Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1994, Side 51
FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 1994
75
Eitt málverka Bergs Thorbergs á
sýningunni í Portinu.
Akrýl á striga
Bergur Thorberg mun á laugar-
daginn opna málverkasýningu í
Portinu, Strandgötu 50, Hafnar-
flrði. Á sýningunni verða fimmt-
án málverk, öll máluð með akrýl
á striga. Þetta er önnur einkasýn-
Sýningar
ing Bergs en henni lýkur 3. júlí.
Allir eru að sjálfsögðu velkomnir
en sýningin er opin daglega kl.
14-18 nema þriðjudaga.
Enn mikill
snjór á há-
lendisvegum
Þótt júní sé hálfnaður er enn mikil
snjór á hálendisvegum og allflestir
eru lokaðir. Ökumenn eru varaðir
Færðávegum
við að fara þangað nema á sérstak-
lega vel út búnum bílum til shkra
ferða. Snjór er nú að mestu farinn
af Öxarfjarðarheiði á Norðaustur-
landi en vegurinn er samt lokaður
vegna aurbleytu. Eftir að hafa verið
lokuð í langan tíma er gert ráö fyrir
að Mjóafiarðarheiði verði opnuð á
hádegi í dag.
Astand vega
0 Hálka og snjór 0 Vegavinna-aðgát S Öxulþungatakmarkanir
•NÍÍSr* IDwní&r. __
Kristján Jóhannsson verður með
tónleika í kvöld.
Þrír stór-
viðburðir í
tónlist
Það sem ber hæst á listahátíð í
kvöld og um helgina eru þrír stór-
viðburðir á sviði tónlistar. í kvöld
verða tónleikar Kristjáns Jó-
hannssonar í Laugardalshöll. Þar
syngur hann með undirleik Sin-
fóníuhlj óms veitar íslands. Óþarfi
er að kynna Kristján lesendum
en gaumgæfilega hefur verið
fylgst með sigurgöngu hans í
óperum víða rnn heim. Stjómandi
hljómsveitarinnar er Rico Sacc-
ani en hann hefur verið eftirsótt-
ur hljómsveitarstjóri síðcm hann
sigraði í Herbert von Karajan-
keppninni árið 1984.
Listahátíð
Á laugardaginn kl. 16 verður
flutt í Hallgrímskirkju óratórían
Milska eftir Kjell Mörk Karlsen.
Milska er samið við samnefnt ís-
lenskt miðaldakvæði. Milska er
hrynhent Maríukvæði, ekki
óskylt Lilju. Nafnið merkir sætur
hunangsdrykkur og er hugsan-
lega skylt orðinu mjöður en gæti
einnig verið dregið af orðinu
mildi. Höfundur verksins, Kjell
Mörk Karlsen, skrifaði verkið
veturinn 1992-93 til flutnings á
20 ára afmæh dómkirkjunnar í
Tönsberg. Flytjendur órator-
íunnar eru tveir kirkjukórar,
strengjakvartett, einsöngvarar
og talrödd. Höfundur stjómar
flutningnum.
Síðast en ekki síst er vert að
minnast á tónleika frægasta ís-
lendings nútímans, Bjarkar Guð-
mundsdóttur, en síðan plata
hennar, Debut, kom á markaðinn
hefur ferill hennar veriö ein sam-
fehd sigurganga. Tónleikar henn-
ar eru í Laugardalshöh á sunnu-
dagskvöld.
Nýir eigendur hafa tekið viö Ros-
enbergkjaUaranum sem er í hjarta
borgarinnar við Lækjartorg. Að
sögn eins þeirra, Sigurjóns Skær-
ingssonar, verður lögö áhersla á
lifandi rokktónhst en einnig verður
diskótek. Breytingamar á tónhst-
arstefnu staðarins eru allar í þá átt
Skemmtanir
að hafa í heiöri rokktónhst af harð-
ari gerðinni og í framtíöinni mun
staöurinn leggja áherslu á að að
vera með þær hljómsveitir og ein-
staklinga sem leggja áherslu á slíka
tónlist.
Opnunarhátíðin er í kvöld og
koma nokkrar hljómsveitir til að
leika, meðal annars Stálfélagið og
Þrettán og að auki kemur Richard
Scobie til meö að halda uppi rokk-
Richard Scobie verður meðal þeirra sem koma til meö að halda uppi
fjörinu í Rosenbergkjallaranum i kvöld.
sveiflunni. Sigurjón sagðist einnig
búast viö aö meðhmir hljómsveit-
anna Strip Show og Dos phas yrðu
á staðnum.
Anthony Hopkins og Emma
Thompson í Dreggjum dagsins.
Samstarf í
þrjátíu ár
Stjömubíó hefur nú sýnt úr-
valsmyndina Dreggjar dagsins
(Remains of the Day) um alhangt
skeiö og hefur verið jöfn og góð
aðsókn að henni. Aðalhlutverkip
leika Anthony Hopkins og Emm'a
Thompson en þau léku einnig
aðalhlutverkin í síðustu kvik-
mynd leikstjórans James Ivory,
Howards End, en hann leikstýrir
Dreggjum dagsins.
í fyrstu átti Harold Pinter að
skrifa handritið að Dreggjum
dagsins og Mike Nichols að leik-
Bíóíkvöld
stýra myndinni en Nichols var
tímabundinn og gegnir aðeins
starfi framleiðanda og hann fékk
Ivory til að taka leikstjómina að
sér. Um leið og það gerðist var
Pinter ofaukið. Þar sem James
Ivory á að baki farsælt samstarf
við handritshöfundinn Ruth
Prawer Jhabvala, sem hefur stað-
ið í þijátíu ár, tók hún yfir hand-
ritsgerðina. Samstarfþeirrahófst
í Indlandi þar sem Ivory leik-
stýrði nokkrum úrvalsmyndum
sem vom verðlaunaðar á kvik-
myndahátíðum víða um heim.
Þekktust kvikmynda hans frá
þessu tímabili er Shakespeare
Waflah.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Nýliðarnir
Laugarásbíó: Síðasti útlaginn
Saga-bió: Beint á ská 33 VI
Bióhöllin: Þrumu-Jack
Stjörnubíó: Tess í pössun
Bióborgin: Angie
Regnboginn: Sugar HiU
Gengið
Almenn gengisskráning LÍ nr. 142.
16. júní 1994 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 70,130 70,350 70,800
Pund 106,800 107,120 106,82a
Kan. dollar 50,430 50,630 51,1™
Dönsk kr. 10,9800 11,0240 10,9890
Norsk kr. 9,8990 9,9390 9,9370
Sænsk kr. 8,8670 8,9030 9,1510
Fi. mark 12,7800 12,8310 13,0730
Fra. franki 12,5970 12,6470 12,5980
Belg. franki 2,0899 2,0983 2,0915
Sviss. franki 51,1900 51,4000 50,4900
Holl. gyllini 38,3900 38,5500 38,3839
Þýskt mark 43,0100 43,1300 43,0400
It. líra 0,04400 0,04422 0,04455
Aust. sch. 6,1080 6,1390 6,1230
Port. escudo 0,4139 0,4159 0,4141
Spá. peseti 0,5211 0,5237 0,5231
Jap. yen 0,68210 0,68410 0,67810
írsktpund 104,490 105,020 104,820
SDR 99,94000 100,44000 100,32000
ECU 82,7700 83,1000 82,9400
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Krossgátan
T~ T~ V- r lí 7
i
!b II vr*
/5 JT IST
1
18
J w~
Lórétt: 1 kinn, 6 þegar, 8 lubbi, 9 blöm,
10 borði, 11 kona, 13 belti, 15 óniskur, 16
vera, 18 glutrar, 19 kyrrð, 20 sé.
Lóðrétt: 1 skjól, 2 drúpi, 3 erjur, 4 rápir,
5 fugl, 6 samt, 7 elska, 12 gugginn, 13
runa, 14 lykti, 17 nægilegt.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 ásjá, 5 ósk, 8 rödd, 9 hætta, 10
frægð, 13 vitrar, 15 tóm, 17 ýsan, 18 um,
19 ertan, 21 snitta.
Lóðrétt: 1 ár 2 sarp, 3 juö, 4 ás, 5 óttást,
6 svíra, 7 ká, 10 ostúr, 11 skýri, 12 renna,
14 amen, 16 óms, 20 at.