Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1995, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1995, Síða 5
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995 5 Fréttir Rlki og sveitarfélög tryggja afkomu lífeyrissjóða: Lífeyrissjóð Akraness vantar milljarð upp í skuldbindingar „Þetta er kerfi sem tekið var upp fyrir tuttugu árum. Þaö er augljóst mál að menn hafa ekki hugsað það dæmi til enda að veita aðilum svona sterkan rétt gagnvart sveitarsjóðum og ríkissjóði," segir Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, vegna lífeyr- issjóða opinberra starfsmanna sem ríki og sveitarfélög bera ábyrgð á. í úttekt Guðjóns Hansens trygg- ingafræðings á stöðu Lífeyrissjóðs Akraneskaupstaðar kemur fram aö það vantar rúman milljarö í höfuð- stól sjóðsins svo hann eigi möguleika á að standa við skuldbindingar sínar gagnvart styrkþegum. í úttektinni segir að miðað við núverandi bótaá- kvæði eigi 10 prósenta iðgjald að tryggja að sjóðurinn geti sjálfur stað- ið undir helmingi lífeyrisútgjalda. Þá segir aö miðað við þá forsendu verði staða sjóðsins aö teljast í járnum, miðaö við að gengið sé út frá 3 pró- sent ársávöxtun. Sé miðaö við lægri vexti teljist staðan vart viðunandi. „Ávöxtun hjá okkur hefur sem bet- ur fer verið yfir þessum mörkum undanfarið. Það er hins vegar ekkert hægt að segja til um það hvernig til tekst um ávöxtun í framtíðinni. Tak- ist ekki ávöxtun er ljóst að ríki og sveitarfélög eru að taka á sig veruleg- ar skuldbindingar," segir Gísli. Nú þarf Akranesbær að greiða sem nemur 3,7 milljónum árlega til að halda sjóð sínum gangandi. Gísli seg- ir að þessi upphæði nemi einu pró- senti af launakostnaði. Þetta vanda- mál er almennt hvað varðar lífeyris- sjóði ríkis og sveitarfélaga. Sam- kvæmt kjarasamningum ber opin- berum aðilum að tryggja rekstur líf- Misjöfn skilyrði til skíðaiðkunar „Það verður ekki óskaveður til skíöaiðkunar í dag um sunnan- vert landið. Við gerum ráö fyrir of miklum austanvindi. Það horfir öðruvísi við um norð- anvert landið. Þar reiknum við meö skaplegu veðri í dag,“ segir Bragi Jónsson veðurfræöingur. Hann segir að á morgun snúist veður til norðaustanáttar um allt land. Margir vilja komast á skíði þessa dagana og á það ekki síst við um nemendur sem eru i óskil- greindu fríi á meðan lærifeður þeirra gera út um kaup sín og kjör. Þá þarf aö finna eitthvað skemmtilegt til að drepa timann. -rt Skinnasýn- ingáHótel Örkídag Skinnasýníng verður haldin á Hótel Örk í Hveragerði í dag, laugardag, frá klukkan 14-17. Aögangur er ókeypís en þarna verður sýning á bestu minka- og refaskinnum á landinu, loðfeld- um frá Eggert feldskera og vörum frá Þingborgarhópnum. Tísku- sýning verður, lagt verður mat á skinn og verðlaun afhent. Sam- band íslenskra lofdýraræktenda og Loðdýraræktarfélag Suður- lands standa að sýningunni. bærinn greiðir tæpar fjórar milljónir árlega með sjóðnum eyrissjóða sem launþegar innan að þar er launþegunum sjálfum ætl- um skerðingar annaðhvort þegar að snúa ofan af þessu kerfi og það BSRB eru aðilar aö. Þegar litiö er til að að bera ábyrgð á sínum lífeyris- orðnar eða í sjónmáh. verður ekki gert nema með laga- einkageirans blasir aftur á móti við sjóðum. Þar eru í langflestum tilvik- „Það er ljóst að það verður erfitt boði,“ segir Gísh. -rt Xloney Nut hringimir eru alltaf jafn freistandi. í hverjum einasta Honey Nut hring eru hollir og góðir hafrar, brakandi hnetur og ljúffengt hunang. Það er því engin fúrða að fólk á öllum aldri skuli alltaf falla fyrir Honey Nut hringjunum. Þeir eru einfaldlega þannig gerðir!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.