Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1994, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1994, Síða 14
14 LJtgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JONSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÖLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVÍK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m/vsk. Verð- í lausasölu virka daga 150 kr. m/vsk. - Helgarblað 200 kr. m/vsk. Harmleikur Afsögn félagsráðherra á blaðamannafundi í gær var harmleikur í beinni útsendingu. Ráðherranum var svo brugðið, að spyrja má, hvort ekki hefði verið miklu betra fyrir hann eins og svo marga aðra, sem líða fyrir mál hans, að hann hefði sagt af sér nokkrum vikum fyrr. Ljóst er af svanasöngi ráðherrans, að hann telur sig miklu órétti beittan. Embættisfærsla hans sem ráðherra hafi í flestu verið í samræmi við lög og hefðir og að hin sárafáu „mistök“ hans hafi ekki verið meiri eða merki- legri en annarra núverandi og fyrrverandi ráðherra. Svo virðist sem fráfarandi ráðherra trúi því sjálfur í einlægni, að skýrslá Ríkisendurskoðunar staðfesti nokk- um veginn alveg sjónarmið hans sjálfs í hinum umdeildu málum. Samkvæmt því hefur hann ekki lært neitt af hremmingunum og telur sig vera fómardýr ofsókna. Þetta þýðir, að hann heldur áfram að vera varaformað- ur flokks síns og líklega einn helzti frambjóðandi hans í komandi kosningum. Vandamál hans halda því áfram að vera vandamál Alþýðuflokksins, þótt ríkisstjóminni hafi tekizt að koma myllusteininum af hálsi sér. Ýmis efnisatriði í vöm hins fyrrverandi ráðherra em að nokkru leyti réttmæt. Aðrir ráðherrar í þessari ríkis- stjóm og öðrum fyrri hafa gert hluti, sem stríða gegn almennum siðferðissjónarmiðum. Þeir hafa gert mistök eins og það heitir á máh hins ofsótta ráðherra. Munurinn á honum og hinum er fyrst og fremst tvenns konar. í fyrsta lagi hafa hremmingar hans hlaðizt upp á skömmum tíma. Hann skellti sér út á gráa svæðið um leið og hann varð ráðherra og var þar löngum stundum, meðan aðrir ráðherrar hættu sér þangað endrum og eins. í öðm lagi er líklegt, að almenn siðferðissjónarmið í þjóðfélaginu hafi orðið harðari með ámnum. Hugsanlegt er, að formaður Alþýðubandalagsins yrði að segja af sér sem ráðherra, ef hann væri núna að gefa Þormóð ramma og kaupa ímyndaðar vörur af Svörtu og hvítu. Raunar ættu fjölmiðlar að verða við áskomn hins frá- farandi ráðherra og bera saman athugasemdir Ríkisend- urskoðunar við embættisfærslu hans og annarra ráð- herra í þessari ríkisstjóm og öðrum fyrri. Væntanlega stuðla aðrir ráðherrar að opinberun athugasemdanna. Að loknu fárviðrinu, sem leitt hefur til afsagnar ráð- herrans, er einnig eðlilegt, að spurt sé, hvort eitthvert gagn hafi orðið af öllu saman, annað en það, að ráðherra fái nú tækifæri til að ná réttum htum og taka gleði sína á ný eftir hvíld frá linnulausri orrahríð stjómmála. Sennilega munu ráðherrar fara varlegar en áður. Þeir munu ekki hætta sér eins mikið og áður út á gráa svæð- ið. Þeir eru þegar famir að birta skrár yfir ráðstöfun skúffupeninga sinna og væntanlega fara þeir senn að birta athugasemdir Ríkisendurskoðunar um sjálfa sig. Hitt er svo líka rétt, að séu ráðherrar eins harðskeytt- ir og sannfærðir um mátt sinn og dýrð og sá, sem nú fór frá, munu þeir einnig fresta í lengstu lög að draga rétta ályktun af hremmingum, sem þeir munu lenda í af völd- um of tíðra ferða sinna út á gráa svæðið. Öllum nýjum valdamönnum er brýnt að geta í tæka tíð skipt um skoðun, ef siðferðishugmyndir þeirra reyn- ast ekki falla alveg að almennum siðferðishugmyndum eins og þær eru á hverjum tíma. Annars geta afleiðingar orðið eins og í þeim harmleik, sem við höfum nú séð. Að leiðarlokum var ræðupúltinu komið táknrænt fyr- ir úti í homi, þar sem ráðherrann stóð innikróaður og særður og lýsti sig blásaklaust fómardýr ofsókna. Jónas Kristjánsson • l-'ú LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1994 • x sem vio tek ur í Washington Þátttakendum jafnt og áhorfendum ber saman um að baráttan milli frambjóðenda fyrir nýafstaðnar þingkosningar í Bandaríkjunum hafl verið sú viðurstyggilegasta í manna minnum. Neikvæður mál- flutningur með brigslum og sakar- giftum frambjóðenda hvers í ann- ars garð yfirgnæfði málefnaum- ræðu. Dæmigerð þótti sjónvarpsauglýs- ing Jebs Bush, sonar fyrrum Bandaríkjaforseta, í baráttunni um fylkisstjórastöðuna í Flórída. Þar kom fram grátandi móðir, Wendy Nelson, og kenndi Lawton Chiles fylkisstjóra um að maðurinn sem sakfelldur var fyrir að myröa dótt- ur hennar 1980 heföi ekki enn verið tekinn af lífi. Látið var ógetið að málið hefur velkst milli dómstóla í áfrýjunum allan tímann, er þar enn og hefur aldrei komið á borð fylkis- stjóra. Demókratinn Chiies sigraði forsetasoninn. Fréttaskýrendur í Bandaríkjun- um haliast margir að því að æ ömurlegri kosningabaráttu, og lög- gjafarstarf sem dekur við sérhags- muni setur mark sitt á, megi öðru fremur rekja til einbeitingar að málflutningi í fjölmiðlum og fjár- þarfar sem af hlýst. Frambjóðend- ur verða að kaupa aðgang að fjöl- miðlum dýrum dómum, áherslan verður því ekki á rökfærslu heldur skrumkenndar, örstuttar auglýs- ingar. Fjár til að standa straum af áróð- urskostnaðinum er mestmegnis aflað með framlögum frá áróðurs- aðilum fyrirtækja, hagsmunahópa, starfsgreina og áhugasamtaka. I staðinn þykjast þeir svo eiga hönk upp í bakið á þingmönnum og öðr- um sem þegið hafa af þeim fé þegar til afgreiðslu koma mál sem greiö- andinn lætur sig varða. Til að mynda fer ekki milli mála að frumvarp Ciintons forseta um uppstokkun á heilsugæslukerfinu, svo það næði til þeirra tugmilljóna Erlend tíðindi Magnús Torfi Ólafsson Bandaríkjamanna sem þar eiga nú hvergi aðgang, var stöðvað í þing- inu í haust að undirlagi málsvara tryggingafélaga, atvinnurekenda- samtaka og fjölmargra annarra aðila sem ýmist sáu fram á skerta gróðamöguleika eða aukin útgjöld. Sama þing gafst svo upp fyrir mál- þófi repúblikana og lét niður falla tilraun til að setja reglur um fjár- framlög til stjórnmálamanna og birtingarskyldu á nöfnum greið- enda. Ógeð kjósenda á þessu ástandi birtist annars vegar í að þeir sem fyrir eru í þingsætum eiga undir högg að sækja, og þá fyrst og fremst demókratar sem réðu báðum þing- deildum. Hins vegar sjá aðeins um 36% fólks á kosningaaldri ástæðu til að sækja kjörstað. Clinton er fyrsti demókratinn frá dögum Harry Trumans sem þarf að kljást við þing þar sem and- stöðuflokkurinn ræður síðari hluta kjörtímabils. Þar getur hann farið í skóla til fyrirrennara sinna, Reag- ans og Bush, sem áttu við sama vanda að etja. í sumum málum verður látið skerast í oddá af beggja hálfu til að skapa sér stöðu fyrir kosningarnar 1996 þegar forseta- embættið verður einnig í húfi. Önnur mál eru þess eðlis að báðir aðilar telja sér hollast að leita málamiðlunar. Eftir stendur að nú er það Repúblikanaflokkurinn sem ber ábyrgð á þingstörfum, með meiri- hluta í báðum deildum í fyrsta skipti í hálfa öld. Við kosningaúr- slitin hefur eflst í flokknum sá arm- ur sem aðhyllist mjög hægrisinn- aða hugmyndafræði undir yfir- skini kristins strangtrúnaðar og féll þó eftirlætisgoð þess hóps, Oli- ver North ofursti úr Íran-Contra hneykslinu, í Virginíu. Hins vegar er enn eftir hópur repúblikana af gamla skólanum sem kýs að takast á við demókrata um miðjuna í bandarískum stjóm- málum. Þeim hrýs hugur við að ganga til forsetakosninga undir merkjum hugmyndafræðinganna til hægri. Ljóst varð þegar í baráttunni fyr- ir þingkosningarnar að einhverjir sem sækjast eftir útnefningu til for- setaframboðs fyrir repúblikana ætla að hefjast handa hið fyrsta. Svo er til dæmis um Phil Gramm, öldungadeildarmann frá Texas, sem skipulagði baráttuna um þá þingdeild. Robert Dole frá Kansas, formaður þingflokks repúbhkana í öldungadeildinni, gerir sig einnig líklegan til að reyna aftur við for- setaframboð. Fyrmm ráðherrar í stjórnum Reagans og Bush hafa einnig til- burði til að blanda sér í baráttuna. Það á við um James Baker, Jack Kemp, Lamar Alexander og Rich- ard Cheney. Loks hyggst Dan Quayle, varaforseti Bush, gefa kost á sér. Einhverjir fylkisstjórar munu vera volgir. Barátta innan Repúblikanaflokksins er því næsti kaflinn í framvindu bandarískra stjórnmála. Dianne Feinstein, öldungadeildarmaður demókrata í Kaliforníu og landsfræg frá því hún var borgarstjóri í San Francisco, vann nauman sigur á Michael Huffington, lítt þekktum repúblikana, en svo fjáðum að talið er að hann hafi varið hátt í þrem tugum milljóna dollara úr eigin vasa i kosningabaráttuna. Símamynd Reuter Skoðanir armarra Noregur nýtur sérstöðunnar „Með Torvald Stoltenberg sem æðstráðanda í fisk- veiðimálum innan Evrópusambandsins mun fisk- veiðistefna Norðmanna setja mark sitt á stefnu sam- bandsins. ESB-ríkin hafa gefið sterklega í skyn að reynsla og hæfni Norðmanna á þessu sviði verði lát- in ráða við mótun framtíðarstefnunnar. Fyrir Norð- menn hefur það úrslitaþýðingu að fara með fiskveiði- málin innan ESB.“ Jan Henry T. Olsen í Aftenposten 9. nóv. Dýrt að standa utan ESB „Hvað gerist ef niðurstðan verður nei í komandi þjóðaratkvæði og Svíar standa nær einir iðnríkja Evrópu utan ESB? Um þetta snýst máliö. Útilokað er að fallast á að allt verði óbreytt eins og sakleys- ingjamir í nei-liðnu segja. Fyrir þaö fyrsta verður að reikna meö að vextir hækki og það ekki um stund- arsakir heldur um langa framtíð. Annað vandamál eru erlendar skuldir. Þær hafa aukist verulega á síð- ustu árum en það væri ekki vandamál nema vegna þess að fyrirtækin munu nota arðinn af erlenda láns- fénu til að fjárfesta í útlöndum ef aðild að ESB verð- ur felld. Við sitjum þá eftir heima með skuldirnar." Úr forystugrein Dagens Nyheter 2. nóv. Aftaníossar hjá Svíum „Á sunnudag kjósa Svíar um aðild að Evrópusam- bandinu og á mánudag ætla ESB-sinnar í Noregi að hengja sig aftan í Svíana og njóta ávinningsins af sænska já-inu - ef það verður þá já. Þar með þarf Gro Harlem Brundtland ekki að bíöa lengur með að hefia lokasóknina." Úr forystugrein Nationen 11. nóv.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.