Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1994, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1994, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 1994 Kvikmyndir Mel Gibson leikur ævintýra- manninn og fjárhættuspii- arann Brett Maverick, hlut- verk sem James Garner lék i vinsælli sjónvarpsseríu fyrir mörgum árum. snýraftur Stutt er síðan frumsýndur var í Bandaríkjunum vestrinn Maverick. Hefur myndin fengið góðar viðtökur og nýtur vinsælda um þessar mund- ir. Maverick er gerð í kjölfar þess að vestrar eru aftur komnir í tisku og sjálfsagt kannast margir sem horföu á „Kanasjónvarpið" forðum daga við titilpersónuna, enda er myndin byggð á einni alvinsælustu vestras- eríu sem gerð hefur verið. Leikarinn góðkunni, James Garn- ar, lék Maverick í þáttunum en nú er það Mel Gibson sem fetar í fótspor Gamers og leikur hinn léttlyndafjár- hættuspilara. James Garner er þó ekki langt undan, leikur hann lög- reglumanninn Zane Cooper sem hef- ur einstak lag á að geta sér til um hvað Maverick gerir næst. Brett Maverick hefur lítið breyst á þeim árum sem liðin eru frá því hætt var að gera sjónvarpsþættina, hann er enn sami glaðlyndi spila- fíkillinn, svikahrappurinn ogróman- tíski ævintýramaðurinn sem þvæhst úr einu ævintýrinu í annað. Ein per- sóna nær þó að hafa meiri áhrif á hann en aðrar, hin fagra og kæna Leikstjórinn Richard Donner fer yfir handritið með þeim James Garner og Mel Gibson. Annabelle Bransford sem Jodie Fost- er leikur. Einn af hápunktum mynd- arinnar er mikið pókerspil þar sem allir þeir hæfustu mæta til leiks. Mel Gibson hafði áhugaávestra Upphafið að Maverick kom frá Mel Gibson. Fyrir þremur árum færði hann í tal við framleiðandann Bmce Davey, þar sem þeir unnu að gerð Hamlets, að hann hefði áhuga á að leika í vestra. í leit þeirra að hentugu viðfangsefni kom Maverick upp í huga Davis og tryggði hann sér höfundarréttinn. Gib- son varð strax hrifinn af hugmyndinni um að endurvekja Maverick til lifsins. Þeir félagar duttu síðan í lukkupottinn þegar þeir fengu hinn virta handrits- höfund William Goldman til að skrifa handritiö en meðal afreka hans á þessu sviöi er Butch Cassidy and the Sund- ance Kid. Goldman breytti aðeins persón- unni, gerði Maverick mannlegri og hafði hann ekki alveg jafnmikinn töffara og hann hafði verið í sjón- varpsþáttunum. „Á hreiöum grund- velli er hann sami maðurinn, hann spilar, drekkur mjólk og reynir oftar en ekki að tala sig út úr vandræðum í stað þess að nota byssuna en hann er ekki eins ömggur með sjálfan sig og auk þess mun fyndnari," segir Mel Gibson um þann Maverick sem hann leikur. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem upp kemur hugmynd um að gera kvik- mynd um Maverick og segir James Gamer að á liðnum ámm hafí hann oftar en einu sinni verið beðinn aö endurtaka hlutverkið en lítið orðið úr framkvæmdum, bæði vegna áhugaleysis hans og skorts á góðu handriti. „Ég var samt strax til í að taka þátt í þessari mynd þótt ekki léki ég Maverick sjálfan, enda hand- ritið sérlega skemmtilegt og vel skrif- Jodie Foster leikur í Maverick Anne- belle Bransford, fallega og slynga konu sem heillar Maverick. að,“ segir Gamer. Árangursríkt samstarf Þetta er fjórða myndin sem þeir starfa saman að, Mel Gibson og Ric- hard Donner, sem leikstýrir mynd- inni. Hinar myndimar þrjár em að sjálfsögöu Lethal Weapon 1 til 3. í þetta skiptið var það Mel Gibson sem biðlaði til Donners en ekki öfugt eins og verið hafði. „Langt er síðan Gib- son kom með þá hugmynd að ég leik- stýrði vestra sem hann ætlaði að Kvikmyndir Hilmar Karlsson leika í. Þegar hann svo loks kom með handritiö sá ég fram á að þetta gæti orðið mjög skemmtileg kvikmynd og sló tíl,“ segir Richard Donner. Richard Donner hafði ekki ætlað sér að verða kvikmyndaleikstjóri. Hann útskrifaðist frá New York Uni- versity sem markaðsfræðingur með leikhús sem sérsvið. Ekki gekk hon- um vel að festa sig í starfi og reyndi fyrir sér sem leikari. Lék hann nokk- ur minni háttar hlutverk í sjónvarpi. Eitt þeirra var í Of Human Bondage eftir W. Somerset Maugham. Leik- stjóri var Martin Ritt sem hvatti hann til að snúa við blaðinu og fara að leikstýra og bauð honum að vera aðstoðarmaður sinn. Starf hans með Ritt leiddi til þess að hann fór að leik- stýra í sjónvarpi og kom nálægt mörgum, vinsælum sjónvarpsser- íum. Má þar nefna The Fugitive, The Twilight Zone, The Man from U.N.C.L.E, Cannon og The Wild Wild West. Richard Donner hóf feril sinn í kvikmyndum með glæsibrag þegar hann leikstýrði The Omen. Önnur klassísk mynd, Superman, fylgdi í kjölfariö. Auk Lethal Weapon mynd- anna hefur hann leikstýrt Inside Moves, The Toy, Ladyhawke, The Goonies, Scrooged og Radio Flyer. Þá hefur hann ásamt Joel Silver, David Giler, Walter Hill og Robert Zemeckis staðið á bak við gerð sjón- varpsseríunnar Tales from the Crypt. Maverick verður frumsýnd hér á landi í tveimur Sam-bíóum um miöj- an júlímánuð. íslensku tvíburarnir Hlynur og Marinó Sigurðssynir ieika Bamm-Bamm. Með öðrum þeirra á myndinni er annar tvi- buranna Eianie og Melanie Sil- ver sem leika Pebbles. TheFlintstonesí efsta sæti Aðstandendur gamanmyndar- innar The Flintstones ættu að vera í góðu skapi þessa dagana. Eftir geysimikla augiýsingalter- ferð virðist sem dæmið sé að ganga upp og tvær vikur í röð hefur myndin notið mestrar að- sóknar allrakvikmynda í Banda- ríkjunum. Listinn yfir tíu mest sóttu myndirnar er annars þann- ig: 1. The Flintstones, 2. Ma- verick, 3. Beverly Hills Cop 111, 4. Renaissance Man, 5. Tiie Cowboy Way, 6. The Crow, 7. When a Man Loves a Woman, 8. Four Weddings and a Funeral, 9. Crooklyn. 10. Endloss Summer II. ; Sumarið endalausa Eins og sjá má af listanum hér að ofan er í 10. sæti kvikmynd sem heitir The Endless Summer II. Er um að ræða nokkurs konar endurtekningu á kvikmynd sem gerð var fyrir þrjátíu árum og var heímildarmynd um ferð tveggja brimbrettasnillinga i leit að liinni fullkomnu öldu. Bruce Brown, sem gerði þá mynd, kostaði til hennar 3 % milljón króna. Þegar myndin haíði veriðsýnd um allan heim kom í ljós að tekjur af henni voru rúmir tveir milljarðar króna. Þrjátíu árum síðar er Bruce Brown lagður í aðra ferð í leit að iúnni fullkomnu öldu og er myndin upp byggð á sama máta og fyrri myndin. ForrestGumpog frægafólkið Einhver athyglisverðasta kvik- mynd sem kemur á markaðinn í sumar er tvímælalaust Forrest Gump, nýjasta kvikmynd Ro- berts Zemeckis. Myndin segir frá einfóldum manni sem hefur þá sérgáfu að geta lifað sig inn í atr- iöi í bandarískri sögu og eftir á leiðrétt það sem skráð hefur ver- ið. Eins og Woody Allen geröi með Zelig iætur Zemicks Gump vera þátttakanda í atburðarás- inni. Munurinn er sá að Gump er skeytt inn í upprunalegu fréttamyndirnar með nýrri tækni sem gerir það að verkum að eng- inn tekur eftir þassari blekkingu. Meðal annars sést John F. Kennedy hlæja þegar Gump seg- ist þurfa að fara að pissa. Það er Tom Hanks sem leikur Forrest Gump. Dýrastamynd Kasdans Síöla sumars verður frumsýnd Wyatt Earp, sem Lawrence Kasd- an leikstýrir, og sögur herma að vel yfir þrjá klukkutíma taki að sýria myndina. Það er Kevin ; Costner sem leikur Earp og Ðennis Quaid leikur Doc Hoiliday. Mynd þessi var mjög dýr, sérstaklega þegar hal't er í huga aö um er að ræða vestra sem að mestu er laus við dýrar tæknibrellur. Kostaöi myndin65 miUjónir dollara sem er meiraen hvaða tvær myndir sem oru af: þeim sem Kasdan hefur leikstýrt hingað til kostuðu saman.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.