Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1995, Side 38
46
LAUGARDAGUR 18. FEBRUAR 1995
Sviðsljós
Cicciolina með soninn Ludwig sem er tveggja ára. Hún hefur snúið baki við fyrra lífi og vill komast á þing á ný til
að berjast fyrir réttindum barna.
Á þinginu í Róm 1987.
daginn,“ greinir Cicciolina frá.
„Hann fór aö hegða sér undarlega.
Það mátti merkja að hann vanvirti
mig og næstum hataði.“ Cicciolina
segir Koons hafa drukkið mikið og
tekið bólfélaga með sér heim. Hann
hafi einnig barið hana.
Hefur snúið baki
við fyrra lífi
Cicciolina kveöst hafa snúið baki
við sínu fyrra lífi. Hún sé samt sem
áður listaíkona og muni reyna að
vinna fyrir sér og syninum. Hún á
fjórar íbúðir á Ítalíu og væntanlega
mun hún fá vænan lífeyri sem fyrr-
verandi þingmaður.
Heimaland sitt, Ungverjaland, yf-
irgaf Cicciolina 1972 tilþess að verða
ljósmyndafyrirsæta. „Eg var sáras-
aklaus. í kommúnistalöndum fyrir-
fannst ekki klám,“ útskýrir hún.
Þegar hún kynntist því þótti henni
ekkert athugavert við það. „Ég fór
að græða stórfé og fólk úti á götu
Cicciolina í
felum með soninn
Ólyginn
... að Melanie Griffith hefði lýst
því yfir að hún gæti ekki án Dons
Johnsons verið og því hefði hún
tekið hann í fang sér á ný. Mel-
anle segir Don besta elskhuga í
heimi og þann rómantiskasta,
það er að segja þegar hann er
odrukkinn.
... að Rod Stewart hefði heimt-
að rúma tvo milljarða í skaða-
bætur af fyrrum ráðskonu sinni,
Carole Bodman. Hún á að hafa
selt vikublaði frásagnir af lífí
Rods og ýmissa Holiywood-
stjarna. Carole þénaði vel á
meðan hún vann hjá Rod. Hún
hafði hús til umráða og bíl og
fékk að umgangast fina fófkið.
Rod ieitar nú huggunar hjá eigin-
konunni Rachei.
... Michael Jackson og Lisa
Marie kona hans væru að reyna
að lappa upp á hjónabandið með
þvf að fara i spennandi ferðalög
saman. Þau voru nýlega i Ghana
í Afriku þar sem Michael var út-
nefndur heiðurskonungur a<
Sanwi. M||
,Cicciolina, frægasta klámdrottning
heims, öðru nafni Ilona Staller, er í
felum með tveggja ára son sinn í fjöll-
um Ítalíu. Hún veitti nýlega blaðinu
The European viðtal þar sem hún
segir frá raunum sínum.
Samkvæmt frásögn Cicciolinu var
hjónaband hennar og skúlptúristans
Jeffs Koons dauðadæmt frá upphafi.
Þau giftu sig í Búdapest 1991. Tveim-
ur árum seinna, eða í desember 1993,
tókst Koons að komast með Ludwig
son þeirra frá Ítalíu. Fljótlega dæmdi
bandarískur dómstóll honum for-
ræði yfir baminu. Cicciolina hélt til
New York þar sem henni tókst aö fá
dómstól til að úrskurða að henni
væri heimilt að búa á heimili Koons
til að geta verið nálægt barninu. Að
sex mánuðum liðnum flúði hún til
Rómar með soninn. Síðan hefur hún
verið í felum. Þann 21. febrúar næst-
komandi mun dómstóll í Róm úr-
skurða hvort Cicciolina fái forræði
yfir Ludwig samkvæmt ítölskum lög-
um.
*
Hlautheimsfrægð er
hún var kosin á þing
Cicciolina varð heimsfræg 1987 er
hún var kosin á þing. Á stefnuskrá
flokks hennar, Róttæka flokksins,
voru frjálsar ástir og frjálst kynlíf.
Cicciolina er nú sannfærð um að
fyrrverandi eiginmaður hennar hafi
ætlað að notfæra sér frægð herinar
til að koma sjálfum sér á framfæri í
Evrópu. Hann skipulagði hstræna
samvinnu þeirra. Cicciolina hreyfði
engum mótmælum þegar hann, fyrir
hjónabandið, fékk hana til að afsala
sér nær öllum tekjum af samvinnu
þeirra. Fullyrt er að hann hafi þénað
hundruð þúsunda dollara á myndum
og höggmyndum af Cicciolinu.
„Martröðin byrjaði á brúðkaups-
þekkti mig. Ég var orðin vinsæl. Og
þá ákvað ég að taka þátt í stjórnmál-
um til að berjast fyrir fijálsum ást-
um,“ bætir hún við.
Núna snýst hugur Cicciolinu um
framtíð sonarins og rétt hans og allra
annara barna á Ítalíu. Hún hefur hug
á að komast aftur inn á þing. Orð-
rómur er á kreiki um að hún ætli að
bjóða sig fram fyrir Þjóðarbandalag
Gianfrancos Finis sem er fyrrum
flokkur nýfasista. „Mig langar til að
berjast fyrir því að settur verði á
laggirnar sérstakur dómstóll þar sem
fjallað verður um rétt barna.“
Frægasta verk Jeffs Koons er stytta í fullri líkamsstærð af honum sjálfum Cicciolina i París fyrir tveimur árum.
og Clcciolinu.
... að Albert prins af Mónakó
langaði til að láta græða hár á
hnakkann á sér meö leysigeisl-
um. Sagt er að tekið verði hár
annars staðar af höfðinu til að
græða á hnakkann. Aðgerðín
mun líklega kosta nærri elnni
milljon króna.
...að Rowan Atkinson, sem
margir muna eftlr í htutverki
herra Bean, ætti von á öðru bami
sínu innan skamms með Sunetru
konu sinni. Fyrir eiga þau
tveggja ára son.