Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1995, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1995, Blaðsíða 29
28 LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995 I Tomasz og Wieslawa, mæðginin sem björguðust úr snjóflóðinu: Aldrei aftur „Ég sef ekki án þess að taka inn svefnlyf og mér verður aftur og aftur hugsað til þeirra ógnaratburöa sem rústuðu tilveru mína í einni andrá. Ég sé aö Tomasz verður stundum fjarrænn og þungt hugsi, hann situr og er að velta fyrir sér atburðunum. Hann grét mikið fyrst eftir slysið. Þegar ég sagði honum á sjúkrahús- inu hvað gerst hafði vildi hann að- eins eitt; hann vildi fara aftur til Póllands og sagði við mig að við ætt- um ekkert hér lengur, allt væri horf- ið. Ég mun aldrei gleyma þessum atburðum en vona að ég komist yfir mesta áfallið," segir Wieslawa Lup- inska sem bjargaðist naumlega, ásamt tíu ára syni sínum, Tomaszi Lupinski, úr snjóflóðinu sem lagði kjarna Súðavíkur í rúst og kostaði 14 manns lífið mánudaginn 16. jan- úar sl. Snjóflóð og neyðaróp „Ég veit ekki hvort það var ímynd- un eða raunveruleiki en það fyrsta sem ég man, eftir að snjóflóðiö skall á húsinu, er að mér fannst ég heyra neyðaróp. Þegar ég man fyrst eftir mér eftir hamfarirnar fann ég að eitt- hvað þungt var ofan á mér en ég náði að skreiðast undan því. Ég sá ekkert og veðurofsinn var svo mikill að það var tilgangslaust að hrópa á hjálp. Það eina sem ég heyrði voru óp frá fólki sem virtist vera í sömu neyð og ég. Ég náði með herkjum að brjótast áfram, gegnum brak úr hús- um og snjó, að húsi sem stendur skammt frá frystihúsinu. Mér var orðið helkalt og þarna tók á móti mér fólk sem hlýjaði mér,“ segir Wieslawa. Þau mæöginin bjuggu á Túngötu 7 ásamt Bellu Vestfjörð og dóttur hennar, Petreu Vestfjörö, sem báðar fórust í þessu hörmulega slysi. Wie- slawa, sem er pólsk, flutti til íslands fyrir fjórum árum, frá borginni Bialystok í austurhluta Póllands. Fátæktin handan við hornió „Vinkona mín sagöi mér aö það væri hægt aö fá vinnu á íslandi. Kunningi hennar vann þar og hún hafði samband við hann. Þegar það lá fyrir að ég gæti fengið vinnu í Súðavík ákvað ég að slá til og fara. Það var mjög erfitt að komast af í Póllandi og mikil fátækt. Það má segja að hungurvofan hafi beðið handan við homið. Ég er matvæla- fræðingur og fljótlega eftir að ég byrj- aði aö vinna í frystihúsinu í Súðavík fékk ég starf þar viö gæðaeftirlit. Ég var í ágætu starfi í Póllandi, vann á skrifstofu, en ég held að ég geti sagt aö ég hafi tífaldað launin mín þegar ég fór að vinna hjá Frosta. Ég get nefnt sem dæmi aö bróðir minn, sem er fjölskyldumaður og tveggja bama faðir, hefur sem nemur sjö þúsund- um íslenskra króna í mánaðarlaun. Tveimur ámm síðar sótti Wieslawa son sinn, Tomasz, til Póllands og - segir Wieslawa Lupinska sem ætlar ekki til baka Wieslawa asamt Petreu Vestfjorð. Myndin var tekin i fyrravetur. ákveðið var að þau settust að hér- lendis. Taugaáfall Hún segir minningarnar frá at- burðinum Sjálfum óljósar og að hún hafi misst allt tímaskyn. Atburðirnir renni saman í eina martröð. „Þegar hlúð var að mér eftir að ég komst í húsaskjól vissi ég ekkert um afdrif annarra á heimilinu. Ég fékk taugaáfall og skalf og nötraði og gerði mér enga grein fyrir því hvaö hafði gerst. Þegar mér var sagt að snjóflóð hefði fallið á byggðina og fólk væri að safnast saman í frystihúsinu, bað ég um að hringt yrði þangað og ég sótt. Það komu fijótlega tveir menn og sóttu mig. Ég spurðist fyrir um Bellu, Pettý og Tomasz en þaö kom í ljós að ekkert þeirra var fundið. Ég var við það að örvilnast á þeirri stundu. Læknir, sem var staddur þarna, sagði að ég yrði að fara með Fagranesinu til ísafjarðar á sjúkra- hús. Ég vildi bíða eftir að hin fynd- ust en það var ekki hægt svo ég fór með skipinu," segir hún. Tomasz segist ekkert muna frá slysinu sjálfu og ekkert frá dvölinni undir snjófarginu. Hann segist síðast muna það frá kvöldinu áður að hann var að undrast að bíllinn þeirra var kominn á kaf í snjó og það var vit- laust veður. Það vakti aödáun björg- unarsveitarmanna að hann var alveg rólegur og grét ekki þegar honum var bjargað eftir sólarhring á nokk- urra metra dýpi undir snjófarginu. „Ég vissi ekkert af mér fyrr en ég fann að það rakst eitthvað í mig og ég heyrði í mönnum. Ég var dauð- hræddur og öskraði því ég var hræddur um að meiða mig meira. Þegar ég var kominn inn í Frosta var mér sagt að ég hefði lent í vatnsrúmi nágrannans og það bjargað mér,“ segir Tomasz. Wieslawa fór þegar á sjúkrahúsið Hélt að Tomasz væri dáinn í sólarhring undir snjófargi Við komuna til ísafjaröar var hún þegar flutt á sjúkrahúsið til rann- sóknar. Þegar það lá fyrir að hún þyrfti ekki að leggjast inn hafði hún samband við vinkonu sína sem bauð henni að gista á heimili sínu. „Kristín, vinkona mín, kom og sótti mig. Ég var gjörsamlega dofin og man lítið frá þessum degi. Þarna var Meö Reykjavík i baksýn. Þau ætla að setjast að i Kópavogi i þeirri von að komast yfir áfallið. mér sagt að Bella og Petrea hefðu fundist látnar en Tomaszar væri enn saknað. Ég man að ég sagðist vera viss um að Tomasz væri líka dáinn. Eg held aö ég hafi sofnað stutta stund einhvem tíma um nóttina en klukk- an sex um morguninn heyrði ég í útvarpsfréttunum að maður hefði Bella Vestfjörð ásamt Tomaszi. Myndin var tekin skömmu eftir að Tomasz kom til íslands. Bella kenndi honum íslensku daglega og nú talar hann málið lýtalaust. fundist á lífi. Ég sagði þá við Kristínu að það væri kannski smávon. Það var svo tveimur tímum síðar að vinkona mín í Reykjavík, sem var í sambandi við Rauða krossinn, hringdi og sagði mér að það hefði verið Tomasz, sonur minn, sem fundist hefði. Það var ólýsanleg tilfmning að heyra þetta og ég ætlaði ekki að trúa þessu. Vin- kona mín sagði mér jafnframt að hann væri mjög illa slasaður," segir Wiesláwa. LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995 37 Mæðginin Tomasz Lupinski og Wieslawa Lupinska fyrir utan heimili sitt í Kópavogi. Þau segja fólk hafa sýnt þeim á Súðavík. þegar henni bárust tíðindin af syni sínum. Hún segist hafa verið milli vonar og ótta þar sem henni hafði verið sagt að hann væri mikið slasað- ur. „Þegar ég kom á spítalann spurði ég lækninn hvort ég gæti talað við Tomasz. Læknirinn sagði það vera í lagi og að hann væri ekki eins mikið slasaður og talið var í fyrstu. Þegar ég kom inn á stofuna til drengsins tók ég eftir því að höfuð hans var bólgið og þrútið og augun sokkin. Læknirinn sagði að þetta væri vegna kuldans og frostsins en myndi lag- ast. Mér létti ósegjanlega þegar hann var hólpinn, í mínum huga er það ekkert annað en kraftaverk að hann skyldi hafa þetta af,“ segir hún. Ágengar minningar Wieslawa og Tomasz eru sammála um að fara ekki aftur til Súðavíkur. Til þess séu minningarnar um þenn- an hræðilega atburð of ágengar. „Ég get ekki hugsaö mér aö snúa aftur. Minningarnar um þennan at- burð standa mér enn ljóslifandi fyrir hugskotssjónum. Ég held að ég mundi ekki þola að koma aftur í þetta umhverfi og atburðirnir mundu stanslaust leita á hugann. Ég hafði reyndar hugsað mér að flytjast á brott og þá á svæði þar sem vetrar- hörkur eru minni. Ég er mjög veður- hrædd og oft þegar slæm veður geis- uðu leið mér afar illa. Kvöldiö áður en snjóflóðið féll var ég mjög hrædd; ekki við að það félh snjóflóð heldur að veðurhamurinn myndi verða til þess að rúður brotnuðu. Óttinn var mikill og ég spurði Bellu hvort það gæti ekki eitthvað gerst í svona veðri. Hún sagði mér að vera róleg og hugsa þetta frekar á þann veg að fæstir útlendingar fengju tækifæri til að upplifa svona veður. Ég sofnaði um ellefuleytið þetta kvöld og svaf frekar illa. Ég vaknaði um fimmleytið um morguninn og spurði þá Bellu hvern- ig veðrið væri. Hún sagðist halda að það væri að ganga niður. Þetta var í síðasta sinn sem við töluðum sam- an,“ segir hún. Fyrirboði Það er mikið talað um fyrirboða áður en slys verða. í kringum Súða- víkurslysið er sagt af fólki í fjarlægð sem hafði áhyggjur af ættingjum sín- um vestra í veðrahamnum. Sumir segjast hafa verið slegnir óhug þenn- an morgun áður en slysið varð. Wie- slawa segist vera viss um að slíkir fyrirboðar séu staðreynd. „Laugardagskvöldið áður en snjó- flóðið féll fórum við Bella í heimsókn til Kristínar, vinkonu okkar á ísafirði, og áttum með henni skemmtilega kvöldstund. Viö spjöll- uðum um alla heima og geima og vorum hjá henni lengi kvölds. Þegar við vorum að fara kvaddi Bella hana á þann hátt að eftir á að hyggja var þetta eins og hinsta kveðja. Hún sagði við Kristínu að henni þætti óendanlega vænt um hana og þakk- aði henni fyrir trausta vináttu í gegn- um þykkt og þunnt. Okkur Kristínu kom saman um aö þetta hefði verið mjög sérstök kveðja og hún sagði Bellu aldrei fyrr hafa kvatt sig á þennan hátt. Það var eins og hún vissi að hún væri á fórum,“ segir Wieslawa. Misstu allt í snjóflóöinu Þrátt fyrir sorgina sem fylgir því að sjá á eftir nákomnum vinum í heljargreipar snjóflóðsins og missa allt segist Wieslawa bjartsýn á að þau Tomasz komist yfir áfallið. Hún segir að hlýhugur allrar þjóðarinnar vegna atburðanna snerti sig djúpt og hafi orðið til þess að hjálpa sér yflr erfiðasta hjallann. Viðbrögö íslend- inga séu engu lík og hún hefði ekki trúað því að óreyndu að hún ætti eftir að upplifa slíkt. „Við Tomasz misstum allt í snjó- flóðinu og stóðum uppi tvö ein. Ég á ekkert frá því fyrir flóðið nema nokkrar myndir og örfáa persónu- lega muni sem þó gefa mér mikið. Við fráfall Bellu missti ég besta vin sem ég hef átt eða mun nokkum tim- ann eignast. Mér fannst um tíma lífið tilgangslítið. Þegar Tomasz vildi að við færum aftur til Póllands fannst mér það alls ekki fráleit hugmynd. Eftir að hafa síðan upplifað þann samhug sem fólk sýnir okkur í þess- um nauðum lít ég þetta öðrum aug- um,“ segir hún. Talar lýtalausa íslensku Það vekur athygli að Tomasz talar lýtalausa íslensku eftir aöeins tveggja ára dvöl hér. Það er engin leið að þekkja hann úr hópi íslenskra drengja. Áhugamálin em þau sömu og annarra barna á svipuðum aldri. Það eina sem skilur hann frá öðrum börnum er sú ótrúlega lífsreynsla sem hann á að baki. „Mér finnst gaman í skólanum hér. Kennararnir em ekki eins strangir og í Póllandi. Þar voru krakkar rekn- ir heim úr skólanum ef þeir gerðu eitthvað af sér. Þetta er allt öðruvísi hérna," segir Tomasz og móðir hans bætir því við að hann hafi náð mál- inu á undraskömmum tíma: „Hann var mjög heppinn með kennara þeg- ar hann kom til Súðavíkur í janúar 1993. Kennarinn lagði mikla áherslu á að kenna honum málið. Bella tók hann líka í kennslu daglega og hann á þennan árangur þeim að þakka. Honum gengur vel að læra og ég er þakklát fyrir það. Hann er byrjaður í Hjallaskóla í Kópavogi og eftir að- eins nokkra daga er hann þegar bú- inn að eignast vini í skólanum," seg- ir Wieslawa. í frí til Póllands Tomasz og Wieslawa ætla að fara í frí til Póllands í sumar. Hún segir það hafa veriö ákveðið fyrir löngu og hún vilji ekki sleppa þeirri ferð. „Við Bella vorum fyrir löngu búnar að ráðgera þessa ferð. Mig langar til Póllands en ekki til að vera. Fólk þar er miklu hörkulegra en hérlendis, það stafar ef til yill af fátæktinni. Við eigum heima á íslandi og hér viljum við vera. Við munum aðeins koma til Póllands sem gestir," segir hún. Mæðginin búa nú í Kópavogi í ný- legri íbúö sem Kópavogsbær lét þeim í té endurgjaldslaust í eitt ár. Móðir hennar, sem kom til íslands í boði Rauða krossins, dvelur hjá þeim og verður fram á sumar. Tomasz stund- ar skólann og sjálf er hún búin að fá vinnu í prentsmiðjunni Odda hf. Búin aðfávinnu „Ég byrja í nýju vinnunni í mars og móðir mín, sem ætlar að vera þjá okkur fram í júní, gætir Tomaszar. Það er mjög mikilvægt fyrir mig að hafa nóg að gera því ef það myndast tóm þrúga minningamar mig. Það eru allir boðnir og búnir að rétta okkur hjálparhönd. Mér er efst í mikinn hlýhug eftir að snjóflóðið féll DV-myndir Brynjar Gauti og fleiri huga óendanlegt þakklæti til alls þessa fólks sem hefur aðstoðað okk- ur,“ segir hún. Það liggur enn ekki fyrir með hvaða hætti þau fá bætur vegna eignatjónsins. Hún og Bella ráku heimilið sameiginlega en það var allt á Bellu nafni nema bíllinn. Wieslawa segist ekkert velta því fyrir sér, aðal- atriðið sé nú að heíja nýtt líf á nýjum stað. „Ég veit ekki að hvaöa marki trygg- ingamar koma til meö að bæta mitt tjón. Bæði hús og innbú var skráö á Bellu en bíllinn var skráður á okkur sameiginlega. Ég hef ekki áhyggjur af því hvar ég stend eftir þetta í eignalegum skilningi. Aðalatriðið nú er Tomasz, framtíðin er hans og ég vil aö hann verði hamingjusamur. Ég mun ekki snúa til baka, það verð- ur aldrei aftur Súðavík. Ef ég kem þangað aftur þá veröur það að sum- arlagi," segir Wieslawa Lupinska. -rt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.