Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1994, Side 30
54
FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 1994
Iþróttir
DV kynnir þátttökuliðin í HM í knattspymu - B-riðill:
Veðbankar spá því
að Brasilía vinni
- Svíþjóð og Rússland líklega áfram á kostnað Kamerún
Augu margra munu eflaust beinast
að keppni í B-riðlinum og eru einkum
tvær ástæður sem liggja þar að baki.
Riðillinn gæti í öllu fafli orðið mjög
tvísýnn og spennandi og eins það að
ein vinsælasta knattspymuþjóð
heimsins skipar eitt sæti í honum.
Eins og Brasilíumenn hafa leikið síð-
ustu misseri ættu þeir að teljast ör-
uggir um efsta sætið í riðlinum.
Sigurstranglegir
Nú er það Brasilíumanna aö gera vel
- á heimsmeistarakeppninni í Banda-
ríkjunum. Brassamir hafa löngum
verið þekktir fyrir að leika skemmti-
lega knattspymu, stuttur samleikur
og teknískir með afbuðrum. Frá síð-
ustu heimsmeistarakeppni á Ítalíu
1990 hafa margir leikmanna verið á
samningum hjá evrópskum félagslið-
um og hefur þessi þróun orðið liðinu
til tekna. Þar hafa leikmenn kynnst
knattspymu, sem upp á hefur vantað
hjá þeim, agaðri leik og meiri hörku.
Liö Brasflíu er skipað fremstu
v knattspymumönnum heims nú. Má
þar fyrst telja Romario sem leikur
með Barcelona og langmarkahæstur
á Spáni í vétur. Þá eru þar Jorginho
bakvörður og Bebeto, sókndjarfur
leikmaður hjá Deportivo á Spáni.
Brasilía hefur 13 sinnum leikið í
úrslitum HM eða í öll skiptin sem
keppnin hefur verið haldin, 1930,
1934,1938,1954,1958, 1962,1966, 1970,
1974,1978,1982,1986 og 1990. Þrívegis
hefur Brasilía hampað titlinum eftir-
SÓtta, 1958, 1962 Og 1970.
Veðbankar telja Brasilíu í 1.-2. sæti
í styrkleika á HM.
Spumingarmerki
Þjálfari Rússa, Pavel Sadyrin, var í
wmiklum vandræðum með að velja lið
fyrir úrslitakeppnina. Þjálfarinn hef-
ur staðið í stríði við marga leikmenn
sem sætta sig ekki við leikskipulagið
og úr hefur orðið að þeir hafa ekki
gefið kost á sér í liðið. Þetta kann að
veikja liðið en reynslan hefur sýnt
að Rússar virðast eiga leikmenn í
kippum, afltaf kemur maöur í manns
stað.
Telja verður möguleika Rússa að
komast áfram þó nokkra samt. Liðið
er skipað góðum leikmönnum sem
ýmist koma að heiman eða frá er-
lendum félagsliðum. Dmitry Kharin,
markvörður Chelsea, og Sergei Yur-
an, Benfica, eru líklega þeir leik-
menn sem flestir kannast við. Liðið
er annars blanda af reyndum og
óreyndum leikmönnum og spurning-
in þvi sú hvað liðið kemst langt með
þennan mannskap.
Gömlu Sovétríkin tóku sjö sinnum
þátt í úrslitakeppni HM en þetta er
í fyrsta skipti sem Rússar eru með í
úrslitakeppninni.
Veðbankar telja Rússa vera í 9.
sæti að styrkleika á HM.
Svíaseiglan?
Svíar fara langt á seiglunni segja ef-
laust einhveijir. Ekki er víst að hún
dugi að þessu sinni. Fram hjá þeirri
staðreynd verður hins vegar ekki lit-
ið að Svíar hafa á aö skipa frambæri-
legu liði sem ætti að geta spymt frá
sér. Tommy Svensson hefur gert
góða hluti meö þetta lið en stendur
frammi fyrir þvi að þorri leikmanna
leikur með erlendum félagsliðum.
Tomas Brolin er einn þekktasti
leikmaður Svía og hefur staðið sig
mjög vel í ítölsku knattspyrnunni
með Parma. Einnig mætti nefna
Martin Dhalin og Andreas Limpar.
Svíar hafa sjö sinnum tekiö þátt í
úrslitakeppni HM, 1934, 1950, 1958,
1970, 1974, 1978 og 1990.
Veðbankar telja Svía vera í 11.-15.
sæti að styrkleika á HM.
Ekki til afreka
Kamerún, sem sló svo rækilega í
gegn á ítaliu 1990, er ekki talið lík-
legt til afreka í Bandaríkjunum. Átta
leikmenn, sem þá gerðu garðinn
frægan, leika einnig með liðinu
núna. Þar á meðal er Roger Mifla,
42 ára, en vegna pólitísks þrýstings
heima fyrir varð þjálfarinn að velja
hann í íiöið. Ellefu leikmenn liösins
eru atvinnumenn en engu aö síöur
verður við ramman reip að draga.
Kamerún hefur einu sinni áður
verið í úrslitum HM.
Veðbankar telja Kamerún í 20.-24.
sæti að styrkleika á HM.
Bebeto (sjá mynd) og Romario veröa í fremstu víglinu Brasilíumanna í
heimsmeistarakeppninni. Þeir félagar hafa verið iðnir við markaskorunina
með félögum sínum á Spáni.
Tomas Brolin, einn sterkasti leik-
maður sænska landsliðsins.
Kiriakov er meðal lykilmanna í rúss-
neska liðinu.
Omam Biyick hjá Kamerún leikur i
frönsku knattspyrnunni.
B-RIÐILL
19.6. Kamerún-Svíþjóð ....23.30
20.6. Brasilía-Rússland....20.00
24.6. Brasilía-Kamerún ...20.00
24.6. Svíþjóö-Rússland..23.30
28.6. Rússland-Kamerún .20.00
28.6. Brasilía-Svíþjóð..20.00
Leikiö í Los Angeles, San
Francisco og Detroit.
Markverðir:
1 Claudio Taffarel...:.Reggiana (ítallu)
12 Armelino Zetti............Sao Paulo
22 Luis Rinaldi Gilmar........Flamengo
Varnarmenn:
2 JorgeJorginho....Bayem (Þýskalandi)
3 RicardoRocha.............VascodaGama
4 Ricardo Gomes...Paris SG (Frakklandi)
6 ClaudioBranco............Fluminense
13 Aldair............... Roma(ítalíu)
14 MarcosCafu.................SaoPaulo
15 Marcio Santos.....Bordeaux (Frakkl.)
16 Leonardo...................SaoPaulo
Miðjumenn:
, 5 MaurodaSilva.......Deportivo (Spáni)
8 CarlosDunga.....Stuttgart (Þýskalandi)
9 Zinho......................Palmeiras
10 RaideSouza..................ParisSG
17 Mazhino...................Palmeiras
18 PauloSergio..Leverkusen (Þýskalandi)
Sóknarmenn:
7 JoseBebeto.........Deportivo (Spáni)
11 Romario Farias.....Barcelona (Spáni)
19 LuisMuller.................SaoPaulo
• 20 Ronaldo...................Cruzeiro
21 PauloViola..............Corinthians
Markverðir:
1 StanislavTsjertsjesov .Dresden (Þýskal.)
16 Dmitri Kharin......Chelsea (Englandi)
Varnarmenn:
3 Sergei Gorlukovitsj ..Uerdingen (Þýskal.)
4 Dmitri Galjamin..............Espanol (Spáni)
5 Júrí Nikiforov.......Spartak Moskva
6 VladislavTemavski....Spartak Moskva
18 ViktorOnopko.........Spartak Moskva
21 Dmitri Khlestov......Spartak Moskva
Miðjumenn:
2 DmitriKuznetsov......Espanol (Spáni)
7 Andrei Piatnitski....Spartak Moskva
8 DmitriPopov......R.Santander(Spáni)
12 OmariTetradze........DinamoMoskva
13 Alexander Borodjuk ...Freiburg (Þýskal.)
14 ígorKomejev.................Espanol (Spáni)
17 BjaTsimbalar.........Spartak Moskva
20 ígorLedjakhov........Spartak Moskva
Sóknarmenn:
9 Oleg Salenko...............Logrones (Spáni)
10 Valeri Karpin...Real Sociedad (Spáni)
11 VladimirBestsjastnikh .Spartak Moskva
15 Dmitri Radtsjenko ..R. Santander (Spáni)
19 Alexander Mostovoi Cannes (Frakkl.)
22 SergeiJúran........Arsenal (Englandi)
Markverðir:
1 Thomas Ravelli...........Gautaborg
12 Lars Eriksson............Norrköping
22 MagnusHedman...................AIK
Varnarmenn:
2 Roland Nilsson..........Helsingborg
3 Patrik Andersson.Gladbach (Þýskal.)
4 JoachimBjörklund..........Gautaborg
5 Rogerljung.......Galatasaray (Tyrkl.)
13 Mikael Nilsson............Gautaborg
14 Pontus Kámark.............Gautaborg
15 Jan Eriksson...Kaiserslautem (Þýsk.)
Miðjumenn:
6 Stefan Schwarz....Arsenal (Englandi)
8 Klas Ingesson.........PSV (Hollandi)
9 JonasThern...................Napoli (Ítalíu)
16 Anders Limpar....Everton (Englandi)
17 StefanRehn...............Gautaborg
18 HákanMild.................Servette (Sviss)
21 JesperBlomqvist...........Gautaborg
Sóknarmenn:
7 Henrik Larsson..Feyenoord (Hollandi)
10 Martin Dahlin.....Gladbach (Þýskal.)
11 TomasBrolin..................Parma (ítaliu)
19 Kennet Andersson.Lille (Frakklandi)
20 Magnus Erlingmark........Gautaborg
KAMERÚN
Markverðir:
1 Joseph-Ant. Bell.St. Etienne (Frakkl.)
21 Thomas N’Kono...........Landsliðið
22 Jacques Songo’o...Metz (Frakklandi)
Varnarmenn:
3 RigobergSong............TKCYaounde
4 Samuel Ekeme Ndiba..Canon Yaounde
5 Victor Ndip-Akem..Olympic de Mvolye
13 Raymond Kalla...............Canon Yaounde
14 StephenTataw.....Olympic de Mvolye
15 Hans Agbo........Olympic de Mvolye
Miðjumenn:
2 Andre Kana-Biyick.Le Havre (Frakkl.)
6 Thomas Libih............Landsliðið
8 EmileMbouh.......NadiQatcU-(Qatar)
12 Paul-Serge Loga.........Prevoyance
17 Marc Vivien Foe.............Canon Yaounde
18 Jean-Pierre Fiala Fiala ...Canon Yaounde
Sóknarmenn:
7 Francois Omam-Biyick..Lens (Frakkl.)
9 RogerMilla................Tonnerre
10 Louis Mfede.........Canon Yaounde
11 Emmanuel Mabouang....Rio Ave (Port.)
16 AlphonseTchami......OB(Danmörku)
19 DavidEmbe......Belenenses (Portúgal)
20 Georges M.-Elong..Troyes (Frakkl.)