Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1994, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.1994, Qupperneq 34
42 LAUGARDAGUR 12. NÓVEMBER 1994 Sviðljós Dolly Parton: Á barmi örvæntingar vegna bamleysis f nýútkominni sjálfsævisögu kántrí- söngkonunnar Dolly Parton kemur fram aö hún fer í fleiri og fleiri lýta- aðgerðir til þess að hressa sig and- lega. Dolly greinir einnig frá sam- bandi sínu við æskuvinkonu sína sem sumir fullyrða að sé lesbískt. Mesta áfallið í lífi Dolly, sem er að verða fimmtug, er að hafa ekki eign- ast böm. Dolly segist reyndar eiga margar Utlar frænkur og frænda en það sé ekki það sama og að eiga eigin börn. Hún hafi verið svo langt leidd að hún hafi íhugað sjálfsmorð. „Að lokum leitaði ég til guðs og bað um svör og rödd sagði mér að ég skyldi losa mig við spikið og lifa lífinu áfram.“ Barmurinn þjón- ustaöur með reglu- legu millibili Dolly hefur verið gift Carl Dean í 27 ár og hann er einn af fáum sem hafa séö hana ófarðaða því henni dettur ekki einu sinni í hug að fara út í næsta stórmarkað nema með stríðsmálningu og í öllum herklæð- um. Vinir söngkonunnar hafa reynd- ar áhyggjur af því hversu gífurlega áherslu Dolly leggur á útlitið. Hún er búin að fara í margar aðgerðir til aö láta laga á sér ýmsa hluta andlits- ins fyrir utan fitusog á mjöðmum. Hún er ekkert allt of fús til að tjá sig um þessi mál en viðurkennir með semingi að stoltið hennar, barmur- inn, fái þjónustu með ákveðnu milli- bili. Hún segir stór brjóst í ættinni. Hún neitar að hafa látið stækka á sér brjóstin en segir að nauðsynlegt hafi verið að lyfta þeim eftir að hún fór í megrun því þau hafi verið farin að hanga. Dolly segir það ekki koma til greina að láta minnka bijóstin þó þung séu. í staðinn fer hún vikulega til kírópraktors vegna verks í öxlum, baki og hálsi. Bijóstin eru vörumerki Dollyar og háu pinnahælamir líka. Og þó að læknir hafi tjáð henni að hún geti átt von á að verða illa hald- in síðar á ævinni vegna stóru bijóst- anna og háu hælanna þá kemur ekki til greina að breyta ímyndinni. Hér er Dolly enn bústin og pattara- leg áður en hún ákvað að breyta um útlit. Með 300 manns í vinnu hjá sér Ef Dolly drægi sig í hlé hefði það í för með sér að 300 manns misstu vinnuna. Kostnaður hennar vegna launagreiðslna nemur allt að 1,7 milljónum á viku. Fyrir utan alla þá sem starfa við sýningar hennar hefur hún í þjónustu sinni ræstingafólk á heimilinu, garðyrkjumenn, hár- greiðslumeistara, kjólameistara, snyrtifræðinga, þjálfara og mat- reiðslumann. Vinir Dollyar segja að fátækt henn- ar í bemsku hafi leitt til framagimi hennar og ákveðni í að komast vel af. Hún var ein af tólf systkinum og sjálf segir Dolly að hún hafi alltaf þráð athygh. Foreldrarnir hafi elsk- að hana og systkini hennar en þeir hafi ekki haft tíma til að sinna börn- unum nægilega. Sefur hjá vinkonunni Vinkona Dollyar frá bernskuáran- um er Judy Ogle. Ýmsum hefur þótt samband þeirra undarlega náið. Dolly viðurkennir að þær sofi oft saman en hún vísar því á bug að hún sé lesbía. „Það eru sjálfsagt margar herbergisþernur á hótelum sem furða sig á því að þær þurfi bara að búa um eitt rúm þegar viö höfum gist hjá þeim. En við höfum sofið saman frá því að við voram krakkar og það hefur alltaf verið saklaust." Dolly kynntist eiginmanni sínum 1964 þegar hún kom til Nashville til að syngja. Þegar þau gengu í hjóna- band fjórum áram seinna flutti Judy inn til þeirra og hún hefur verið með Dolly síðan þá. Þær búa í Los Ange- les en Carl heldur til í Tennessee. Orðrómur hefur verið á kreiki um að Carl, sem er byggingaverktaki, og Dolly hafi einungis verið saman sex mánuði í allt. Dolly vísar þessu á bug og kveðst elska eiginmanninn. Hún neitar því þó ekki að þau búi í sitt hvora lagi og við- urkennir að hafa verið í ýmsum sam- böndum. Það hafi hins vegar eiginmað- urinn ekki verið. „Hann skilur hvemig ég er. Hann veit að ég kem aftur. Við Carl munum aldrei skilja." Dolly Patton ásamt eiginmanninum Carl Dean. .. .að Cindy Landon, ekkja Mic- haels Landon, sem frægastur er fyrir að vera yfirburðapabbinn í Húsínu á sléttunni, væri komin á séns. Sá lukkulegi er líkams- ræktarkennarinn hennar, Nick Soderblom, 27 ára, en parið mun víst búa í Frakklandi ásamt börn- um Cindyar og Michaels, Jenni- fer og Sean. .. .að svo liti út sem Stefanía af Mónakó væri í brúðkaupshug- leiðingum og er talað um 27. nóvember en þá verður kærast- inn, Daniel Ducruet, þrítugur. .. .að spænsku prinsessurnar tvær, Elena og Cristina, þættu visl ekki þær fiottustu i heimi og hefðu víst aldrei komist á blað yfir vel klæddar konur. Það urðu því allir fremur hissa þegar prinsessurnar mættu í brúðkaup prinsins af Lúxemborg í nýjum ogfinum drögtum og með hatta. .. .að tískudrósin Twiggy, sem í eina tíð var fyrirmynd milljóna stúlkna um allan heim og þá sérstaklega fyrir það hversu mjó hún var, væri ekki lengur neitt sérstaklega grönn. Mönnum finnst hún bara vera frekar þybb- in og mjög hallærisleg í klæða- burði. .. .að kærastan hans Hughs Grants væri víst alveg rosalega afbrýðisöm vegna velgengni hans og þá sérstaklega eftir kvik- myndina Fjögur brúðkaup og jarðarför. Sjálf er hún leikkona en hefur ekki ennþá náð neinni frægð að ráði. Hún hefur nýlokið við að leika i kvikmynd sem heit- ir Mad Dogs og vonast hún tii að ná einhverri frægð i hlutverk- inu. Á myndinni er leikkonan, Elizabeth Hurley, ásamt mótieik- ara í kvikmyndinni The Outsider.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.