Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1995, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1995, Page 14
14 LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EVJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)563 2700 FAX: Auglýsingar: (91 )563 2727 - aðrar deildir: (91 )563 2999 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m/vsk. Verð I lausasölu virka daga 150 kr. m/vsk. - Helgarblað 200 kr. m/vsk. Mín stofnun „Þú stjómar Arnóri. Ég stjóma þér. Þessi ráðherra er ekki hræddur við að berjast. Ég minni þig á fram- kvæmdastjóra Náttúruverndarráðs, sem nú er fyrrver- andi framkvæmdastjóri. Gleðileg jól.“ Þetta hefur fyrr- verandi veiðistjóri eftir núverandi umhverfisráðherra. Hinn skapstyggi umhverfisráðherra hefur nýlega ver- ið í fjölmiðlum og látið orð falla á þann veg, að hann virðist sem fyrr halda, að hann eigi ráðuneyti sitt og stofn- anir þær, sem undir það falla. Þetta er „mín stofnun“, sagði hann við það tækifæri um embætti veiðistjóra. Tilefni málsins er, að umhverfisráðherra hefur látið eftir sér að hringja í embættismenn og opinbera starfs- menn með vafasömu orðavali, jafnvel út af málum, sem varða ekki verksvið viðkomandi stofnunar. Virðist ráð- herrann ekki kunna sér neitt hóf á þessu sviði. Starfsmaður embættis veiðistjóra hafði tjáð sig opin- berlega um rjúpnaveiði sem félagi 1 Skotveiðifélagi ís- lands, en ekki sem ríkisstarfsmaður, enda heyrir rjúpna- veiði ekki undir embætti veiðistjóra. Þessi tjáning hans var aðeins hluti af borgaralegum réttindum hans. Samt hringir umhverfisráðherra í hann og síðan í yfir- mann hans, þáverandi veiðistjóra, sem reyndi að útskýra fyrir ráðherranum, að mál þetta varðaði ekki embætti veiðistjóra, heldur væri einkamál starfsmannsins. Við- brögð ráðherrans voru síður en svo vinsamleg. Umhverfisráðherra „á“ ekki embætti veiðistjóra, þótt það heyri undir ráðuneytið. Hann stjómar því ekki, að veiðistjóri ráði persónulegum skoðunum starfsmanna embættisins á málum, sem ekki em á verksviði embættis- ins. Ráðherrann hefur ofmetnazt af upphefð sinni. Tilvísun ráðherrans um, að annar embættismaður sé orðinn fyrrverandi embættismaður, er ekki annað en bein hótun um, að ráðherrann muni reyna að gera veiði- stjóra að fyrrverandi veiðistjóra. Það hefur svo komið á daginn, að hann er orðinn fyrrverandi veiðisfjóri. Ekki getur það verið umhverfisráðherra til afsökunar, að það sé svo mikið álag á hann að leika trúð á kjöt- kveðjuhátíðum karlaklúbba, að hann verði að fá útrás í vanstilltum símtölum við opinbera starfsmenn. Ráðherra á fremur að biðja viðkomandi starfsmenn afsökunar. Það er hins vegar vandamál Alþýðuflokksins að þurfa að bjóða kjósendum að velja umhverfisráðherrann í ann- að sinn á þing, alveg eins og það er vandamál flokksins að þurfa að bjóða kjósendum að velja fyrrverandi bæjar- stjóra og félagsráðherra í annað sinn á þing. Síðan er vandamál kjósenda að hyggjast samkvæmt skoðanakönnunum hleypa sex mönnum Alþýðuflokksins á þing, þar á meðal þessum tveimur sérfræðingum í misnotkun ráðherravalds, að ógleymdum utanríkisráð- herra, sem stundar einkennilegar mannaráðningar. Það er jafnvel ástæða til að hafa samúð með fyrrver- andi bæjarstjóra og félagsráðherra, því að hans glöp fól- ust einkum í að beina velvild og greiðasemi að einstakl- ingum, sem fengu á þann hátt fyrirgreiðslu, er aðrir fengu ekki. Hann er of stórtækur fyrirgreiðslumaður. Valdshyggjumennimir eru verri. Kjósendur og stjóm- málaflokkar ættu að forðast stjómmálamenn, sem nota valdastöður til að sparka í fólk, sem þeir telja standa sér skör lægra, og reyna að kúga það með yfirgangi, orð- bragði og dulbúnum hótunum, þótt marklausar séu. Dla tamin valdshyggja er eiginleiki, sem allra eigin- leika sízt á erindi í stjómmál í lýðræðisríki. Valdshyggj- an er afturhvarf til lénsveldis hinna myrku miðalda. Jónas Kristjánsson Valdabarátta Walesa og stjómarflokka Enn veldur Lech Walesa upp- námi í pólskum stjórnmálum, nú sem forseti landsins en ekki leið- togi andspyrnuhreyfmgar eins og á baráttudögum Samstöðu á síðasta áratug. Hann hefur hrakið forsæt- isráðherra af stóli og tekst nú á við eftirmann hans um val manna í ráðherraembætti. Skömmu eftir að barátta Sam- stöðu knúði kommúnista til að láta af völdum skiptist hreyfingin í mis- munandi stjórnmálaflokka en Wa- lesa náði forsetakjöri. Þá þegar reyndist hann fyrri félögum óþæg- ur ljár í þúfu þegar þeir í ráðherra- embættum töldu sig bera meiri ábyrgð gagnvart þingi en vilja for- setans. Um þverbak keyrði þó í sambúð forsetans og ríkisstjómar eftir þingkosningamar 1993. Þá kom í ljós afturkippur hjá kjósendum eft- ir þrengingatíma umskiptanna frá miðstýringu til markaðsbúskapar. Þau umskipti þykja reyndar hafa tekist með betra móti í Póllandi en ööram löndum í svipuðum sporum. Hagvöxtur var fjórir af hundraði á síðasta ári. Batinn kemur nú til góða ríkis- stjórn Lýðræðisbandalags vinstri manna sem myndað var upp úr kommúnistaflokknum gamla og Bændaflokknum sem náðu meiri- 'hluta á þingi 1993. Kveður svo rammt að, samkvæmt skoðana- könnunum, að Alexander Kwasni- ewski, foringi Lýðræðisbandalags vinstri manna, er vís til að bera sigurorð af Walesa í forsetakosn- ingum í nóvember. Þessi er aö flestra dómi meginá- stæðan til aö Walesa leggur nú allt kapp á að hrella stjórnarflokkana og beitir til þess langsóttum fram- lengingum á forsetavaldi. Hafði hann þó áður gengið æði langt, svo sem þegar hann lagðist á sveif með Erlend tíðindi Magnús Torfi Ólafsson hershöfðingjanum gegn land- varnaráðherra. Fyrsta atlaga Walesa gegn ríkis- stjórninni var að neita að staðfesta fjárlög og hóta síðan að rjúfa þing með tilvísun til þess að ný fjárlög tækju ekki gildi á tilsettum tíma. Frá þessu hvarf þó forsetinn þegar stjórnarflokkarnir hótuðu á móti að draga hann fyrir landsdóm og stjórnarandstæðingar og fyrrver- andi samherjar Walesa báðu hann fyrir hvern mun að fremja ekki augljóst stjórnlagarof. Þá sneri Walesa við blaðinu, lýsti vantrausti á Waldemar Pawlak, forsaetisráðherra úr Bændaflokkn- um, og krafðist að við tæki af hon- um áðurnefndur Kwasniewski. Var þetta talin augljós tilraun til að koma tilvonandi höfuðkeppinauti í forsetakosningunum í stöðu sem líkleg væri til að rýra vinsældir hans. Hins vegar var fyrir í stjórnar- flokkunum óánægja með störf Pawlaks svo þeir komu sér saman um að við skyldi taka Jozef Oleksy úr Lýðræðisbandalaginu. Hefur hann undanfarna viku setið fundi með stjómarflokkunum og forset- anum á víxl og nú er komið á dag- inn að enn hyggst Walesa grípa fram fyrir hendur forsætisráð- herra. í þetta skipti krefst hann þess að fá að tilnefna þrjá ráðherra í ríkis- stjómina, þá sem fara skuli með utanríkismál, landvarnir og innan- ríkismál. Kveðst Walesa gera þetta í krafti þess að forsetinn beri úr- slitaábyrgð á öryggi ríkisins. Oleksy forsætisráðherraefni svarar á þann veg að hann taki ekki við neinum tilnefningum í ráðherrastóla í stjórn sinni hjá for- setanum en muni tilnefna í þessi embætti menn sem hann voni að forseti geti sætt sig við að skipa. Verði svo ekki fái þingið að segja af eða á um traust á ráðherralistan- um og hljóti hann samþykki þess sé forsetinn skyldugur að skipa rík- isstjórn samkvæmt því. Svona stóðu málin þegar síðast fréttist og fylgir sögunni að Oleksy gefi sér allt að hálfan mánuð til að ráða deilunni við Waiesa til lykta. Eins og fyrr sagði hrýs ýmsum fyrri félögum Walesa úr Samstöðu hugur við vinnubrögðum foringj- ans síns gamla í þessu efni. Segjast þeir að vísu þekkja ráðríki hans og einþykkni frá fyrri baráttudög- um en alvarlegra mál sé þegar for- setaembætti landsins sé beitt með þessum hætti. Verður mönnum hugsað til lýð- veldis millistríðsáranna í Póllandi. Þá tók forsetinn og þjóöhetja, Pilsudski marskálkur, sér einræð- isvald sem leiddi til stjórnarhátta sem áttu sinn þátt í hve Pólland fékk litla rönd við reist við ásælni gírugra nágranna í austri og vestri. Lech Walesa og Danuta kona hans skála fyrir sigri í forsetakosningunum 1990. Skodanir annarra Kjarnorkuóttinn „Það þarf að minnsta kosti tvo til þegar kemur að útbreiðslu kjarnorkuvopna þessa dagana. í því kjamorkumáh sem mestan ótta vekur núna er því einmitt svo farið. Hiö verðandi kjamorkuveldi er íran og enginn veit almennilega hversu langt á veg þeir eru komnir með smiði kjarnorkuvopna. Þeir sem hjálpa þeim, þrátt fyrir að vilja ekki viðurkenna það,eruRússar.“ Úr fyrirsögn Washington Post 16. febr. Þjóðarmorð í Omarska „Omarska-fangabúðirnar í Bosníu, sem eru á veg- um Serba, vöktu heimsathygh árið 1992 þegar í ljós kom að þar voru framin íjöldamorö, pyntingar og kynferðislegt ofbeldi á múslímum með það að markmiði að hrekja þá burtu frá norðvestur Bosníu. Bæði SÞ og Bandaríkjastjórn voru sein til að trúa því sem þeirra eigin embættismenn lýstu og vildu ekki kaha atburðina sínu rétta nafni: þjóðarmorð. Nú loksins er stjórnandi búðanna, Zeljko Meakic, ásakaöur fyrir þjóðarmorö. Úr forystugrein The New York Times 16 febr. Ríkiseinokun aflétt „Ríkisstjórnin taldi sig á sínum tíma örugga með að áfengiseinokunin gæti haldið innan EES án breyt- inga. Síðan hafa nágrannalönd okkar lagt niöur ein- okun á innflutningi áfengis og Eftirhtsstofnun EFTA hefur skorið úr um að ríkiseinokun á víninnflutn- ingi stríði gegn EES-samningnum. Ríkisstjórnin hef- ur nú ákveðið að fara að vilja EFTA og komast hjá málaferlum. Það er skynsamlegt. Mikilvægara er að standa vörð um smásölueinokun ríkisins." Úr forystugrein Arbeiderbladet 14. febr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.