Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1994, Side 20
20
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994
Kvikmyndir
Atriði úr nýjustu mynd Woody Allens.
Woody Allen
í fullu fjöri
Það hefur mikið gengið á í einka-
lífi Woody Allens á undanfbrnum
árum. Fjölmiðlaumfjöllum um
einkalíf hans hefur verið mun um-
fangsmeiri en um verk hans sem
leikstjóra og leikara.
Árið 1992 skildi Woody Allen við
Miu Farrow, eiginkonu sína til
margra ára, og tók upp ástarsam-
band Við hina ungu Soon-Yi sem Mia
Farrow ættleiddi á sínum tíma. Þetta
leiddi tii biturra deilna milli þeirra
Miu og Woody varðandi umráðarétt
yfir bömum þeirra. Mörg stór orð
voru látin falla og m.a. sakaði Mia
Farrow fyrrverandi eiginmann sinn
um að hafa misnotað kynferðislega
dóttur þeirra. Hún lagði einnig ofur-
kapp á að Woody fengi ekki að um-
gangast frekar börn þeirra. Þetta
leiddi til lögreglurannsóknar og
málaferla sem nýlega enduðu á þann
veg að Woody Állen var hreinsaður
af allri sök og fékk takmarkaðan
umgengnisrétt við son sinn. Hann er
búinn að áfrýja dómnum og bíður
niðurstöðunnar.
Nýttlíf
Margir héldu á þessu tímabili að
ferli Woody Allens sem listamanns
væri lokið. En þrátt fyrir alla þessa
erfiðleika tókst honum að koma
ótrúlega miklu í verk sem listamað-
ur. Hann skrifaði handritið og leik-
stýrði myndinni Hushands and Wi-
ves sem virtist endurspegla að mörgu
leyti hjónabandsslit hans og Miu
Farrow og ástæðuna fyrir þeim.
Myndin hlaut góða dóma. Því næst
skrifaði hann með öörum handritið
að myndinni Manhattan Murder
Mystery sem hann lék einnig í og
leikstýrði. Þar að auki fann hann
Woody Allen og Soon-Yi.
tíma til að færa í sjónvarpsbúning
Don’t Drink the Water fyrir ABC
sjónvarpsstöðina þar sem hann var
einnig leikstjóri og leikari. Woody
Allen er líka búinn að skrifa leikrit
sem á að setja á svið á næsta ári og
svo var nýlega frumsýnd nýjasta af-
kvæmi hans á hvíta tjaldinu sem ber
heitið Bullets over Braodway. Að
venju skrifar Woody Allen handritið
en í þetta sinn ásamt nýjum sam-
starfsaðila að nafni Douglas
McGrath. Hann er einnig leikstjóri
myndarinnar sem hefur fengið ein-
staklega góða dóma.
NewYork
Bullets over Broadway gerist í New
York borg, eins og svo margar aðrar
myndir Woody Allens. Þótt hann
hafi notað New York sem bakgrunn
í yfir 20 ár virðist hann ekki vera í
neinum vanda að finna heppilegt
umhverfi sem bakgrunn í myndum
sínum. Það sem er ef til vill óvana-
legt hjá Woody Allen í þetta sinn er
að hann lætur myndina gerast upp
úr 1920, ekki ólíkt og í Radio Days
sem einnig var gerð í New York. Yfir-
leitt gerast myndir Woody Allens
nær nútímanum.
Söguhetjan er David Shayne (John
Cusack), ungur leikritahöfundur
sem er að reyna að koma sér áfram.
Hann telur sig hafa dottið í lukku-
pottinn þegar hann fær mafíufor-
ingja að nafni Nick (Joe Viterelli) til
að fjármagna uppsetningu á einu
leikrita sinna. En þessu boði fylgir
eitt vandamál. Shayne verður að út-
vega hlutverk fyrir hjákonu mafíu-
foringjans sem hefur réttu línurnar
en virðist vanta bæði leikhæfileika
og réttu röddina. Shayne stendur því
frammi fyrir því vandamáli að verða
að fórna listrænni stjórn sinni fyrir
að sjá verk eftir sig á sviði.
Margs konar
vandamál
Þegar æfingar heíjast fer að síga á
ógæfuhliöina hjá Shayne. Hann
missir stjórn á leikurunum sem hafa.
sínar eigin hugmyndir hvernig eigi
aö breyta handritinu þannig að hlut-
ur sérhvers þeirra verði stærri og
veglegri. Því stefnir allt í upplausn,
eins og yfirleitt er á ákveðnum tíma-
punkti í flestum mynda Woodys. En
þá kemur til skjalanna bjargvættur
Shaynes. Það reynist vera mafiufé-
laginn og smáglæpamaðurinn
Cheech (Chazz Palminteri) sem maf-
íuforinginn hafði fengið til að líta
eftir hjákonu sinni. Cheech hefur
ekki hundsvit né áhuga á leikritum
og leikhúslífi en áttar sig þó á því að
leikritiö, sem Shayne er að setja á
svið, er ömurlegt og pmn aldrei fá
neina aðsókn. í stað þess að láta sér
leiðast fer Cheech að koma með at-
hugasemdir og tillögur til Shaynes
og viti menn, smátt og smátt fer leik-
ritið að taka á sig heilsteypta mynd.
Cheech verður brátt heltekinn af
hlutverki sínu sem ráðgjafi þannig
Umsjón
Baldur Hjaltason
að í lokin svífst hann einskis til að
vemda verkið „sitt“.
Gottfólk
Það eru margir leikarar sem koma
fram í myndinni. Flestir eru þeir að
leika í leikritinu og þá ýmsa furðu-
fugla. Við sjáum þar meðal annars
Jim Broadbent og Tracey Ullman.
Þótt Bullets over Broadway sé skil-
greind sem gamanmynd er hún eins
og flestar myndir Woody Allens full
af alvöru bak viö alla brandarana og
klaufaskapinn. En hvort sem mönn-
um líkar myndin vel eða illa þá er
gaman að sjá að Woody Allen hefur
ekki látið deigan síga og virðist vera
í fullu fjöri sem leikstjóri, leikari og
handritahöfundur.
Kyn-
tröll og
kyn-
bomba
Nýlega var framsýnd myndin
The Specialist. Það er i sjálfu sér
varla í frásögu færandi ef þetta
væri ekki fyrsta myndin þar sem
kynbomban Sharon Stone og
kyntröllið og vöðvabúntið Syl-
vester Stallone eru leidd saman.
Myndin hefur fengið hörmulega
dóma þar sem gagnrýnendur
hafa haldið því fram að þeirn
skötuhjúum hafi ekki einu sinni
tekist að gera ástaratriðin trú-
verðug né kynörvandi.
Stallone leikur Ray Quick,
sprengjusérfræðing, meðan
Stone leikur May Munro, konu
sem leigir Quick til að leitá'
hefnda gegn þeim sem myrtu for-
eldra hennar. Það gengur á ýmsu
áður en yfir lýkur en einhvern
veginn virðist efnisþráöurinn
ekki trúverðugur. Svo virðist sem
Sharon Stone eigi erfitt með að
rífa sig frá hlutverkinu í Basic
Instinct sem gerði hana fræga.
Hún virðist vera meira eða mimta
föst í kynbombuhlutverkinu og
hafa einnig takmarkaöa hæfi-
leika sem leikkona. Hún ætlaði
sér stóra hluti með spennurnynd-
inni Sliver sem reyndist vera
venjulegur trylhr sem hvarf fljót-
lega í gleymskunnar skaut.
Margarmyndir
Sharon Stone hafði að vísu leik-
ið smáhlutverk í ýmsum mynd-
um áöur en hún varð fræg. Þar á
meðal má nefna myndimar
Stardust Memoríes, sem Woody
Allen gerði 1990, Deadly Blessing,
Police Academy 4, Irreconcilable
Differences og svo Total Recall.
Næst á dagskránni hjá Stone er
hlutverk í kúrekamynd sem ber
heitið The Quick and the Dead
og verður kvikmynduð í Arizona.
Vonandi tekst henni þar bfctur
upp svo hún geti sýnt að hún
kann fleira en að krosslegja fæt-
urna á kynþokkafullan hátt.
Það er einnig undrunarefni
hvers vegna Stallone lét draga sig
út 1 að leika í The Specialist. Stall-
one náði sér veralega vel á strik
sem leikari í myndinni Clifíhan-
ger, eftir margra ára lægð. Einnig
féll hann nokkuð vel ínn í hlut-
verk sitt í myndinni The Demo-
lition Man. Svo virðist sem marg-
ir þekktir leikara hafi á undan-
fömum misserum tekiö aö sér
hlutverk í myndum sem hafa litla
sem enga möguleika til að ganga
vel. Þetta á við t.d. um Bruce
Willis í myndunum North og Col-
or of Night. Þessar stórstjörnur
hafa líklega talið að nafn þeirra
væri nægjanlegt til að laða að
áhorfendur en raunin hefur orðið
önnur. Því falla þessi goð niður
af háum stalli og þess vegna má
búast viö að þau vandi valið betur
á næsta handriti sem þau sam-
þykkja.
Sharon Stone og Syivester Stall-
one.