Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1995, Qupperneq 34
42
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995
Tíska
Sumartískan litaglöð:
Konurnar verða
sumarlegar og sætar
- og bleikur litur verður vinsælastur
Konur eiga aö vera kvenlegar í
sumar. Þær eiga að hafa brjóst og
mjaðmir, ganga í hnésíðum litaglöð-
um pilsum og jökkum. Undirfötin
eiga að hjálpa konunni að fá ítur-
vöxt og líkjast þau nú meira lif-
stykkjum þeim sem mömmur okkar
og ömmur gengu í. Reyndar er öll
tíska svolítið í anda sjötta áratugar-
ins jafnt hvað varðar snið og liti. Þó
er ein nýjung mjög í tísku sem ekki
var til á þeim tíma en það er Wond-
erbra brjóstahöld en þau hjálpa kon-
um til að sýnast brjóstameiri en
þær eru í raun. Það vekur mikla at-
hygli í undirfatatísku kvenþjóðar-
innar hversu nærbuxur eru orðnar
fyrirferðarmiklar og ná alveg upp í
mitti.
Dragtir eru enn mjög í tísku og
nú í svokallaðri A-línu. Jakkarnir
eru aðskornir í mittið og gjarnan
með belti. Hnésíddin er nær allsráð-
andi en einstaka hönnuður heldur
sig þó líka við stuttu pilsin. Þá
leggja nokkrir tískuhönnuðir
áherslu á að líkami konunnar eigi
að sjást, að minnsta kosti mallakút-
urinn, því oft eru jakkar og peysur
svo stuttar að bert er milli laga.
Hvítir stuttir sokkar
Þá verða pastellitir allsráðandi,
bleikir, fjólubláir, ferskjulitir, ljós-
rauðir. Bleiki liturinn er þó sá lang-
vinsælasti og nefndur litur sumars-
ins.
Skór í litum
Háhælaðir skór í öllum regnbog-
anslitum þykja nú flottastir og því
miður fyrir parketgólfm þá eru hæl-
arnir að mjókka og sumir jafnvel
skreyttir með stáli. En hvað sem
öðru líður verður ekki annað sagt
en kvenþjóðin verði sumarleg og
sæt þegar vorar í lofti. Myndirnar
hér á síðunni eru teknar úr nýjum
erlendum tískublöðum og ættu að
skýra sig að mestu sjálfar.
Á nýjustu myndum um tísku
sumarsins má sjá að hvítir sport-
sokkar eru áberandi við hnésíðu
sumarkjólana. í kvöldklæðnaði er
það hins vegar glamúrinn sem ræð-
ur ríkjum. Tískan virðist sótt til
margra tímabila, 1930, 1940, 1950 og
1970. Satín virðist vinsælt og stutt-
buxur breytast í kvöldklæðnað.
Sparikjólar eru hnésíðir en einfald-
ir í sniði, gjarnan með rúnnuðu
hálsmáli.