Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1994, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1994, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994 Kvikmyndir Atriði úr nýjustu mynd Woody Allens. Woody Allen í fullu fjöri Það hefur mikið gengið á í einka- lífi Woody Allens á undanfbrnum árum. Fjölmiðlaumfjöllum um einkalíf hans hefur verið mun um- fangsmeiri en um verk hans sem leikstjóra og leikara. Árið 1992 skildi Woody Allen við Miu Farrow, eiginkonu sína til margra ára, og tók upp ástarsam- band Við hina ungu Soon-Yi sem Mia Farrow ættleiddi á sínum tíma. Þetta leiddi tii biturra deilna milli þeirra Miu og Woody varðandi umráðarétt yfir bömum þeirra. Mörg stór orð voru látin falla og m.a. sakaði Mia Farrow fyrrverandi eiginmann sinn um að hafa misnotað kynferðislega dóttur þeirra. Hún lagði einnig ofur- kapp á að Woody fengi ekki að um- gangast frekar börn þeirra. Þetta leiddi til lögreglurannsóknar og málaferla sem nýlega enduðu á þann veg að Woody Állen var hreinsaður af allri sök og fékk takmarkaðan umgengnisrétt við son sinn. Hann er búinn að áfrýja dómnum og bíður niðurstöðunnar. Nýttlíf Margir héldu á þessu tímabili að ferli Woody Allens sem listamanns væri lokið. En þrátt fyrir alla þessa erfiðleika tókst honum að koma ótrúlega miklu í verk sem listamað- ur. Hann skrifaði handritið og leik- stýrði myndinni Hushands and Wi- ves sem virtist endurspegla að mörgu leyti hjónabandsslit hans og Miu Farrow og ástæðuna fyrir þeim. Myndin hlaut góða dóma. Því næst skrifaði hann með öörum handritið að myndinni Manhattan Murder Mystery sem hann lék einnig í og leikstýrði. Þar að auki fann hann Woody Allen og Soon-Yi. tíma til að færa í sjónvarpsbúning Don’t Drink the Water fyrir ABC sjónvarpsstöðina þar sem hann var einnig leikstjóri og leikari. Woody Allen er líka búinn að skrifa leikrit sem á að setja á svið á næsta ári og svo var nýlega frumsýnd nýjasta af- kvæmi hans á hvíta tjaldinu sem ber heitið Bullets over Braodway. Að venju skrifar Woody Allen handritið en í þetta sinn ásamt nýjum sam- starfsaðila að nafni Douglas McGrath. Hann er einnig leikstjóri myndarinnar sem hefur fengið ein- staklega góða dóma. NewYork Bullets over Broadway gerist í New York borg, eins og svo margar aðrar myndir Woody Allens. Þótt hann hafi notað New York sem bakgrunn í yfir 20 ár virðist hann ekki vera í neinum vanda að finna heppilegt umhverfi sem bakgrunn í myndum sínum. Það sem er ef til vill óvana- legt hjá Woody Allen í þetta sinn er að hann lætur myndina gerast upp úr 1920, ekki ólíkt og í Radio Days sem einnig var gerð í New York. Yfir- leitt gerast myndir Woody Allens nær nútímanum. Söguhetjan er David Shayne (John Cusack), ungur leikritahöfundur sem er að reyna að koma sér áfram. Hann telur sig hafa dottið í lukku- pottinn þegar hann fær mafíufor- ingja að nafni Nick (Joe Viterelli) til að fjármagna uppsetningu á einu leikrita sinna. En þessu boði fylgir eitt vandamál. Shayne verður að út- vega hlutverk fyrir hjákonu mafíu- foringjans sem hefur réttu línurnar en virðist vanta bæði leikhæfileika og réttu röddina. Shayne stendur því frammi fyrir því vandamáli að verða að fórna listrænni stjórn sinni fyrir að sjá verk eftir sig á sviði. Margs konar vandamál Þegar æfingar heíjast fer að síga á ógæfuhliöina hjá Shayne. Hann missir stjórn á leikurunum sem hafa. sínar eigin hugmyndir hvernig eigi aö breyta handritinu þannig að hlut- ur sérhvers þeirra verði stærri og veglegri. Því stefnir allt í upplausn, eins og yfirleitt er á ákveðnum tíma- punkti í flestum mynda Woodys. En þá kemur til skjalanna bjargvættur Shaynes. Það reynist vera mafiufé- laginn og smáglæpamaðurinn Cheech (Chazz Palminteri) sem maf- íuforinginn hafði fengið til að líta eftir hjákonu sinni. Cheech hefur ekki hundsvit né áhuga á leikritum og leikhúslífi en áttar sig þó á því að leikritiö, sem Shayne er að setja á svið, er ömurlegt og pmn aldrei fá neina aðsókn. í stað þess að láta sér leiðast fer Cheech að koma með at- hugasemdir og tillögur til Shaynes og viti menn, smátt og smátt fer leik- ritið að taka á sig heilsteypta mynd. Cheech verður brátt heltekinn af hlutverki sínu sem ráðgjafi þannig Umsjón Baldur Hjaltason að í lokin svífst hann einskis til að vemda verkið „sitt“. Gottfólk Það eru margir leikarar sem koma fram í myndinni. Flestir eru þeir að leika í leikritinu og þá ýmsa furðu- fugla. Við sjáum þar meðal annars Jim Broadbent og Tracey Ullman. Þótt Bullets over Broadway sé skil- greind sem gamanmynd er hún eins og flestar myndir Woody Allens full af alvöru bak viö alla brandarana og klaufaskapinn. En hvort sem mönn- um líkar myndin vel eða illa þá er gaman að sjá að Woody Allen hefur ekki látið deigan síga og virðist vera í fullu fjöri sem leikstjóri, leikari og handritahöfundur. Kyn- tröll og kyn- bomba Nýlega var framsýnd myndin The Specialist. Það er i sjálfu sér varla í frásögu færandi ef þetta væri ekki fyrsta myndin þar sem kynbomban Sharon Stone og kyntröllið og vöðvabúntið Syl- vester Stallone eru leidd saman. Myndin hefur fengið hörmulega dóma þar sem gagnrýnendur hafa haldið því fram að þeirn skötuhjúum hafi ekki einu sinni tekist að gera ástaratriðin trú- verðug né kynörvandi. Stallone leikur Ray Quick, sprengjusérfræðing, meðan Stone leikur May Munro, konu sem leigir Quick til að leitá' hefnda gegn þeim sem myrtu for- eldra hennar. Það gengur á ýmsu áður en yfir lýkur en einhvern veginn virðist efnisþráöurinn ekki trúverðugur. Svo virðist sem Sharon Stone eigi erfitt með að rífa sig frá hlutverkinu í Basic Instinct sem gerði hana fræga. Hún virðist vera meira eða mimta föst í kynbombuhlutverkinu og hafa einnig takmarkaöa hæfi- leika sem leikkona. Hún ætlaði sér stóra hluti með spennurnynd- inni Sliver sem reyndist vera venjulegur trylhr sem hvarf fljót- lega í gleymskunnar skaut. Margarmyndir Sharon Stone hafði að vísu leik- ið smáhlutverk í ýmsum mynd- um áöur en hún varð fræg. Þar á meðal má nefna myndimar Stardust Memoríes, sem Woody Allen gerði 1990, Deadly Blessing, Police Academy 4, Irreconcilable Differences og svo Total Recall. Næst á dagskránni hjá Stone er hlutverk í kúrekamynd sem ber heitið The Quick and the Dead og verður kvikmynduð í Arizona. Vonandi tekst henni þar bfctur upp svo hún geti sýnt að hún kann fleira en að krosslegja fæt- urna á kynþokkafullan hátt. Það er einnig undrunarefni hvers vegna Stallone lét draga sig út 1 að leika í The Specialist. Stall- one náði sér veralega vel á strik sem leikari í myndinni Clifíhan- ger, eftir margra ára lægð. Einnig féll hann nokkuð vel ínn í hlut- verk sitt í myndinni The Demo- lition Man. Svo virðist sem marg- ir þekktir leikara hafi á undan- fömum misserum tekiö aö sér hlutverk í myndum sem hafa litla sem enga möguleika til að ganga vel. Þetta á við t.d. um Bruce Willis í myndunum North og Col- or of Night. Þessar stórstjörnur hafa líklega talið að nafn þeirra væri nægjanlegt til að laða að áhorfendur en raunin hefur orðið önnur. Því falla þessi goð niður af háum stalli og þess vegna má búast viö að þau vandi valið betur á næsta handriti sem þau sam- þykkja. Sharon Stone og Syivester Stall- one.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.