Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1995, Síða 47
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995
55
Jeppar
Til sölu Nissan Patrol '87, dísil,
upphækkaður, 33” dekk. Uppl. i síma
98-33495 eða 985-25741.
Til sölu Ford Econoline 250,
ClubWagon, 7,3 dísil, árg. ‘88, ekinn 48
þús. km, Dana 60 aftan og framan, 38”
dekk, 6 tonna spil, skráður fyrir 11 far-
þega. Verð 2,6. Skipti á dýrari jeppa
ath. Uppl. í síma 581 4826 og 985-
25068.
Willys CJ5 ‘79, Dana 44 aö framan og aft-
an, nospin að aftan, diskabremsur, ný-
upptekin AMC 360 cc vél, 4 gíra Borg
Warner gírkassi, Dana 18 millikassi,
39” dekk o.fl. Athuga skipti. Uppl. í
síma 94-6282 eóa 94-6161.
Willys CJ5, árgerö ‘74,350 vél, flækjur, 4
gíra, 38” dekk, auka tankur, veltibúr,
nýskoóaður, körfustólar, ný blæja, lítur
mjög vel út. Verð 450 þúsund. Ath.
skipti á ódýrari. Upplýsingar í síma 91-
877701.
Merming
Tríó Bjöms Thorodd-
sens og Egill Ólafsson
Á Háskólatónleikum 1 hádeginu síðastliðinn miðvikudag lék Tríó Björns
Thoroddsens gítarieikara sem auk hans sjálfs er skipað þeim Ásgeiri
Óskarssyni trommuleikara og Gunnari Hrafnssyni kontrabassaleikara.
Með þeim söng Egill Ólafsson. Ekki veit ég hvort þessir hádegistónleikar
eru almennt mjög vinsælir en svo má ætla af aösókninni í þetta skiptiö.
Nema aö Egill sé svona vinsæll. Alla vega voru áheyrendur fleiri en venju-
lega má búast við aö komi til að hlýða á djass. Flutt voru funm lög eftir
þá Egii og Björn og eitt aukalag eftir D. Eliington. Fyrst var flutt lag
Egils, Bara að nóttin kæmi, við ljóð Nínu Bjarkar Árnadóttur, inspírerað
af setningu úr munni Steinars Sigurjónssonar: „Þetta brimandi (fremur
en „brennandi" heyrðist mér) ho!d“. Lag meö ekki alvenjulegustu hljóma-
samsetningu, maður fagnaði venjulegum dim-hljómi, annars með sterkum
höfundareinkennum höfundarins. Reyndar virðist margt sem Egill syng-
ur vera meö höfundareinkennum hans, þótt eftir aðra sé. Hann er svo
máttugur söngvari og setur svo sterkan svip á þau verk sem hann flyt-
ur. Lagið Híf opp er líka eftir Egil og vitnar titill þess til 23. pistils Fred-
mans Bellmanssonar. í þvi beitti Egill röddinni eins og um íjórða hljóð-
færiö í hljómsveitinni væri að ræða. Auðvítað er rödd líka hljóðfæri, eins
og söngvarar keppast ávallt við að segja. En hér var hún meira eins og
eitthvert blástursinstrúment sem kallaðist ó við hin hljóðfærin, þau voru
öll eins og vel aðgreind í fyrstu en runnu svo saman í þægilegri heild.
Fínt lag.
Völuspá eftir Björn er blúslag, í svolítið Bleikum Pardus stíl, sem um
nokkra hrið hefur veriö á efnisskrá Thoroddsens og stendur vel f>TÍr
sínu. Meira spennandi var þó að heyra eftir hann Hlut af stærra verki,
en svo nefndist íjórða lagið. Ekki var það langt, enda bara pars pro toto,
Djass
Ingvi Þór Kormáksson
en skemmtilegt. Gott bassasóló hjá Gunnari. Öll hans sóló eru lítil lög.
Af hverju er þessí maður ekki lagasmiður? Orðlaus söngur Egils í þessu
lagi var ekki með eins miklu norðurhjarayíirbragði og áður i laginu Hif
opp, heldur heitari og eins og meira suðrænni líkt og hjá söngmanninum
hjá Pat Metheny hljómsveitinni, og mikið í falsettu hreinni og tærri.
Mikil og góð dýnamik hér og vert að minnast á þátt Ásgeirs Óskarssonar
svo smekklegur sem hann var. Gegnum holt og hæðir heitir lag úr söng-
leiknum Gretti sem rak næstum því lestina. Höfundur Egill Ólafsson og
Björn búinn að hita vel upp og kom með glimrandi sóló. Svo var klappað
upp og „Mood Indigo" flutt. Sætt. Ég á eiginlega ekki annað orð yflr það
en sætt. Bassasólóið gaf sannarlega til kynna hversu andlega skyldur
Gunnar hlýtur að vera honum Cleveland Eaton sem einu sinni lék með
Ramsey Lewis tríóinu en er núna i Count Basie bandinu. Ekki meira um
það. Aldrei. En það er ekki leiðum að líkjast. j
Sjávar-
föll
Sinfóníuhljómsveit íslands hélt fjórðu áskriftartónleika sína í rauðu
tónleikaröðinni sl. fimmtudagskvöld í Háskólabíói.
Tónleikarnir hófust á Fjórum sjávarmyndum úr óperunni Peter Grimes
eftir Benjamin Britten. Myndirnar eru fjórar: Dögun, Sunnudagsmorg-
unn, Mánaskin og Stormur.
Það var hinn ágæti stjórnandi Petri Sakari sem stýrði hljómsveitinni
að þessu sinni en eins og kunnugt er hefur samstarf hans og hljómsveitar-
innar vakið heimsathygli fyrir vönduð vinnubrögð. í ljósi þessa ágæta
árangurs fer ekki hjá því að maður spyrji: Hvað oíli þeirri deyfö sem
hvíldi á leik hljómsveitarinnar þetta kvöld? í fyrstu tveim þáttunum,
Dögun og Sunnudagsmorgni, bar einnig á því að nokkrir hljómsveitarmeö-
limir svöruðu seint slagi hljómsveitarstjórans sem er að sjálfsögðu óafsak-
anlegt. Það vill svo til að undirrituðum er kunnugt um að færri æfingar
voru fyrir þessa tónleika en endranær en það breytir engu.
Rannveig Fríöa Bragadóttir söng með hljómsveitinni verkið' Sjávar-
myndir eftir Edward Elgar. Af hverju þessi frábæra söngkona kaus að
flytja þetta verk er undirrituðum hulin ráðgáta. Verkið er skrifað fyrir
Tórúist
Áskell Másson
kontralto en rödd Rannveigar er messó-sópran sem gerir að tessitúra
verksins er svo lág að fögur rödd söngkonunnar náði aldrei að blómstra.
Þar við bætist að hinir fimm þættir verksins eru hver öörum líkir, bæði
að innihaldi, svo og hljómi. Meðhöndlun tónskáldsins á hljómsveitmni
(orkestrasjónin) er keimlík allt verkið í gegn og karakterlítil og á stund-
um, eins og t.d. í öðrum þættinum, jaðrar tónlistin við aö vera væmin.
Rannveig söng vel en rödd hennar barst illa vegna framansagðra ástæðna
og vonandi fáum við fljótlega aö heyra söngkonuna takast á við verðugra
verkefni með hljómsveitinni.
Tónleikunum lauk með Sinfóníu nr. 6 op. 74 í h-moll, „Pathetique“-
sinfóníunni eftir Pjotr Tsjajkovskí. Þetta magnaöa verk naut sín ekki sem
skyldi að þessu sinni - hvar var nákvæmnin sem maöur á að venjast frá
hljómsveitinni? Það rofaði þó til því eftir kraftmikið skersóið var eins og
sveitin vaknaði af Þyrnirósarsvefni og lék hún síðasta þátt verksins af
þeirri þrungnu tilfmningu sem sú tónlist krefst. Þetta er greinilega allt
þarna en lá í dróma þar til undir lokin.
Ford Econoline 350 dísil, 7,3 I, ‘92,
loftlæsing, loftdæla, Dana 60 hásingar,
44” nagladekk, aukaolíutankur, 6 stól-
ar o.m.fl. Verö 3,8 milljónir.
í slma 91-811930.
Daihatsu Feroza EL-i ‘90, ek. 91 þ. km,
silfurlitur, 5 gíra, 31” dekk, krómfelg-
ur, gott eintak, ath. ýmis skipti.
Bílakringlan, Keflavík, 92-14690, 92-
14242.
Gullmoli.
Rauóur Cherokee Laredo, árg. ‘88,
41,4ra dyra, sjálfskiptur, með öllu, inn-
fluttur ‘92, einn eigandi síóan.
Til sýnis aö Jökulhæð 1,210, Garðabæ,
sími 565 8586.
Joep Hanco, árg. ‘84, til sölu,er á 44”
dekkjum, einn nánast með öllu,
tilbúinn í fjallaferóir. Upplýsingar um
búnaó bílsins í síma 91-654092 eóa 91-
676631.
Nissan Patrol GR, árgerö 1991, tfl sölu,
dísil turbo, ekinn 93.000. Bíll í topp-
standi. Upplýsingar í síma 91-812275
milli kl. 10 og 14 í dag, 91-668032 og
989-64446 eftirkl. 14.
Range Rover ‘82, vél Dodge 318, NP gír-
kassi, NP 203 miflikassi, 4,71 drifhlut-
fóll, 38” dekk. Verð 530.000. Símar
611666 og 29000.
iér Ýmislegt
Þessl glæsilegi 5 manna Hilux, árg. ‘81,
er til sölu, allur yfirfarinn, ný 36” negld
dekk, V6 Buick. Tilboð óskast. Upplýs-
ingar í síma 91-44218.
Toyota double cab D ‘91 til sölu, ekinn
73 þús., upphækkaður, 33”. Toppein-
tak, engin skipti. Cherokee Chief ‘86,
upphækkaður, ný kúpling o.fl., auka-
dekk og felgur. Skipti á ódýrari.
S. 93-50042 og 985-37065.
Sendibílar
9 9*1 7*00
Verö aðeins 39,90 mín.
Utsala. Chevy Van 30, árg. ‘81,
nýupptekin 8 cyl„ sjálfsk., ekinn 46
þús. mílur frá upphafi, nýsprautaður,
splittað drif, fljótandi öxlar. Selst á að-
eins 220.000 staðgreitt. Uppl. í síma
557 4929 eða 985-37095.
Deildarstjóri ökunámsdeildar
Laus er til umsóknar staða deildarstjóra ökunáms-
deildar.
Umferðarráð mótar námskröfur fyrir allt ökunám í
landinu, sinnir eftirliti með ökunámi og sér um öku-
próf. Deildarstjóri ber faglega ábyrgð á skipulagningu
þessa starfs auk áætlanagerðar fyrir deildina og
mótun rannsókna á sviði ökunáms.
Ætlast er til þess að deildarstjóri hafi háskólapróf í
kennslu- eða sálarfræðum auk stjórnunarreynslu eða
sambærilega menntun og starfsreynslu.
Laun skv. launakerfi opinberra starfsmanna.
Uppl. veitir Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, deildar-
stjóri ökunámsdeildar, sími 562 2000.
Umsóknir berist Umferðarráði, merktar Óla H. Þórð-
arsyni framkvæmdastjóra, eigi síðar en 20. mars nk.
aUMFERÐAR
RÁÐ
MAN 26.422 6x6, árgerö. ‘92. Selst á
grind, snjómokstursbúnaður getur
fylgt. Ekinnum 115.000 km.
Bíla- & búvélasalan hfi, Egilsstöóum,
sími 97-12011, 97-11610, 97-11611,
fax 97-12010.
Vinnuvélar
Breski miöillinn og reikimeistarinn
Derek Coker er staddur hér á landi um
þesar mundir. Kemur í heimahús ef
óskaó er. Góður túlkur á staðnum.
Upplýsingar í síma 588 3527. Tarot,
áruteikning, dáleiðsla og reiki.
W Hópferðabílar
M. Benz OM 711 ‘86, 20 m., ekinn 240
þús., bíll í góðu standi. Einnig tfl sölu
M. Benz 1319 ‘76,23 m. (hálfkassabíll),
og 16 nr’ flutningarými m/stórum
hurðum, og VW Caravelle ‘93, 9
manna, ekinn 155 þús. Sími 96-42200.