Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1994, Qupperneq 8
8
LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1994
Vísrtaþáttur________
Jón Magnússon
frá Fosskoti
Jón Magnússon fæddist í Fos-
skoti í Andakíl áriö 1896. Um fimm
ára aldur missti hann fööur sinn
og fór þá um tíma til vandalausra.
Eftir þaö ólst hann upp hjá móöur
sinni á Svartagili í Þingvallasveit.
Um tvítugsaldur nam Jón beykis-
iön sem hann stundaði í Reykjavík
til margra ára og einnig á sumrum
á Akureyri og Siglufiröi. Síðar
vann hann við húsgagnaverslun í
Reykjavík sem hann átti hlut í. Frá
hendi Jóns komu fimm ljóðabæk-
ur. Fyrst Bláskógar árið 1925 og því
næst Hjarðir árið 1929, en þar á
eftir kom kvæðasafnið Flúðir 1935,
og næsta bók þar á eftir var ljóða-
flokkurinn um Bjöm á Reyðarfelh
sem út kom árið 1938, þar lýsir Jón
kjörum og lífsbaráttu íslenska ein-
yrkjabóndans.
Nú haustar og Vetur konungur
bærir á sér með éljafjúki og frosti.
Um haustkvöldið kveður Jón:
Hljóö á kvöldi vetrarvöld
vefa tjöld úr snævi.
Reisa öldur faldafjöld
fram á köldum sævi.
Eitthvaö viröist Jón hafa verið
mæddur yfir haustkomunni er
hann kveður vísu þessa.
Sumar kveður. Svell og mjöll
sveipar beðinn rósa.
Hljóðnar gleði hjartans öll,
harmar í geði frjósa.
„Allt er í heiminum hverfult"
kvað listaskáldið góða og víst er að
ekkert á það síður við í dag en á
fyrri öld í heimi. Næsta vísa Jóns
Bláskógaskálds flytur líkan boð-
skap:
Lindin tára tíðum þvær
tregasárin hörðu.
Margur frár, sem flaug í gær,
falhnn er nár að jörðu.
Er skáldið hugsar til æskustöðva
sinna og þeirra sem hann þekkti
þar kveður hann:
Allt er reikult allsstaðar,
ýmsir hverfa sýnum
Farið er að fækka þar
fornum vinum mínum.
Meðan dægrin líða hjá skiptast
jafnan á skin og skúrir en jafnan
styttir upp um síðir.
Jón kveður:
Vorum heimi oft er í
illur veðrabragur.
En á bak við skuggaský
skín á himni dagur.
Um örlög þeirra systra er nefndar
eru örbirgð og auðlegð kveður Jón:
Örbirgö svelgur súra veig,
sár af aldarhlekkjum.
Auðlegð, sem var frækn og fleyg,
ferst á silkibekkjum.
Fátt var feðrum vorum eins kært
og þegar sumarið opnaði faðm sinn
eftir vetur og veður hans. Búpen-
ingur undi á heiðum og engjar voru
slegnar og heyjaforða safnað til
vetrar. Jón fagnar sumri og kveö-
ur:
Hrekur kvíða sumarsól,
sveipar fiöllin ljóma,
vekur blíða von sem fól
vetrarmjöll í dróma.
Seint urðu feðurnir forðum
þreyttir á það vegsama vorið með-
an híbýli þeirra héldu síður veðr-
um en steinsteypa og einangrun
vorra daga. Þessari mynd af vor-
morgni bregður Jón upp:
Sindra gullin sólarfiöll,
sundur rennur klakinn.
Foldin döggvuð angar öll,
árdagshljómum vakin.
Á siglingu vorri slær jafnan úr
og í og er það ekki meira en lög
gera ráð fyrir. Svo kveður Jón:
Þó að ógni aldan há,
aftur knörrinn réttist.
Borðiö gefur annað á
út af hinu skvettist.
Til stéttarbróður síns eins úr
beykisiðn kveður Jón:
Þó aö skefli og skyggi í ál,
skarki brim á grjóti,
berðu heila hönd og sál
hverjum stormi á móti.
Vísnaþáttur
Valdimar Tómasson
Að einhverju hefur Jón haft að
hverfa í draum löndum sínum sem
honum hefur ekki þótt minna virði
en „dansins tryhta æði“ er hann
kveður:
Þegar aðrir yndisgnótt
út í glaumnum finna,
signir mig, þótt sortni nótt,
sólskin drauma minna.
Frá Jóni Bláskógaskáldi skulum
við hverfa til nútímans. Þættinum
barst bréf frá Óhnu Þorvarðardótt-
ur fréttamanni og kom það til
vegna vangaveltna um stöðu okkar
alþýðuflokksmanna. Sýnist mér
óður þessi vera lofgjörð til forystu-
manns þar í ílokki. Vísa þessi er
sléttubandavísa og er að auki víxl-
hend og hljóðar svo:
Gætir friðar, aldrei er
ölkær vihtur bófi.
Bætir siði, fráleitt fer
fram úr stilltu hófi.
Þakka ég Óhnu fyrir innleggið í
þáttinn og vonast til að heyra frá
fleirum sem hafa fróðleik aö geyma
eða fást við bragarsmíð.
Starfsmenntasjóður
Félagsmálaráðuneytið auglýsir hér með opinn fund starfs-
menntaráðs sem haldinn verður þann 14. nóvember nk.
kl. 17.00 í Borgartúni 6.
Á fundinum verður fjallað um úthlutun styrkja úr starfs-
menntasjóði vegna starfsmenntunar í atvinnulífinu skv.
lögum nr. 19/1992.
Félagsmálaráðuneytið, 10. nóvember 1994
Matgæðingur vikunnar
Svinakjöts-
pottréttur
Sigurveig Björnsdóttir ritari býö-
ur upp á svínakjötspottrétt og sítr-
ónupæ. Hún kveðst hafa meira
gaman af að búa til eftirrétti og
kökur heldur en mat en kjötréttur-
inn sem hún gefur lesendum upp-
skrift aö hefur þó unnið til verð-
launa í uppskriftasamkeppni.
„Þá notaði ég pylsur í réttinn.
Hann hefur hins vegar þróast hjá
mér eins og naglasúpa. Það er einn-
ig hægt að hafa bæði pylsur og kjöt
í sömu uppskriftinni," bendir Sig-
urveig á.
Svínakjötspottréttur
1 kg svínalundir
30 g smjör
salt og pipar
1 tsk.marioram
2 msk. hveiti
2 'h kjötkraftsteningur
1 krukka sultaður smálaukur
200 g svartar olífur
1 rauð paprika
1 græn paprika
1 dl brytjaöar asíur
3 dl ijómi
Svínakjötið er skorið í um það
bil 3 cm þykkar sneiðar og bankað
létt ofan á skurðinn. Kjötið brúnað
létt og kryddað með salti og pipar
eftir smekk ásamt marioram.
Hveitinu er stráð yfir og hrært létt
í. Kjötkraftinum blandað út í. Papr-
ikan skorin í strimla og blandað
saman við ásamt lauknum (heil-
- og sítrónupæ
Sigurveig Björnsdóttir.
um), olífum og asíum. Hrært í og
suðan látin koma upp. Rjómanum
blandað saman við og lok sett á
pottinn. Soðið í 20 mínútur við lág-
an hita og með lokið þétt á.
Þetta er borið fram með soðnum
hrísgrjónum og góðu fersku salati
eftir smekk.
Sítrónupæ
2 dl hveiti
100 g smjörlíki
2 msk. vatn
Þetta er aht hnoðað saman og
sett í ísskáp í 15 mínútur til 1 klst.
eftir því hve langur tími er fyrir
hendi. Síðan er deiginu þrýst út í
eldfast form, sem er 24 cm í þver-
mál, og þrýst aðeins upp að börm-
unum. Skelin pikkuð með gafli.
Bakað í ofni í 10 mínútur við 150
gráður. Á meðan skehn er að bak-
ast er ágætt að búa til fyllinguna.
2 dl vatn
2 dl sykur
1 '/% msk. kartöflumjöl
3 eggjarauður
Safi og rifinn börkur af 1 sítrónu
Þetta er aht sett í pott og hrært
vel saman og suðan rétt látin koma
upp til að þykkja fyhinguna. Síðan
er fyllingunni hellt í skelina. Ofan
á fylhnguna er síðan settur mar-
engs.
3 eggjahvítur
3 msk. sykur
'A tsk. lyftiduft
Vi msk. sítrónusafi
Eggjahvíturnar eru stífþeyttar og
sykri hrært saman við. Síðan er
lyftidufti og sítrónusafa blandað
saman við. Þetta er síðan breitt
yfir fylhnguna og bakað í ofni í 20
mínútur viö 150 gráður. Borið fram
með ísköldum þeyttum ijóma.
Sigurveig skorar á föðursystur
sína og nöfnu, Sigurveigu Gunn-
arsdóttur, að vera næsti matgæð-
ingur. „Hún er fyrrverandi hótel-
stýra, þjónn og kokkur og kokkar
ahs kyns sælkeramat eftir hend-
inni.“
Hmhliðin
Dagsljós hefur stolið
mérfrá 19:19
- segir Guðríður Haraldsdóttir útvarpskona
Drög að degi nefnist morgunþátt-
ur Aðalstöðvarinnar sem hefur
notið mikhla vinsælda. Það eru þau
Guðríöur Haraldsdóttir og Hjörtur
Howser sem sjá um þáttinn og hafa
þau bryddað upp á ýmsum nýjung-
um eins og því að spá fyrir fólki í
tarrot-spil en Guðríður hefur tiu
ára reynslu á því sviði. Einnig eru
þau meö óskalag sjúkhngs í anda
þess sem áður tíðkaðist á Ríkisút-
varpinu, kaffihúsarölt og spurn-
ingu dagsins. Guðríður (Gurrý) og
Hjörtur leggja áherslu á að spila
þæghega tónlist í þáttum sínum.
Það er Gurrý sem sýnir á sér hina
hliðina að þessu sinni:
Guðríður Haraldsdóttir.
Fæðingardagur og ár: 12. ágúst
1958.
Maki: Enginn.
Börn: Einar sem er fiórtán ára.
Bifreið: Engin.
Starf: Dagskrárgerðarmaður.
Laun: Mættu vera betri.
Áhugamál: Lestur góðra bóka og
tónlist.
Hefur þú unnið í happdrætti eða
lottói nýlega? Ég hef fengiö fiórar
tölur í lottóinu og fæ árlega lægsta
vinning í happdrætti Háskólans og
DAS.
Hvað fmnst þér skemmtilegast að
gera? Mér finnst ofboðslega
skemmthegt aö fara með syni mín-
um í bfó og svo finnst mér bara
æðislega gaman aö lifa.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að vera í letikasti á sunnu-
Guðríður Haraldsdóttir, dagskrár-
gerðarkona á Aðalstöðinni, spáir
i spil fyrir hlustendur.
dögum.
Uppáhaldsmatur: Ég held að það
sé hangikjöt.
Uppáhaldsdrykkur: Gott, dýrt
gæðakaffi.
Hvaða iþróttamaður stendur
fremstur í dag? Ég er mjög hreykin
af Sigrúnu Huld Hrafnsdóttur.
Uppáhaldstimarit: Kaupi oftast
Nýtt líf og finnst það ágætisblað.
Hver er fallegasti karl sem þú hefur
séð? Mér finnast íslenskir karl-
menn upp th hópa mjög fahegir.
Ertu hlynnt eða andvíg ríkisstjórn-
inni? Andvíg.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Höfund Njálu.
Uppáhaldsleikari: Guðmundur
Haraldsson bróðir minn. Hann
leikur pabba Benjamíns dúfu í
samnefndri kvikmynd.
Uppáhaldsleikkona: Ég get ekki
gert ujpp á mhli Helgu Brögu og
Elvu Oskar.
Uppáhaldssöngvari: Siggi Bjóla og
Kristján frændi Jóhannsson.
Uppáhaldsstjórnmálamaður:
Simpson-fiölskyldan.
Uppáhadssjónvarpsefni: Taggart.
Uppáhaldsmatsölustaður: Argent-
ína.
Hvaða bók langar þig mest að lesa
um þessar mundir? Eg var að klára
bókina Vhltir svanir og fannst hún
æöisleg.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Náttúrlega Aöalstöðin.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Ég verð
aö nefna samstarfsmann minn
Hjört Howser.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Nú orðið hafa þau í
Dagsljósi alveg stohö mér frá 19:19.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Áslaug
Dóra.
Uppáhaldsskemmtistaður: Ég fer
bara aldrei neitt út að skemmta
mér þannig aö ég verð þá að nefna
heimhið.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: ÍA í fót-
boltanum.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtiðinni? Ég lifi í núinu en stefni
þó auðvitað að því að koma syni
mínum th manns.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Æth
ég hafi fariö lengra en th vinkonu
minnar út á Álftanes.