Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1995, Qupperneq 50
58
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 1995
Afmæli
Sveinn Bjömsson
Sveinn Björnsson, listmálari og yf-
irrannsóknarlögreglumaöur,
Köldukinn 12, Hafnarfirði, verður
sjötugurámorgun.
Starfsferill
Sveinn fæddist á Skálum á Langa-
nesi og ólst þar upp til 1932 en eftir
það í Vestmannaeyjum. Hann lauk
hinu meira fiskimannaprófi frá
Stýrimannaskólanum í Reykjavík
1947, stundaöi nám við Listaháskól-
ann í Kaupmannahöfn veturinn
1956-57 og fór námsferðir vegna
myndlistar til ítahu 1957, Frakk-
lands 1966 og til Þýskalands 1985.
Sveinn hóf sjómennsku fjórtán
ára á vertíð í Vestmannaeyjum og
stundaði sjómennsku til 1953, fyrst
sem háseti og síðar stýrimaður.
Hann hóf störf hjá lögreglunni í
Hafnarfirði 1954, varð rannsóknar-
lögreglumaður þar er sú deild tók
til starfa 1966 og yfirmaður rann-
sóknarlögreglunnar í Hafnarfiröi
frá 1967.
Sveinn hefur málað myndir frá
1949. Hann hefur haldið fjölda
einkasýninga víða um landið og í
Danmörku og tekið þátt í samsýn-
ingum hér heima, í Bandaríkjunum
og í fiölda Evrópulanda.
Árið 1989 kom út bókin Veröld þín
með handskrifuðum ljóðum Matthí-
asar Johannessens og myndum
Sveins við ljóðin sem sýndar voru
1985.
Sveinn flutti tíl Reykjavíkur frá
Vestmannaeyjum 1947 og til Hafnar-
fiarðar 1948 þar sem hann hefur átt
heima síðan. Þá hefur hann jafn-
framt haft vinnustofu og annað
heimili í Krýsuvík frá 1974.
Sveinn er einn af stofnendum
Myndlistarfélagsins og sat í stjórn
þess og sýningarnefnd. Hann hefur
verið félagi í Félagi íslenskra mynd-
hstarmanna, FÍM, og er nú í Sam-
bandi íslenskra myndlistarmanna,
SÍM. Hann hefur skrifað greina í
Morgunblaðið um ýmis málefndi
undanfarin ár.
Fjölskylda
Sveinn kvæntist 24.7.1948 Sól-
veigu Erlendsdóttur, f. 9.3.1930, d.
3.1.1982, húsmóður. Hún var dóttir
Erlends Halldórssonar, brunaeftir-
litsmanns ríkisins, og Guðríðar
Sveinsdóttur húsmóður.
Vinkona og fórunautur Sveins er
Birgitta Engilberts snyrtifræðingur.
Börn Sveins og Sólveigar eru Er-
lendur Sveinsson, f. 18.12.1948,
kvikmyndagerðarmaður í Hafnar-
firði, kvæntur Ásdísi Egilsdóttur,
lektor við HÍ, og eru börn þeirra
Hlín, f. 7.8.1971, og Hallur, f. 19.7.
1974; Sveinn M. Sveinsson, f. 26.4.
1950, læknir í Svíþjóð, kvæntur
Guðrúnu Ágústu Kristjánsdóttur og
eru dætur þeirra Hildur, f. 5.4.1978,
Júlíana, f. 15.2.1990 og Sólveig, f.
13.2.1992 en sonur Sveins með Sig-
ríði A. Gunnlaugsdóttur er Ólafur
Árni, f. 2.11.1973; Þórður Heimir
Sveinsson, f. 20.5.1963, lögfræðingur
í Hafnarfirði, kvæntur Lilju Einars-
dóttur, nema við HÍ, og er þeirra
sonur Sveinn Andri Brimar, f. 5.2.
1989.
Alsystkini Sveins eru Kristín
Bryndís Björnsdóttir, f. 10.3.1924,
sjúkraliði í Reykjavík; Elín Björns-
dóttir, f. 25.7.1929, vefkona í Reykja-
vík; Sæmundur Björnsson, f. 30.10.
1927, flugumsjónarmaður í Hafnar-
firði; Knútur Björnsson, f. 1.5.1930,
læknir í Hafnarfirði.
Hálfsystkini Sveins, sammæðra:
Baldur Johnsen, f. 22.10.1910, fyrrv.
yfirlæknir í Reykjavík; Klara Ise-
barn, f. 26.2.1914, d. 29.10.1987; Ing-
ólfur Isebarn, f. 14.10.1915, verslun-
armaður í Reykjavík; Júlíana Ise-
barn, f. 20.1.1917, búsett í Reykjavík.
Hálfbróðir Sveins, sammæðra:
Völundur Björnsson.
Foreldrar Sveins voru Björn Sæ-
mundsson, f. 6.11.1898, d. 24.1.1979,
Sveinn Björnsson.
veiðivörður og innheimtumaður í
Reykjavík, og Sigurveig Sveinsdótt-
ir, f. 10.1.1887, d. 21.3.1972, hús-
freyja að Skálum á Langanesi og í
Vestmannaeyjum.
Björn og Sigurveig slitu samvist-
um 1930. Björn bjó síðustu árin á
Vatnsenda en Sigurveig lengst af í
Lukku í Vestmannaeyjum en hin
síðari ár í Reykjavík.
Sveinn tekur á móti gestum á
morgun, sunnudaginn 19.2. kl.
17.00-19.00 í veitingahúsinu Skút-
unni, Hólsbraut 3 í Hafnarfirði.
Menning
Strengleikur
Tónleikar á Myrkum músíkdögum voru haldnir á
Kjarvalsstöðum sl. miðvikudag. Stillti þar saman
strengi sína Bryndís Halla Gylfadóttir á sehóinu sínu.
Fyrsta verk tónleika hennar var Dans eftir Snorra
Sigfús Birgisson. Höfundurinn segir verkið vera í sex
köflum þar sem sá fyrsti sé lengstur og ryðji brautina
fyrir hina fimm sem ahir séu örstuttir. Undirrituðum
fannst raunar erfitt að heyra öll þessi kaflaskipti og
fremur að um kompóneraðar þagnir væri að ræða
milli „þáttanna". Hvað um það, verkið myndar sterka
heUd og er hér um íhugult verk að ræða, eins og svo
oft frá hendi Snorra. Áberandi er hægfara tónaröð upp
á við, með smábreytingum og náði Bryndís að skila
íhygh verksins strax frá fyrsta tóni. Hélt hún áheyr-
endum fóngnum í greip sinni, í þessum upphiminslega
dansi Snorra, allt til loka verksins.
Mild und (meistens) leise, eða „Milt og (mestmegnis)
hljótt" eftir Þorkel Sigurbjömsson var næst á efnis-
skránni. ÞorkeU samdi verkið árið 1973 og segir m.a.
frá því í efnisskrá að titill þess sé æði langsóttur en
vissulega er hér um söng að ræða, oftast mUdan og
hljóðan söng, en með stöku upphlaupum með tilheyr-
andi fótstampi. Bryndís lék verkið geysivel, með falleg-
um syngjanda og ákveðni. Talandi um syngjanda átti
það orð kannski sérstaklega við um næsta verk tón-
leikanna, svo og túlkun þess, en það var verkið Sellósó-
lofyrirsóíóselló eftir John Speight. Höfundurinn segir
Tónlist
Askell Másson
það vera örlitla kveðjugjöf til Bergljótar Jónsdóttur
þegar hún yfirgaf starf framkvæmdastjóra íslenskrar
tónverkamiðstöðvar á síðasta ári. Gæti hver sem er
veriö upp með sér að hafa fengið slíka kveðjugjöf.
Síöasta verk tónleikanna var Solitaire eftir Hafliða
Hallgrímsson. Verkið var upphaflega samið árið 1970
en síðan smábreytt allt tU ársins 1991 að það var end-
ursamið og tileinkað Gunnari Kvaran. Solitaire er stór
tónsmíð fyrir einleiksselló og er í fimm þáttum, Orati-
on, Serenade, Nocturne, Dirge og Jig. Þótt hér sé vissu-
lega um mjög vel skrifað verk fyrir tækni sellósins að
ræða virðist skáldgyðjan ekki alltaf hafa verið jafn
nærri höfundinum við sköpun þess. Þó má finna þar
bæði fallega og sannfærandi hluti og víst er að Brynd-
ís Halla bætti þar við enda lék hún verkið allt frábær-
lega.
Sviðsljós
Svanhvit Kristjánsdóttir, aðstoðarverkstjóri hjá Borgey, og Kristján Jónsson verkstjóri.
DV-mynd Júlía Imsland, Höfn
Skemmtilegra í loðnunni
Þau voru á fuUu sð ganga frá síð-
asta síldarfarminum hjá Borgey á
Höfn þegar fréttamann DV bar að
og síðan snerist allt um loðnuna.
Svanhvít sagði miklu skemmti-
legra að vinna í loðunni en sUdinni
- lyktin væri mun betri og svo er
spennan sem þessu fylgir meiri.
Það þarf að vinna sem mest þann
stutta tíma sem loðnuvertíðin
stendur.
Guðbjörg Bj örnsdóttir,
Laxagötu 4, Akureyri.
HörðurBjamasonbóndi,
Stóru-Más-
tungull, Gnúp-
verjahreppi.
Konahanser
AðalheiöurÖl-
afsdóttirhús-
móðir.
Þaueruað
heimanáaf-
mælisdaginn.
Björn Sigurðsson,
Höfabraut 1, Hvammstanga.
Ámi Kristinsson,
Kaplaskjólsvegi52, Reykjavik.
UUa Helene J. Berge,
Laugavegi67A, Reykjavík.
50ára
Gunnar Thorsteinsson,
Grundarlandi 3, Reykjavík.
Þórunn Blöndal,
Brekkugötu 7, Hafharfirði.
Þjóðbjöm Hannesson kennari.
Konahanser
Kristín Líndal
Gísladóttir
skrifstofumað-
ur.
Þórður Þorkelsson endurskoð-
andí,
Hörgshlíð 6,
Reykjavík,
verðursjötug-
ur á mánudag-
inn.
Eiginkona
hans er Svan-
hildur Guðna-
dóttir.
í ttiefni dagsins taka þau hjónin á
móti gestum í íþróttamiöstöð
íþróttasambands íslands í Laug-
ardal sunnudaginn 19.2. kl. 17.00,
Þóra Þorvaldsdóttir,
Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík.
Þjóöbjörn tek-
urámótigest-
um á heimili
sinuídagfrá
kl. 15.00.
Þyri Dóra Sveinsdóttir,
Engjaseli 83, Reykjavík.
40 ára
60 ára
Skúli Kristjónsson,
Svignaskarði, Borgarhreppi.
Skúlíer aðheiman.
Kristinn Karlsson,
Hamrabergi 12, Reykjavík.
Gunnar Jónsson,
Njálsgötu 84, Reykjavík.
Gerður Jónsdóttir,
Reykási24, Reykjavík.
SvanhvítM. Sveinsdóttir,
Víkurbraut 2, Vík í Mýrdal.
Helgi Bjarni Óskarsson,
Freyvangi 17, Hellu.
Gunnhildur Ingólfsdóttir,
Logafold 192, Reykjavík.
Stefán Egilsson,
Mýrum 16, Patreksfirði.
Bryndís Hákonardóttir,
FreyjuvöUum 4, Keflavík.
Björn Jóhann Brandsson,
Öldutúni 16, Hafnarfirði.
Birna Hilmarsdóttir,
Fífumýrí 1, Garðabæ.
Ingvar Geirsson,
Blómvangi 17, Hafnarfiröi.
Kristín Vermundsdóttir,
Nesbala 44, Seltjarnamesi.
563 2700
- skila
árangrí