Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1994, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1994, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 1994 23 Þau eru lýðveldisbömin: Ætla ekki á Þingvöll Ásta ætlar aö halda upp á afmæl- ið 18. júní og hefur boðið stórum hópi gesta. Hún ætlar ekki á Þing- völl þann sautjánda þar sem undir- búningur fyrir afmælið verður þá á fullu. „Ég ætla að fylgjast með dagskránni í sjónvarpinu," segir hún. „Það hefur veriö heilmikið að gerast hjá manni undanfarna daga.“ Hjördís ætlar að halda upp á af- mælið að kvöldi sautjánda og segist hafa fengið góða hjálp við undir- búninginn. Hún ætlar þó ekki á Þingvöll þar sem hennar imdirbún- ingur mun þá standa sem hæst. Svanur hafði ekki ákveðið hvort hann myndi „skunda á Þingvöll" á morgun, þegar myndatakan fór fram. Hins vegar hefur hann ákveðið að efna til veglegrar af- mælisveislu á þessum tímamótum og er búinn að bjóða stórum hópi vina og kunningja. „Það þýðir ekk- ert annað, maður er ekki fimmtug- ur á hverju ári,“ segir hann, og bætir því við að það sé mjög gaman að eiga afmæli á þjóðhátíðardegi íslendinga. Vilberg ætlar að vera heima í Keflavík á lýðveldisdaginn. Hann og hans fólk mun koma við sögu í hátíðarhöldum á heimaslóðum á morgun, því að snemma morguns verður hann mættur á hátíðar- svæðið til þess að draga íslenska fánann að húni. Dóttir hans, Birg- itta María, verður fjallkona og mun flytja Keflvíkingum hátíðarljóð. Vilberg segist ætla aö sleppa því aö heimsækja Þingvelli á þjóðhá- tíðardaginn. „En ég ætla að fara þangað í ágúst þegar haustlitirnir eru komnir." Þessi lýðveldisafmælisbörn hafa ekki fengið formlegt boð um að mæta á Þingvöll þó svo að slíkt hefði verið skemmtilegt. Ekki hafa þau heldur fengið nein boð eða af- mælisóskir frá þjóðhátíðamefnd. Minnasthins sögufræga dags Þó að lýðveldisbörnin verði ekki á Þingvöllum munu þau án efa Asta Sigurðardóttir og Hjördís Smith eru stoltar af að eiga afmæii 17. júní og ekki síst að vera fæddar á lýðveldisdaginn fyrir fimmtíu árum. Þeir Svanur Auðunsson og Vilberg K. Þorgeirsson ætla að halda upp á daginn með pompi og prakt enda verða þeir ekki fimmtugir nema einu sinni. Eins og afmælisdömurnar klæddu þeir sig upp í íslenska þjóðbúninginn fyrir DV. Forseti hringdi aftur bjöllu og lýðveldisfáninn var dreginn að húni á Lögbergi. Kirkjuklukkum um allt land var hringt í tvær mín- útur og síðan var þögn í eina mín- útu. Þá var þjóðsöngurinn sunginn. Forseti hringdi aftur bjöllu og þing- menn settust í sæti sín. Að því búnu flutti þingforseti ávarp,“ segir í Öldinni okkar. Eftir að þessu var lokið var síðara mál á dagskrá tekið fyrir, forseta- kjörið. Sveinn Björnsson var kjör- inn fyrsti forseti lýðveldisins og kvað við lófatak allra þeirra þús- unda gesta sem samankomnir voru á Þingvöflum þennan sögufræga dag og var forsetinn hylltur með ferföldu húrrahrópi. Asta fékk dóttur sína, Sesselju, i afmælisgjöf þegar hún var þritug og því mun dóttirin fagna tvítugsafmæli sínu á morgun. Það verður því tvöfalt afmæli á því heimili. DV-myndir GVA minnast dagsins fyrir fimmtíu árum þegar stofnun hins íslenska lýðveldis var formlega lýst yfir á þingfundi að Lögbergi og fyrsti for- seti þess kjörinn. Þeir sem þar voru minnast hátíðleika þótt veðrið hafi ekki leikið við landsmenn. Menn létu það þó ekki á sig fá enda var langþráðu marki í sjálfstæðisbar- áttu þjóðarinnar náð. í Öldinni okkar segir frá því aö stöðugur straumur fólks hafi verið til Þingvalla strax 15. júní og menn slegið þar tjöldum. Föstudags- kvöldið 16. júní voru komin á svæð- ið ekki færri en fimmtán þúsimd manns. „Um morguninn voru talin þar um 2500 tjöld. Þá um nóttina var versta veður, rigning og hvass- viðri. Yfirleitt mun fólki þó hafa liðið sæmilega í tjöldunum, en þó voru nokkur brögð að því að vatn kom upp í tjaldstæðunum," segir í Öldinni og áfram er haldið: „Á laugardagsmorguninn hélt áfram að rigna en fólk lét það ekki á sig fá og byijaði að streyma til Lögbergs löngu áður en þingfund- urinn hófst. Var og stöðugur straumur bíla austur um morgun- inn svo að um hádegisbil var kom- inn þangað múgur og margmenni, og er almennt giskað á að þar hafi verið nálægt 25 þúsundum manna.“ Lýðveldið ísland Hin sögulega athöfn á Þingvöll- um hófst um klukkan hálftvö er Bjöm Þórðarson forsætisráðherra setti hátíðjna. Tvö mál voru á dag- skrá: Yfirlýsing um gildistöku lýð- veldisstjómarskrárinnar og forse- takjörið. „Þegar forseti sameinaðs alþingis, Gísli Sveinsson, hafði tek- ið fyrir fyrra dagskrármálið flutti hann stutta ræöu þar sem hann gerði grein fyrir þeirri ályktun Al- þingis aö lýðveldisstjómarskráin skyldi öölast gildi er forseti sam- einaðs þings lýsti gildistöku henn- ar yfir á þingfundi. Þegar forseti hafði þetta mælt, hringdi hann bjöllu, en þingmenn risu úr sætum. Forseti mælti: „Samkvæmt því, sem nú hefur greint verið, lýsi ég yfir því, að stjómarskrá lýðveldisins Islands er gengin í gildi." Velkomin! Afar sérstakur afmælisdagur - segja þau Ásta, Hjördís, Svanur og Vilberg sem öll verða fimmtug á morgun „Það hefur oft verið talað við okkur en við höfum aldrei fyrr hist,“ sögðu fjögur lýðveldisböm, Ásta Sigurðardóttir, Hjördís Smith, Svanur Auðunsson og Vilberg K. Þorgeirsson er DV fékk þau til að gerast þjóðleg og klæðast þjóðbún- ingum í tilefni dagsins. Lýðveldis- bömin vora ánægð með að fá tæki- færi til að hittast og sitja saman fyrir á mynd nú þegar þau fagna hálfrar aldar afmæli sínu og lýð- veldisins. Alls fæddust sjö börn, þrír drengir og fjórar stúlkur, á Islandi þennan sögufræga dag fyrir fimmtíu árum. Á tíu ára fresti hef- ur tilvera þeirra jafnan verið dreg- in fram í dagsljósið þó aldrei hafi þau verið leidd saman. Því miður sáu þijú lýðveldisbörn sér ekki fært að mæta í myndatökuna að þessu sinni en hver veit eftir tíu ár...? Á undanfornum dögum hefur mikið verið að gera hjá afmælis- börnunum við undirbúning á þess- um tímamótum. Þær Ásta og Hjör- dís voru sammála um að þessi af- mælisdagur væri afar sérstakur þar sem í raun væri þetta stóraf- mæli allrar þjóðarinnar. Ásta ætlar einnig að fagna tvítugsafmæli dótt- ur sinnar, Sesselju Tómasdóttur. „Ég fékk hana í afmælisgjöf þegar ég varð þrítug," segir hún stolt. „Mér finnst alveg yndislegt að eiga afmæli þennan dag,“ bætir hún við og Hjördís tekur undir að það sé mjög sérstakt. L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.