Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1995, Síða 9
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995
9
DV
Fréttir
Leikskólagjöld í Hafnarfiröi hafa hækkaö um allt aö 60 prósent:
Fólki refsað fyrir að
vera gift og í námi
- segir Margrét Sigurbjömsdóttir, húsmóðir og nemi í tónlistarskóla
Blóm fyrir
honuna
á Konudaginn
Blómaverslanir
Blómaframleidendur
„Eg er gift og í námi og hef ekki
borgað fullt gjald fyrir fulla gæslu
fram að þessu. Um síðustu mánaða-
mót hækkuðu leikskólagjöldin um
37 prósent. Ef ég tek matarkostnað-
inn ekki með í reikninginn þá nemur
hækkunin 57,8 prósentum. Hækkun-
in er mest hjá giftu fólk sem er í
námi og með börn í fullri gæslu. Mér
finnst ömurlegt aö verið sé að refsa
fólki fyrir að vera gift og í námi,“
segir Margrét Sigurbjörnsdóttir,
húsmóðir og námsmaöur í Hafnar-
firöi.
lagshóp til að níðast á og nú er kom-
ið að hjónum þar sem annar aðilinn
er í námi. Nú á að níðast á þeim,“
segir Margrét.
„Það er rétt að við höfum hækkað
leikskólagjöldin því að Alþýðuflokk-
urinn sleppti nokkrum nauðsynleg-
um hækkunum. Meðaltalshækkunin
er 10 prósent en ég kannast ekki við
57,8 prósent. Það er fráleitt að við
séum að níðast á þessum hópi,“ segir
Magnús Jón Árnason bæjarstjóri.
Taktu markvissa stefnu
Bæjaryfirvöld i Hafnarfirði hafa
hækkað dagvistargjöld og telsf
Margréti Sigurbjörnsdóttur, hús-
móður og nema, að hækkunin nemi
57,8 prósentum í hennar tilfelli.
Margrét er gift og í námi og hefur
greitt leikskólavist sonar síns, Guð-
jóns, samkvæmt forgangi. Sam-
kvæmt nýju reglunum verða hjónin
bæði að vera í námi til að teljast
forgangshópur. DV-mynd BG
Margrét hefur greitt 12 þúsund á
mánuöi fyrir fulla dagvistun sonar
síns, Guðjóns sem er fjögurra ára, á
leikskólanum Hörðuvöllum í Hafn-
arfirði meðan hún hefur verið í fullu
námi í tónlistarskóla. Um síðustu
mánaðamót hættu bæjaryfirvöld að
taka tillit til námsins til lækkunar
leikskólagjalda og hækkuöu gjöldin
í 16.400 krónur. Af þessari upphæð
fara 4.400 krónur í matarkostnað og
hefur sú upphæð staðið í stað.
„í hjónabandi þar sem annar aðil-
inn vinnur fyrir heimilinu og hinn
er í námi eru hjónin ekkert betur
sett en einstæðir foreldrar því að þau
lifa á einni innkomu en þurfa samt
að greiða fullt verð fyrir dagvistun
meðan einstæðir foreldrar fá gjöldin
lækkuð verulega. Það er verið að
refsa fólki fyrir að vera gift og í námi.
Það er búið að finna nýjan þjóðfé-
Stefnuþing
G-listanna
Stefnuþing G-listanna á landinu
verður haldið um þessa helgi í
Borgartúni 6 en þar verður m.a.
samþykkt kosningastefnuskrá
Alþýðubandalagsins og óháðra
og málefnaáherslur vegna þátt-
töku í myndun nýrrar ríkis-
stjórnar ef til slíks kæmi, að því
er segir í tilkynningu frá Alþýðu-
bandalaginu.
Þingið hefst klukkan niu á laug-
ardagsmorgni og stendur yfir til
klukkan 18.00. Miðstjórnarfund-
ur verður frá klukkan 9-12 á
sunnudag þar sem flokkurinn
mun formlega afgreiða kosninga-
stefnuskrána og taka ákvörðun
um heiti framboðslista.
f spamaöi 1995
Sýndu fyrirhyggju og sporaöu reglubundiö
Fjölbreyttir möguleikar í sparnaði
á Sparileiðum íslandsbanka
Megineinkenni Sparileiöa íslandsbanka er aö
ávöxtun eykst eftir því sem sparifé stendur lengur
óhreyft. Sparifjáreigendum bjóöast fjölbreyttir val-
kostir.
Verðtryggðar Sparileiðir
Hœgt er aö velja um Sparileiöir fyrir sparnaö sem
getur staöiö óhreyföur í 12, 24 eöa 48 mánuöi, allt
eftir því hvaö hentar hverjum og einum. Langtíma-
sparnaöur nýtur þess öryggis sem verötrygging veitir.
Óbundnar Sparileiðir
Fyrir þá sem kjósa aö hafa greiöan aögang aö
sparifé sínu bjóöast einnig óbundnar Sparileiöir. Þœr
henta vel fyrir sparnaö sem standa á skemur en eitt ár.
Efþú gerir samning um reglubundinn sparnaö á
Sparileiöum 12, 24 eöa 48, þá er öll sparnaöarupp-
hœöin laus aö loknum binditíma reikningsins. Öll
upphœöin nýtur verötryggingar óháö því hvaö
hvert innlegg hefur staöiö lengi á reikningnum.
Ánœgjuleg „ útgjöld"
Þaö ánœgjulega viö reglubundinn sparnaö er aö
jafnvel smáar upphœöir eru fljótar aö vaxa ef þœr
eru lagöar reglulega til hliöar. Þaö hefur því reynst
fólki vel aö gera sparnaöinn aö föstum, ófrávíkjan-
legum hluta af „útgjöldum" hvers mánaöar. Þaö er
auöveldara en margur heldur.
Nú er rétti tíminn til að taka markvissa
stefnu í sparnaði.
Reglubundinn sparnaður kemur sér vel
Til þess aö láta drauma sína rœtast eöa til aö
eiga fyrir óvœntum útgjöldum er nauösynlegt aö
sýna fyrirhyggju og spara reglubundiö.
ÍSLANDSBANKI
- í takt viö nýja tíma!
YDDA F26.226 / SÍA