Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1995, Page 2
2
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995
Fréttir_______________________________________________________
Sigrun Ása Markúsdóttir fréttamaður 1 lifshættu í ísrael:
Sjokkerandi að sjá
bvssu beint að sér
- hvorki slösuðumst né særðumst og landneminn keyrði bara burt, segir hún
„Ég var meö myndatökumanni á
leið í viðtal á Vesturbakkanum. Fyrir
aftan okkur var bíll með aröbum og
fyrir framan okkur var bíll með gyð-
ingi. Þegar við ókum fram úr gyö-
ingnum stakk hann skammbyssu út
um gluggann og skaut yfir okkur út
í loftið. Við hvorki slösuðumst né
særðumst og skotið fór ekki einu
sinni í bUinn. Þetta var bara geðveik-
ur maður sem skaut út í loftið. Við
voru bara í lífshættu nokkrar sek-
úndur en auðvitað var sjokkerandi
að sjá skammbyssu beint að sér,“
segir Sigrún Ása Markúsdóttir,
fréttamaður Sjónvarps.
Sigrún Ása Markúsdóttir sjónvarps-
fréttamaður.
Sigrún Ása er um þessar mundir í
ísrael að safna efni í sjónvarpsmynd
sem verður á dagskrá Sjónvarps éftir
tvær vikur. Á miðvikudag var hún á
ferð frá borginni Hebron á leið í við-
tal í landnemabyggðinni Kiryat Arba
þegar skotið var á hana og mynda-
tökumann frá Reuter. Skotmaðurinn
fylgdi þeim eftir inn í landnema-
byggðina. Um leið og bílarnir stööv-
uðust fór myndatökumaðurinn frá
Reuter út og hellti sér yfir skotmann-
inn.
„Skotmaðurinn brást við með því
að aka burt. Ég geri ráð fyrir því að
hann hafi ekki gert sér grein fyrir
hver við vorum því að þetta er yflr-
lýst hættusvæði. Þarna eru flestir
með vopn í höndunum og það gerist
nánast daglega að menn skjóti.
Óbreyttum borgurum er ráðlagt að
halda sig frá þessum stöðum og þeir
fara ekki um svæðið nema þeir eigi
sérstakt erindi,“ segir hún og bætir
við að þvi miður hafi hún ekki náð
atburðinum á band þar sem mynda-
tökumaðurinn hafi setið undir stýri.
Sigrún Ása kemur tU landsins aftur
á þriðjudag en hún er búin að vera
nokkra mánuði við efnisöflun í ísra-
el.
Réttarhöld hófiist í gær:
Sagðist
olrlri CAkur
Vlmltl wvHHI
urninn*
skattssvik
Maðurinn, sem hefur verið
ákærður fyrir að hafa svikið 38
miUjónir króna út úr skattayfír-
völdum í 111 skipti á síðastliðnum
tæpum tveimur ánim, sagði í
réttarhaldi í gær að hann teldi sig
ekki hafa gerst sekan um inn-
skattssvik. Hann gerði grein fyrir
afstöðu sinni gagnvart ákærunni
viö þingfestingu málsins. Maður-
inn var ekki beinlinis yfírheyrð-
ur um málið en hann hélt þvi
fram að ákæran ætti ekki við rök
að styðjast varðandi sakarefnið.
Sjáifar dómsyfirheyrslumar
hefjast ekki fyrr en að einhverj-
um vikum Uðnum því nú þarf aö
skipa sérfróöa meðdómendur i
máhð, væntanlega tvo endur-
skoöendur. Þegar þeir hafa kynnt
sér málsgögn mun fjöldi vitna
verða yfirheyröur í aðalmeðferð-
inni en samkvæmt upplýsingum
DV mun þaö taka a.m.k. tvo daga
vegna þess hve málið er um-
fangsmikið.
Eins og fram kom í DV í vik-
unni er sakborningnum gefíð að
sök að hafa lagt fram innskatts-
skýrslur sem ekki áttu við rök
að styðjast. Hann hafði fengið aö
meðaltali 340 þúsund krónur
greiddar í hverri viku í 111 skipti
þegar skattayfirvöld fóru að
kanna hvort eitthvaö misjaínt
lægi að baki innskattsskýrslun-
um. Hluta tímabilsins sem mað-
urinn fékk greiðslumar sat hann
í fangelsi vegna fjársvikamáls.
Börnin í Vestmannaeyjum notuðu fyrsta dag kennaraverktalls í gær og slógu upp hlutaveltu. Veðrið I Eyjum var
^ eins gott og hægt er að hugsa sér í þorralok, bjart og nánast logn. DV-mynd Ómar
Tveir 18 ára piltar hafa viður-
kennt við yfirheyrslur hjá RLR
aö hafa framið vopnað rán í sölut-
urni í Breiðholti á miðvikudags-
kvöld. Þar með hafa tvö sjoppur-
án, sem framin voru i þessarri
viku, verið upplýst.
Annar mannanna var handtek-
inn í fyrrakvöld en hinn var
handtekinn í gær og viöurkenndu
þeir verknaðinn við yfirheyrslur
í gær. Öðrum piltanna hefur ver-
ið sleppt en hinn úrskurðaður í
tveggja vikna gæsluvarðhald.
Piltamir hafa báðír komið við
sögu lögreglu í auögunarbrotum
áður. -pp
Góð loðnuveiði:
64þúsund
tonn komin
Góð veiði hefur var í gær hjá
loðnubátunum fyrir austan iand
í dag og náðu sumir að fylla sig
á örfáum tímum. Nú hafa veiðst
urn 64 þúsund tonn af loðnu það
sem af er vetrarvertíð. Um 360
þúsund tonn eru nú eftir af upp-
hafskvótanum.
Loönan er að verða tilbúín til
frystingar. -rt
Stuttar fréttir
Hagstæðviðskipti
Viðskiptajöfnuður Íslands við
útlönd á síðasta ári var jákvæður
um 10 milljarða. Vöruskiptæöfn-
uðurinn var hagstæður um 20
milljarða en þjónustujöfnuöur-
inn var óhagstæður um 10 millj-
arða. RÚV greindi frá þessu.
Tengivegi mótmælt
Bændur og eigendur jarða við
Akrafjall hafa mótmælt áform-
aðri vegalagningu umlönd þeirra
í tengslum við göng undir Hval-
íjörð. Þeir benda á að eignarnám
sé útilokað þar sem vegalagning-
in er í þágu einkafyrirtækis.
Máiþing borgarstjóra
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri heldur í dag málþing
um menningarmál í Reykjavík.
Yfirskrift þingsins er list- og
menningarmiðlun i borginni.
lands hafa lýst yfir stuðningi við
verkfall kennara. i yfirlýsingu
nemanna segir að verkfall sé
óyndisleg aðgerð sem enginn
gripi til ótilneyddur.
-kaa
Flkniefnin, sem talin eru „toppefni“, komu frá Evrópu:
Söluverðmæti á sautjándu milljón
Ætla má að söluverðmæti fíkni-
efnanna sem leitarhundur rann-
sóknardeildar Tollgæslu íslands
fann í vörusendingu síöasthðinn
þriðjudag sé á 17. milljón króna.
Um er að ræða rúm 4 kfió af hassi,
rúmlega hálft kfió af amfetamíni
og rúmlega 50 grömm af kókaíni.
Við verðmætaútreikxúngana er
gengið út frá því að amfetamínið
og kókaínið sé ríkt að „gæðum" en
heimfidarmaður blaðsins sagði hér
um „toppefni að ræða.“. Ef svo er
er hæglega hægt að þrefalda magn
þeirra með því að blanda þau auka-
efnum.
Fíkniefnin komu nýverið sjóleið-
is til landsins frá Evrópu. Voru þau
fahn í vörusendingu sem var tfi
afgreiðslu í Hafnarfirði. Maður á
sendibfi matvælafyrirtækis náði í
vörusendinguna í Hafnarfirði á
miðvikudag og stuttu síðar brutust
fikniefnalögreglumenn inn á heim-
Ui hans í nágrenni Reykjavíkur. í
kjölfarið voru tveir jafnaldrar
mannsins, sem er 22 ára, handtekn-
ir. Ahir voru þeir úrskurðaðir í
tveggja vikna gæsluvarðhald í
fyrradag. Fleiri aðfia, sem taldir
eru tengjast málinu, er nú leitaö
en samkvæmt upplýsingum DV
höfðu engar frekari handtökur ver-
ið framkvæmdar í gærkvöld.
Fíkniefnadeild varðist frekari
fréttaþar sem máhð er á viðkvæmu
stigi en ljóst er að einhverjir þeirra
sem eru í haldi hafa komið áður
við sögu fíkniefnalögreglu.
Þetta er í annað skiptiö á skömm-
um tíma sem rannsóknardefid
Tohgæslu íslands upplýsir fíkni-
efnainnflutning í stærri kantinum.
Fyrr á árinu var lagt hald á 2 kíló
af hassi sem fundust á karli og
konu sem komu til landsins með
leiguflugvél.
-pp