Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1995, Page 15
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995
15
Niðurstöður skoðanakönnunar DV
um fylgi stjómmálaflokkanna og
ríkisstjómarinnar fyrr í þessari
viku eru um margt forvitnilegar.
Athygli vekur hve ríkisstjórnin
hefur styrkt stöðu sína nú í lok
kjörtímabilsins. Fylgið við hana
nálgast vinsældir hennar á hveiti-
brauðsdögunum fyrir fjórum
árum. Verður það að teljast vel af
sér vikið þegar haft er í huga að
hér á landi hefur verið kreppa í
atvinnu- og efnahagslífi allt kjör-
tímabilið.
Stjórnarílokkarnir hvor um sig
geta líka eftir atvikum vel viö nið-
urstöðurnar unað. Samkvæmt
kosningaspá DV héldi Sjálfstæðis-
flokkurinn fylgi sínu frá kosning-
unum 1991 og ber höfuö og herðar
yfir aðra stjómmálaflokka. Al-
þýðuflokkur hefur veikst taisvert
en sækir á. Staða hans skýrist
áreiðanlega fremur af klofningi og
innanflokksdeilum annars vegar
og SRillingarstimpli hins vegar en
vantrú á störf hans að landsmálum
í ríkisstjórninni.
Framsóknarflokkur
sterkur
Af stjórnarandstöðuflokkunum
er Framsóknarflokkurinn sterk-
astur. Hann hefur aukið fylgi sitt
vemlega frá síðustu kosningum og
er spáð þremur nýjum þingmönn-
um. Þetta er athyglisvert í ljósi
þess hve varfærinn flokkurinn hef-
ur verið í stjórnarandstöðu. Vel
má vera að nýlegur boðskapur
flokksins um stórfellda skuldbreyt-
ingu fyrir heimihn sé að skila sér,
en að öðru leyti er ekki hægt að
greina málefnalega sókn.
Fylgi Þjóðvaka hefur dalaö jafnt
og þétt undanfarnar vikur. Við
þessu mátti svo sem búast, en
heimiliserjurnar þar á bæ kunna
aö valda því að fylgið dvíni enn
frekar á næstu vikum og blaðran
verði að mestu sprungin fyrir
kosningar. Að minnsta kosti er
ólíklegt að Þjóðvaki nái uppsveiflu
á ný.
Fylgishrun Kvennalistans kemur
ekki á óvart. Sérstaðan sem laöaði
kjósendur aö flokknum er horfin
eftir framboðsraunirnar í Reykja-
neskjördæmi og þátttökuna í R-
listanum í Reykjavík. Nú er al-
mennt Utið á KvennaUstann sem
einn af hinum hefðbundnu flokk-
um. Glöggur maður, sem vel þekk-
ir til KvennaUstans, kaUaði hann
„kerfiskarlaflokk" hér í blaðinu í
vikunni. Heföi slík nafngift á
flokknum einhvem tíma þótt tíð-
indum sæta, en nú kippir sér eng-
inn upp við það.
Alþýðubandalagiö virðist ekki
ætla að ná neinni fótfestu í stjórn-
arandstöðu. Fylgi flokksins dregst
saman í stað þess að aukast. Svo
er að sjá sem flokkurinn sé búinn
að glata því aðdráttarafh sem hann
áður hafði meðal ýmissa hópa.
Stuðningur „óháðra" undir forystu
Ögmundar Jónassonar við flokk-
inn virðist ekki ætla að skila nein-
um árangri. Ef eitthvað er má frek-
ar segja að gert sé gys að þessum
feluleik með nöfn og númer.
Stuttbarátta
en snörp
Aðeins sjö vikur eru þar til kosið
verður til Alþingis. Eiginleg kosn-
ingabarátta er ekki hafln heldur
eru flokkamir nú að undirbúa
hana með margvíslegum hættí,
skipulagningu funda, útgáfu og
kynningarstarfs. „Hrinan" skellur
Uklega á með fuUum þunga í mars-
mánuði þegar Alþrngi hefur lokið
störfum og þingi Norðurlandaráðs
í Reykjavík er lokið.
Að frumkvæði Sjálfstæðisflokks-
ins hafa fulltrúar flokkanna rætt
Fylgi flokkanna
- frá kosningum 1991 til febúar 1995 -
um að takmarka auglýsingar í út-
varpi og sjónvarpi. Samstaða virð-
ist vera um það meðal allra flokka
nema Alþýðuflokks sem dregur
lappirnir og hefur fahð Jóni Bald-
vini að kveða upp úr í máUnu. SUk-
ar takmarkanir kunna að vera
skynsamlegar frá fjárhagssjón-
armiði flokkanna, en rökin fyrir
því að þær séu einhver sérstakur
greiði við okkur kjósendur eru
langsóttari.
Óhlutdræg
umfjöllun
Að venju mun DV bjóða lesend-
um upp á óhlutdrægar upplýsingar
um frambjóðendur og framboðs-
lista. Blaðamenn okkar munu
fylgjast með framboðsfundum í öU-
um kjördæmum og greina frá því
sem efst er á baugi í kosninghabar-
áttunni hverju sinni. Þá mun les-
endum gefast kostur á að leggja
Laugardags-
pistillinn
Guðmundur Magnússon
fréttastjóri
spurningar fyrir forystumenn
stjórnmálaflokkanna. Og skoðana-
kannanir verðá gerðar öðru hverju
fram að kjördag.
í orrahríð kosninga þegar stjórn-
málaflokkarnir beijast um völdin
í landinu er hætt við að upplýs-
ingar þeirra og málflutningur verði
heldur einhliða. Hlutverk frjálsra
og óháðra fjölmiðla er Uklega aldr-
ei mikilvægara en við slíkar að-
stæður. Trúnaður DV er við les-
endur sína enda er það forsenda
fyrir lífi blaðsins og góðri heilsu.
Auðvitað verður aldrei svo gert að
öUum líki og vafalaust munu flokk-
amir aUir hafa yfir einhverju að
kvarta við blaðið þegar leikurinu
stendur sem hæst. í augum okkar
sem hér störfum skiptir mestu að
hinn almenni lesandi, sem ekki lif-
ir og hrærist í stjómmálabarátt-
unni, finni það að blaðið leggur
sjálfstætt og sanngjarnt fréttamat
á hlutina en lætur málgögn og
málpípur flokkanna um hið flokks-
póUtíska mat.
ÁframViöreisn?
Stóm tíðindin í síðustu könnun
DV voru að gengju niðurstöður
kosningaspárinnar, sem á henni er
byggð, eftir í væri unnt að mynda
þriggja flokka vinstri stjóm. Tíð-
indin í nýju könnuninni eru aö
þetta er ekki lengur hægt. Mögu-
leikar Sjálfstæðisflokksins til aö
mynda tveggja flokka stjórn hafa á
hinn bóginn aukist. Nú gæti hann
- tæknilega að minnsta kosti -
myndað stjórn hvort sem er með
Alþýðubandalaginu eða Fram-
sóknarflokknum.
Vinstri stjórn yrði hins vegar
ekki mynduð nema með þátttöku
fjögurra flokka. Og fylgi Kvenna-
listans mælist svo lítið að ástæðu-
laust er að sinni að taka hann með
í reikninginn í vangaveltum um
næstu ríkisstjórn.
Samkvæmt kosningaspá DV hafa
núverandi stjórnarflokkar ekki
nægan meirihluta til að mynda rík-
isstjóm saman á ný einir. Svo virð-
ist hins vegar sem báðir flokkarnir
séu jafnt og þétt að auka fylgi sitt
og ekki er hægt að útiloka að þegar
upp er staðið fái þeir tilskilinn
meirihluta. Verði það niðurstaðan
verður áreiðanlega mjög þrýst á
áframhaldandi samstarf þeirra.
Þrátt fyrir mikla erfiðleika í stjórn-
arsamstarfinu á tímabih hafa
flokkamir náð raunverulegum ár-
angri og gætu orðiö samstíga í hin-
um stærri málum, svo sem afstöðu
til Evrópusambandsins. í því efni
mega menn ekki láta ákafa Jóns
Baldvins annars vegar og tregðu
Davíðs Oddssonar hins vegar villa
sér sýn.
Þótt vikurnar sjö sem eru til
kosninga séu ekki langur tími get-
ur ýmislegt gerst sem breytir þeim
forsendum sem hér er gengið út
frá. Það eru gömul sannindi að vika
er langur timi í póhtík. Og sjö vikur
em enn þá lengri tími!
>; ; ,íV>,
Að sjálfsögðu hafa háttvirtir kjósendur síðasta orðið.
sH ■ ?• v.
Æ: . ■H
W ÍFI
(i s m 1 ® ÆKr