Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1995, Qupperneq 10
10
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995
Skemmtilegt félagslíf eldri bæjarbúa í Kópavogi:
Aldraðir kunna
að njóta lífsins
- og taka virkan þátt í margs konar námskeidum sem í boði eru
Félagsstarf þeirra sem náð hafa 67
ára aldri er alltaf að aukast og varla
þarf nokkur að láta sér leiðast þó
aldraður sé. Hins vegar er ekki víst
að allir hafi kynnt sér hversu mikið
og skemmtUegt starf fer fram í fé-
lagsmiðstöðvum aldraðra. Á flestum
stöðum á landinu er nú rekin öflug
þjónusta fyrir þá sem hafa lokið
ævistarfinu og yfirleitt notfærir
fólkið sér hana. Á þessu sviði hefur
orðið gjörbylting með tilkomu íbúð-
arbygginga fyrir aldraða en oftast er
þessi þjónusta rekin i þeim húsum.
í Kópavogi er félagsmiðstöð aldr-
aðra í Fannborg og nefnist hún Gjá-
bakki. Sigurbjörg Björgvinsdóttir er
forstöðumaður þar og hefur hún af
miklum krafti reynt að auka tjöl-
breytnina fyrir eldri borgara í Kópa-
vogi. Ekki aðeins hefur hún sett upp
hin margvíslegustu námskeið held-
ur einnig skapað fólkinu aðstöðu tU
að starfa sjálfstætt. Þannig er nú sjö
manna hópur sem mætir einu sinni
í viku og sker út gler og málar án
nokkurrar tilsagnar.
Unnið sjálfstætt
„Við vorum á námskeiði en þegar
því lauk langaði okkur að halda
áfram og fengum þá þessa aðstöðu,“
sagði einn glerlistamaðurinn í hópn-
um þegar helgarblaðið leit inn til
þessa hressa hóps í vikunni. Sigur-
björg segir að þegar hópurinn hafi
verið búinn að læra og verið orðinn
fær um að vinna sjálfstætt hafi hon-
um veriö útveguð aðstaða og geti
nýtt sér þau tæki sem til eru og með
þarf. „Þau vinna bara hér sjálf við
að skapa þessi listaverk og við köll-
um þessa stofu gjarnan listgallerí
eldri borgarbúa,“ segir hún.
„Við vorum öll saman á nám-
skeiði í fyrra og langaði að halda
áfram og nú mætum við á hverjum
einasta miðvikudagseftirmiðdegi
klukkan eitt og erum við vinnu til
hálffimm. Það er voðalega gaman
hjá okkur yfirleitt,“ segir Stella
Guðmundsdóttir sem var að búa til
fallegt gluggaskraut. „Við gætum
auðvitað gert þetta heima hjá okkur
en það er félagsskapurinn fyrst og
fremst sem maður sækir í því við
lærum mjög mikið hvert af öðru,“
segir Stella enn fremur. Ekkert
þeirra sem er í þessum hópi býr í
húsinu enda er þessi þjónusta öllum
opin. „Það er alltaf hægt að mynda
nýja hópa ef áhugi er fyrir hendi,
t.d. í glerlistinni, og þá setjum við
upp námskeið," segir Sigurbjörg.
Gallerí eldri borgara
„Aðalatriðið er að hafa eitthvað
að gera og hafa ánægju af því. Ég
hef mikla ánægju af að búa til úr
gleri," segir Stella sem sagðist eiga
stóra fjölskyldu og hafa búið til
tækifærisgjafir handa henni.
Það er draumur þeirra sem starfa
við glerlistina að setja upp sölusýn-
ingu á öllum þeim munum sem bún-
ir hafa verið til en hingað til hefur
þetta fólk einungis verið að búa til
handa sjálfu sér og þá til persónu-
legra gjafa.
En það er ekki bara glerlistin sem
gamla fólkið hefur áhuga á. Nú er
nýlokið myndlistarnámskeiði sem
þótti takast með eindæmum vel og
falleg listaverk, sem unnin voru á
því, hanga nú til sýnis 1 Gjábakka.
„Sá hópur hefur áhuga á að halda
Gamla fólkið lætur sér fátt um finnast með kennaraverkfall og aðra kjara-
þrætu í þjóðfélaginu og spriklar af miklum krafti undir stjórn Margrétar
Bjarnadóttur íþróttakennara.
Konurnar voru niðursokknar í hannyrðirnar enda hafa þær skapað sér
skemmtilegt andrúmsloft sem jafnast á við besta saumaklúbb.
Sigurbjörg Björgvinsdóttir, for-
stöðumaður Gjábakka.
DV-myndir Brynjar Gauti
áfram ef leiðbeinandinn hefur tíma,
svo vinsæl var myndlistin,“ útskýr-
ir Sigurbjörg.
Biðlisti á
enskunámskeið
Eitt vinsælasta námskeiðið sem
verið hefur er kennsla í ensku. Á
mánudögum fer enskukennsla fram
og komust færri að en vildu á fyrsta
námskeiðið svo væntanlega verður
framhald á því. „Það eru tólf núna í
ensku og við erum með biðlista."
Þeir sem vilja læra að skraut-
skrifa á afmæliskort eða jólapakka
þurfa ekki að vera í vændræðum
því í Gjábakka er líka kennd skraut-
skrift. Sigurbjörg segir að þar sé
líka biðlisti eins og er þannig að
varla verður kvartað yfir áhuga-
leysi eldri bæjarbúa í Kópavogi.
„Það þarf ekkert að hafa ofan af fyr-
ir öldruðum - þeir sjá alveg um það
sjálfir. Ég líki alltaf starfslokum við
stúdentsprófið, mér Finnst opnast
svo margir möguleikar til að taka
þátt hinu daglega lífi og gera það
sem mann langaði alltaf til að gera
en hafði ekki tíma til,“ segir Sigur-
björg. Sjálf fór hún í menntaskóla 45
ára gömul og síðan í félagsfræði í
Háskóla íslands.
Skemmtilegur
saumaklúbbur
í næsta herbergi við glerlista-
mennina voru konur í hóp með
handavinnu. Nokkurs konar sauma-
klúbbur en þó með leiösögn. „Hing-
að getur fólk komið mánudaga,
þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtu-
daga frá níu til fimm og hér er fólk
að gera allavega nluti,“ segir Sigur-
björg. Leiðbeinandi er Þórhildur
Gísladóttir og var hún að kenna
perlusaum og myndarammagerð
þegar okkur bar að garði. Á veggj-
Stella Guðmundsdóttir „glerlistakona" við störf sín en hún starfar án leið-
sagnar.
Jósafat Líndal, fyrrum sparisjóðsstjóri, og Sveinn Sæmundsson, sem átti
blikksmiðjuna Vog, voru niðursokknir í spilamennskuna.
um mátti sjá hinar margvíslegustu
hannyrðir jafnt heilu kirkjurnar
sem brúður, jólabjöllur og körfur
sem ætlaðar eru sem borðskraut eða
til að skreyta fermingar- eða brúð-
artertur. „Það er mjög skemmtilegt
að vera með konunum, þær eru
íjörugar og koma með margar góðar
hugmyndir. Ég hugsa að það séu
hátt í hundrað manns sem koma
hingað og læra hannyrðir,“ segir
Þórhildur. „Sumar konurnar koma
á hverjum degi en aðrar láta sér
nægja að koma einu sinni til tvisvar
í viku.“
Tuttugu námskeið
í Gjábakka eru yfir tuttugu nám-
skeið í gangi og góð þátttaka er í
þeim öllum. Þar er til dæmis sér-
stakur leiklistarhópur sem er um
þessar mundir að æfa nýtt íslenskt
leikrit sem sérstaklega var samið
fyrir eldri borgara i Kópavogi. „Það
verður frumsýnt í mars í félags-
heimili Kópavogs. Áður en hópur-
inn byrjaöi að æfa leikritið fór hann
á námskeið í framsögn en það var
Þórir Steingrímsson sem leiðbeindi.
í hádeginu er alltaf heitur matur í
hádeginu í Gjábakka fyrir þá sem
vilja notfæra sér þá þjónustu. „Það
er alltaf heitt á könnunni hjá okkur
og eldri borgarar eru allir velkomn-
ir og þeim er líka velkomið að bjóða
gestum í kafli,“ segir Sigurbjörg.
Spriklað tvisvar í
viku
Leikfimi er líka í boði fyrir eldra
fólkið en það er Margrét Bjarnadótt-
ir .iþróttakennari sem tekur fólkið
með sér í líkamsrækt tvisvar í viku.
„Þetta er allt saman ákveðin endur-
hæfing. Hver einasta hreyfing er
auðvitað endurhæfing. Það er alveg
ótrúlega hress hópur sem mætir i
leikfimina og Margrét hefur verið
frábær í starfi sínu,“ útskýrir Sigur-
björg enn fremur. Til gamans má
geta þess að gönguhópur er líka
starfandi þannig að þeir sem ekki
vilja sprikla hjá Margréti geta farið
í göngutúra en þeir miðast að sjálf-
sögðu við veður og færð.
í matsalnum ríkti mikill spenn-
ingur enda sátu menn og konur þar
og spiluðu, sumir upp á smáaura.
Þar var líka spiluð vist og bridge.
Það er greinilegt að margt er
hægt að finna sér til dundurs í Gjá-
bakka, eins og flestum öðrum félags-
heimilum aldraðra um land allt, og
er þá eftir að telja dansinn sem Her-
mann Ragnar Stefánsson sér um. Að
sögn Sigurbjargar er þétt skipað
dansgólfið þegar dansæfingar
standa yfir og mikið fjör í húsinu.
Fimmtíu manna kór er einnig starf-
andi. Og er svo einhver að kvíða ell-
inni. . . ?