Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1994, Blaðsíða 35
LAUGARDAGUR 5. NÓVEMBER 1994
43
Framkvæmdastjóri fjármála
Staða framkvæmdastjóra fjármáladeildar Flugmála-
stjórnar er laus til umsóknar.
Framkvæmdastjóri fjármála heyrir undir flugmála-
stjóra. Verksvið fjármáladeildar er m.a. yfirstjórn fjár-
mála, gerð áætlana og fjárlagatillagna, bókhald og
eftirlit með fjárhagslegum þáttum í rekstri og fram-
kvæmdum, tengsl við Alþjóðaflugmálastofnunina,
starfsmannahald og almenn stjórnsýsla stofnunar-
innar.
Fláskólapróf í viðskiptafræði eða sambærileg
menntun er áskilin, sem og mjög góð enskukunn-
átta. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi reynslu af
störfum er snerta fjármálastjórn, bókhald, áætlana-
gerð og starfsmannahald. Laun samkvæmt launa-
kerfi opinberra starfsmanna.
Nánari upplýsingar veitir Einar Kristinn Jónsson,
fjármálaráðgjafi flugmálastjóra, í síma 694125 virka
daga kl. 10-11.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf, sendist samgönguráðuneytinu fyrir 25.
nóvember 1994. Með upplýsingar um umsóknir
verður farið skv. ákvæðum laga nr. 38/1954, um
réttindi og skyldur opinberra starfsmanna og stjórn-
sýslulaga nr. 37/1993.
UPPBOÐ
Framhald uppboös á Frey GK-177, skipaskrárnr. 6602, þingl. eig. Eidi hf„
fer fram á skrifstofu embættisins að Vatnsnesvegi 33, Keflavík, miðvikudag-
inn 9. nóvember 1994 kl. 11.45. Gerðarbeiðendur eru Kreditkort hf„ Krist-
ján Ó. Skagfjörð hf„ Sparisjóður Norðfjarðar og Þýsk-íslenska hf.
SÝSLUMAÐURINN I KEFLAVÍK
YAMAHA
PATRICK
BADMINTOIM
SPAÐAR
0G BOLTAR
Góðar vörur
á góðu verði
SPAÐAVIÐGERÐIR
HELLAS
uðurlari'dsbraut 22 - símar 688-988 - 15328
)ið: Mánud.-fimmtud. 16-18 - föstud. 12.30-14.30
Nökkvi læknir telur þó að enn hafi pestin ekki borist til landsins enda litlar líkur til þess að slíkur faraldur
geti komið upp í landi þar sem heilbrigðisaðstæður allar eru til fyrirmyndar.
Svartidauði
gengur aftur
Nökkvi læknir var á dögunum á
Indlandi til að hjálpa innfæddum
að ráða niðurlögum pestar einnar
mikillar sem þar er komin upp.
Fregnir um veikindi og dauðsföll
höföu borist til Vesturlanda og
valdið miklum óhug enda var um
gamlan vágest að ræða. „Þessi
drepsótt og ég erum gamhr kunn-
ingjar," sagði Nökkvi. „Ég lýsti
henni fyrst í Gamla testamentinu
og auk þess segir fornvinur minn
Hómer frá þessari pest í herbúðum
Grikkja á dögum Trójustyijaldar.
Á 14du öldinni herjaði svartidauði
í allri Evrópu og er tahð að 25 millj-
ónir manna hafi látið lífið (lausleg
ágiskun). Pestin barst tvisvar til
íslands: í byrjun 15. aldar og undir
lok hennar. Hafa þessir faraldrar
verið nefndir „plágan fyrri og síð-
ari“. Mikið mannfah varð í þessum
veikindum sem rekja má til
þrengsla, ihrar aöbúðar og óþrifn-
aðar á heimilum. Sóttin var auk
þess ný af náhnni þannig að ahir
voru bráðnæmir fyrir henni í sam-
félaginu. Tahð er aö fyrri pestin
hafi borist th íslands árið 1402 með
skipi kunningja míns, Hval-Einars
Heijólfssonar. Mikh bráöasótt kom
upp og lágu menn dauðir innan 3ja
nátta þar th heitið var „lofmessum,
þurrföstu fyrir kyndhmessu og
vatnsföstu fyrir jól.“ Þrátt fyrir ah-
ar kristilegar hjálparaðgeröir fór
pestin eins og sinueldur eða kjafta-
saga um landið, aleyddi Skálholts-
stað fyrir utan biskupinn sjálfan
og tvo leikmenn. Svo skæð var
þessi pesti að sturidum fóru „15 th
greftrunar með einum, komu ekki
heim nema fjórir." Hún rénaði en
kom aftur af furium krafti í lok ald-
arinnar. Þjóðsagan sagði þá aö
veikindin hefðu borist th Íandsins
með ensku skipi sem menn sáu á
reki undan Seltjarnarnesi. Bændur
fóru um borð og fundu þá aha
skipshöfnina dauða úr farsótt.
Samt fluttu þeir með sér varning
og klæði á land og veiktust eftir
það. Tahö er líklegt að þriðjungur
íbúa hafi fahið í þessum faröldrum
Álæknavaktiimi
Óttar
Guðmundsson
læknir
sem sýnir hversu mannskæðir þeir
voru. Seinni pestin fór þó aldrei um
Vestfirði sakir vestfirskra galdra-
manna sem tókst að veija byggð-
ina. Á seinni öldum hefur pestin
borist nokkrum sinnum um Evr-
ópu en aðalheimkynni hennar eru
fátækari lönd heimsins, s.s. Ind-
land þar sem pestinni skýtur upp
með reglulegu mihibih. Ég hef
fylgst með þessari pest í nokkur
þúsund ár og brá mér því th Ind-
lands th að aöstoða innfædda."
Baktería og meðferð
Sóttvaldurinn í þessum veikind-
um er baktería sem nefnist Yersin-
ia pestis (Pasteureha pestis). Ein-
kennin eru hiti, slappleiki og mikh
vanhðan og bólga í eitlum. Margir
fá mikinn höfuðverk, sljóleika og
krampa. Stundum fylgir þessum
veikindum eitlabólga og graftarí-
gerðir í nárum og holhönd. Auk
þessa getur sjúkdómurinn lagst á
lungu og valdið einkennum eins og
blóðugum hósta, uppgangi og
mæði. Ef ekkert er að gert getur
sjúkhngur fengiö alvarlega blóð-
eitrun og húðblæöingar um sig ah-
an. Stundum myndast í húðinni
blæðandi ígerðir sem afskræmdu
sjúklinginn mjög. Það er engin
furða þó að forfeður okkar hafi
gefið þessum veikindum nafnið
svartidauði og tahð þau vera refs-
ingu guðs vegna synda mannanna.
Bakterían býr í rottum og öörum
nagdýrum en flyst yfir í menn með
flóasmiti. Talið er að pestin hafi
borist th íslands með flóm sem lifðu
í fötum og farangri sóttdauðra eða
veikra manna á skipum. Þegar um
einkenni frá lungum er að ræða
dreifist smitið með hósta og upp-
gangi. Þegar ekkert er gert er um
banvænan sjúkdóm að ræða en
meðferð með streptomycini og öðr-
um sýklalyfjum hefur gjörbreytt
horfum þessara sjúkhnga og lækk-
að tölu dauðra. Sjúkhnga verður
að einangra sem skýrir viðbrögð
yfirvalda á Kastrup sem tóku svo
hart á þeim fregnum að menn sem
smitast heföu af pestinni væru um
borð í Flugleiðavél. Nökkvi læknir
telur þó að enn hafi pestin ekki
borist th landsins enda hflar líkur
th þess að slíkur faraldur geti kom-
ið upp í landi þar sem hehbrigðis-
aðstaeður ahar eru th fyrirmyndar.
„Þó sennhega veitti þjóðinni ekki
af smá þurr- og vatnsföstu th að
bæta andlegt og líkamlegt hehsu-
far,“ sagði mannvinurinn síðar.