Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1995, Page 26
26
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995
f ÝMSIR MÖGULEIKAR
V
Til sölu er rúmgóð sérhæð ásamt bílskúr á Reyðar-
firði. Parket, flísalagt bað og mjög glæsilegt útsýni.
Fasteignagjöld og hitakostnaður er ódýrari í sérbýli.
Útborgun getur verið 0 kr. Skipti á íbúð í Reykjavík
er möguleg. Reyðarfjörður er miðpunktur Austur-
lands. Stutt í allar áttir og ýmsir atvinnumöguleikar.
Uppl. gefur Þorgrímur í síma 568-1107.
i—i—i—rzr ~l f rT: .h»i.? CARPUR 860 \
Erum með króka-
leyf isbát í smíð-
um af gerðinni
Garpur 860.
Bátasmiðjan sf.
Stórhöfða 35
112 Reykjavík
Sími 91-5878233.
Anatoly Karpov hefur náð sér aftur á strik.
UPPBOÐ
Eftírtaldar bifreiðir verða boðnar upp að Melabraut 18, Hafnarfirði, lauqar-
daginn 25. febrúar 1995 kl. 13.30:
BH-775 BP-688 BX-012 DT-127 EP-776 FÖ-355 FÖ-472
FL-611 FM-290 FM-621 FO-169 FP-550 FX-412 FÞ-222
FÞ-322 GD-316 GH-483 GH-887 GI-977 GÖ-321 GJ-067
GJ-159 GJ-287 GK-477 GL-338 GN-169 GN-471 GP-396
GP-849 GS-254 GS-808 GT-529 GU-138 GV-530 GY-226
GZ-277 HA-563 HD-869 HF-339 HF-668 HG-175 HJ-774
HJ-818 HJ-959 HK-345 HK-888 HL-477 HL-496 HL-812
HL-823 HM-888 HN-758 HO-132 HO-509 HO-626 HR-520
HS-790 HT-978 HU-560 HU-717 HV-933 HX-403 HZ-692
HZ-894 HZ-944 IA-038 IA-234 IA-328 IA-498 IA-538
IA-881 IB-366 IB-847 IC-309 ID-326 IE-093 IE-435
IF-782 IF-797 IG-260 II-683 II-773 IÖ-254 10-416
IK-023 IK-186 IK-410 IM-608 IM-643 IM-877 IM-907
IO-454 10-830 IP-369 IP-923 IR-746 IT-322 IT-722
IU-603 IV-593 IV-729 IV-980 IX-495 IX-834 IY-317
IY-418 IÞ-271 IÞ-533 IÞ-637 JB-802 JB-832 JC-784
JD-422 JI-729 JI-973 JÖ-253 JÖ-378 JJ-356 JJ-937
JM-236 JO-714 JP-290 JP-324 JR-535 KE-497 KF-105
KF-921 KM-640 KS-259 KS-833 KV-080 LA-656 LB-265
LD-687 LF-727 LG-515 LI-454 LM-396 LP-393 LR-971
LT-313 MA-265 MB-484 MB-747 MB-879 ME-922 MF-602
MH-265 MM-583 MM-947 MS-158 MS-608 NB-320 NX-438
OA-270 OR-449 OS-581 PI-290 PO-630 RB-974 RU-914
RX-888 SD-544 SE-369 SS-661 TA-085 TF-843 TJ-232
UD-618 UH-197 UL-175 UL-507 UP-969 US-616 UT-084
VJ-384 XN-242 XO-409 ZJ-021 ZU-683 ÞA-033 ÞA-034
Vænta má að greiðsla verði áskilin við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN í HAFNARFIRÐI
í
Sparidagar á
Hótel Örk
Holl hreyfing og
útivera,
skemmtun, glens
og gaman alla
daga.
Ókeypis aukanótt
Sparidagarnir lengjast um einn dag ykkur að kostnaðarlausu
og hcfjast nú með kynningarfundi og kvöldverði á sunnu-
dagskvöld svo að dagskráin geti byrjað af fullum krafti strax
á mánudagsmorgun.
Innifalið:
Gisting, morg-
unverður af
hlaðborði, þrí-
réttaður kvöld-
verður og eld-
íjörugt félagslíf
undir stjóm
Sigurðar Guð-
mundssonar alla
daga og kvöld.
Sparidagar verða:
5., 12., 19. og
26. mars, 2. apríl
Verð kr. 15.800
fyrir manninn í 5 daga í tvíbýli.
Aukagjald fyrireinbýli kr. 1.500
á nótt.
Átthagafélög i Reykjavík athugið!
Nú er vinsœll að hilta gamia vini og kmningja ú sparidög-
um á Hótel Örk.
Kynnið ykkur hvenœr sveitungarykkar verða á sparidögum
og bókið sömu daga.
\
&
>H HÓTEL ÖÐK^
HVERAGERÐI, sími 98-34700. Fax 98-34775
Áskorendaeinvígi FIDE á Indlandi:
Karpov
stefnir á sigur
- og Kamsky burstar Salov
Anatoly Karpov hefur náð sér aftur
á strik í áskorendaeinvíginu við Bor-
is Gelfand í Sanghi Nagar á Indlandi
eftir óvænt tap í þriðju skákinni.
Karpov jafnaði strax í fjórðu skák-
inni og náði síðan forystunni með
sigri í þeirri sjöttu. Enn getur þó allt
gerst í einviginu sem er tíu skákir.
Einvígi Gata Kamsky og Valery
Salov er á hinn bóginn lítt spenn-
andi. Salov hefur aðeins náð tveimur
jafnteflum í sex skákum - staðan var
5-1 Kamsky í vil er þetta er ritað og
nægði honum þá aðeins eitt jafntefli
til viðþótar til þess að komast áfram.
Meira líf er utan skákborðsins eins
og jafnan þar sem Kamsky-feðgar
koma. Rustam, faðir Gata, er örgeðja
og vílar ekki fyrir sér að láta hendur
skipta ef honum mislíkar eitthvað.
Ekki þykir sérlega heppilegt að fá
hann upp á móti sér, ekki síst vegna
þess að hann er fyrrverandi hnefa-
leikakappi. Bandaríski stórmeistar-
inn Shabalov, aðstoðarmaður Gata á
Indlandi, gerði sig sekan um þau
„mistök" að eiga sem snöggvast orða-
stað við Boris Gelfand í byrjun
keppninnar. Ekki var Rustam
ánægður með það - trúlega vegna
möguleikans á því að þeir Gata mæt-
ist í úrslitaeinvígi. Þegar Shabalov
frétti af reiði föðurins taldi hann
vissara að segja starfi sínu lausu og
hverfa af landi brott.
Sigurvegarar einvígjanna munu
tefla innbyrðis um „heimsmeistara-
titil FIDE“ en ef áætlun Kasparovs
og Campomanesar gengur eftir mun
sigurvegarinn mæta PCA-meistaran-
um á næsta ári í sameinuöu einvígi
um heimsmeistaratitilinn. Hugmynd
þeirra er sú að einvígið 1996 verði
beint framhald heimsmeistara-
keppninnar áður en PCA kom til
sögunnar og þar muni Kasparov tefla
sem þrettándi heimsmeistarinn.
Þetta merkir væntaniega einnig aö
hann muni halda titlinum á jöfnu.
Skákmeistararnir í Sanghi Nagar
eru ekki sáttir við þessa túlkun og
hafa þrír þeirra - Karpov, Kamsky
og Salov, undirritað skjal þess efnis
að þeir líti svo á aó sigurvegarinn í
áskorendaeinvígjum FIDE hljóti að
teljast heimsmeistari í skák. Hins
vegar vekur athygli að Gelfand skrif-
ar ekki undir þessa yfirlýsingu.
Umsjón
Jón L. Árnason
Rennum yfir sjöttu skákina í ein-
vígi Karpovs við Gelfand. Handbragð
Karpovs leynir sér ekki. Um miðbik
skákarinnar er langur kafli þar sem
ekkert viröist vera að gerast en samt
tekst Karpov að bæta tafl sitt jafnt
og þétt. Lokaatlagan kemur ekki fyrr
en allt er haganlega undirbúiö.
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Valery Salov
Benkö-bragð.
1. d4 RfB 2. c4 c5 3. d5 b5 4. cxb5 a6
Mótbragð stórmeistarans Paul
Benkö er kjörið vopn gegn léttvæg-
um mótherjum en tilfmningin er sú
að nú sé 'Gelfand að leggja spilin í
hendur Karpovs sem þekktur er fyr-
ir óaðfmnanlega tækni sína. Hins
vegar er auðvelt að vera vitur eftir á.
5. bxa6 g6 6. Rc3 Bxa6 7. e4 Bxfl 8.
Kxfl d6 9. g3
Þótt hvítur hafi misst hrókunar-
réttinn kemur það ekki að sök því
aö hann getur hrókað „með höndun-
um“ og komiö lagi á liðsskipan sína.
9. - Bg710. Kg2 Rbd711. RÍ3 0-012. h3
Mikilvæg varúðarráðstöfun því að
annars losaði svartur um taflið meö
tilfærslunni Rf6-g4-e5 o.s.frv.
12. - Ha6 13. Bg5 h6 14. Bd2 Da8 15.
Hel Hb816. b3 Re817. He2 Rc718. Hcl
Ha7 19. Dc2 Ra6 20. Ra4 Rb4 21. Bxb4
Hxb4 22. Dd3
Nú tekur við kafli þar sem ekkert
virðist vera að gerast en samt tekst
Karpov að bæta stöðu sína agnarögn.
Svartur getur a.m.k. lítið aðhafst.
22. - Ha5 23. Hec2 h5?
Þessi litli peðsleikur gerir hvítum
auðveldara fyrir að bijóta sér leiö að
svarta kónginum.
24. Hc4 Hb8 25. Dd2 Hab5 26. Hlc2
H5b7 27. De2 Ha7 28. Hd2 Ha5 29. Hdl
Da6 30. Hd2 Bh6 31. Hdc2 Bg7 32. De3
Da8 33. Hd2 Ha7 34. Hdl Hb5 35. De2
Hb8 36. Rd2 Rb6 37. Rxb6 Hxb6 38. a4
Bh6 39. f4 h4
w
I A k
X X XÍL X A
A S A & 1
A & &
A B &W & C D E F G H
40. Dg4 hxg3 41. h4!
Eins og hendi sé veifað opnar hvít-
ur taílið kóngsmegin og svartur fær
ekki rönd við reist. Þungu mennirnir
eru fjarri vígvellinum.
41. - Kh7 42. h5 Dg8 43. Hc3 f5 44.
hxg6+ Dxg6 45. Dh4! Df6 46. Hhl fxe4
47. Hxg3 Hb4 48. Dg4!
Lakara er 48. - Dxf6 49. exf6 50.
Hgh3 Hg7+ 51. Kfl Hg6 52. f5 Kg7 53.
fxg6 Bxd2 o.s.frv.
48. - Ha8 49. Hgh3
Og Gelfand gafst upp.
ArnarNorður-
landameistari
Arnar E. Gunnarsson hélt uppi
merki íslendinga á Norðurlandamót-
inu í skólaskák, einstaklingskeppni,
sem fram fór á Laugarvatni um síö-
ustu helgi. Arnar fékk jafnmarga
vinninga og Finninn Salmesuii og
Norðmaðurinn Bae en varð hærri á
stigum.
íslendingar hafa löngum verið sig-
ursælir í þessari keppni, einkum í
yngri flokkunum en aö þessu sinni
var heppnin ekki með. Magnús Örn
Úlfarsson varð í 5. sæti og Páll Agnar
Þórarinsson í 7. sæti í flokki 18- 20
ára; Bragi Þorfmnsson og Jón Viktor
Gunnarsson deildu 4. sæti í flokki
14-15 ára; Davíð Kjartanson varð í
2. sæti og Sigurður Páll Steindórsson
í 6. sæti í flokki 12-13 ára og í flokki
11 ára og yngri urðu Guðjón Val-
garðsson í 5. sæti og Hlynur Haf-
liðason í 10. sæti.
Þegar samanlagður árangur kepp-
enda einstakra þjóða var lagður sam-
an höfnuðu íslendingar í 3. sæti en
Svíar uröu hlutskarpastir og Finnar
í 2. sæti.