Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1994, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1994, Qupperneq 21
LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1994 21 Sviðsljós Grátandi dúkka á að hindra bam- eignir táninga Bandarískar unglingsstúlkur geta nú prófaö hvernig það er að vera móðir án þess að þær hafi sjálfar fætt barn. Þær fá í hendumar dúkku sem grætur bæði nætur og daga jafn oft og lifandi barn gerir. Margir sér- fræðingar á sviði fjölskyldumála eru þeirrar skoöunar að þetta sé mikil- vægur liður í tilraunum til að koma í veg fyrir þunganir unglingsstúlkna. Það var verkfræðingur í Banda- ríkjunum, Richard Jurmain, sem fékk hugmyndina eftir að hafa séð þátt í sjónvarpi um vandamál sem skapast hafa í sambandi við þungan- ir táninga. Hann bjó til dúkku sem grætur og grátinn er einungis hægt að stoppa með lykli sem festur er um úlnhð þess sem heldur á „barninu". Lykillinn er á vissan hátt notaður til að „mata“ barnið. Dúkkurnar, sem eru hafðar 5 kíló til að líkjast enn meir ungabarni, hafa verið prófaðar af nemendum í skóla í San Diego í Kalifomíu. Nem- endur þurftu einnig að burðast með tösku með bleium og barnavagn til þess að reynslutíminn yrði enn raun- vemlegri. Margir táninganna hlökk- uðu til að taka dúkkurnar með sér heim en eftir að hafa þurft að vakna nokkrum sinnum á nóttu til að „mata börnin" vildu þeir skila þeim hið fyrsta. Dúkkan getur vakið „móðurina" allt að þrisvar sinnum á nóttu en það er ekki hægt að láta hana eiga sig. í dúkkunni er skynjari sem nemur Kendra Lemkey, sem er 17 ára, varð að taka „barniö" sitt með sér hvert sem hún fór. Hun varð fljótt útslitin. hversu langur tími líður áður en dúkkunni er sinnt. Einnig kemur fram hvort dúkkan er beitt ofbeldi. Framleiddar eru hvítar, svartar, „asískar" og „suður-amerískar" dúkkur. Bæði skólar og sjúkrahús hafa keypt dúkkurnar. Það er von Richards að hver framhaldsskóh í Bandaríkjunum kaupi aö minnsta kosti tvær dúkkur. „Það er stundum sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp eitt barn en nú á dögum em margar tánings- stúlkur einstæðar þegar þær fæða börn. í mörgum tilfehum stendur engin fjölskylda að baki þeim og fjár- hagur þeirra er bágborinn. Það er einmitt við svona aðstæður sem hætta er á að böm séu beitt of- beldi,“ segir Richard Jurmain. „Margar unglingsstúlkur í fá- tækrahverfum stórborganna leita eftir ást. Þær vilja halda í kærastana sína og njóta öryggis. Þær halda að það að eignast barn sé svarið en í mörgum tilfellum er það það sem síst ætti að eiga sér stað. Það ætti að vera skyldunámsgrein í skólunum að sjá um dúkku-bam. Táningar hafa ekki hugmynd um hversu mikill tími fer í að hugsa um bam og hversu mikið það kostar," segir hagfræðing- urinn Jane Stein. Kendra Lemkey, sem er 17 ára, tók þátt í tilraun með umönnun dúkku í sínum skóla. Hún vildi upplifa hvernig það væri að taka ábyrgð á htlu barni. „Dúkkan var ægilega sæt. En ég brotnaði nafstum niður. Hún vakti mig mörgum sinnum á næturnar. Á daginn varð ég að taka hana með mér hvert sem ég fór og vinkonur mínar urðu leiðar á mér. Eftir tvo daga var ég orðin útshtin. Þessi reynsla var mjög lærdómsrík og ég er búin að heita því að eignast ekki barn fyrr en eftir tíu ár þegar ég orðin nógu þroskuð og búin að gifta mig,“ segir Kendra. Verkfræðingurinn Richard og kona hans Mary segja aö ekki sé hægt að tala um fyrir táningum. Þeir verði að draga sínar eigin ályktanir. Þeir verði sjálfir að uppgötva að það er mikil vinna að sinna barni. Richard og Mary Jurmain með dúkk- urnar sem eiga að koma í veg fyrir þunganir hjá táningum. Dúkkan er útbúin þannig að hún grætur jafn oft og lifandi barn. Hausttilboð á hreinlætístæfcjttm Heitir sturtuklefar, 80x80, Sturtuhorn, acryl, 80x80, Sturtuhorn, gler, 75x90, Sturtuhorn, gler, 80x80, Sturtuhorn, gler, 90x90, Salerni m. setu Eldhúsblöndunartæki Oras hitast. baðtæki, Oras hitast. sturtut., frá kr. 29.990 stgr. frá kr. 9.700 stgr. frá kr. 15.700 stgr. frá kr. 18.750 stgr. frá kr. 19.500 stgr. frá kr. 9.960 stgr. frá kr. 2.624 stgr. kr. 11.900 stgr. kr. 9.700 stgr. Gerum verðtílboð Normann Armúla 22 - s. 813833 Eldhúsvaskar, tvöfaldir, frá kr. 3.990 stgr. kr. 8.200 kr. 8.214 KÍNV-lRSKi'. RldS nCLLiSKAHÍBP Heimsfrægir listamenn! ! T'K'O í S L A N D OG PHILLIP GANDEY KYNNA: 22 NÚVEMBER 1994 KL 20.30 23 NÖVEMBER 1994 I SAMVINNU VIÐ THE CHINA PERFORMING ARTS AGENCY 5CJ KÍNVIR TIL STYRKTAR: UMSJÓNARFÉLAGI TEINHVERFRA KL 20.30 21 NÓVEMBER 1994 ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐIN VESTMANNAEYJUM Miðasala á staðnum og íTurninum. Sími 98-12400 ÍÞRÓTTAHÚSIÐ SELFOSSI Miðasala í Vöruhúsi K.Á. Sími 98-21000 ÍÞRÓTTAHÖLLIN AKUREYRI Miðasala í Leikhúsinu Akureyri Sími 96-24073 KL 20.30 24 NÓVEMBER 1994 HÁSKÓLABÍÓ Miðasala í Háskólabíó og í Kringlunni. Sími 91-12140 KL 20.30 25 NÓVEMBER 1994 HÁSKÓLABÍÓ Miðasala í Háskólabíó og í Kringlunni. Sími 91-12140 KL 20.30 26 NÓVEMBER 1994 HÁSKÓLABÍÓ Miðasala í Háskólabíó og í Kringlunni. Sími 91-12140 FJÖLSKYLDU- AFSLÁTTUR FYRIR VISA- KORTHAFA: EF KEYPTIR ERU ÞRÍR AÐQÖNGU- MIÐAR, FÁ KORTHAFAR VISA FJÓRÐA MIÐANN Á HÁLFVIRÐI - GftEIDID MEÐ Kaupið miða núna! - Miðaverð kr. 2.500 - Sala með kreditkortum í síma 99 66 33

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.