Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1995, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995
41
- O. J. Simpson sér sjónvarpsáhorfendum fyrir margra mánaða sápuóperu
Réttarhöldin yfir O.J. Simpson
hafa riðið yfir Bandaríkin eins og
jarðskjálfti, að því er heimamenn
sjálíir greina frá. Dag eftir dag hafa
milljónir sjónvarpsáhorfenda horft
á stríðið milli verjenda og sækjenda
í réttarsal 9-307 í Los Angeles. Dag
eftir dag hefur dramatíkin verið
svo mikil aö nú eru Bandaríkja-
menn farnir að tala um að ofbeldi
lögreglunnar gegn Rodney King,
árásin á Nancy Kerrigan, afskor-
inn limur Johns Bobbits og hneigð
Michaels Jacksons til barna hafi í
raun bara verið upphitun fyrir
réttarhöldin sem nú standa yfir.
í vikunni lýsti rannsóknarlög-
reglumaðurinn Ron Phillips fyrstu
viðbrögðum Simpsons við andláts-
fregn fyrrverandi konu sinnar.
„Guð minn góður, Nicole er dáin.“
Hann spurði ekki hvernig eða hve-
nær Nicole hefði látist og þykir það
styðja kenningar um sekt hans.
Afstaða þorra Bandaríkjamanna er
sögð sú að máhð snúist ekki um
sekt eða sakleysi Simpsons. Þetta
sé í raun spuming um hvort hann
komi til með að ganga frjáls ferða
sinna að loknum réttarhöldunum
sem hafa verið þrungin spennu.
Baráttan milh veijenda og sækj-
enda hefur verið hatrömm og
stundum hafa þeir misst stjórn á
sér. Komið hefur fyrir að dómar-
inn, Lance Ito, hafi þurft að biðja
þá um að slaka á í réttarsalnum
sem er einn sá fullkomnasti í
Bandaríkjunum. Allir málsaðilar
hafa tölvuskjá fyrir framan sig.
Myndum er varpað á stóran skjá
bak viö dómarann. Með rafrænum
penna geta verjendur og sækjendur
kallað fram sönnunargögn úr
gagnabönkum.
Hóf ferilinn
sem þjófur
Sönnunargögnin hafa verið af ýms-
um toga, þar á meðal dagbókarbrot
Nicole þar sem hún lýsir barsmið-
um O.J. á meðan þau voru gift og
hótunum hans eftir að hún hafði
yfirgefið hann. Þar th 12. júní síð-
astliðinn var O.J. Simpson í hugum
aimennings dáð íþróttahetja og
maður sem tekist hafði að láta
ameríska drauminn rætast. Hann
er sonur einstæðrar móður sem bjó
í fátækrahverfi blökkumanna í San
Francisco. Hann hóf feril sinn sem
þjófur. En hann var góður í amer-
ískum fótbolta og fékk boð frá há-
skólum um styrk. Simpson var á
toppnum í fótboltanum í mörg ár.
Þegar kominn var tími til að snúa
sér að öðru var hann ekki í vand-
ræöum með að hasla sér völl á
nýjum vettvangi. Hann hafði
sjarma og var málfimur og varð
brátt sjónvarpsstjama.
Simpson gat notiö lífsins í heimi
hvítra. Hann eignaðist lúxusíbúð á
Rockingham Avenue þar sem hús-
in eru með sérstakri álmu fyrir
þjóna og þar sem Rolls Royce og
Jagúar eru algeng sjón á götunum.
Hann kvæntist en hjónabandið
varaði í stuttan tíma. Við tók langt
samband við Nicole Brown. Þau
voru gift í næstum tíu ár.
Blóðugu hanskarnir
Þaö var svo eftir aðfaranótt 13.
júní síðastliðins sem almenningur
fékk fregnir af því að allt hefði ekki
verið sem sýndist í hjónabandi Nic-
ole og Simpsons. Þessa nótt fundust
Nicole og vinur hennar Ronald
Goldman myrt við hús hennar í
auömannahverfmu Brentwood í
Los Angeles. Þau höfðu veriö
stungin til bana. Þegar lögreglan
ætlaði að tilkynna fyrrum eigin-
manni Nicole, það er O.J. Simpson,
um morðið var hann ekki heima.
Hann hafði farið til Chicago kvöld-
Réttarhöldin yfir O.J. Simpson standa yfir frá klukkan níu á morgnana til fimm síðdegis. Áður en hann geng
ur inn i réttarsalinn á morgnana afklæðist hann fangabúningnum sem hann kemur i og fer í jakkaföt.
O.J. Simpson i búningi Buffalo
Bills.
I veislu með eiginkonunni Nicole.
I myndaalbúmi lögreglunnar.
ið áöur. Ford Bronco virtist hafa
verið lagt í skyndi fyrir utan hús
hans og lögreglan fann blóðbletti í
bílnum.
Þegar O.J. Simpson kom heim
nokkrum klukkustundum seinna
var hann með sár á annarri hendi.
Blóðblettir fundust í garði Nicole
og nú í vikunni tilkynntu sækjend-
ur að bráðabirgðaniðurstöður
DNA-rannsóknar sýndu að blóðið
væri úr O.J. Blóðugur hanski hafði
fundist á morðstaðnum. Rann-
sóknarlögreglumaðurinn Phillips
sagði í vitnastúku í fyrradag að
samstarfsmaöur hans, Mark Fuhr-
man, hefði bent sér á blóðugan
hanska bak við eitt af gestahúsum
Simpsons. Verjendur gefa í skyn
aö Fuhrman kunni að hafa komið
hanskanum þarna fyrir en hann
er þekktur kynþáttahatari.
Margra mánaða
sápuópera
Sumir líkja réttarhöldunum, sem
standa frá klukkan níu á morgnana
til klukkan fimm síödegis, við
sápuóperu sem í raun hafi byrjað
með eltingaleiknum fræga 17. júní
sem sjónvarpaö var um öll Banda-
ríkin og endaði með handtöku
Simpsons.
Engin bandarísk sjónvarpsstöð
telur sig geta komist hjá því að
vera með menn þar sem réttarhöld-
in fara fram. Komið hefur verið
upp nokkurs konar O.J. Simpson-
búöum á móti dómhúsinu. Um
fimmtíu gámar og vöruflutninga-
bílar standa hlið við hlið með risa-
stóra gervihnattadiska. ABC-sjón-
varpsstöðin er sögð hafa veriö fyrst
á staöinn og tryggði sér því besta
útsýnið. Þar sem rýmið er ekki
mikið sáu keppinautarnir sig til-
neydda til að reisa turna. CBS-
stöðin þarf að athafna sig í sex
metra hæð til að keppinautarnir
sjáist ekki á mynd. Starfsmenn
NBC-stöövarinnar þurfa að klifra
upp í tólf metra hæð. Sjónvarps-
fólkið þarf auðvitaö að nærast. Til-
búinn matur er keyrður á staðinn
í stórum og vel út búnum bílum.
Götusalar ætla sér að græða á
öllu saman og reyna að pranga inn
á fólk stutterma bolum, barm-
merkjum og myndum af bæði verj-
endum og sækjendum.
Bandarískur sálfræðingur er nú
að gera könnun á því hvort landar
hans hafi fengið of stóran skammt
af O.J. og hefur í því skyni lagt tíu
spurningar fyrir þátttakendur:
1. Horfir þú á réttarhöldin í meira
en 1 klukkustund á dag?
2. Hefur þú slegiö slöku viö heima
eða í vinnunni vegna sjónvarps-
glápsins?
3. Deilirðu um sekt eða sakleysi
Simpsons?
4. Reiðistu ef truflanir verða á út-
sendingum á réttarhöldunum?
5. Veistu nöfn allra lögmannanna í
málinu?
6. Eru fréttir af réttarhöldunum
það fyrsta sem þú lest í blöðunum?
7. Hafa vinir og fiölskylda sagt að
þú hafir sökkt þér of mikið í málið?
8. Stendur þú þig að því að hugsa
um málið?
9. Hefur þú sleppt félagsstarfi,
máltíðum eða svefni vegna máls-
ins?
10. Hefur þú lesið einhverjarbækur
um málið?
Ef menn svara ekki fleiri spurn-
ingum en þremur játandi mega
þeir teljast hólpnir.
Reyndar hafa starfsmenn á sum-
um vinnustöðum í Bandaríkjunum
gert með sér samkomulag um aö
Simpson-málið verði ekki á dag-
skrá í matar- og kaffihléum. Þaö
eru þeir sem ekki ætla að láta rétt-
arhöld aldarinnar sfiórna lífi sínu.