söguslóð
í Viðey
Gönguferð á laugardag hefst að vepju kl.
14.15. Gengið verður á vestureyna. Kl.
15.15 á sunnudag verður staðarskoðun.
Kaffiveitingar eru á boðstólum í Viðeyj-
arstofu alla daga vikunnar kl. 14-17. Báts-
ferðir verða úr Sundáhöfh á heila tíman-
um frá kl. 13.
Lokað í Kringlunni
17. og18. júní
í tilefni 50 ára lýðveldisafmælisins hefur
Kringlan verið skreytt og verslanimar
eru með sérstakar gluggaútstillingar.
Einnig eru nú þijár athyglisverðar sýn-
ingar í Kringlunni. Vegna þjóðhátíðar
verður húsið lokað 17. og 18. júní en hins
vegar verða verslanir í Kringlunni opnar
tU kl. 20 í kvöld og veitingastaðir hússins
lengur fram á kvöldið.
Þjóðhátíð yngstu
kynslóðarinnar
íArbæ
Þjóðhátíð yngstu kynslóðarinnar verður
haldin í Arbæjarhverfi í dag. Allir leik-
skólar Árbæjarhverfis ætla að hittast hjá
Árseli kl. 10 og 14 þar sem verður skrúö-
ganga, uppákoma og söngur.
Hrafnseyrarhátíð 17. júní
Dr. Jóhannes Nordal verður aðalræðu-
maður á Hrafnseyri 17. júní þar sem
Hrafnseyramefhd heldur upp á afmæli
Jóns Sigurössonar á fæðingarstað hans í
15. sinn og minnist jafnframt 50 ára af-
mæhs lýðveldisins. Hátíðin hefst kl. 13 A.
Laugavegssamtökin
Verslanir við Laugaveg og Bankastræti
verða opnar til kl. 20 í kvöld en lokaðar
laugardaginn 18. júni.
Katfisala í Laugardal
KFUM og K verða með kaffi og meðlæti
í nýjum höfuðstöðvum félaganna á homi
Holtavegar og Sunnuvegar laugardaginn
18. og sunnudaginn 19. júní. Opið verður
frá hádegi fram á kvöld.
Tapað fundið
Karlmannsgleraugu fundust
Vönduð karlmannsgleraugu fundust við
nýja bílaplanið í Tryggvagötu sl. þriðju-
dag. Upplýsingar í síma 611273. ^
Barnagleraugu töpuðust
Gleraugun vom liklegast skilin eftir á
skólaveUinum við Hvassaleitisskóla. Þau
em í silfurlitri umgjörð með grænu og
brúnu í. Hafi einhver séð þau þá vinsam-
legast látið vita í síma 42614 eftir kl. 17.
Erling Blöndal
Bengtsson
Tonleikar voru haldnir á vegum Listahátíðar í Reykjavik í Islensku
óperunni í gærkvöldi. Erling Blöndal Bengtsson sellóleikari lék einleik.
A efnisskránni voru þijár af sellósvítum Jóhanns Sebastians Bachs og
Dal regno del silenzio eftir Atla Heimi Sveinsson.
Ekki þarf að kynna sellósvítur _
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
Bachs fyrir lesendum, slík grund-
vallarverk sem þær eru meðal við-
fangsefna sellóleikara. Þaö er ekki
algengt að þær séu fluttar svo
margar í senn á tónleikum. Það
gerir miklar kröfur til flytjandans
um einþeitingu og fiölbreytni í túlkun, en er að mörgu leyti skemmtilegt
fyrir hlustandann. Þannig gefst tækifæri til að skoða verkin í heild og
velta iýrir sér hvað í þeim er líkt og hvaö ólíkt. Athyglisverðast er hversu
ekki aðeins formið heldur einnig efniviður verkanna er í raun svipaður,
og einnig hve fiölbreytnin í úrvinnslu hans er mikil. Verk Atla Heimis
um heim þagnarinnar er einfalt og hógvært og hljómaði mjög fahega eins
og það var flutt á þessum tónleikum.
Sehóleikiu" Erlings Blöndais Bengtssonar var fyrsta flokks. Hann var
hreinn og skýr jafnframt því að vera tilfinningairíkur á þann hógværa
hátt sem einkennir smekkvísa hstamenn. Það er mikih vandi að halda
athygh hlustenda svo vel með efni af því tagi sem þama var flutt. Erling
tókst það með glæsibrag. Þess má geta að blómaskreytingar voru nfiög
smekklegar á þessum tónleikum og hefur svo verið um fleiri tónleika á
Listahátíð nú. Má þar nefna t.d. tónleika Vladimirs Ashkenazys.