Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1994, Blaðsíða 18
18
FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 1994
Dagur í lífl Gunnars Eyjólfssonar leikara:
Þegar mánudagurinn rann upp
biöu mín ýmsir hlutir sem ég þurfti
að ganga frá eftir að hafa verið í leik-
ferð um Norðausturland þar sem við
sýndum Ástarbréfm. Þetta var mjög
ánægjuleg ferð um þessa litlu byggð-
arkjama í ofangreindum landshluta.
Við byrjuðum á Húsavík og fórum
síðan í Skúlagarð, þá á Raufarhöfn,
Þórshöfn og Vopnafjörð. Að vísu
befði aðsókn mátt vera meiri en und-
irtektir voru mjög góðar og hlýjar
og mér þykir vænt um að hafa fengið
að fara á þennan stað með umrætt
leikrit Þjóðleikhússins.
Mánudagurinn hjá mér hófst á því
að ég átti fund með Ragnheiði Elvu
Arnardóttur sem kynnir með mér
hátíðardagskrána á lýðveldishátíð-
inni á Þingvöllum. Síðan fórum við
saman á fund með þjóöhátíðarnefnd-
inni. Þar hnýttum við ýmsa lausa
enda varðandi kynningar og annað
fyrirkomulag á þessari miklu hátíð
sem haldin verður á morgun.
Kynning á
þjóðhöfðingjum
Talsverður tími hefur farið í að
undirbúa kynningarstarfið á lýð-
veldishátíðinni. Viö þurfum til dæm-
is að kynna þjóðhöfðingjana á ís-
lensku og móðurmáh viðkomandi.
Þá þarf að halda utan um dagskrána
og reyna að láta hana ganga vel og
áreynslulaust þannig að hátíðin
verði okkur öllum sem aö henni
stöndum til sóma og fari sem best
fram. Dagskráin er mjög þétt og
kynningar verða stuttar og hnitmið-
Gunnar Eyjólfsson leikari og kynnir á lýðveldishátíðinni á Þingvöllum.
aðar þannig að hún renni sem best.
Því má bæta við að í gær fór svo
fram hljóðpróf á Þingvöllum þar sem
meöal annars átti að fara yfir kynn-
ingamar, og það var eiginlega loka-
spretturinn.
Með rigningu skírð
Við undirbúninginn aö hátiðinni á
Þingvöllum nú kemur óneitanlega
upp í hugann minningin um rigning-
una á Þingvöllum 1944 sem ég man
mjög vel eftir. Vissulega setti hún
svolítið strik í reikninginn þá og ég
vona að veðrið verði betra nú. Hitt
er annað mál að það var svo mikil
ánægja og gleði sem ríkti meðal
fólksins að þetta hvarf allt eins og
dögg fyrir sólu.
Ef það rignir einnig nú má segja
með sanni að við höfum verið með
rigningu skírð á sínum tíma á Þing-
völlum, þegar við urðum sjálfstæð
þjóð, og þetta er þá kannski tímabær
endurskírn núna til að minna okkur
á hver við erum á þessum örlagaríku
tímum sem fram undan eru.
Lýðveldismót skáta
Auk þess að vinna að undirbúningi
á kynningunni er ég að vinna að
landsmóti skáta sem verður 22.-26.
júní næstkomandi, þ.e. lýðveldismót-
ið að Úlíljótsvatni. A mánudaginn sat
ég fund til undirbúnings þess móts.
Þangað ætla ég raunar að fara ríð-
andi. Ég legg upp frá Þurá í Ölfusi
og fer sem leið hggur upp í Grafning,
upp að Úlfljótsvatni. Þar ætla ég að
hafa hestana meðan mótið stendur
yfir.
Góð kvöldstund
Mánudeginum varði ég að miklu
leyti til þessa undirbúnings sem ég
hef þegar nefnt. Þar að auki sinnti
ég fjölskyldumálum, en ijölskylda
mín er náin og hittist gjarnan til þess
að ræða hlutina.
Um kvöldið fór konan mín á tón-
leika hjá Ashkenazy en ég var heima
og vann að ýmsu sem ég átti ógert.
Hún sagði mér frá upplifuninni á
tónleikunum og ég óskaöi þess að ég
heföi haft tíma th að upplifa þetta
með henni. Við ræddum þetta fram
á kvöldið og lauk svo þessum mánu-
degi í lífi mínu.
Kynningar á lýðveldis-
hátíð undirbúnar
Finnur þú fimm breytingai? 262
Hvað ert þú að þvælast hér, þú átt að vera sofnuð fyrir löngu! Nafn:........
Heimilisfang:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi funm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilisfangi.
Að tveimur vikum liðnum
birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun: Rummikub-spii-
ið, eitt vinsælasta fjölskyldu-
spil í heimi. Það er þroskandi,
skerpir athyghsgáfu og þjálfar
hugarreikning.
2. verðlaun: Fimm Úr-
valsbækur. Bækumar sem eru í
verðlaun heita: Mömmudrengur,
Þrumuhjarta, Blóðrúnir, Hetja og Ban-
væn þrá. Bækumar era gefiiar út af
Frjálsri fiölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 262
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir tvö hundr-
uð og sextugustu getraun
reyndust vera:
1. Ingibjörg Jósefsdóttir,
Teigageröi 17,
108 Reykjavík.
2. Stefanía Jensdóttir,
Eyrarholti 5,
220 Hafnarfirði.
Vinningamir verða sendir
heim.