Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1995, Side 8
8
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995
Vísnaþátturirui
Guðfinna
Þorsteinsdóttir
Guöfinna Þorsteinsdóttir fæddist
þann 26. júní á Skjögrastöðum í
Skógum í Suöur-Múlaþingi. Frá
átta ára aldri ólst Guðfmna upp í
Krossavík í Vopnafirði. Guðfinna
nam í unglingaskóla á Vopnafirði
1911-12. Húsmóðir var hún að
Brunahvammi, Hróaldsstöðum,
Felh og Teigi í Vopnafirði á árun-
um 1917-1954 en var búsett á Sel-
fossi til dauðadags. Guðfmna tók
saman frásagnasöfnin Völuskjóðu
og Vogrek og þýddi skáldsöguna
Slag vindhörpunnar eftir William
Heinesen. Undir skáldanafninu
Erla gaf hún út ljóðabækumar
Hélublóm 1937, Fífuloga 1945 og
barnaljóðin Æfmtýri dagsins 1958.
Myrkur skammdegisins leggst á
geð margra en brátt hefur tekist
að þreyja þorrann og ætti því að
vera bjartara fram undan. Eitthvað
hefur skáldkonunni verið niðri fyr-
ir er hún kvað svo:
Gæfxst vndi andlegt mér,
enga fyndi ég pínu.
Dagsins kyndill daufur er,
drungi í lyndi mínu.
Mörg hefur spekin verið greypt í
stuðlafall og rím og þykir við hæfi
á hátíðarstundum að vitna í skáld-
menni vor fyrr og síðar. Fjallar
Erla hér í næstu vísu um vegsemd
og vanda kveðskaparlistarinnar:
Vönd er suða stuðlastáls;
stillt skal hersh og kynding báls,
efni rím og meðferð máls.
Mörg á staka speki Njáls.
Ekki er það einungis karhnn í
tunglinu sem er annarlegur þá
hann er fullur en ekki er hann víst
betri en aðrir. Svo kveður Erla:
Gyllir ána geislaskin;
glitrar Ránar vegur.
Fullur máni glennir gin,
glottir bjánalegur.
Sannast hið fornkveðna að ekki er
það umgerðin sem skiptir máh
heldur innihald. En svo féllu skáld-
konunni orð:
Þó að skalli þinn sé ber,
það mun ekki saka,
bara, ef heihnn ekki er
eins og flatbrauðskaka.
Þessar vísur lýsa fógnuöi skáld-
konunnar er daga tekur aö lengja
og hversu hún tignar móður nátt-
úru:
Daga lengir. Styttist strið.
Stendur engi í blóma.
Grösin tengja grund og hlíð.
Glaðir strengir óma.
Brekkur anga. Allt er hljótt.
Aðrir ganga að dýnu.
Sárt mig langar sumarnótt!
sofna í fangi þínu.
Hohast er að gæta sín á nautnum
og hvers konar veigum. Mætti gá-
laus, svahsöm og ístöðulaus æskan
gæta að heilræðum þessum:
Sötrum bikar sælunnar
seint. Ef gálaust teygum,
oft fást dreggjar óhollar
undir nautnaveigum.
Gömul saga er það en ekki ný að
hinir ghdustu skáldjöfrar hafa í lif-
anda lífi goldið sult og kröm og
jafnvel skömm og skens samtíðar.
Kannski færi ekki síður ávarpið
flónska þjóð eins og frónska þjóð í
eftirfarandi vísu Erlu:
Frónska þjóð, sem færð í arf
flest er skáldin vinna!
Illa er goldið afreksstarf
óðsnilhnga þinna.
Þó að ekki sé séö fyrir endann á
byggingu tónlistarhúss og umræð-
an vart hafm í þann tíð er Erla
kvaö þetta hefur húsnæðisskortur-
inn lítt firrt skáldkonuna og má af
þessum vísum ráða að tónleikar
þessir hafi vel lukkast. Svo kveður
Erla:
Álftir syngja allt um kring,
er á þingi kliður.
Ríf ég lyng í lágan bing,
leggst í dyngju niður.
Heiðin víö með fjöllin fríð,
faðminn víði gróna,
gesti býður hvíld í hlíð,
himinblíða tóna.
í almanaki Erlu yrkir skáldkonan
eina vísu hverjum degi th dýrðar.
Var almanak þetta seinni hluti í
Vísnaþáttur
Valdimar Tómasson
ljóðabók hennar Fífulogar og er
þessi vísa við 11. apríl. Hefur vorið
verið kærkomið í Teigi sem á öör-
um bæjum:
Auð er hlíðin upp að sjá,
útsjón fríð í Teigi.
Andar þíðu inni frá
undurblíðum degi.
Önnur vísa hljóðar svo:
Fughnn syngur. Fræ í mold
fer að springa úr hýði.
Vorið yngir freðna fold
fegrar lyngi og víði.
Gróa kerling á Leiti lætur ekki sitt
eftir liggja ef hún mögulega má:
Sumra manna sögum á
svikult er að byggja.
Sannleikurinn margoft má
mönnum dulinn liggja.
Illt er það að hugsa mikið því oft
veldur það hinu mesta hugarvhi
og víst er það að eftir því sem það
er meira iökað verða oröin færri
er út úr mönnum fljóta. Það er
næsta víst og viðbúið að íhugunin
geri þau ómerk og einskis nýt. Svo
kveður Erla:
Efhr varla ihur sátt.
Einatt þræta vinir.
Margur sá er mælir fátt
meira veit en hinir.
9 9*1 7*00
Verð aöelns 39,90 mín.
:i| Læknavaktin
@ Apótek
0 Gengi
Matgæðingur vikummar_dv
Marinerað tofu
„Ég kynntist grænmetismatar-
gerð í Svíþjóð árið 1976 og síðan í
Bandaríkjunum. Grænmeti var
einmitt að ryðja sér mjög til rúms
í Svíþjóð á þeim tíma og félagar
mínir sem spiluðu með mér í
hljómsveit voru alhr grænmetisæt-
ur. Það hafði vissulega áhrif,“ segir
Steingrímur Guðmundsson,
trommuleikari í Milljónamæring-
unum og matgæðingur vikunnar.
Steingrímur var eingöngu á græn-
metisfæði um tíma en hann borðar
nú einnig kjöt og fisk. Steingrímur
ætlar að bjóða lesendum upp á
uppskrift þar sem tofu er notað en
grænmetisætur nota tofu í staðinn
fyrir kjöt. Tofu er unnið úr baunum
og er sagt að Hægt sé að breyta því
í kjúkling eða lamb eftir því hversu
hinkt fólk er í matreiðslunni.
Steingrímur segist fá besta tofuið
í Hagkaupi, þar sé það mátulega
þétt. „Úrvalið fyrir grænmetisætur
hefur mjög breyst hér á landi á
undanfórnum árum og nú er hægt
að fá allt th að elda góðan grænmet-
isrétt. Ég æhaði að elda indverskan
rétt hér heima í kringum 1983 en
þá var það ekki hægt þar sem
hvorki var hægt að fá rétta kryddið
né grænmetið. Nú er þetta allt sam-
an th. Mér finnst krydd ekki svo
dýrt á íslandi en grænmetið mætti
vera ódýrara. Ég bjó í Kaliforníu
um tíma og þar var grænmetið mjög
ódýrt.“
Steingrímur segir að það sé einfalt
að matbúa tofu. Hann lætur það
marinerast í átta tíma. „Ég sker það
í sneiðar og legg það síðan í mariner-
inguna. Það er ágætt að gera það á
morgnana áður en maður fer í vinn-
una - þá er það thbúið í kvöldmat-
inn. Þessi réttur er mjög ljúffengur
en hann er miðaður við fjóra."
Og hér kemur uppskriftin:
Það sem þarf:
1 pakki tofu
Steingrímur Guðmundsson,
trommuleikari Milljónamæring-
anna og matgæöingur vikunnar.
DV-mynd Brynjar Gauti
1 stór sæt kartafla (Sweet Potatos)
1 búnt spergilkál
Soðin Basmati hrísgijón
Marinering
Sojasósa
1 msk. oregano
cayennepipar (lítið)
Góður biti af engiferrót
Hvítlaukur eftir smekk, t.d. 3--4 rif
Góður slatti af sesamfræjum
Marineringin er sett í skál en
gott er að þynna sojasósuna með
vatni th að drýgja hana, sérstak-
lega þegar eldaö er fyrir marga.
Engiferrótin er röspuð niður og
hvítlauksrifin pressuð. Tofubitinn
er skolaður og síðan er hann
sneiddur fyrst eftir endilöngu en
síðan þversum þannig að úr verði
góðar sneiðar. Marineringin þarf
að hjóta vel yfir tofusneiðarnar
þannig að þær drekki hana í sig.
Þegar tofuið hefur legið í mariner-
ingunni í átta tíma er það tekið upp
- sesamfræin mega gjaman fylgja
með - og steikt upp úr ólífuolíunni
þar th það verður ljósbrúnt.
Tofuiö er borið fram með lítið
soðnu sperghkáli, hrísgtjónum,
salati og soðinni kartöflunni sem
sneidd hefur verið í fjóra bita en
sósan er sett á hana. Einnig er gott
að setja sojasósu á hrísgrjónin.
Salat
ísberg
Rauðlaukur
Tómatar
Ólífuolía
pipar
Grænmetið er skorið gróft niður
og ólífuolía, sem blönduð hefur
verið pipar, sett yfir en þó ekki of
mikið.
Sósa
Sýröur rjómi
hvítlaukur
chihpipar
mynta (ef vill)
Sýrði rjóminn er hrærður með
pressuðum hvítlauk (ekki of mik-
ið), smávegis chilipipar og myntu.
Sósan er síðan sett ofan á kartöh-
una.
„Þetta er mjög vítamínrík máltíö
sem fer vel í maga. Kínverjar borða
t.d. mjög mikið tofu og Ameríkanar
hafa tekið það upp í stórum stíl.
Þeir borða tofu ofan á brauð, í súp-
ur og gera alls kyns rétti úr því,“
segir Steingrímur. Hann ætlar að
skora á danska vinkonu sína, Sus-
an Christiansen, að verða næsti
matgæðingur. „Hún er klárasti
grænmetiskokkur sem ég þekki,“
segir hann.
Hinhliðin________________________
Stefni í atvinnumennsku
- segir Patrekur Jóhannesson, handboltastjama í KA
Patrekur Jóhannesson, hand-
boltakappi úr Stjörnunni í
Garðabæ, leikur nú með KA á Ak-
ureyri en liðið varð bikarmeistari
fyrir stuttu. Patrekur hefur búið á
Akureyri frá þvi í júlí sl. og segist
kunna vel við sig þar. „Ég hef að
vísu aldrei séð jafn mikinn snjó á
ævi minni en þetta er fint,“ segir
hann. Patrekur var þó ekki sáttur
við að hann var dæmdur í leikbann
og fær því ekki að vera með í leik
KA og Aftureldingar í dag. „Þetta
er mjög óréttmætur dómur. Eins
og sést á upptökum af leiknum er
hann ekki á rökum reistur. Ég er
því mjög ósáttur við hann.“ Það er
Patrekur sem sýnir hina hliðina að
þessu sinni:
Fullt nafn: Patrekur Jóhannesson.
Fæðingardagur og ár: 7.7. 72.
Maki: Rósahnd Guðmundsdóttir.
Börn: Engin.
Bifreið: Renault Twingo.
Starf: Vinn í íþróttaverslun á Ak-
ureyri.
Laun: Þau eru alveg í lagi.
Áhugamál: Hestamennska, hand-
bolti og skíðaíþróttin.
Hefur þú unnið í happdrætti eða
lottói? Ég hef ekki unnið í neinu
slíku.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Mér fannst rosalega
skemmtilegt að verða bikarmeist-
ari.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Vaska upp.
Patrekur Jóhannesson.
Uppáhaldsmatur: Kjúklingur.
Uppáhaldsdrykkur: Frissi fríski.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Magnús Scheving
og Valdimar Grímsson.
Uppáhaldstímarit: íþróttablaðið.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan eiginkonuna?
Úff, æth það sé ekki hún amma
mín.
Ertu hlynntur eða andvigur ríkis-
stjórninni? Hlynntur.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Sylvester Stahone.
Uppáhaldsleikari: Egill Ólafsson.
Uppáhaldsleikkona: Kathleen
Turner.
Uppáhaldssöngvari: Eros Rama-
sotti.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Einar
Guðfmnsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Tommi og Jenni.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Nítján
Nítján.
Uppábaldsveitingahús: Á Akureyri
er það kínverski staðurinn Bing
Dao en í Reykjavík er það Café
Ópera.
Hvaða bók langar þig mest að lesa?
Nýjustu bókina eftir Stephan King
en bróðir minn þýddi hana.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Rás tvö.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Bróðir
minn, Guðni Jóhannesson.
Hvort horfir þú meira á Stöð 2 eða
Sjónvarpið? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Sig-
mundur Ernir Rúnarsson.
Uppáhaldsskemmtistaður: Við
Polhnn.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: KA
(Stjarnan).
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtíðinni? Engu sérstöku öðru
en því að verða betri í handbolta
og jafnvel að komast í atvinnu-
mennsku.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí-
inu? Við ætlum eitthvað í sól þegar
heimsmeistarakeppninni lýkur en
einnig ætlum við í hestaferð með
Einari Bollasyni.